Lesbók Morgunblaðsins - 18.11.2006, Side 18
Morgunblaðið/Kristinn
Jökull Valsson „Þetta átti að vera alvöru bók sem fjallaði um alvöru hluti.
Saga sem gerist í bláköldum veruleikanum,“ segir Jökull um nýja bók sína.
Eftir Hávar Sigurjónsson
Havars@simnet.is
J
ökull Valsson situr í Sví-
þjóð og stundar í vetur
nám í margmiðlun við
Stokkhólmsháskóla.
Hann er 25 ára gamall
og sendi á dögunum frá
sér Skuldadaga, sína aðra skáld-
sögu, hin fyrri, Börnin í Húmdöl-
um, kom út fyrir tveimur árum og
vakti athygli fyrir fantasíukennda
frásögn af börnum í stóru fjölbýlis-
húsi sem komast á snoðir um ill-
skeytta veru er býr í veggjum
hússins. „Ég var strax stimplaður
hrollvekju-fantasíuhöfundur og
vildi með þessari nýju bók hrista af
mér þann stimpil með því að skrifa
eitthvað allt öðruvísi,“ segir Jökull
og bætir því við að tekið sé heldur
minna mark á höfundi sem bindur
bagga sína hnútum hrollvekjunnar.
Hann segir að hann hafi kannski
aldrei ætlað sér beinlínis að verða
rithöfundur en þó hafi það ekki
komið neinum á óvart sem þekkir
til hans. „Ég var búinn að skrifa
tvær skáldsögur á undan Börn-
unum í Húmdölum, sögur sem
munu aldrei koma út. Ég held að
maður þurfi að skrifa eins og tvær
bækur áður en maður nær al-
mennilegum tökum á þessu. Ég
var tvö ár að skrifa Börnin og
Skuldadagar tóku svipaðan tíma.“
Þú settir þér fyrir að skrifa allt
öðruvísi bók. Hvernig öðruvísi?
„Þetta átti að vera alvöru bók
sem fjallaði um alvöru hluti. Saga
sem gerist í bláköldum veru-
leikanum.“
Skuldadagar er saga Matta,
gæfulítils eiturlyfjasala og fíkils í
Reykjavík vorra daga, sem er á
þönum við að selja dóp upp í stór-
ar skuldir sem hann hefur safnað
yfir sig og á ekki von á góðu nema
honum takist að borga á réttum
tíma. Sagan gerist á nokkrum dög-
um, frásögnin er hröð og spenn-
andi, margar persónur koma við
sögu og uppgjörið í lokin er væg-
ast sagt krassandi, þótt Matti sjálf-
ur gangi engan veginn frá því með
pálmann í höndunum; þvert á móti
gæti niðurstaðan verið að hann
hefur ekkert lært af þeirri reynslu
sem sagan ætti að skila honum.
Umgjörðin er raunsæ og staðir
kunnuglegir en kannski er þetta þó
ekkert minni fantasía en fyrri bók-
in?
„Þetta er auðvitað skáldsaga og
fantasía sem slík. Það er ekkert í
sögunni sem á sér fyrirmyndir eða
stoðir í raunveruleikanum. Og svo
er heldur ekkert til sem heitir
„undirheimar Reykjavíkur“. Þetta
er eitt samfélag sem allir búa í og
þar er ekkert „undirsamfélag“ og
„yfirsamfélag“. Matti á t.d. ósköp
venjulega mömmu og hann dropp-
ar inn í fjölskylduboð á meðan
hann er á æðisgengnum flótta und-
an bæði löggunni, handrukkurum
og öðrum dópsölum. Ég vildi skrifa
bók sem fjallar um hugarástandið í
samfélaginu á Íslandi í dag. Það
hugarástand sem verður til í sam-
félagi sem hugsar ekki um annað
en peninga og efnisleg gæði. Öll
samúð er horfin úr samskiptum
fólks og allt er verðlagt til peninga.
Aðalpersónan Matti er litaður af
samfélaginu og samfélagið speglast
í honum.“
Matti hefur býsna ákveðnar
skoðanir á samfélaginu og lætur
þær óspart í ljós. Er hann að viðra
þínar eigin skoðanir?
„Nei, alls ekki. Ég er í rauninni
mjög ósammála honum um flest.
En eitt af því sem ég var að reyna
að gera með þessari persónusköp-
un var að gera hinn svokallaða
„fíkninefnadjöful“ mannlegan. Sýna
persónuna á bak við hugmyndina.
Mér hefur fundist umræðan um
fíkniefni á Íslandi vera á mjög ein-
földum nótum. Ég vil gjarnan að
lesandinn fá samkennd með Matta
en kannski ekki samúð. Hann er
ekki góð manneskja en hann er
heldur ekki alslæmur.“
Þú leggur honum langa og sann-
færandi ræðu í munn um kosti
þess að lögleiða kannabisefni.
Heldurðu að lesendur falli fyrir
röksemdum hans?
„Nei, ég á ekki von á því. Ég
held að heildaráhrif sögunnar séu
sterkari en áhrifamáttur einstakra
kafla hennar. Málflutningur Matta
er dæmi um þær leiðir sem glæpa-
menn fara til að réttlæta afbrot
sín. Og mitt hlutverk sem höfundar
er að reyna að koma hugsun hans
til lesandans á sem trúverðugastan
og einlægastan hátt. Mig langaði
hvorki til að skrifa bók sem hæfi
fíkniefnaneyslu til skýjanna né bók
sem hægt yrði að nota sem tæki
við forvarnastarf gegn fíkniefnum.
Mig langaði einfaldlega til að lýsa
hugarfari einstaklings í samfélagi
sem er á kafi í neyslu af öllu tagi.“
Jökull segir að sviðsetning sög-
unnar í reykvíska fíkniefnaheim-
inum sé nánast aukaatriði. „Það er
bara góð staðsetning fyrir skáld-
sögu sem fjallar um hugarfarið
sem ríkir í samfélaginu.“
Þú byggir söguna mjög mark-
visst upp með stígandi og fléttu og
miklu lokauppgjöri. Frásögnin er
myndræn og stundum minnir hún
á kvikmynd; spennumynd með tals-
verðum hasar, bílaeltingaleik og of-
beldi. Hugsarðu þetta sem kvik-
mynd?
„Ég get alveg séð fyrir mér að
þetta gæti orðið ágætis kvikmynd
en ég er ekki að hugsa beinlínis
um það þegar ég er að skrifa. En
kvikmyndir hafa haft mikil áhrif á
mig og sjálfsagt skilar það sér í því
hvernig ég skrifa. Ég hef gaman af
sögum með stígandi og spennu og
vil hafa plott í sögunum mínum.
Mér hefur fundist vanta plott í ís-
lenskar skáldsögur og er að reyna
að hefja það til vegs. Mér finnst
jafnvel eins og menn líti niður á
plott og séu hafnir yfir slíkt. En
mér finnst það mikilvægur hluti af
skáldsagnagerð og afþreyingargildi
mætti oft vera dálítið meira án
þess að það þurfi að koma niður á
gæðunum. Samt er ég ekki hrifinn
af hefðbundnum glæpasögum sem
ganga algjörlega upp í lokin, þar
sem allt er leyst og vondi gæinn
annaðhvort dauður eða á leiðinni í
fangelsi. Það er fantasía. Hrein
fantasía og í þeim skilningi eru
Skuldadagar mjög raunsæ saga.“
Samfélag
á kafi í neyslu
Skuldadagar nefnist önnur skáld-
saga Jökuls Valssonar en hann
hlaut góðar viðtökur fyrir þá
fyrstu sem hét Börnin í Húmdöl-
um sem kom út 2004. Um Skulda-
daga sagði gagnrýnandi Morg-
unblaðsins nýlega:
„… bráðskemmtileg bók sem held-
ur fínu jafnvægi milli tilgerð-
arleysis og húmors en gerir samt
aldrei lítið úr hrottaskapnum og
siðleysinu sem einkennir veruleika
fíkniefnaheimsins.“ Skuldadagar
fjallar um íslenska eiturlyfjaheim-
inn.
»Ég vildi skrifa bók
sem fjallar um hug-
arástandið í samfélag-
inu á Íslandi í dag. Það
hugarástand sem verð-
ur til í samfélagi sem
hugsar ekki um annað
en peninga og efnisleg
gæði. Öll samúð er horf-
in úr samskiptum fólks
og allt er verðlagt til
peninga.
18 LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
lesbók bækur