Morgunblaðið - 02.03.2006, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 02.03.2006, Blaðsíða 24
Daglegtlíf mars O kkur langaði til að gifta okkur í einhverju útlandinu og Ísland varð fyrir valinu af því hér voru allir svo vinalegir og afslappaðir sem við sendum fyrirspurnir til. Eins var ekkert flókið að fá það í gegn að láta pússa sig saman hér, á meðan í öðrum löndum var það heilmikil skriffinnska og endalausar kröfur um pappíra og skjöl,“ segja Bretarnir James og Eve Barisic þar sem þau sitja saman á kaffihúsi í miðbæ Reykjavíkur á papp- írsbrúðkaupsdeginum sínum, en þau eru ein- mitt komin hingað aftur til að halda upp á að ár er liðið frá því þau gengu í hjónaband hjá sýslumanninum í Reykjavík. „Við höfðum hvorugt komið til Íslands áður og þekktum engan hér, en við sjáum ekki eftir að hafa valið þetta land sem brúðkaupslandið okkar. Við höfum átt virkilega góðar stundir hér, fólkið er svo almennilegt og við elskum Sundhöllina í Reykjavík, förum þangað á hverjum degi.“ Ofdekruð kanína í nýja húsinu Þau James og Eve eru greinilega mjög ást- fangin og hlýleikinn sem einkennir samskipti þeirra fer ekki framhjá neinum. Þau hlæja líka mikið og gleði þeirra er smitandi, breski húmorinn undirliggjandi. Þegar þau eru spurð að því hvað á daga þeirra hafi drifið þetta fyrsta ár í hjónabandinu segjast þau ekki hafa gert mikið annað en að dást hvort að öðru. „Jú, við keyptum okkur fallegt hús strax eftir að við giftum okkur með góðum garði og svo fengum við okkur kanínu,“ segja þau og líta sposk hvort á annað. „James vildi hund, af því hann átti hund þegar hann var lítill, en mig bænum og stunda sundið sér til ánægju og yndisauka. Þau fóru reyndar hinn gullna hring, á Þingvelli, Gullfoss og Geysi, þegar þau komu hingað í fyrra og núna gerðu þau sér ferð í Bláa Lónið. „Við hittum Yoko Ono þar og sonur hennar var svo vinsamlegur að taka mynd af okkur með henni. Þetta gerir pappírsbrúðkaupsferðina okkar vissulega mjög eftirminnilega og það var frábært hvað hún Yoko var alþýðleg og gaf sér tíma fyrir þessa myndatöku í tilefni brúðkaupsafmælis okkar.“ Þau gista aftur á Hótel Klöpp, rétt eins og í brúðkaupsferðinni fyrir ári síðan, og fengu meira að segja sama herbergið. „Okkur þykir vænt um að þau mundu eftir okkur á hótelinu og tóku sérstaklega vel á móti okkur.“ Að kvöldi brúðkaupsafmælisins ætluðu James og Eve að fara og skoða norðurljósin og horfa dreymin til himins með hjörtun full af fal- legum tilfinningum. Og þau eru harðákveðin í að koma aftur til landsins í norðri þar sem ást þeirra var innsigluð. háttsett hjá bæjarstjórninni þar sem þau búa, en þau kynntust einmitt í vinnunni fyrir fjór- um árum. „Þá unnum við bæði við ráðgjöf og vorum saman í stórum vinnuhóp og fyrstu kynni okkar voru í gegnum tölvupóst og ein- göngu tengd vinnunni. En þegar við hittumst í fyrsta sinn var það ást við fyrstu sýn. Við fór- um saman út í fyrsta sinn hinn 28. febrúar og þess vegna völdum við þann dag sem brúð- kaupsdaginn okkar. Við fengum kirkjulega blessun á hjónaband okkar heima á Englandi á afmælisdegi James, 19. maí, og þá héldum við líka brúðkaupsveislu. Þannig að við eigum eiginlega tvo brúðkaupsdaga á hverju ári,“ segir Eve og hlær og James segist örugglega aldrei klikka á því að muna seinni daginn, þeg- ar þau fengu blessunina, því hann gleymi tæp- lega sínum eigin afmælisdegi. Hittu Yoko Ono í Bláa Lóninu Turtildúfurnar James og Eve eru nægju- söm og ekkert að þvælast of mikið út fyrir Reykjavík, kunna ágætlega við sig í mið- langaði meira í kanínu og nú er svo komið að honum þykir vænna um kanínuna en mér. Þetta er mikil ágætis kanína sem heitir Google, af því við fengum hana á þeim degi sem samnefndur leitarvefur átti sjö ára af- mæli. Google er mjög gæfur og hann situr stundum á öxlinni á James eins og páfagaukur og sleikir á honum eyrað,“ segir Eve og hlær. Kanína þessi er algerlega ofdekruð að hennar sögn, fær að vappa frjáls um allt í nýja húsinu og svo er hún úti í garði að viðra sig á daginn þegar þau hjónin eru í vinnunni. Getur pantað pylsu með öllu á íslensku „Hvernig heldurðu að þetta verði þegar við eignumst börn? James á eftir að gjörspilla þeim með dekri,“ segir Eve og horfir ást- úðlega á eiginmanninn, en þau stefna að því að eignast sitt fyrsta barn fljótlega og eru búin að ákveða að gefa öllum börnum sínum ís- lenskt millinafn. „Íslensk nöfn hljóma svo fal- lega og þau hafa líka mörg hver flotta merk- ingu. Með því að gefa börnum okkar íslensk nöfn tengir það þau og okkur enn frekar við landið þar sem við giftum okkur.“ Þeim finnst íslenskan hljómfagurt tungumál og James er þegar búinn að læra fimm orð í ís- lensku, sem honum finnst þó alls ekki nógu góður árangur, þó svo hann hafi aðeins komið tvisvar til Íslands með árs millibili, eina viku í senn. „Ég á auðvelt með að læra ný tungumál, tala frönsku, dönsku, rússnesku, spænsku og ítölsku, en íslenskan er virkilega erfitt tungu- mál að læra, ég finn það á þessu brölti mínu við að reyna það. En ég get pantað mér pylsu með öllu á íslensku.“ Amor leyndist í vinnunni James starfar sem lögfræðingur en Eve er  PAPPÍRSBRÚÐKAUP | James og Eve Barisic giftu sig á Íslandi fyrir ári Morgunblaðið/RAX Dagurinn þeirra Eve og James var bjartur og fagur og Sólfarið þótti þeim heillandi listaverk. Ætla að gefa börnunum sínum íslensk millinöfn Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is „ÞETTA er fyrsta húsgagnið sem ég eignaðist og hann var hundrað ára gamall þegar ég fékk hann,“ segir Ester Elíasdóttir sem rekur m.a. verslun með eldri og heldri borðbúnað heima hjá sér í Skipa- sundi, þegar hún er beðin að segja frá þeim hlut sem henni er kær- astur af öllum. „Ég fékk skápinn í fermingargjöf frá foreldrum mín- um, sem keyptu hann hérlendis í fornmunaverslun og hann var ætl- aður undir nótur, ég var að læra á fiðlu á þeim tíma.“ Trúlega hefur það nú ekki verið algengt þá og er það vart núna að antíkhúsgögn séu gefin í ferming- argjöf. „Þetta var auðvitað mjög sérstakt en ég var mjög ánægð með hann því að þetta er mjög fal- legt húsgagn og ég hef alltaf verið hrifin af öllu svona gömlu.“ Ester var fermd fyrir um þrjátíu árum. „Skápurinn hefur fylgt mér alla tíð síðan,“ segir Ester, „í gegnum fjölmarga flutninga, þar á meðal til útlanda. Frá Frakklandi kom hann svolítið skemmdur og þó að það hafi verið gert við hann og það sjáist ekkert stefni ég á að láta gera hann alveg upp í upp- runalegt form.“ Skápur þessi hefur þjónað ýms- um hlutverkum. „Ég hef geymt í honum nótur, á tímabili voru í honum styttur og smádót, eftir það fallegu glösin mín, dúkar hafa átt sinn stað þarna og síðasta hlutverkið sem hann tók við, þeg- ar ég fór að búa með manninum mínum, var að vera barskápur.“ Ester segir að þetta sé í rauninni eina húsgagnið sem skiptir hana einhverju máli á heimilinu. Gömul skál frá ömmu „Þessa fékk ég úr búi ömmu minnar,“ segir hún spurð um skál- ina sem sést ofan á skápnum. „Hún er ítölsk, frá Capodimonte. Það eru framleiðendur postulíns- skrautmuna sem eru alltaf rosa- lega mikið skreyttir, gjarnan með englum og krúsídúllum. Fólki finnst þetta annaðhvort forljótt eða ferlega flott og ég er í seinni hópnum. Skálin féll ekki í kramið hjá öðrum í fjölskyldunni en ég var mjög glöð að fá hana í mitt hús.“  HLUTUR MEÐ SÖGU | Hundrað ára gömul fermingargjöf Skápurinn fyrir nóturnar er núna barskápur Morgunblaðið/Ásdís Ester Elíasdóttir situr við hliðina á skápnum sem upphaflega var ætlaður sem nótnaskápur. Síðan hefur hann gegnt ýmsum hlutverkum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.