Morgunblaðið - 02.03.2006, Page 26
26 FIMMTUDAGUR 2. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF Í MARS
HJÓNIN Haukur Magnússon og
Soffía Marteinsdóttir, sem eiga og
reka Ávaxtabílinn, hafa nú fært út
kvíarnar og opnað heilsusjoppuna
„Fit Food“ á Nýbýlavegi 28 í Kópa-
vogi. Þau útiloka ekki að fleiri slíkar
sjoppur verði opnaðar taki neytendur
þessu framtaki fagnandi. Sjoppunni
er fyrst og fremst ætlað að höfða til
hins vinnandi fólks, sem má ekki vera
að því að bíða lengi eftir matnum
enda er allt tilbúið á staðnum. Við-
skiptavinirnir eiga því að geta skotist
inn og valið úr úrvali af hollustu og
tekið með sér í bílinn í stað þess að
belgja sig út af sjoppufæði, sem fæst
víða og er ekki jafnhollt.
Á boðstólum er meðal annars að
finna ávaxta- og grænmetisbakka af
ýmsu tagi, hollar langlokur og sam-
lokur, grænmetissúpu, orkudrykki,
orkustangir, að ógleymdum skyr-
"boost"-drykkjum.
Rétt um tvö ár eru síðan þau
Haukur og Soffía stofnuðu fyrirtæki í
kringum Ávaxtabílinn og segja að
vinsældir hans fari sívaxandi. Um
þrjú hundruð fyrirtæki kaupa ávexti í
áskrift. Almenningur getur auk þess
pantað vörur hjá Heimilisbílnum í
gegnum netverslun og svo keyrir
Brauðbíllinn út hollar kökur, brauð
og létt salöt til fyrirtækja, sem þess
óska, á föstudögum, en það færist í
vöxt að fyrirtæki gleðji starfsmenn
sína á þennan hátt í lok vinnuviku, að
sögn Hauks.
Nýja heilsusjoppan er opin 11.00 til
17.00.
HOLLMETI| Heilsusjoppa í Kópavogi
Morgunblaðið/Sverrir
Hjónin Haukur Magnússon og Soffía Marteinsdóttir, eigendur
Heilsusjoppunnar, ásamt dótturinni Gabríelu.
Heilsumúffur.
join@mbl.is
TENGLAR
....................................................
www.avaxtabillinn.is
Grænmetisbakk-
ar og skyrdrykkir
Bónus
Gildir 2. mars–5. mars verð nú verð áður mælie. verð
Ernoz pizza salami, 350 gr. ................... 89 129 254 kr. kg
NF ýsuflök roð og beinlaus, frosin .......... 599 799 599 kr. kg
NF lúðubitar, frosnir .............................. 999 0 999 kr. kg
NF laxabitar, beinlausir ......................... 899 1199 899 kr. kg
KF blandað hakk .................................. 679 799 679 kr. kg
Búkonu reyktur lax í flökum ................... 998 1345 998 kr. kg
Euroshopper súrsæt sósa, 500 gr.......... 98 0 196 kr. kg
Euroshopper bakaðar baunir, 420 gr. .... 29 0 69 kr. kg
Euroshopper tekex, 200 gr.................... 39 0 195 kr. kg
Euroshopper eyrnapinnar, 200 stk......... 59 0 59 kr. pk.
Fjarðarkaup
Gildir 2. mars–4. mars verð nú verð áður mælie. verð
Frosið lambalæri.................................. 898 998 898 kr. kg
FK bayonne skinka ............................... 998 1468 998 kr. kg
Svínabógur úr kjötborði ........................ 349 548 349 kr. kg
Ferskur kjúklingur 1/1.......................... 489 698 489 kr. kg
4 hamborgarar m/brauði...................... 298 438 75 kr. stk.
Svínalundir úr kjötborði ........................ 1598 1898 1598 kr. kg
Vatnsmelónur ...................................... 95 139 95 kr. kg
FK brauð, 770 gr. ................................. 95 129 120 kr. kg
Homeblest, 2 fyrir 1 ............................. 95 190 48 kr. stk.
Jarðarber 250 gr. box ........................... 159 298 640 kr. kg
Hagkaup
Gildir 2. mars–5. mars verð nú verð áður mælie. verð
DDV Ping vanillu íspinnar 720 ml .......... 459 659 640 kr. ltr
DDV ís súkkulaði 1ltr. ........................... 459 559 459 kr. ltr
DDV ís vanillu, 1 ltr............................... 459 559 459 kr. ltr
Anton Berg ísterta, 1,5 ltr...................... 899 1099 600 kr. kg
Hatting fibre sandwich, 8 stk................. 369 0 369 kr. stk.
Hatting ciabatta m/pesto ..................... 279 0 279 kr. stk.
Jensens kjúklingaréttur sweet-sour ........ 499 0 1000 kr. kg
Glyngör síld í bitum m/lauk .................. 159 0 1222 kr. kg
Glyngör síld sinnep, í bitum .................. 159 0 1222 kr. kg
Krónan
Gildir 2. mars–5. mars verð nú verð áður mælie. verð
Grísahakk Bautabúrs............................ 589 841 589 kr. kg
Grísakótilettur Bautabúrs...................... 959 1599 959 kr. kg
Grísagúllas Bautabúrs .......................... 959 1599 959 kr. kg
Svínasnitsel Bautabúrs......................... 959 1599 959 kr. kg
Kindabjúgu, 389 gr. ............................. 164 219 422 kr. kg
Skinka, 279 gr..................................... 160 229 573 kr. kg
Fruity o’s morgunkorn, 425 gr. .............. 199 229 199 kr. pk.
Charmin salernispappír, 24 stk. ............ 998 1199 998 kr. pk..
Myllu Fjölkornabrauð, 770 gr. ............... 99 238 99 kr. stk.
Frón heimiliskex 500 gr. ....................... 199 239 199 kr. pk.
Kaskó
verð nú verð áður mælie. verð
Humar 500 gr...................................... 399 599 798 kr. kg
Ísfugl kjúklleggir, magnpakkn. ............... 399 599 399 kr. kg
Borg Grísabógur léttreyktur, úrbein. ....... 599 1198 599 kr. kg
Smá rækja .......................................... 199 299 199 kr. stk.
Rauðvíns svínakótilettur ....................... 959 1598 959 kr. kg
Mccain Pizzur, risa ............................... 499 699 499 kr. stk.
Pepsi, 2 ltr........................................... 99 171 99 kr. stk.
DF Biksemad, 600 gr. .......................... 149 299 149 kr. stk.
WC pappír 6 rl. .................................... 99 199 99 kr. stk.
Myllu Hungangskaka............................ 249 389 249 kr. stk.
Nettó
verð nú verð áður mælie. verð
Grísabógur reyktur, úrb. ........................ 484 967 484 kr. kg
Helgarlamb ......................................... 1311 1748 1311 kr. kg
Goði Skinka í bunka............................. 179 359 179 kr. kg
Nætursöltuð ýsuflök ............................. 559 699 559 kr. kg
Medisterpylsa, reykt ............................. 414 828 414 kr. kg
Matf. kjúklvængir, magnkaup ................ 199 299 199 kr. kg
Matf. kjúkllæri, magnkaup .................... 399 599 399 kr. kg
Ísfugl kjúklleggir, magnpakkn. ............... 395 599 395 kr. kg
Bautab. Dönsk sælkerasteik ................. 849 1299 849 kr. kg
Booster þvottaefni, 3 kg. ...................... 199 399 66 kr. kg
Nóatún
Gildir 2. mars–5. mars verð nú verð áður mælie. verð
Lambageiri m/sælkerafyllingu............... 2498 2998 2498 kr. kg
Lambalundir Toskana ........................... 2998 3590 2998 kr. kg
Móa kjúklingur ferskur 1/1 ................... 398 699 398 kr. kg
Ítalskt salat, 200 gr.............................. 98 169 490 kr. kg
Napólí skinka – Goða ........................... 3452 4931 3452 kr. kg
Ítalskt salami – Goða............................ 1581 2259 1581 kr. kg
Rana Spaghetti ferskt, 250 gr. .............. 153 219 153 kr. pk.
Tertelloni pasta m. osti/spínat, 250 gr. .. 279 398 279 kr. pk.
Rana Tagliatelle pasta, ferskt, 250 gr. .... 160 229 160 kr. pk.
Fiourucci Prosc. Parma skinka 80 gr. ..... 440 629 5500 kr. kg
Samkaup/Úrval
verð nú verð áður mælie. verð
Gourmet Hunangsofnsteik .................... 1189 1698 1189 kr. kg
Helgargrís m/indverskum hætti ............. 1224 1748 1224 kr. kg
Old West grísarif .................................. 1146 1637 1146 kr. kg
Franskar grillpylsur............................... 629 898 629 kr. kg
Matf. kjúklleggir magnkaup................... 389 599 389 kr. kg
Blandað hakk, naut og svín ................... 605 806 605 kr. kg
Lays flögur, 200 gr. 4 teg. ..................... 149 249 149 kr. stk.
Frissi Fríski 2 ltr, 3 teg. ......................... 149 213 149 kr. stk.
HELGARTILBOÐIN | Neytendur@mbl.is
Grillpylsur og vatnsmelónur
ÓHEIMILT er með öllu að aug-
lýsa eða selja vöru sem lífræna
nema viðkomandi vara sé vottuð
af viðurkenndri vottunarstofu. „Á
markaðinn flæða hins vegar
vörur, sem merktar eru ýmsum
umhverfisvænum nöfnum á ýms-
um tungumálum, en erfitt getur
reynst fyrir hinn almenna neyt-
anda að ganga úr skugga um
hvort viðkomandi vörur eru í
reynd lífrænt vottaðar eða sigla
undir fölsku flaggi sem slíkar,“
segir Ólafur Dýrmundsson, ráðu-
nautur hjá Bændasamtökum Ís-
lands, sem situr í Evrópunefnd
IFOAM, alþjóðasamtaka lífrænna
framleiðenda.
Misjafnt er hvort vott-
unarstofur eru reknar sjálfstætt
eða af hinu opinbera, en yfirleitt
eru þær aðilar að IFOAM. „Það
er hins vegar ekkert eftirlit haft
með því hérlendis hvort lífrænar
vörur á markaði eru í reynd líf-
rænar. Slíkt eftirlit er vitaskuld
nauðsynlegt, t.d. af hálfu landbún-
aðar- og viðskiptaráðuneytis, því
það finnast hvar sem er menn,
sem eru að reyna að koma sér inn
á markaði með óheilindum. Þær
erlendu lífrænt vottuðu vörur,
sem fluttar eru hingað til lands,
eru vottaðar af erlendum vott-
unarstofum, en engar opinberar
tölur virðast vera til yfir það hvað
nákvæmlega verið er að selja hér
eða hversu mikið. Alls staðar í ná-
grannalöndunum liggja slíkar töl-
ur á takteinum, en hér verðum við
bara að giska. Neytendur þurfa
að hafa tryggingu fyrir því að þeir
fái réttar vörur. Ég held að mér
sé þó óhætt að fullyrða að vörur
séu nokkuð öruggar komi þær
vottaðar sem lífrænar frá Evrópu
og Bandaríkjunum. Það finnast
auk þess dæmi um að framleið-
endur hafi reynt að villa um fyrir
neytendum. Nefna má vöruheitið
„organics“, sem er fleirtöluorð yfir
„lífrænt“ og framleiðandi ákvað að
skella á hreinlætisvörur, sem eiga
ekkert skylt við lífræna fram-
leiðslu enda hafa staðið yfir mála-
ferli vegna þessa,“ segir Ólafur.
MATVARA | Innflutningur á lífrænt vottuðum vörum er sífellt að aukast
Skortir eftirlit með
lífrænum vörum
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
Grísa- og svínakjöt er
greinilega málið fyrir
þessa helgi. Það er víða á tilboði, t.d. í
Fjarðarkaupum, Krónunni, Kaskó, Nettó og
Samkaupum. Buddan mælir með því að nú fari
þeir sem eru fyrir svínakjöt af stað og kaupi til
dæmis í frystikistuna svínakótilettur, grísa-
gúllas, helgargrís eða grísahakk. Reyktur
grísabógur er á kostakjörum í Nettó á 484
krónur kílóið en var áður á 967 krónur. Nú ef
fólk er ekki fyrir svínakjötið þá er ferskur kjúk-
lingur á tilboði í Nóatúni á 398 krónur kílóið sem
venjulega er seldur á 699 krónur kílóið. Í
Bónus er líka boðið upp á ýsuflök sem eru
roð- og beinlaus og kosta 599 krónur kílóið
en voru á 799 krónur.
Vatnsmelónurnar eru náttúrlega bráðhollar og þær fást í
Fjarðarkaupum á 95 krónur kílóið um helgina. Það er um að
gera að belgja sig út af þeim, þær eru hitaeiningasnauðar og
svo innihalda þær meðal annars lýkópen en tilgátur eru uppi
um að lýkópen veiti vörn gegn hjartasjúkdómum og jafnvel
einhverjum tegundum af krabbameini.
Grísakjöt í frystinn
BUDDAN
LÍFRÆNT vottaðar vörur á
markaði eru merktar sem líf-
rænar á ýmsum tungumálum.
Hér eru nokkur evrópsk
dæmi:
Spænska: ecológico
Danska: ökologisk
Gríska: biologikó
Enska: organic
Franska: biologique
Ítalska: biologico
Hollenska: biologisch
Portúgalska: biológico
Finnska: luonnonmukainen
Íslenska: Lífrænt
Norska: ökologisk
Sænska: ekologisk
Þýska: ökologisch
Austuríska: biologisch
Hverjar eru
merkingarnar?