Morgunblaðið - 02.03.2006, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. MARS 2006 27
DAGLEGT LÍF Í MARS
Spurning: Lesandi hafði samband
og vakti athygli á því að nú væru
komnir á markaðinn fetaostar frá
tveimur íslenskum framleiðendum,
annars vegar frá Mjólkursamsölunni
í Búðardal og hinsvegar frá Mjólku.
Hann velti fyrir sér hver munurinn
væri á næringarinnihaldi og spurði
hvort verðið væri sambærilegt hjá
MS og Mjólku miðað við magn af
hreinum osti.
Svar: Hjá Nóatúni fengust þær
upplýsingar að fimm tegundir af
fetaostum væru á markaðnum frá
Mjólku og kostuðu þrjár þeirra 254
kr. og tvær 275 krónur. Þrjár teg-
undir væru á markaði frá MS og
kostuðu tvær tegundanna 309 krón-
ur en sú þriðja kostaði 318 kr.
Á umbúðunum kemur fram magn
af ostum í öllum tilfellum. Nettó-
þyngd íslensks fetaosts í kryddolíu
frá MS er 250 grömm, þar af vegur
osturinn 140 g og kryddolían 110 g.
Fetaosturinn frá Mjólku kemur
hinsvegar í 200 gramma pakkn-
ingum, þar af vegur osturinn 100 g.
Fetaostur frá MS er 21% feitur og
inniheldur 1.470 mg af natríum/100
g sem svarar til 3,7 g af salti í hverj-
um 100 grömmum. Til samanburðar
eru 1.200-1.300 mg af natríum í
venjulegum brauðosti og er fetaost-
urinn því heldur saltari, að sögn
Hólmfríðar Þorgeirsdóttur hjá Lýð-
heilsustöð. Fetaostur frá Mjólku er
til bæði 18% og 5% feitur sem þýðir
að ýmist eru 18 g eða 5 g af fitu í
hverjum 100 grömmum af osti. Að
sögn Hólmfríðar er það mjög já-
kvætt þar sem fitan í fetaostinum er
að stærstum hluta mettuð fita og því
er gott að hafa val um léttostinn.
Fengi ekki skráargatsmerkingu
Osturinn frá Mjólku liggur að
hluta til í saltlegi, en ekki kemur
fram á umbúðunum hversu mikið
saltið er. Í öllum tilfellum er um
fremur saltríkar vörur að ræða, en
til samanburðar má nefna að sam-
kvæmt ráðleggingum ætti saltneysl-
an ekki að fara yfir 6-7 g á dag þar
sem of mikil saltneysla eykur líkur á
háþrýstingi. Að sögn Hólmfríðar
fengi enginn þessarra osta skráar-
gatsmerkinguna „nyckelhålet“ hjá
Svíum sem er merki sem sett er á
vörur þar í landi til að gera neyt-
endum auðveldara fyrir að velja
heilsusamlegar vörur með tilliti til
fitu, trefja, salts og sykurs. Til að
ferskir ostar fái slíka merkingu má
fitan ekki fara yfir 5 g/100 g og natr-
íum ekki yfir 350 mg/100 g.
SPURT OG SVARAÐ UM NEYTENDAMÁL
Hvað kostar fetaosturinn?
MEÐ æ fleiri lággjaldaflug-
félögum og tilboðsvefjum á net-
inu er hægt að gera góð kaup á
flugmiðum fyrir sumarfríið. Á vef
Aftenposten er neytendum leið-
beint um frumskóg ferðavefja á
netinu í leit að ódýrum flug-
miðum og gistingu.
Þar kemur fram að vefurinn
Whichbudget er einn af þeim
betri og einnig að norska flug-
félagið Widerøe hafi af hinu virta
tímariti The Economist verið
kjörin ein af tíu bestu net-
ferðaskrifstofum heims. Af hót-
elleitarvefjum á netinu mælir Aft-
enposten t.d. með þýska vefnum
Hotel Reservation Service,
hrs.de, en vefurinn var nýlega
valinn sá besti fyrir fólk á við-
skiptaferðalögum af tímaritinu
Business Traveller. Ítalski vef-
urinn Venere er einnig talinn
góður en þar er oft hægt að sjá
ummæli hótelgesta um reynslu
sína af viðkomandi hótelum og
getur það verið hjálplegt þegar
ákvörðun er tekin. Aftenposten
mælir með því að skoða vefi ein-
stakra hótela og bendir sér-
staklega á vef hótelkeðjunnar Le
Meridien sem rekur lúxushótel
víða um heim og m.a.s. hægt að
finna tilboð um tveggja manna
herbergi á allt niður í 70 evrur á
fimm stjörnu hóteli. Fleiri hjálp-
legir vefir á ferðalaginu um til-
boðafrumskóginn eru t.d. Virtu-
altourist og Wikitravel. Einnig
Frommers, Fodors og Lonely
Planet. Google Earth er nýjasta
hjálpartæki ferðalanga en þar er
hægt að fá gervihnattamyndir af
áfangastaðnum.
NEYTENDUR
Hvar er
ódýrasta
flugið og
gistingin?
www.whichbudget.com
www.wideroe.no
www.hrs.de
www.venere.com
www.lemeridien.com
www.virtualtourist.com
www.wikitravel.org
www.frommers.com
www.fodors.com
www.lonelyplanet.com
http://earth.google.com/
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Ferðast þú til Flórída?
Hefur þú hugsað um að eiga þitt eigið sumarhús?
Viltu vita meira?
Umboðsaðilar frá Orlando Vacation Homes, USA, verða á
Íslandi til að veita þér nánari upplýsingar eftirtalda daga:
laugardag 4. mars frá kl. 9:00 til 18:00
sunnudag 5. mars frá kl. 13:00 til 18:00
á Hótel Loftleiðum, Reykjavík.
Allir þátttakendur á kynningunni eiga kost á að vinna
ókeypis gistingu í Orlandó!
www.livinfl.com