Morgunblaðið - 02.03.2006, Side 28

Morgunblaðið - 02.03.2006, Side 28
„ÉG vil ekkert leikhús,“ er Elfriede Jelinek, hinn austurríski nóbelsverðlaunahafi í bók- menntum árið 2004, sögð hafa sagt. Sú skoðun er að mörgu leyti augljós þegar leikhúsverk Jelinek eru skoðuð, en á seinni hluta rithöf- undarferils síns hefur hún snúið sér í auknum mæli að ritun leikverka. Þó mætti ef til vill fremur kalla verk hennar „and-leikverk“, því á síðari árum hefur Jelinek nánast útrýmt hefð- bundinni atburðarás í leikritum sínum og eins leikpersónum. Hið sama gildir um Virkjunina – Das Werk eins og verkið heitir á frummálinu – frá árinu 2002 sem verður frumsýnt á stóra sviði Þjóðleikhússins annað kvöld. Það er Þór- hildur Þorleifsdóttir sem hefur tekið að sér leikstjórn – eða ef til vill „andleikstjórn“ þessa flókna viókið mál,“ svarar Þórhildur þegar blaðamaður ber tilvitnunina undir hana. „Jel- inek hafnar hefðbundnum aðferðum leikhúss- ins eins og við höfum þekkt það undanfarna öld – sálfræðidramanu sem kom með Strind- berg og Ibsen – á þeim forsendum að henni þyki það ekki duga til að lýsa nútímamann- inum. Þar með hafnar hún ekki hefðinni; hún stendur raunar föstum fótum í hefðinni og fer meira að segja aftur fyrir Grikkina í tilvitn- unum. En hún telur að fram sé komin ný teg- und manna og þess vegna dugi ekki til hinar hefðbundnu aðferðir leikhússins.“ Tvívíður nútímamaður Maðurinn að mati Jelinek hefur aldrei verið eins mikið múgmenni eins og í dag þrátt fyrir allt tal um einstaklingshyggju, að sögn Þór- hildar, en hún bendir á að Jelinek sé vissulega ekki ein á báti um þessa skoðun. Fleiri skáld, listamenn og heimspekingar hafi sett fram svipaðar hugmyndir. „En hún er snarpari en flestir, og hefur skáldgáfu að auki. Hún er mikill sjáandi, og það eru þeir sem skipta sköpum, og hafa alltaf gert, fyrir mannkynið! Við viljum tilheyra stétt, hópi, fara hefð- bundnar öruggar leiðir í öllu og vita hver við erum í skjóli margra. Jelinek leitar ástæð- ananna ekki síst í þessari blindu ásókn okkar í fánýta hamingjuleit. Hamingjuna teljum við okkur finna í neyslu, útlitsdýrkun og því að leita ódauðleikans stanslausri líkamsrækt og heilsulíferni. Ekki síst beinir hún athygli að fjölmiðlum, sem hún er mjög upptekin af,“ segir Þórhildur og vísar í aðra tilvitnun í Jel- inek, þar sem hún líkir sjálfri sér við páfagauk. „Hún segist ekkert merkilegri; hún hlusti bara og skrifi svo upp eftir okkur bullið. En hún set- ur allt í samhengi og gefur því dýpri merkingu, og það sem í fyrstu virðist bara vera sam- ansafn af klisjum og orðavaðli er, þegar nánar er að gætt, mjög vel ígrundað.“ Hún segir Jelinek einnig lýsa nútímamann- inum sem tvívíðum og yfirborðskenndum, sem láti mata sig á einni allsherjar fjölmiðlasúpu þar sem allt er lagt að jöfnu. „Við getum tekið sem dæmi venjulegan fréttatíma, þar sem öllu er blandað saman.Þar má líta hræðilegar nátt- úruhamfarir þar sem milljónir farast, eða slys, eða styrjaldir, eða hvað það nú er af öllum hörmungunum sem yfir mannkynið dynur. Og svo er næsta frétt kannski að um að við höfum sigrað fótboltaleik, eða að stúlka sé falleg, eða hve gaman var á laugardaginn. Allt er lagt að jöfnu og við horfum hlutlaus á. Þetta vill Jel- inek meina að sé að þurrka okkur út sem manneskjur, hreinlega.“ Jelinek bregður upp spegli á þjóðfélagið, af- ar skýrum spegli sem sýnir það í gríðarlega sterku ljósi, að mati Þórhildar. „Myndin sem hún dregur upp af okkur er ekkert alltof fög- ur,“ segir hún. Hvað varðar hið nýja leikhúsform sem Jel- inek hefur sett fram, þar sem útlínur eru sára- litlar, segir Þórhildur það algjörlega nýtt. „Fyrir okkur leikhúsfólk er þetta algjörlega ný nálgun – hún gefur manni engar leiðbein- ingar. Hún skrifar ekki hefðbundnar persónur, ekki hefðbundin samtöl, við vitum ekkert í hvaða kringumstæðum þetta gerist. Þetta er bara texti, endalaus texti, og hún segir okkur að gera við hann það sem við viljum. Þannig að þetta er auðvitað mikið verkefni, ekki síst fyrir þann sem fær það hlutverk að stytta textann; orðaflæðið er endalaust. En það er reyndar ekkert annað en það sem við búum við í okkar samfélagi og daglega lífi, það er endalaust ver- ið að hella yfir okkur oftar en ekki inn- antómum orðaflaumi. Og það sama gerir Jel- inek,“ segir Þórhildur. Sá sem í þessu tilfelli fékk það hlutverk að stytta textann er María Kristjánsdóttir, sem gert hefur leikgerðina sjálfa úr texta Jelinek. „Hún hefur fengið það hlutverk að stytta efnið niður í þolanlega lengd og vinsa úr það sem talar til okkar, án þess að yfirgefa höfundinn. Síðan kemur til minna kasta, og míns sam- starfsfólks, að búa til úr þessu sýningu, lýsa kringumstæðum fólksins, hvað þau eru að gera og hvers vegna, hver þau eru og hvar þau eru stödd,“ segir Þórhildur og líkir vinnunni við matreiðslu, þar sem Jelinek leggur til kjöt- skrokk sem María úrbeinar, og Þórhildur og leikhópurinn elda síðan réttinn sjálfan. „Þetta er alls ólíkt öllu sem maður hefur lent í áður, og ég held að það gildi um alla sem að þessari sýningu koma. Í raun er þetta eins og að fara í óvissuferð, þar sem enginn veit hvað til stend- ur, engin landakort eða áttaviti eða kennileiti, og maður verður bara að labba af stað og von- ast til að komast til byggða.“ Ekki bara um virkjun En þó að margt sé órætt varðandi aðferðir og útkomu vita áhorfendur í það minnsta heiti verksins, Virkjunin, og það hringir óneitanlega ýmsum bjöllum hjá Íslendingum. Þó hefur leikverkið víðari skírskotun en í fyrstu kann að virðast. Að sögn Þórhildar fjallar leikverkið að grunni til um bæinn Kaprun í Ölpunum, þar sem til skamms tíma var stærsta virkjun Evr- ópu og kostaði gífurlegar mannfórnir að byggja. Opinberar tölur segja að 150 hafi far- ist við byggingu hennar, en margir telja að þær séu miklu hærri. Jelinek tefli á móti fram hinni notkuninni á Ölpunum, sem túristap- aradís, þar sem líka hafa orðið hörmuleg slys; þar á meðal lestarslys í göngum þar sem 150 manns – sama tala og í Kaprun – létust á leið á skíðastað. „Hún ber saman þessar fórnir á mannslífum sem hafa orðið til að bera uppi þetta flotta samfélag okkar. En síðan verður þetta viðfangsefni stökkpallur út í víðari skír- skotanir. Þannig að hún er svo sannarlega ekki bara að fjalla um virkjun, heldur miklu heldur þessa áráttu mannsins til að reisa Babelst- urna; til að gera sig að skapara jarðarinnar. Hún veltir upp hvaða fórnir það hafi kostað, hversu margar milljónir mannslífa, að koma hugsjónum einstakra manna á framfæri sem þeir vonast síðan til að ljómi um alla framtíð á stjörnuhimninum. Hún beinir athygli okkar að þessum endalausu fórnum á mannkyninu fyrir hinar svokölluðu framfarir,“ segir Þórhildur og bendir á hve áleitnar þessar spurningar eru um þessar mundir. „Erum við kannski komin fram á brún hengiflugsins, og er það þá eitt- hvað í okkar hugmyndum um okkur sjálf, sam- félagið og manninn, sem við verðum að breyta? Þetta er ekki bara spurning um hvort við eig- um að virkja á Kárahnjúkum eða ekki, heldur er þetta miklu dýpri og heimspekilegri spurn- ing.“ Þórhildur segir Jelinek þó svo undarlega blandaða, að þrátt fyrir hið ótrúlega samhengi sem hún setur hlutina í og hinar alvarlegu pæl- ingar sé hún meinfyndin á köflum. „Þessar klisjur sem hún étur upp eins og páfagaukur eru um leið og þær eru hörmulegar oft alveg sprenghlægilegar þegar þær eru afhjúpaðar. Henni tekst að tefla fram þessum klisjum og gæða þær samt heimspekilegri dýpt. Það er eins og hún hafi afhent manni ný heyrnartæki eða gleraugu. Nú er maður alltaf að hlusta með jelineskum eyrum og horfa með jel- ineskum gleraugum. Það er alveg absúrd, og ekki alltaf skemmtilegt.“ En fyrir hvern er þá þetta leikverk, Þórhild- ur? „Ég held að það sé fyrir alla sem hafa áhuga á tilvist mannsins, og hvar við erum stödd á göngu okkar,“ svarar hún, og neitar því ekki að eflaust eigi einhverjir eftir að klóra sér í hausnum. „Annars get ég engu um það spáð. Mitt hlutverk er eingöngu að skila verki Jelinek, reyna að skilja eitthvað í henni og hugmyndum hennar, og reyna að matreiða eitthvað úr því. Hvort einhver vill borða það hef ég ekki hugmynd um.“ Um Elfriede Jelinek Elfriede Jelinek fæddist í Austurríki árið 1946 og hlaut menntun á sviði tónlistar. Hún hefur skrifað fjölda verka fyrir leiksvið, en einnig sent frá sér ljóð og prósaverk. Meðal frægustu verka hennar eru skáldsögurnar Losti og Píanókennarinn, en gerð var sam- nefnd kvikmynd eftir þeirri síðarnefndu sem sýnd var hér á landi. Tvö leikrit eftir Jelinek hafa verið flutt í íslensku leikhúsi, Klara S. var sett upp í Nemendaleikhúsinu og Útvarpsleik- húsið flutti nýverið Hvað gerðist eftir að Nóra yfirgaf eiginmanninn. Auk Nóbelsverðlaunanna hefur Jelinek ver- ið heiðruð með margvíslegum hætti fyrir verk sín; hlaut Heinrich böll-verðlaunin árið 1986 fyrir framlag sitt til þýskra bókmennta, hin virtu Büchner-verðlaun árið 1998 og Lessing- verðlaunin fyrir gagnrýni árið 2004. 28 FIMMTUDAGUR 2. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ MENNING eftir Elfriede Jelinek í leikgerð Maríu Kristjánsdóttur sem byggð er á þýðingu Hafliða Arngrímssonar á Das Werk Leikarar: Arnar Jónsson, Atli Rafn Sigurð- arson, Baldur Trausti Hreinsson, Björgvin Franz Gíslason, Gísli Pétur Hinriksson, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, María Pálsdóttir, Nanna Kristín Magnúsdóttir, Ólafur Steinn Ingunnarson, Páll S. Pálsson, Rúnar Freyr Gíslason, Sólveig Arnarsdóttir, Þórunn Clausen og Þórunn Lárusdóttir Lýsing: Aðalsteinn Stefánsson Tónlist: Jóhann G. Jóhannsson Dansar og sviðshreyfingar: Auður Bjarnadóttir Leikmynd: Sigurjón Jóhannsson Búningar: Filippía I. Elísdóttir Leikstjóri: Þórhildur Þorleifsdóttir Páfagaukurinn Jelinek Á stóra sviði Þjóðleikhússins verður Virkjunin eftir nób- elsverðlaunahafann Elfriede Jelinek frumsýnd annað kvöld. Inga María Leifsdóttir hitti að máli leikstjórann Þórhildi Þorleifsdóttur, sem sagði henni frá heimssýn Jelinek og óvenjulegum leikhúsaðferðum hennar. Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur ingamaria@mbl.is www.elfriedejelinek.com „Það er eins og hún hafi afhent manni ný heyrnartæki eða gleraugu. Nú er maður alltaf að hlusta með jelineskum eyrum og horfa með jelineskum gleraugum. Það er alveg absúrd,“ segir Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri um Jelinek. Virkjunin tónlistinni, og hana finnur maður hvergi annars staðar. Ég treysti mér ekki til að lýsa þessari gleði, vitna bara, eins og ég hef margoft áður gert, í Victor Hugo, en hann sagði að tónlistin væri um eitthvað sem ekki væri hægt að tjá með orðum en væri held- ur ekki hægt að þegja yfir. Gleðin í tónlist Megasar er óumræðileg, en samt hljóta allir að finna hana. Þessi gleði var svo sannarlega ríkjandi á tónleikum hans í Hall- grímskirkju á laugardaginn var. Þar flutti hann nokkra Passíusálma auk veraldlegra vísna eftir Hallgrím Pét- ursson, en einnig fáeina sálma á borð við Hærra, minn Guð, til þín eftir Matthías Jochumsson. MÉR FINNST einkenna tónlist Megasar hve mikil gleði er í henni. Jafnvel þegar hann fjallar um grimm örlög ógæfumanna svífur einhver ójarðnesk kátína yfir vötnunum í Með Megasi spilaði hópur hljóð- færaleikara, en jafnramt söng Kammerkór Biskupstungna sem samanstendur af stálpuðum börn- um. Megas og kórinn voru full- komnar andstæður; sá fyrrnefndi var í skærgrænum jakka og með langan, rauðlitaðan trefil, hinn síð- arnefndi í hvítum fötum. Rödd Meg- asar var með fortíð; raddir kórsins bjartar og saklausar. Ónefndur maður sagði einu sinni við mig að sköpunin væri eins og pípuorgel þar sem Guð spilar á hljómborðið en Skrattinn stígur ped- alana. Einhvernveginn þannig voru þessir tónleikar; það var eins og að verða vitni að samstarfi Kölska og nokkurra engla úr Himnaríki. Tónleikarnir fóru hægt af stað. Samspil söngvara og hljóðfæraleik- ara var dálítið bjagað í upphafi og þar sem lagaröðin var önnur en stóð í tónleikaskránni þurfti fólk að fletta fram og aftur til að finna það sem Megas söng. Persónulega hafði ég ekki smekk fyrir þeirri útgáfu á Hærra, minn Guð, til þín, sem boðið var upp á á tónleikunum. Hún var óskaplega belgingsleg og draugaleg áhrifshljóð úr hljómsveitinni voru barnaleg. Sálminn ættu flestir að kannast við úr jarðarförum; hann er fallega blátt áfram og þarf ekki svona æpandi umgjörð. Sem betur fer var þetta það eina sem hægt var að setja út á tón- leikana, ef frá er talinn heldur áber- andi rafgítar Guðlaugs Kristins Ótt- arssonar í næstsíðasta Passíusálminum. Almennt talað voru sálmarnir ein- staklega skemmtilegir; bæði laglín- urnar og líka útfærsla þeirra. Hljóð- færasamsetningin kom stöðugt á óvart og hljóðfæraleikurinn var yf- irleitt frábær. Sérstaklega eftirtekt- arvert var hve uppáhalds hljóðfærið mitt, munnharpan, skapaði nostalg- ískt andrúmsloft í sjöunda sálm- inum. Blokkflautan í þeim fimm- tánda var líka sjarmerandi. Hápunktur tónleikanna var tutt- ugasti og fimmti sálmurinn, sem er býsna langur. Hann var svo litríkur undir markvissri stjórn Hilmars Arnar Agnarssonar og lagið sjálft svo fallegt að ég fékk tár í augun. Og það gerist ekki oft. Kölski og englakórinnTÓNLISTHallgrímskirkja Passíusálmarnir og nokkur veraldleg ljóð eftir Hallgrím Pétursson; sálmar eftir Matthías Jochumsson. Flytjendur: Meg- as, Kammerkór Biskupstungna, Hilmar Örn Agnarsson (stjórnandi, orgel, list- rænn stjórnandi), Guðmundur Pétursson (gítar), Guðlaugur Kristinn Óttarsson (gítar), Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson (kontrabassi), Sigtryggur Baldursson (slagverk), Sophie Marie Schoonjans (harpa), Karl Hallgrímsson (mandólín, munnharpa), Svanhvít Lilja Ingólfsdóttir (blokkflauta), Hjörleifur Valsson (fiðla), Guðný Þóra Guðmundsdóttir (fiðla), Auð- ur Agla Óladóttir (víóla), Þorbjörg Daphne Hall (selló). Laugardagur 26. febrúar. Söngtónleikar Jónas Sen

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.