Morgunblaðið - 02.03.2006, Side 29

Morgunblaðið - 02.03.2006, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. MARS 2006 29 MENNING LEIKRITIÐ Viðtalið verður frum- sýnt í Hafnarfjarðarleikhúsinu næstkomandi laugardag. Verkið er í leikstjórn Margrétar Péturs- dóttur og tilheyrir svokallaðri „döff-leikhús“-stefnu. Sýning af því tagi er miðuð við heyrnarlausa áhorfendur en er aðgengileg jafnt heyrandi sem heyrnarlausum. Laila Margrét Arnþórsdóttir, ann- ar höfundur verksins, er ráðgjafi hjá Félagi heyrnarlausra en Mar- grét er hinn höfundurinn og for- sprakki Draumasmiðjunnar, sjálf- stæðs leikhóps sem hefur staðið fyrir ýmsum sýningum á borð við Ávaxtakörfuna, Baneitrað sam- band á Njálsgötunni o.fl., en sér- hæfir sig í döff-leikhúsi. Morg- unblaðið tók þessar kraftakonur tali á æfingu Viðtalsins í Hafn- arfjarðarleikhúsinu. Þeirra eigin saga Verkið fjallar um samskipti og samskiptaleysi mæðgna sem eru komnar á fullorðinsár. Að sögn höfunda er verkið unnið upp úr sögum og sagnabútum sem Laila hefur viðað að sér frá heyrn- arlausu fólki í gegnum 6 ára starf sitt hjá Félagi heyrnarlausra. Frá- sagnarformið er viðurkennt meðal heyrnarlausra sem byggja orð- ræðu sína og bakgrunn frásagnar upp á allt annan hátt en hinir heyrandi. Þeir táknendur sem eru góðir sögumenn njóta ákveðinnar virðingar innan samfélags heyrn- arlausra. Sögur hafa gengið á milli heyrnarlausra og geymast þeim í minni sökum þess að þeir hafa ekki ritmál eða bókmenntir til að byggja á eins og hinir heyrandi. Úr þessum sagnabrotum hafi þær í sameiningu skapað persónur sem nú séu komnar á svið. Þannig er leikritið í raun líf og saga heyrnarlausra og Laila segir bók- að að þeir sem koma á sýninguna muni þekkja hvert einasta orð af eigin reynslu. „Verkið er uppgjör við fortíð fólks sem nú er orðið fullorðið en varð fyrir því að vera tekið frá fjölskyldum sínum og sent í heimavistarskóla 4 ára gam- alt. Sumir fóru í skólann að hausti og sneru ekki heim fyrr en að vori.“ Einnig er saga foreldranna sögð sem máttu þola það að geta hvorki né mega eiga samskipti við börn sín á táknmáli. Sorgarsaga vegna vanþekkingar og ótta Það er sláandi til þess að hugsa að bannað var að nota táknmál við kennslu í íslenskum skólum fram til ársins 1980. Fram að því var viðhöfð svokölluð raddmálsstefna en þá var heyrnarlausum börnum ætlað að læra að tala tungumálið með því að lesa af vörum. Ýmsar aðferðir voru notaðar til að ná því fram. Til eru dæmi um að börnin hafi verið látin sitja á höndunum í kennslustund til að geta ekki hjálpað öðrum og útskýrt með táknmáli og að foreldrum hafi ver- ið bannað að nota táknmál til sam- skipta við börn sín. Laila bendir á að heyrnarlausir geti ekki og hafi engar forsendur til þess að læra að tala. Ef maður heyri ekki málið læri maður aldrei að tala svo að einhver skilningur búi þar að baki. „Þú getur lært að segja ga-ga og hús og þess háttar en þú veist ekkert hvað það þýðir.“ Fyrsta sýning sinnar tegundar Í verkinu er áherslan á að miðla þessum veruleika heyrnarlausra til þeirra sem heyrandi eru og er það nýlunda því þetta er fyrsta „döff“- leikverkið sem samið hefur verið út frá menningarheimi og for- sendum heyrnarlausra hér á landi. Höfundarnir eru sammála um að brýn þörf sé á því að semja fleiri verk fyrir þennan hóp. Margrét segir þetta vera ákaflega krefjandi form en um leið skemmtilegt og spennandi fyrir þær sakir að þetta er nýtt hér á landi. Þær segjast vera staðráðnar í því að semja og setja upp fleiri verk af þessu tagi og segjast vera uppfullar af hug- myndum. Í sýningunni vega málin bæði jafnþungt og öðru ekki leyft að drottna yfir hinu. Athygli vekur að sýningin er ekki túlkuð og segir Laila það ef til vill vera af hagsýn- isástæðum því að kostnaðurinn við að fá túlk til að túlka heila sýningu sé á bilinu 500–600 þúsund krónur. Hins vegar sé leikkona í sýning- unni jafnframt túlkur. Eins og áður segir sérhæfir Draumasmiðjan sig í döff-leikhúsi og stóð að barnasýningunni Ég sé … árið 2000 sem miðaðist við heyrnarlausa. Margrét samdi og lék það verk. Tvær sýningar hafa áður verið settar upp hér á landi sem miðast að heyrnarlausum og gætu flokkast undir döff-leikhús. Fyrsta sýningin var Guð gaf mér eyra (Child of a lesser god) sem sýnd var í Iðnó árið 1983. Berglind Stefánsdóttir lék í þeirri sýningu en hún er einmitt í einu hlutverki í Viðtalinu. Síðari sýningin var fyrr- nefnd sýning Draumasmiðjunnar frá árinu 2000. Heyrnarleysi í dag Möguleikarnir fyrir heyrn- arlausa eru þó alltaf að aukast og útlitið er síður en svo svart að mati Lailu. Í dag séu heyrn- arlausir nemendur í hjúkr- unarfræði, félagsfræði og bifvéla- virkjun að ógleymdu námi fyrir heyrandi í táknmálsfræði og tákn- málstúlkun við Háskóla Íslands. Draumar heyrnarlausra ungmenna séu því raunhæfir og þau vinna hart að því að láta þá rætast. Eins sé táknmál talsvert í tísku meðal heyrandi fólks, sérstaklega yngri kynslóðarinnar og því góðar líkur á að viðhorfin til táknmáls séu að breytast til batnaðar. Laila segir mikla eftirvæntingu ríkja meðal fólks sem hún hafi rætt við um leikritið því margir hafi aldrei áður farið í leikhús, jafnvel fullorðið fólk. Það er því mál til komið að kynna þessu heyrnarlausa fólki sem og heyr- andi Íslendingum þetta leik- húsform. Leiklist | Ein fyrsta „döff“-leiksýningin í Hafnarfjarðarleikhúsinu Veruleiki heyrnarlausra á sviði Eftir Eyrúnu Valsdóttur Höfundar verksins, Laila Margrét Arnþórsdóttir og Margrét Péturs- dóttir, sem jafnframt leikstýrir. Morgunblaðið/Árni Torfason Soffía Jakobsdóttir og Berglind Stefánsdóttir í hlutverkum sínum í Viðtalinu. Höfundur er meistaranemi í blaða- og fréttamennsku við Háskóla Íslands Viðtalið verður frumsýnt í Hafn- arfjarðarleikhúsinu laugardaginn 4. mars kl. 20. Sýningar eru allar helgar fram undir lok mars. Höfundar: Laila Margrét Arn- þórsdóttir og Margrét Péturs- dóttir. Leikstjóri: Margrét Péturs- dóttir. Aðstoðarleikstjóri: Björn Gunn- laugsson. Hljóðmynd: Pétur Grétarsson. Leikmynd og búningar: Helga Rún Pálsdóttir. Ljós: Alfreð Sturla Böðvarsson. Leikarar: Árný Guðmundsdóttir, Berglind Stefánsdóttir, Elsa Guðbjörg Björnsdóttir, Soffía Jakobsdóttir og Tinna Hrafns- dóttir. Sýnt í samstarfi við Hafn- arfjarðarleikhúsið. Döff-leikhús Að vera „döff“ þýðir að ein- staklingur heyrir ekki, er hluti af menningarsamfélagi heyrn- arlausra og talar táknmál. Döff- leikhús er sýning sem inniheldur að minnsta kosti einn heyrn- arlausan aðstandanda, t.d. leik- ara eða leikstjóra. Frá fyrstu tíð hefur döff-leikhús aðallega mið- ast við það að heyrnarlausir leiki fyrir heyrnarlausa. Það er ekki fyrr en nýverið sem heyrandi og heyrnarlausir eru farnir að leika hlið við hlið. Annars konar form er svokallað táknmálsleikhús en slíkar sýningar eru ekki út frá forsendum heyrnarlausra heldur yfirleitt þýddar eða túlkaðar af raddmáli yfir á táknmál. Margar leiðir eru farnar í döff-leikhúsi í dag að sögn leik- stjórans Margrétar Pétursdóttur og sú sem þær kjósi að fara í þessari sýningu, að hafa bæði heyrandi og heyrnarlausa ásamt túlki, sé fjarri því sú eina rétta. „Í Noregi eru allir leikararnir döff, svo er fólk í hátölurum sem heyrist en sést ekki. Í Ameríku eru það hins vegar aukapersónur eða statistar, t.d. götusóparar, sem fara með textann á meðan aðrir leikarar eru döff.“ Viðtalið Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, hdl. og lögg. fasteignasali Hamraborg 20A, 200 Kópavogur – www.husalind.is sími 554 4000 – fax 554 4018, tölvup.: gugga@husalind.is – sveina@husalind.is Opið hús kl. 20-21:00 í kvöld LJÓSAVÍK 24 - 3JA HERBERGJA Björt og opin 105 fm 3ja herbergja íbúð á 2. hæð (efstu) í litlu fjölbýli á eftir- sóttum stað í Grafarvogi. Vandaðar innréttingar og gólfefni eru í íbúðinni. Í eld- húsi er innrétting frá Axis og tæki frá Rönning (Fagor). Sérinngangur í íbúðina af svölum. Þvottahús innan íbúðar. Stutt í skóla og þjónustu. Verð 24,9 millj. Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Sveinbjörg í síma 867 2928. Op ið hú s Vissir þú? Vissir þú að Vestfirska forlagið hefur á örfáum árum gefið út hvorki meira né minna en um 10.000 – tíu þúsund – blaðsíður í myndum og máli af sögu- legu efni vítt og breytt frá Vestfjörðum? Þetta eru Bækurnar að vestan. Í þeim kemur vel fram að Vestfirðingar eru alveg sér á báti. Þetta er lífið fyrir vestan í blíðu og stríðu, gamni og alvöru. Vestfirskur fróðleikur fyrr og nú. Þú ættir að skella þér á Bókamarkaðinn í Perlunni eða á Akureyri og líta á þetta hjá okkur. Nú er lag!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.