Morgunblaðið - 02.03.2006, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. MARS 2006 35
UMRÆÐAN
• Brúðarkjólar og nýjasta tíska
• Brúðarvendir og blómaskreytingar
• Matur í brúðkaupsveislum
• Brúðargjafir
• Hárgreiðsla brúða og brúðguma
• Giftingarhringir og morgungjafir
• Í formi fyrir brúðkaupið
• Brúðkaupsmyndin
• Snyrting fyrir brúðkaupið
• Veisludúkar
• Brúðarsængin og brúðarnærföt
Auglýsendur!
Pantið fyrir klukkan 16 föstudaginn 3. mars.
Allar nánari upplýsingar veitir Katrín
Theódórsdóttir í síma 569 1105 eða kata@mbl.is
Brúðkaupsblað
Morgunblaðsins
Sérblað helgað brúðkaupssýningunni Já!
fylgir Morgunblaðinu fimmtudaginn 9. mars.
Suðurbraut - Hf. - 3ja herb.
Björt og falleg 93 fm
íbúð á 1. hæð í góðu
fjölbýli. Íbúðin er sér-
lega falleg með falleg-
um innréttingum og
vönduðum gólfefnum.
Stór timburverönd í
garði. Laus. Verð 17,9
millj.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
MEÐ AÐILD að EES-samn-
ingnum var Íslandi veittur að gang-
ur að innri markaði Evrópusam-
bandsins og réttindin sem fylgdu
með kristallast í fjórfrelsinu, frjáls-
um vöruflutningum, frjálsri för
fólks, frjálsri þjónustustarfsemi og
frjálsum fjármagnsflutningum milli
aðildarlandanna.
Grundvallarhugsunin
er að engin mismunun
megi eiga sér stað á
þessum þáttum á því
svæði sem innri mark-
aðurinn tekur til. Frá
stofnun ESB hefur
sambandið unnið hörð-
um höndum að því að
vinna að þessum mark-
miðum. Hefur því orð-
ið vel ágengt í flestum
þáttum fjórfrelsisins
að undanskilinni þjón-
ustustarfseminni, þar
sem gífurleg skriffinnska, hæga-
gangur og mikill kostnaður hefur
verið frelsi á því sviði mikill fjötur
um fót og er eiginlega hægt að
halda því fram að raunverulegt
frelsi á þessu sviði hafi verið afar
takmarkað. Sem dæmi um takmark-
anir má nefna bæ í Þýskalandi sem
gerir kröfu um að erlend fyrirtæki
gerist aðilar að verslunarráði bæj-
arins, sem er með fimm ára biðlista.
Annað dæmi er um ítalska reglu
sem felur í sér að erlendum fyr-
irtækjum er skylt að hafa a.m.k.
fjóra starfsmenn á Ítalíu og setji
500.000 evrur sem tryggingu fyrir
starfseminni.
Markmið um frjáls
þjónustuviðskipti
Hinni svokölluðu þjónustu-
tilskipun er ætlað að taka á þessu.
Markmiðið með henni er að gera að
veruleika frjálst flæði þjónustu í
samræmi við ákvæði stofnsamnings
ESB og ryðja úr vegi hindrunum
eins og að framan eru nefndar, sem
koma í veg fyrir að fyrirtæki og ein-
staklingar geti selt þjónustu sína á
grundvelli sömu skilyrða alls staðar
á innri markaðnum. Í upprunalegri
útgáfu tilskipunarinnar var lögð til
hin svokallaða upprunalandsregla
(e. country of origin principle) sem
fólst í því að um veitingu þjónustu í
öðru landi ESB gildi reglur heima-
ríkis þjónustuveitanda, þ.e. ef veita
má þjónustuna í ríkinu þar sem
þjónustuaðilinn er með staðfestu má
einnig veita hana annars staðar inn-
an EES. Gildissviði tilskipunarinnar
var ætlað að taka yfir velflesta þjón-
ustugeira auk þess sem hún lagði til
mikla einföldun á öllum samskiptum
við hið opinbera í öðru aðildarríki,
þ.e að þau færu fram á einum stað
og í rafrænu formi. Væntingar voru
uppi um að tilskipunin
kæmi til með að hleypa
lífi í Lissabon-ferli
ESB sem miðar að því
að efla vöxt og atvinnu.
Niðurstaðan
vonbrigði
Tilskipunin hefur
þokast hægt í gegnum
löggjafarferil ESB og á
dögunum fór fram
fyrsta atkvæðagreiðsla
um hana í Evrópuþing-
inu. Með hliðsjón af því
sem lagt var upp með
verður ekki annað sagt en að út-
koman sé mikil vonbrigði fyrir at-
vinnulífið. 211 breytingartillögur
voru samþykktar á hinni upp-
runalegu útgáfu tilskipunarinnar og
eftir stendur gjörbreytt tilskipun.
Upprunalandsreglan er nú horfin en
í staðinn er komið almennt ákvæði
um að hvert aðildarland skuli
tryggja frelsi til að veita þjónustu
innan landamæra sinna svo og
tryggja frjálsan aðgang að þjónustu.
Jafnframt að ef þau nýta sér heim-
ildir til að takmarka frelsi til að
veita þjónustu skulu slíkar takmark-
anir gerðar á jafnræðisgrundvelli og
vera nauðsynlegar og hæfilegar. Að-
ildarríkjunum verður því heimilt að
takmarka frelsi til að veita þjónustu
á grundvelli allsherjarreglu, al-
mannaöryggis, umhverfisverndar
og heilbrigðis.
Hefði þýtt 600 þúsund ný störf
Gildissvið tilskipunarinnar hefur
einnig verið takmarkað frá því sem
var og nær nú til færri geira. Vonir
hafa staðið til þess að með sam-
þykkt tilskipunarinnar myndi sam-
keppnishæfni Evrópu aukast all-
verulega og nýleg óháð könnun
styður það en hún leiddi í ljós að allt
benti til þess að 600.000 ný störf
myndu verða til og erlend fjárfest-
ing aukast um 34% sem bein afleið-
ing af samþykkt þjónustutilskip-
unarinnar. Ákaft er kallað eftir því
enda atvinnuleysi mikið víða í Evr-
ópu.
Tilskipunin fer ekki varhluta af
því að Evrópusambandið er að
ganga í gegnum mikla vaxtarverki
eftir stækkun þess árið 2004, og að
aukin alþjóðleg samkeppni vex þar
mörgum í augum. Í mörgum af hin-
um grónu aðildarríkjum standa
stjórnvöld frammi fyrir því að borg-
arar þeirra hafa áhyggjur af áhrif-
um tilskipunarinnar á kaup þeirra
og kjör eftir stækkun ESB vegna
samkeppni við starfsfólk frá nýju
aðildarríkjunum. Spurningin sem
staðið er frammi fyrir er því hvaða
afleiðingar það hafi að hindrunum á
því að veita þjónustu yfir landamæri
verði rutt úr vegi. Tilskipunin gerði
hins vegar engar breytingar á
reglum tilskipunar ESB um útsenda
starfsmenn sem hefur í um 10 ár
kveðið á um það að launþegar sem
sendir eru til starfa í öðru aðild-
arríki skulu í grundvallaratriðum
njóta sömu kjara og atvinnuréttinda
og gilda í landinu sem þeir vinna í.
Þessar áhyggjur náðu þó eyrum
fjölmargra þingmanna eins og til-
skipunin ber með sér eftir atkvæða-
greiðsluna.
Tilskipunin heldur nú áfram leið
sinni í löggjafarferlinu. Fram-
kvæmdastjórnin fær hana næst til
umfjöllunar og þar á eftir ráðherra-
ráðið en báðar stofnanirnar geta
gert breytingar á tilskipuninni eins
og hún er eftir atkvæðagreiðsluna í
þinginu. Að því loknu fer hún aftur
til umfjöllunar í þinginu. Það á eftir
að koma í ljós hvort það sam-
komulag sem náðist í þinginu um til-
skipunina í breyttri mynd haldi, en
efasemdir eru uppi um að sú nið-
urstaða myndi stuðla að raunveru-
legu frelsi í þjónustuviðskiptum.
Frelsi í þjónustuviðskiptum?
Eva Margrét Ævarsdóttir
fjallar um breytingar, sem eru
að verða á Evrópusambandinu ’… allt benti til þess að600.000 ný störf myndu
verða til og erlend fjár-
festing aukast um
34% … ‘
Eva María Ævarsdóttir
Höfundur er L.LM í Evrópurétti og
starfar sem forstöðumaður skrifstofu
Samtaka atvinnulífsins í Brussel.
BLÁTT áfram – forvarnarverkefni
UMFÍ gegn kynferðislegu ofbeldi á
börnum, mun á næstu
vikum vekja athygli á
mikilvægi þess að
fræða börnin um of-
beldi. En hvernig fræð-
um við barnið um lík-
ama þess, kennum að
gera greinarmun á
góðri snertingu og
vondri snertingu? Þetta
vefst mikið fyrir fólki
sem leitar til okkar. Það
sem við verðum að
muna er að þetta er
ekki bara eitt samtal
eða ein ábending til
barna. Þetta verður að vera hluti af
samskiptum okkar við barnið. Ef við
byrjum þegar það er ungt að fræða
það um líkama þess, hvað líkams-
partar heita og að það snerti það eng-
inn undir sundfötunum, þá verður
þetta hluti af sjálfsmynd og vitund.
Barn þarf ekki að knúsa fólk í fjöl-
skyldunni bara af því að það er skylt
því, eða treysta í blindni fólki í hlut-
verkum þar sem samfélagið er búið
að kenna börnunum að þau megi
treysta.
Stöldrum við og spyrjum barnið
eða leyfum því að ákveða sjálft hvern-
ig því líði í samskiptum við þessa
manneskju, hvort að það treysti þess-
ari manneskju og þá um leið sjálfum
sér til að vega og meta aðstæður, og
bregðast rétt við. Við
verðum að bæta því við
að við virðum barnið og
hvernig því líður fyrst
og að við styðjum þá
ákvörðun sem það tek-
ur.
Það versta sem við
getum gert börnum
okkar er að segja ekki
neitt og halda að þau
komi að fyrra bragði og
segi frá ef þau verða
fyrir ofbeldi. Við vitum
af eigin reynslu að svo
er ekki. Ég tala nú ekki
um ef það tengist því á einhvern hátt
að þau voru að gera eitthvað sem þau
máttu ekki og í framhaldi eru beitt of-
beldi. Ef við gefum ekki börnunum
orðin yfir hlutina, þau heyri okkur
segja þá og sýnum þeim leiðirnar til
að leita sér hjálpar þá erum við nán-
ast búin að útiloka að þau brjótist út
úr þögninni og segi frá.
Barn sem er vel uppfrætt og getur
treyst sjálfu sér – treystir öðrum og
líður vel!
Það er á okkar ábyrgð að kenna
börnunum og minna þau á að ofbeldi
er aldrei þeim að kenna – ekki undir
nokkrum kringumstæðum! Það er
ekkert það slæmt að við viljum ekki
heyra. Hið minnsta atvik getur vafið
upp á sig frá sektarkennd í sjálfs-
hatur og reiði ef ekki er rétt á tekið.
Það er til leið til að rjúfa þögnina og
segja frá. Það að geta ekki sagt frá er
verra en nokkuð ofbeldi!
Við viljum þakka öllum þeim sem
komu að gerð auglýsinganna. Hvíta
húsið, Anna Margrét Sigurðardóttir,
Spark, Viðar Garðarsson, Guðjón
Jónsson leikstjóri, börnin og fleiri og
fleiri. Ykkur öllum sem hafið styrkt
okkur og stutt. Kærar þakkir!
Rjúfðu þögnina og
fræddu barnið þitt
Svava Björnsdóttir
fjallar um Blátt áfram –
forvarnarverkefni UMFÍ ’Það versta sem við get-um gert börnum okkar er
að segja ekki neitt og
halda að þau komi að
fyrra bragði og segi frá ef
þau verða fyrir ofbeldi.‘
Svava Björnsdóttir
Höfundur er verkefnisstjóri
forvarnarverkefnisins Blátt áfram.
TENGLAR
..............................................
HYPERLINK „http://www.blatta-
fram.is“ __www.blattafram.is_
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111