Morgunblaðið - 02.03.2006, Síða 40
40 FIMMTUDAGUR 2. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Anna Steindórs-dóttir Haarde
fæddist í Reykjavík
3. maí 1914. Hún lést
miðvikudaginn 22.
febrúar síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Steindór Ein-
arsson, forstjóri og
athafnamaður í
Reykjavík, f. 1888,
d. 1966, og kona
hans Ásrún Sigurð-
ardóttir, f. 1892, d.
1963. Systkini Önnu
eru Sigurður, f.
1910, d. 1974; Guðrún, f. 1917, d.
1994; Fjóla, f. 1920 og Kristján, f.
1926, d. 1991.
Anna stundaði nám við verslun-
arskóla í Skotlandi á yngri árum
og starfaði síðan í fyrirtæki föður
síns þar til hún giftist og aftur eft-
ir að hún varð ekkja. Í september
1937 giftist hún Tomasi Haarde,
símafræðingi frá Noregi, f. 1901,
d. 1962. Hann setti upp sjálfvirkan
síma hér á landi á vegum Lands-
símans og starfaði hjá því fyrir-
tæki til dauðadags. Bjuggu þau
hjón nær allan sinn hjúskap á Sól-
vallagötu 68 í Reykjavík, en Anna
bjó síðast á Aflagranda 40.
Anna og Tomas eignuðust þrjá
syni, Bernhard bankamann, f.
1938, d. 1962, Steindór verkfræð-
ing, f. 1940 og Geir Hilmar ráð-
herra, f. 1951. Kona Steindórs er
Jórunn Bergmundsdóttir tækni-
teiknari, f. 1940, og eru börn
þeirra Anna lækna-
ritari, f. 1975,
Ágústa Björk,
starfsmaður Flug-
leiða, f. 1978, gift
Matthíasi Stefáns-
syni tónlistarmanni,
og Tómas Bernhard,
f. 1980, sem stundar
framhaldsnám í raf-
magnsverkfræði.
Kona Geirs er Inga
Jóna Þórðardóttir,
viðskiptafræðingur
og fyrrverandi
borgarfulltrúi, f.
1951. Dætur Ingu og Geirs eru
Helga Lára háskólanemi, f. 1984,
og Hildur María menntaskóla-
nemi, f. 1989. Stjúpsonur Geirs og
sonur Ingu er Borgar Þór Einars-
son lögfræðingur, f. 1975, kona
hans er Unnur Svava Jóhannsdótt-
ir, f. 1975, og eru börn þeirra Sig-
rún Líf, f. 1994, Breki Þór, f. 1998,
og Marselía Bríet, f. 1999. Dætur
Geirs og fyrri konu hans, Patriciu
Guðmundsson, f. 1953, eru Ilia
Anna, flugfreyja og grunnskóla-
kennari, f. 1977, og Sylvía sjúkra-
liði, f. 1981. Maður Iliu er Ágúst
Fjeldsted flugvirki, f. 1972, og
eiga þau dótturina Ingibjörgu
Önnu, f. 2005, en maður Sylvíu er
Gunnar Bjarnason, starfsmaður
Símans, f. 1979, og eiga þau Ró-
bert Bjarna, f. 2004.
Útför Önnu verður gerð frá
Dómkirkunni í Reykjavík í dag og
hefst athöfnin klukkan 15.
Löngu og farsælu lífshlaupi Önnu
tengdamóður minnar er lokið. Hún
lést á Landspítalanum í Fossvogi
miðvikudaginn 22. febrúar sl. á ní-
tugasta og öðru aldursári eftir til-
tölulega skamma sjúkdómslegu.
Allt fram á síðustu ár var heilsa
hennar með ágætum og fór hún
allra sinna ferða og sinnti sínum er-
indum. Síðustu misserin var heilsan
samt nokkuð farin að bila, en áfram
var hugurinn sterkur og viljinn til
að sjá um sig sjálf. Bíl sínum ók
hún síðast nú í nóvember.
Anna var borinn og barnfæddur
Reykvíkingur, dóttir hjónanna
Steindórs Einarssonar og Ásrúnar
Sigurðardóttur. Steindór var fædd-
ur 1888 í Reykjavík en Einar
Björnsson faðir hans var ættaður
úr Ölfusi og Guðrún Steindórsdóttir
móðir hans átti m.a. ættir að rekja
til Hafnarfjarðar. Ásrún fæddist á
Svalbarðsströnd í Eyjafirði 1892,
dóttir hjónanna Önnu Grímsdóttur
og Sigurðar Jónssonar bónda.
Anna fæddist í Ráðagerði við Sel-
landsstíg, sem nú er Sólvallagata
68b. Það hús byggði Einar afi henn-
ar fyrir fjölskyldu sína. Anna var
næstelst fimm systkina og fæddust
þau öll í þessu húsi. Fjölskyldan
flutti úr Ráðagerði þegar þröngt
var orðið um hópinn í húsið Vest-
urhlíð á Öldugötu 14 og bjó þar í
nokkur ár.
Steindór, faðir Önnu, var kunnur
athafnamaður og rak um áratuga
skeið bifreiðastöð hér í borg. Þrátt
fyrir lítil efni framan af komst
Steindór áfram með dugnaði og út-
sjónarsemi og 1915, ári eftir að
Anna fæddist, eignaðist hann fyrsta
bílinn sem hann gerði út fyrir leigu-
bílaakstur. Á næstu árum fjölgaði í
bílaflotanum og reksturinn varð
umfangsmikill. Steindór varð áður
en yfir lauk stærsti bifreiðarekandi
landsins og stundaði sérleyfisflutn-
inga jafnhliða fólksbílarekstri.
Hann varð brautryðjandi í fólks-
flutningum með bifreiðum og hafði
m.a. yfirumsjón með fyrstu hópferð
bíla hér á landi sumarið 1918. Þá
var samningamönnum Danmerkur
og Íslands, sem unnu að gerð sam-
bandslagasamningsins, boðið í
kynnisferð austur í Árnessýslu.
Þótti þar vel að verki staðið miðað
við vegarslóða þess tíma, sem náðu
aðeins austur að Sogsbrú. Hann
annaðist jafnframt fólksflutninga á
Þingvallahátíðarnar 1930 og 1944.
Bifreiðastöð Steindórs var lengst af
á horni Aðalstrætis og Hafnar-
strætis. Anna byrjaði ung að starfa
við fyrirtæki föður síns og vann þar
þangað til hún giftist og svo aftur
síðar eftir að hún varð ekkja.
Skömmu fyrir 1940 réðst Stein-
dór í að byggja stórt íbúðarhús með
mörgum íbúðum fyrir framan
Ráðagerði. Þar var síðan í áratugi
heimili margra af börnum og barna-
börnum þeirra, þar á meðal Önnu
og fjölskyldu hennar, en gamla
Ráðagerði var notað fyrir starfs-
menn. Steindór var stórtækur mað-
ur og lét sig ekki muna um að skapa
þeim sem unnu fyrir hann góðar að-
stæður á sama tíma og hann var að
byggja fyrirtæki sitt upp af miklum
krafti. Hafa ýmsir sagt mér frá því
hvernig þeir byrjuðu sinn starfs-
feril hjá honum og fengu um leið
húsnæði og komu undir sig fótun-
um.
Skammt frá heimilinu við Sól-
vallagötu var byggð aðstaða fyrir
starfsemi bifreiðastöðvarinnar þar
sem BYKO er nú til húsa, bifreiða-
skáli og verkstæði. Þegar Tónlistar-
félagið réðst í það stórvirki í des-
ember 1939 að flytja fyrstu
óratoríuna hér á landi lánaði Stein-
dór húsnæðið undir flutninginn, því
að ekkert hús í bænum rúmaði þá
kór og hljómsveit, sem í voru sam-
tals rúmlega hundrað manns. Þar
var Sköpunin eftir Haydn flutt und-
ir stjórn Páls Ísólfssonar. Sérstak-
ur minningarskjöldur var festur á
húsið árið 1989 til að minnast þessa
viðburðar.
Alþingishátíðarárið 1930 reisti
Steindór myndarlegan sumarbú-
stað fyrir fjölskylduna á Þingvöll-
um. Þar var í áratugi dvalarstaður
þeirra hjóna, barna og fjölskyldna
þeirra á sumrin. Á vorin var lagt
upp og flutt austur, dvalið þar allt
sumarið og haldið heim að hausti.
Þeir sem stunduðu vinnu í bænum
óku þá daglega á milli. Anna átti
margar ánægjulegar minningar úr
sumarbústaðnum, bæði frá þeim
tíma er hún var ung stúlka og einn-
ig frá árunum þegar hennar eigin
fjölskylda dvaldi þar á sumrin.
Anna stundaði sitt barnaskóla-
nám í Landakotsskóla og þótti afar
vænt um skólann og kennara sína
þar. Í Landakoti lagði hún grunn að
góðri tungumálakunnáttu, því á
þeim tíma fór kennslan fram á
dönsku. Þar eignaðist hún líka vin-
konur fyrir lífstíð, þær Önnu
Björnsdóttur síðar Maack og Bryn-
hildi Sörensen, en vinátta þeirra
stóð í um áttatíu ár.
Haustið 1931 fór Anna til Ed-
inborgar og stundaði verslunar-
skólanám. Upp frá því skipuðu Ed-
inborg og Skotland sérstakan sess í
huga hennar og þangað ferðaðist
hún oft. Síðasta ferðin þangað var
farin þegar hún varð níræð, en þá
buðu synirnir henni í helgarferð á
fornar slóðir. Anna lagði sig fram
um að læra erlend tungumál og auk
góðrar kunnáttu í ensku og dönsku
náði hún góðu valdi á þýsku og síð-
ar norsku. Vann hún um skeið við
leiðsögn erlendra ferðamanna. Sjálf
hafði hún yndi af ferðalögum og
skoðaði sig víða um. Síðasta utan-
landsferðin var farin í maí á síðasta
ári er hún varð 91 árs. Þá fór hún
með Önnu sonardóttur sinni í viku-
ferð til Þýskalands. Mér er minn-
isstætt að þegar ég leit inn hjá
henni skömmu fyrir ferðina lágu á
borðinu gamlar námsbækur í
þýsku. Hún var að rifja upp og ætl-
aði að hafa málfræðina og sagn-
beygingarnar á hreinu.
Rúmlega tvítug að aldri kynntist
Anna norskum símafræðingi, Tom-
asi Haarde, sem komið hafði hingað
til lands til að setja upp sjálfvirkt
símkerfi á vegum Landssímans í
stað gamla handvirka símans. Tom-
as var ættaður frá Rogalandsfylki í
Noregi og ólst upp skammt frá
Haugasundi á vesturströndinni.
Hann var myndarlegur á velli og
góður íþróttamaður. Stundaði hann
ýmsar íþróttir, m.a. fimleika, skíða-
mennsku og skautahlaup en einnig
sjóböð og göngur. Anna og Tomas
gengu í hjónaband í september
1937 og eignuðust þrjá syni. Elstur
var Bernhard, þá Steindór og
yngstur Geir Hilmar. Heimili
þeirra var nánast alla tíð á Sól-
vallagötu 68.
Tomas var virkur í félagsstarfi
Norðmanna hér á landi, var for-
maður félags þeirra, Nordmannsla-
get, árum saman, þar með talið öll
stríðsárin þegar Noregur var her-
numið land. Þá voru hér á landi
bækistöðvar fyrir norska flugmenn,
m.a. í Nauthólsvík. Þetta hafði sín
áhrif á heimilislífið og Anna tók
virkan þátt í starfi mannsins síns og
heimili þeirra var opið Norðmönn-
um hér á landi. Skömmu eftir
stríðslok sæmdi Hákon Noregskon-
ungur Tomas St. Olavs-heiðursorð-
unni fyrir störf sín í þágu Norð-
manna hér á landi á stríðsárunum.
Anna og Tomas fóru þá í fyrsta sinn
saman til Noregs til að veita henni
viðtöku. Þar hitti Anna í fyrsta sinn
dóttur Tomasar, Lilly, sem hann
eignaðist áður en hann flutti til Ís-
lands. Ávallt var gott samband við
Lilly og fjölskyldu hennar og tók
hún jafnan vel á móti ættingjum
sínum frá Íslandi. Hún kom þó sjálf
aðeins einu sinni hingað til lands og
var ánægjulegt fyrir okkur hér
heima að sýna henni landið þar sem
faðir hennar hafði sest að. Berit
dóttir hennar hefur sömuleiðis
ræktað tengslin við Önnu og fjöl-
skylduna og er nú stödd hér til að
kveðja hana hinstu kveðju.
Anna varð fyrir þeim harmi að
missa bæði eiginmann sinn og elsta
son með aðeins tveggja mánaða
millibili vorið 1962. Þeir höfðu báðir
fengið krabbamein og héldu til Osló
til lækninga en áttu ekki aftur-
kvæmt. Má nærri geta hversu
þungbær reynsla þetta hefur verið
en um leið urðu böndin milli móður
og sonanna tveggja sem eftir voru
enn sterkari. Anna bjó áfram á Sól-
vallagötunni en eftir að foreldrar
hennar voru fallnir frá flutti hún á
Miklubraut 18, síðan um skeið á
Háaleitisbraut 51 og loks á Afla-
granda 40 þegar það hús var byggt
1989 og bjó þar síðan.
Anna tengdamóðir mín var glæsi-
leg kona, hress og glöð í bragði.
Hún var smekkleg og ávallt vel til
fara. Hún vildi hafa reglu á hlut-
unum og fallegt í kringum sig. Hún
var ákveðin og hafði skoðanir á
mönnum og málefnum. Hún naut
þess að vera í góðum hópi, var
glettin og spaugsöm. Hún hafði
yndi af tónlist, lék á píanó, las mikið
og spilaði bridge. Hún lét velferð
fjölskyldunnar allrar sig miklu
varða og hafði mikið yndi af barna-
börnunum og langömmubörnunum.
Mér og mínum reyndist hún vel frá
fyrstu tíð. Að leiðarlokum kveð ég
ANNA STEINDÓRS-
DÓTTIR HAARDE
Elskulegur bróðir okkar og mágur,
KRISTMUNDUR DALMANN JÓHANNESSON,
Skipholti 46,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Háteigskirkju föstudaginn
3. mars kl. 13.00.
Hjalti Auðunn Jóhannesson,
Þorgerður Jóhannesdóttir, Guðmundur Friðvinsson.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og
langalangafi,
BALDVIN SKÆRINGSSON
frá Steinholti, Vestmannaeyjum,
síðast til heimilis í
Hlaðhömrum 2,
Mosfellsbæ,
sem lést á Landspítala Hringbraut aðfaranótt
föstudagsins 24. febrúar, verður jarðsunginn frá Lágafellskirkju mánu-
daginn 6. mars og hefst athöfnin kl. 14.00.
Baldur Þór Baldvinsson,
Kristinn S. Baldvinsson, Sigríður Mínerva Jensdóttir,
Ragnar Þór Baldvinsson, Anna Jóhannsdóttir,
Birgir Þór Baldvinsson, Halldóra N. Björnsdóttir,
Hrefna Baldvinsdóttir, Snorri Þ. Rútsson,
Gústaf Baldvinsson, Anna Gunnlaugsdóttir,
Hörður Baldvinsson, Bjarney Magnúsdóttir,
Hörður Runólfsson,
Halla Guðmundsdóttir.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
OLGEIR SIGURGEIRSSON
fv. útgerðarmaður,
Skálabrekku 5,
Húsavík,
varð bráðkvaddur á heimili sínu mánudaginn
20. febrúar.
Útförin fer fram frá Húsavíkurkirkju laugardaginn 4. mars kl. 14.00
Ragnheiður Jónasdóttir,
synir, tengdadætur og afkomendur.
Elskulegur bróðir okkar, mágur og frændi,
MAGNÚS JÓNSSON,
dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Grund,
áður til heimilis á
Grettisgötu 18A,
lést á Grund mánudaginn 27. febrúar.
Útförin verður frá Seljakirkju í Breiðholti mánu-
daginn 6. mars kl. 15.00.
Málfríður Jónsdóttir, Haukur V. Bjarnason,
Sigríður Jónsdóttir, Sigurður Daníelsson,
Guðjón Jónsson, Sigríður Sigurðardóttir,
Ingibjörg Jónsdóttir, Ólafur Sveinsson,
Jón Guðmar Jónsson, Jóhanna Erlingsdóttir
og systkinabörn.
Ástkær sambýlismaður, faðir, tengdafaðir, afi,
langafi, bróðir og mágur,
HÉÐINN EMILSSON,
Bröndukvísl 22,
Reykjavík,
lést á heimili sínu miðvikudaginn 1. mars.
Sólveig Hrönn Friðjónsdóttir,
Margrét Héðinsdóttir, Björn Guðmundsson,
María Solveig Héðinsdóttir, Sigfús R. Sigfússon,
Emil Björn Héðinsson, Margrét B. Guðnadóttir,
Magnús Héðinsson, Margrét Þórarinsdóttir,
Davíð Héðinsson, Kristín B. Grétarsdóttir,
Edda Emilsdóttir, Þorsteinn Þorsteinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.