Morgunblaðið - 02.03.2006, Page 46
Afnám bjór-
bannsins gæfu-
spor að mati SUS
SAMBAND ungra sjálfstæð-
ismanna minntist þess í gær, 1.
mars, að sautján ár voru liðin frá
því að ríkisvaldið hætti að banna
landsmönnum að drekka bjór.
„Þótt fáir mæli því í mót í dag að
gæfuspor hafa verið stigið með af-
námi bjórbannsins má ekki gleyma
því að afturhaldssinnar og forræð-
ishyggjumenn í öllum flokkum
börðust ákaft gegn áfnámi banns-
ins þegar málið var til meðferðar á
Alþingi árið 1988. Sumir þeirra
sitja þar enn.
Á yfirstandandi þingi liggja fyrir
þrjú frumvörp sem horfa í sömu átt
og frumvarp þeirra þingmanna sem
lögðu til afnám bjórbannsins. Í
þessum frumvörpum er lagt til að
heimilt verði að selja léttvín og bjór
í matvöruverslunum, að áfeng-
iskaupaaldur verði lækkaður í 18
ár og að bann við áfengisauglýs-
ingum verði afnumið. Þessi mál
mæta sömu andstöðu og frumvarp
við afnámi bjórbannsins gerði á sín-
um tíma. Því miður eru þeir enn til
sem telja sig þess umkomna að hafa
vit fyrir öðru fólki með boðum og
bönnum, höftum og forsjárhyggju.
Ungir sjálfstæðismenn telja að
þau góðu áhrif sem afnám bjór-
bannsins hefur haft á íslenska vín-
menningu ættu að vera áminning
um að fólk er almennt fullkomlega
fært um að hafa vit fyrir sér sjálft
án sífelldra afskipta, boða og banna
af hálfu ríkisvaldsins. SUS skorar á
þingmenn, hvar í flokki sem þeir
standa, að draga lærdóm af jákvæð-
um áhrifum frjálsræðis á íslenska
vínmenningu og leggja ofan-
greindum frumvörpum lið sitt.“
46 FIMMTUDAGUR 2. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Yngstu spilararnir settu strik í
reikningana í Borgarfirðinum
Mánudaginn 24. febrúar voru
spilaðar þrjár síðustu umferðirnar í
aðalsveitakeppni félagsins. Borg-
nesingar hafa leitt mótið frá upp-
hafi og virtust sigla lygnan sjó.
Sveit Flemmings Jessens sem fór
illa af stað í mótinu hefur skorað
grimmt undanfarin kvöld og fékk
m.a. 70 stig af 72 mögulegum á
fimmta kvöldi. Þegar spilamennska
hófst síðasta kvöldið munaði ekki
nema tveimur stigum á sveitunum.
Hann jókst í 7 stig eftir fyrsta leik.
Í annarri umferð öttu Borgnesingar
kappi við sveit Fjölnis í Deildar-
tungu en hann er 13 ára og makker
hans Lára Lárusdóttir er einnig 13
ára. Þá brást snilld Borgnesinga og
þegar leiknum lauk kom í ljós að
Fjölnir hafði verðskuldað haft bet-
ur sem nam 14-10. Sannarlega
óvænt og það gaf Flemming og fé-
lögum færi á að ná efsta sæti í
fyrsta skipti í mótinu og það gerðu
þau svo nam einu stigi. Lokaum-
ferðin var því æsispennandi en það
fór svo að lokum að sveit Flemm-
ings gerði betur en Borgnesingar
og hampar titlinum. Með Flemming
spiluðu Guðmundur Þorsteinsson,
Anna Einarsdóttir og Kristján Ax-
elsson. Í sveit Borgnesinga spiluðu
Jón H. Einarsson, Rúnar Ragnars-
son, Dora Axelsdóttir, Sigurður
Már Einarsson og Stefán Kalmans-
son. Þriðja sæti hirtu svo nokkuð
örugglega Jóhann Oddsson á Stein-
um og hans menn, þeir Eyjólfur
Sigurjónsson, Jón Pétursson og
Eyjólfur Örnólfsson. Lokastaðan í
mótinu var þessi:
Sveit Flemmings Jessens 300
Sveit Borgnesinga 291
Sveit Jóa á Steinum 273
Sveit Baldurs í Múlakoti 245
Sveit Rögnu á Lundum 225
Sveit Fjölnis í Deildartungu 202
Næsta mánudag verður spilaður
tvímenningur og eru allir velkomnir
meðan húsrúm leyfir.
Sigursælir Borgfirðingar hampa verðlaunum í lok aðalsveitakeppninnar.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Undankeppni Íslandsmóts
í tvímenningi á
Norðurlandi eystra
Svæðamót Norðurlands eystra í
tvímenningi verður haldið í Lions-
salnum Ánni, Skipagötu 14, 4. hæð,
Akureyri, laugardaginn 11. mars
2006.
Spilamennska byrjar kl. 10 og
mótslok áætluð um kl. 20. Spila
þarf a.m.k. 60 spil. Spilað verður
samkvæmt Barometer-fyrirkomu-
lagi.
Keppnisgjald er 2.000 kr. á
mann. Kaffi og te innifalið. Spilað
er um silfurstig. Sex efstu pörin
vinna sér rétt til að spila í úrslitum
Íslandsmótsins í tvímenningi í
Reykjavík 29. apríl–1. maí 2006.
Rétturinn færist niður geti par/pör
ekki nýtt sér hann.
Við hvetjum eindregið til góðrar
þátttöku í skemmtilegu móti.
Æskilegt að sem flestir skrái sig
á spilakvöldi síns bridsfélags.
Skráning berist Stefáni Vil-
hjálmssyni, símar 898 4475 og 462
2468, netfang:
stefan@bugardur.is
Skráning í síðasta lagi kl. 13
miðvikudaginn 8. mars 2006.
FEBK Gjábakka
Það var spilað á 6 borðum sl.
föstudag og þessi urðu úrslitin í
N/S:
Magnús Halldórss. - Ólafur Ingvarss. 130
Lárus Hermannss. - Ólafur Lárusson 122
Jón Hallgrímss. - Bjarni Þórarinss. 107
A/V:
Hrafnhildur Skúlad. - Þórður Jörundss.
126
Auðunn Guðmss. - Bragi Björnsson 125
Guðrún Þórðard. - Ægir Ferdinandss. 107
Bridsdeild FEB
í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði, Stangarhyl, mánud. 27.02.
Spilað var á 11 borðum. Meðalskor
216 stig.
Árangur N-S
Ragnar Björnsson – Guðjón Kristjánss.
253
Sæmundur Björnss. – Birgir Sigurðsson
246
Oliver Kristóferss. – Magnús Halldórss.
235
Árangur A-V
Alda Hansen – Jón Lárusson 275
Þröstur Sveinss. – Bjarni Ásmunds 267
Tómas Sigurjónss. – Friðrik Jónsson 259
Bridsdeild
Hreyfils
Sl. mánudagskvöld var spilaður
hörkuspennandi eins kvölds tví-
menningur eins og sjá má af neð-
angreindum úrslitum.
Birgir Sigurðss. – Sigurrós Gissurard. 65
Daníel Halldórss. – Ágúst Benediktss. 64
Árni Kristjánss. – Birgir Kjartanss. 63
Gunnar Bíldal – Jóhanna Einarsd. 63
Næst er spilað á mánudagskvöld
í Hreyfilshúsinu og hefst spila-
mennskan kl. 19.30.
ÚTHLUTAÐ hefur verið fjórum
námsstyrkjum úr Guðrúnarsjóði,
en sjóðurinn var stofnaður með
samþykkt borgarráðs í fyrra í sam-
starfi við Eflingu-stéttarfélag. Það
var Steinunn Valdís Óskarsdóttir
borgarstjóri sem úthlutaði styrkj-
unum við athöfn í Höfða.
Sjóðurinn er nefndur eftir Guð-
rúnu Halldórsdóttur, fyrrverandi
forstöðumanni Námsflokka Reykja-
víkur, en hún vann mikið braut-
ryðjendastarf við uppbyggingu
námsflokkanna, þar sem boðið var
upp á fjölbreytta fullorðinsfræðslu.
Markmið sjóðsins er að styðja við
verkefni eða starf félagasamtaka á
þeim sviðum sem Guðrún Halldórs-
dóttir lét mest til sín taka og lýsa
má með þremur einkunnarorðum;
jafnrétti, fræðsla og fjölmenning.
Sparisjóður Reykjavíkur og ná-
grennis, SPRON, hefur gengið til
samstarfs við Reykjavíkurborg og
Eflingu um fjármögnun Guðrún-
arsjóðs. SPRON hefur ákveðið að
styrkja sjóðinn með einnar millj-
ónar króna framlagi. Þetta mik-
ilvæga framlag SPRON gerir
sjóðnum kleift að veita styrki ár-
lega á næstu 10 árum.
Að þessu sinni voru veittir fjórir
námsstyrkir að upphæð kr. 50.000
hver til einstaklinga sem sýnt hafa
djörfung og dug í námi sínu. Miðað
er við að styrkirnir dugi til greiðslu
skólagjalda.
Þessir hljóta styrk í ár: Huong
Xuan Nguyen (gengur undir nafn-
inu Emily), er 21 árs gömul og
fædd í Víetnam. Hún býr hjá móður
sinni og yngri bróður í Reykjavík.
Emily er þátttakandi í verkefninu
Framtíð í nýju landi, og nýtur þar
aðstoðar mentors. Emily er mjög
góður nemandi, brautskráðist af
náttúrufræðibraut MH í desember
2005 og hlaut viðurkenningu fyrir
árangur og frammistöðu í stærð-
fræði. Emily hóf nám í janúar í
verkfræði við Háskóla Íslands.
Máni Jósepsson, er 19 ára gamall
og fæddist í flóttamannabúðum í
Hong Kong. Móðir hans, sem lést
árið 2003, var í hópi vítetnamskra
flóttamanna sem komu til Íslands
árið 1991. Hann á tvær yngri syst-
ur, 13 og 5 ára gamlar, sem búa hjá
móðurbróður sínum. Máni býr á Ás-
vallagötu 14, þar sem Reykjavík-
urborg heldur heimili fyrir börn og
unglinga. Máni er eins og Emily
þátttakandi í verkefninu Framtíð í
nýju landi og starfar þar sem ráð-
gjafi. Hann var fulltrúi Íslands á
síðasta ári á ráðstefnu í Kraká um
ungt fólk gegn kynþáttahatri.
Hann hefur sýnt bæði dugnað og
kraft í námi. Hann er nú á þriðja
ári á náttúrufræðibraut í Kvenna-
skólanum, með frönsku sem sér-
grein.
Signý Björk Ólafsdóttir er 36 ára
og var þátttakandi í kvennasmiðj-
unni árið 2003 og hóf í kjölfarið
nám í Iðnskólanum í Hafnarfirði.
Hún lauk gluggaútstillinganámi
vorið 2005 og stundar nú alhliða
hönnunarnám á listnámsbraut við
sama skóla. Signý Björk hefur hlot-
ið lof fyrir ástundun, árangur og
lífskraft. Hún er fimm barna móðir
og eru börnin hennar á aldrinum 7
til 19 ára.
Helga Agnars Jónsdóttir, er á
sextugsaldri og hóf félagsliðanám
Eflingar í Námsflokkunum vorið
2004. Þetta er nám fyrir starfsfólk í
umönnun aldraðra, fatlaðra og í
heimaþjónustu. Helga veiktist á
vorönn 2005 og hefur glímt við al-
varlegan heilsubrest síðan. Hún
hefur sýnt einstakan dugnað og
áræði og haldið áfram námi sínu
þrátt fyrir erfiðar aðstæður og
veikindi. Helga stefnir á námslok
vorið 2006 og að vinna í kjölfarið
sem félagsliði með öldruðu eða fötl-
uðu fólki.
Hlutu viðurkenningu úr Guðrúnarsjóði
Sýning og kynning
hjá Slippfélaginu
Í VERSLUN og málningarverk-
smiðju Slippfélagsins í Dugguvogi 4
verður mikið um að vera föstudag-
inn 3. mars, en þá stendur Slipp-
félagið fyrir sýningu og kynningu á
öllu því nýjasta í þessari grein undir
heitinu Dagur málarans.
Á Degi málarans gefst fagmönn-
um kostur á að kynna sér allt það
nýjasta í framleiðslu og vinnuað-
ferðum. Slippfélagið flytur til lands-
ins sérfræðinga á ýmsum sviðum frá
leiðandi fyrirtækjum í heiminum til
þess að koma málurum í beint sam-
band við það nýjasta sem er að ger-
ast á hverju sviði. Húsakynnum
Slippfélagsins hefur verið breytt
sérstaklega fyrir þennan kynning-
ardag og aðstaða útbúin af þessu til-
efni. Á Degi málarans kynnir starfs-
fólk Slippfélagsins helstu nýjungar í
framleiðslu og starfsemi félagsins,
en auk þess verður meðal annars
boðið upp á kynningar frá fyr-
irtækjum í nágrannalöndum okkar.
Slippfélagið býður málara og
aðra, sem áhuga hafa á að kynnast
því nýjasta í greininni, velkomna í
Dugguvog 4 á Degi málarans 3.
mars kl. 16– 20.
Styrkur úr Sagn-
fræðisjóði Björns
Þorsteinssonar
ÁKVEÐIÐ hefur verið að veita styrk
úr Sagnfræðisjóði dr. Björns Þor-
steinssonar fyrir árið 2006 að upp-
hæð 400.000 krónur.
Í 4. grein skipulagsskrár sjóðsins
stendur: Tilgangur sjóðsins er að
styrkja með fjárframlögum stúdenta
við nám undir kandídatspróf í sagn-
fræði og kandídata í sömu grein til
að rannsaka – og vinna að ritum um
– sérstök verkefni er varða sögu Ís-
lands eða efni því nátengt. Veita má
manni styrk til sams konar verkefna
er eigi hefur verið í Háskóla Íslands
og er sérstakar ástæður mæla með
því að mati stjórnar og öll stjórnin er
sammála þar um, segir í frétta-
tilkynningu.
Umsóknum ber að skila á skrif-
stofu hugvísindadeildar Háskóla Ís-
lands í Nýja Garði, eigi síðar en 15.
mars nk.
Framsóknarfélög
í Kópavogi
sameinast
Á AÐALFUNDI Framsóknarfélags
Kópavogs, sem haldinn var í febr-
úar sl., var samþykkt að sameinast
Framsóknarfélaginu Digranesi og
Brynju, félagi framsóknarkvenna í
Kópavogi. Hin félögin tvö höfðu áð-
ur samþykkt að sameinast Fram-
sóknarfélagi Kópavogs. Samein-
ingin er undir nafni Framsóknar-
félags Kópavogs og tók gildi strax.
Ólafur Hjálmarsson var kosinn
formaður og aðrir í stjórn eru
Andrés Pétursson, Hjalti Björns-
son, Sigurbjörg Vilmundardóttir og
Samúel Örn Erlingsson. Varamenn
voru kjörnir Sigurður R. Guð-
mundssson, Þorgeir Þorsteinsson
og Einar Sveinn Ólafsson. Ómar
Stefánsson bæjarfulltrúi, sem verið
hefur formaður Framsóknarfélags
Kópavogs síðustu ár, gaf ekki kost
á sér til endurkjörs.
Kiwanisfélagar heiðraðir
FÉLAGAR í Kiwanisklúbbnum
Setbergi heiðruðu fyrir skömmu
þrjá félaga sína, þá Sigurð Ingi-
bergsson og Þorleif Markússon,
sem báðir fengu Hixson-orðu, og
Matthías G. Pétursson, sem fékk
Hixson-orðu með demanti þar
sem hann hafði áður fengið Hix-
son-orðu.
Hixson-orðan er æðsta við-
urkenning sem veitt er Kiw-
anisfélögum, en hana fengu þre-
menningarnir fyrir vel unnin
störf í þágu klúbbsins og hreyf-
ingarinnar. Þeir eru allir stofn-
félagar í Setbergi og hafa því
starfað í Kiwanishreyfingunni í
yfir 30 ár.
Orðurnar veitti umdæmisstjóri
Kiwanisumdæmis Ísland-
Færeyjar, Guðmundur Bald-
ursson, en á fundinum, sem hald-
inn var 16. febrúar, fór hann yfir
það helsta sem hefur gerst í um-
dæminu síðan í haust og hvað sé
framundan.
Umdæmisþing Kiwanis 2005
var haldið í Garðabæ á síðasta
hausti. Fundinn sátu líka nokkrir
félagar úr Kiwanisklúbbnum
Smyrli í Borgarnesi og tveir
Heklufélagar. Þeir síðarnefndu
áttu sæti í umdæmisþingnefnd
2005, en Setberg átti hina fimm.
Þakkaði umdæmisstjóri þing-
nefndarmönnum og klúbb-
félögum fyrir vel undirbúið og
eftirminnilegt þing, sem hefði í
alla staði tekist vel.
Á fundinum tók Óskar Guð-
jónsson, erlendur ritari Kiwanis-
umdæmisins, einnig til máls og
fræddi hann fundarmenn um
uppbyggingu ungliðaklúbba inn-
an Kiwanis.