Morgunblaðið - 02.03.2006, Síða 48
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
THELMA
LICKSPITTLE
ÆTLI HÚN EIGI EFTIR
AÐ GIFTA SIG?
ÉG VONA ÞAÐ,
HENNAR VEGNA
ORÐUM
ÞETTA ÖÐRU-
VÍSI
EF AÐ HJÖRÐ AF KANÍNUM
VÆRI Á LEIÐINNI...
...OG ÞÚ VÆRIR SÁ EINI
SEM GÆTI BJARGAÐ OKKUR,
MUNDIRÐU GERA ÞAÐ?
AF HVERJU KALLAR FÓLK
ÞIG EDDA HEPPNA?
EFLAUST VEGNA ÞESSA AÐ ALLT
GENGUR MÉR Í HAGINN
VERTU
EKKI SVONA
STÚRINN.
ÞETTA
TILHEYRIR ÞVÍ
AÐ VERA Í
ÚTILEGU
ÞETTA GÆTI VERIÐ VERRA.
ÞAÐ ER ALLAVEGA EKKI
BYRJAÐ AÐ SNJÓA
HA?
ÍMYNDIÐ
YKKUR AÐ ÞAÐ
VÆRI BYRJAÐ
AÐ SNJÓA, ÞÁ
GÆTUM VIÐ
EKKI KVEIKT
ELD
DÓSA-
MATUR ER
UPPÁ-
HALDIÐ
MITT
ÞEIR BIÐJA ALLA
VIÐEIGANDI
SÖNGVARA AÐ
SKRÁ SIG Í KÓRINN
„VIÐEIGANDI“
SÖNGVARA?
GELDINGA!
STUNDUM
SYNGJA ÞEIR Á
SVO HÁUM NÓTUM
AÐ EKKI EINU
SINNI HUNDAR
HEYRA Í ÞEIM
ÆTLI ÉG SÉ NÓGU
DUGLEG VIÐ AÐ TJÁ LEN
HVERSU MIKILS ÉG MET
HANN?
ÉG ÆTLA AÐ HRINGJA Í
HANN OG SEGJA HONUM
ÞAÐ. MÉR ÞÆTTI ALLA-
VEGA VÆNT UM SLÍKT
LEN, MIG LANGAÐI BARA
AÐ HRINGJA TIL AÐ SEGJA
ÞÉR HVERSU MIKILS ÉG
MET ÞIG
HVAÐ?
HVAÐ ER AÐ ÁSTIN MÍN?
EF EITTHVAÐ SLÆMT HEFUR
KOMIÐ FYRIR ÞÁ SKALTU
BARA SEGJA MÉR ÞAÐ
ÉG ER
BÚINN AÐ
FÁ STYRK
MINN
AFTUR.
NÚ GET
ÉG
STAÐIÐ
KÓNGULÓAR-
KRAFTAR
MÍNIR SVÍKJA
MIG ALDREI
SVO ER
ANNAÐ... ÉG OG ÞÚ ÞURFUM AÐ
ÚTKLJÁ OKKAR MÁL
Dagbók
Í dag er fimmtudagur 2. mars, 61. dagur ársins 2006
Engan söng hér,takk!“ galaði af-
greiðslukona í mið-
borg Reykjavíkur með
þjósti í gær, á ösku-
degi, þegar hópur,
sem samanstóð af
þremur Silvíum Nótt-
um, einni prinsessu og
tvíeggja einburanum
Batkúla (Batman Dra-
kúla), skeiðaði inn á
búðargólf og gerði sig
reiðubúinn til söngs.
„Við tökum ekki þátt í
þessu,“ sagði búð-
arlokan hastarlega.
Börnin hrökkluðust
út, og ein Silvía Nóttin tók þá eftir
því að á miða á hurðinni stóð: „Ekk-
ert nammi í boði hér.“
Víkverja þótti nóg um þennan at-
gang. Þegar börnin voru farin út
upphófust samræður milli af-
greiðslukonunnar og viðskiptavinar
um það hvað öskudagurinn hefði nú
verið betri í gamla daga, þegar þær
sátu við öskupokasauma í margar
vikur fyrir öskudag, og skemmtu sér
svo við að næla í vegfarendur sjálfan
öskudaginn. „Verst hvað það var oft
erfitt að fá títuprjóna sem hægt var
að beygja,“ tuðaði afgreiðsludaman í
sjálfhverfri nostalgíunni, sem var
enn hlaðin vanþóknun á öskudags-
hegðun barna nú-
tímans.
Víkverji ákvað að
skipta sér ekki af í
þetta sinn, þótt hann
skipti oft yfir í hvassan
útsynning yfir full-
orðið fólk sem ber
enga virðingu fyrir
börnum.
Víkverja datt í hug
að sennilega væru
Skröggarnir margir;
þeir væru líka á Ís-
landi, og væru í essinu
sínu á öllum árstímum,
– ekki bara um jól.
Aumt er að geta
ekki unnt börnum þess að vera börn,
– þótt þau hafi aðra siði en maður
sjálfur hafði sem barn. Aumt er að
geta ekki glaðst yfir misfögrum söng
krakka sem hafa haft mikið fyrir því
að finna sér gervi og safnað í sig
heljarinnar kjarki til að syngja
svona næstum opinberlega. Aumt er
að geta ekki séð af nokkrum hundr-
aðköllum í öskudagsnammi handa
tindilfættum Silvíum, prinsessum og
súpermönnum. Aumt er að vera sá
endemis fýlupoki að geta ekki sam-
glaðst fólki þótt manni þyki það
kannski pínulítið kjánalegt. Aumt er
að vera búinn að gleyma því hvernig
það er að vera barn.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Hagatorg | Sigríður Ólöf Valdimarsdóttir og Kolbeinn Ingi Björnsson dansa
hér konunglegan dans sem Dimmalimm og Pétur úr ævintýrinu góða eftir
Mugg, Guðmund Thorsteinsson. Sinfóníuhljómsveit Íslands býður rúmlega
3.500 leikskólabörnum af höfuðborgarsvæðinu á tónleika í Háskólabíói á æv-
intýrið um Dimmalimm. Garðar Thor Cortes og Halla Vilhjálmsdóttir leika
og syngja á tónleikunum en einnig koma fram nemendur úr Listdansskól-
anum og kór Kársnesskóla. Edda Heiðrún Backman leikstýrir en hljómsveit-
arstjóri er Bernharður Wilkinson. Heimsóknirnar eru árlegur viðburður og
hafa verið í tæp 15 ár.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Engin er eins þæg og góð …
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100.
Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Orð dagsins: Guð vonarinnar fylli yður öllum fögnuði og friði í trúnni,
svo að þér séuð auðugir að voninni í krafti heilags anda. (Róm. 15, 15, 13.)