Morgunblaðið - 02.03.2006, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. MARS 2006 53
MENNING
Síðustu forvöð!!!
2. mars uppselt
3. mars
9. mars
15. mars
16. mars
23. mars
24. mars
25. mars uppselt
30. mars
31. mars
1. apríl
Landið í maí
Vestmannaeyjar
4. maí sýning
5. maí sýning
6. maí sýning
7. maí sýning
Seyðisfjörður
10. maí sýning
11. maí sýning
12. maí sýning
13. maí sýning
14. maí sýning (aukas.)
Landið í maí
Akureyri
17. maí sýning
18. maí sýning
19. maí sýning
21. maí sýning
Ísafjörður
25. maí sýning
26. maí sýning
27. maí sýning
Aðeins þessar sýningar:
í Reykjavík
Viðskiptavinir Landsbankans
fá 500 króna afslátt á
ofangreindum stöðum„Frábærlega gert. Staðhæfingarnar
frábærar og hnyttinn texti.
Hvílíkur gimsteinn sem þessi kona
er á sviðinu.
Að sjá hverning hún rúllaði
áhorfendunum upp.
Til hamingju með það.“
Bragi Hinriksson
ÞAÐ voru stuttir en nettir undorns-
tónleikar í ýmsum samsetningum
fimm meðlima KaSa-hópsins í sal
Ráðhússins á sunnudag. Tónlistin
var flest frekar aðgengileg dæmi
um sígild íslenzk verk frá um 1890
til 1980, og mátti líka vera það, því
mannaþysinn úr aðliggjandi hólfi
salarins, þar sem var myndlist-
arsýning, truflaði á köflum meira en
góðu hófi gegndi. Af sömu sökum
misfórst líka sitthvað í munnlegum
kynningum KaSara í stað prent-
aðrar tónleikaskrár, og setti allt
(ásamt óheppilegum hljómburði fyr-
ir einkum strengi og flautu) tónleik-
unum umgjörð er var til lítils sóma
fyrir umsýslumenn Vetrarhátíðar.
Þokkalegast út úr þessum hvim-
leiðu aðstæðum komu fyrsta og síð-
asta atriðið, enda þoldu þær skást
Rímnadansar Jóns Leifs í hálfmód-
ernískri en hressri útsetningu Atla
Heimis Sveinssonar og viktoríanskt
hljómskálakennt Píanótríó Svein-
björns Sveinbjörnssonar. Verr fór
um Intermezzo Atla úr Dimmal-
imm, og verst um I. þáttinn úr
Fiðlusónötu Jóns Nordal og kúbískt
tríóverk Leifs Þórarinssonar með
schönbergskum undirtónum fyrir
flautu, selló og píanó frá 1975 (að
mér heyrðist), er hvort tveggja
þurfti áberandi betra næði en hér
var að heilsa. Allt var þó ágætlega
spilað, og kynningar einstakra flytj-
enda á hverju verki voru margar
fróðlegar og skemmtilegar, að svo
miklu leyti sem þær bárust til öft-
ustu hlustenda. Í sjálfu sér var svo
sem ekkert að frjálslega „Proms“-
fyrirkomulaginu, þar sem áheyr-
endur gátu komið og farið að vild.
En lágmarkskrafa hefði verið að
vera sæmilega laus við óheftan
mannaklið úr nærliggjandi vist-
arverum. Klassískur kammerleikur
er allt önnur og viðkvæmari ella en
t.a.m. stórsveitardjamm.
Íslenzk klassík við mannaklið
TÓNLIST
Ráðhúsið
Þættir og verk eftir Jón Leifs, Atla Heimi
Sveinsson, Jón Nordal, Leif Þórarinsson
og Sveinbjörn Sveinbjörnsson. Meðlimir
úr KaSa-hópnum. Laugardaginn 25. febr-
úar kl. 15.
KAMMERTÓNLEIKAR
Ríkarður Ö. Pálsson
RAFN Hafnfjörð hefur um 50 ára skeið fest
landslag Íslands á filmu. Afrakstur vinnunnar
hefur birst í ýmsum myndum; í ferða-
mannabæklingum, á póstkortum, í bókum og
dagatölum, sem og á sýningum, í sjónvarpi og á
vefsíðum á netinu. Fjöldi fólks hefur einnig séð
myndir Rafns á óvenjulegum stað, en 32 ljós-
myndir hans hafa prýtt smáar umbúðir utan um
kaffirjóma, sem hefur verið dreift bæði innan-
lands og utan síðan árið 1998.
Nýverið fengu Mið-Evrópubúar að kynnast
ljósmyndum Rafns, en hann opnaði á dögunum
tvær ljósmyndasýningar, aðra í Strassborg en
hina í Lúxemborg. Strassborgar-sýningin var
haldin dagana 3.–27. nóvember sl. í stjórnsýslu-
húsinu þar í borg. Sýningin í Lúxemborg opnaði
hins vegar 16. febrúar í Lux Tech Center og
sýndi Rafn þar 30 ljósmyndir.
Að sögn Rafns var fjöldi manns viðstaddur
opnunina, og vakti sýningin þó nokkra hrifn-
ingu. „Við opnunina, sem var mjög glæsileg, var
líklega nálægt 100 manns og gerður gífurlega
góður rómur að sýningunni,“ segir hann í sam-
tali við Morgunblaðið, en strax á opnuninni seldi
hann nokkrar myndir.
Myndir seldar á opnun
Lux Tech Center er nýleg stórbygging, í eigu
Íslendings sem búsettur er erlendis, þar sem
finna má veitingastað auk sýningarsalarins. Að
undanförnu hafa nokkrir Íslendingar sýnt þar á
undan Rafni. „Þetta er stór og skemmtilegur
salur; að vísu er dálítið mikill gróður þarna inni
sem truflar kannski sýninguna á vissan hátt og
þó ekki, því það gerir hann líka hlýlegan,“ segir
Rafn. „Þarna kemur mikill straumur fólks, því
þarna er opið langt fram á kvöld og allan dag-
inn.“
Rafn segir fólk ytra ekki hafa vitað á hverju
það ætti von; jafnvel búist við myndum af Gull-
fossi, Geysi, jöklum og öðru í þeim dúr. „En
myndirnar mínar eru af öðrum toga – ég er auð-
vitað búinn að mynda öll fjöll á fimmtíu ára ferli.
Síðustu ár hef ég því farið að taka meira af list-
rænum og óhlutbundnum myndum, og helga
mig því algjörlega nú í dag,“ segir hann. Á sýn-
ingunni sýndi hann einnig 75 litskyggnumyndir
af norðurljósum og segir hann dálitlum heim-
þrárglampa hafa brugðið fyrir í augum Íslend-
inganna sem búsettir eru ytra við að sjá þær.
„Það voru nokkrir sem komu til mín og sögðu,
Rafn minn, þetta áttirðu ekki að gera okkur. En
það var nú bara gaman,“ segir hann að síðustu.
Ljósmyndun | Rafn Hafnfjörð sýnir í Strassborg og Lúxemborg
Norðurljósin
kölluðu fram tár
Ljósmynd/Rafn Haffjörð
Íslandsmyndir Rafns Hafnfjörð eru langt frá því að vera hefðbundnar fjallamyndir.
Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur
ingamaria@mbl.is