Morgunblaðið - 02.03.2006, Page 60
ÁHUGI á fasteignum á Húsavík hefur stóraukist á
undanförnum mánuðum og misserum og hefur
verðið hækkað um 40% á undanförnu einu og hálfu
ári. Þá hafa stórir aðilar af höfuðborgarsvæðinu
spurst fyrir um fasteignir á Húsavík það sem af er
þessari viku, í aðdraganda þess að Alcoa tilkynnti
um ákvörðun sína.
„Það er alveg staðreynd að það er búinn að vera
mikill hasar í dag (gær) og tvo undanfarna daga og
þar á meðal hafa aðilar verið að gera tilboð í eignir
hér á Húsavík,“ sagði Berglind Svavarsdóttir, lög-
maður og fasteignasali á Húsavík.
Hún sagði að hins vegar væri það þannig að það
væri ekki mikið um eignir til sölu á svæðinu. Mjög
mikil sala á eignum á Húsavík hefði verið und-
anfarið eitt og hálft ár, sem hún rekti að stórum
hluta til væntinga fólks um að álver yrði byggt á
svæðinu og eignir hefðu hækkað um 40% í verði á
undanförnu einu og hálfu ári. Eignir sem hefðu
verið að seljast áður á 12–14 milljónir væru komn-
ar í um tuttugu milljónir króna. Það væri auðvitað
mjög gott fyrir fólk að fá eitthvað fyrir eignir sín-
ar. „Þannig að þessi skriða byrjaði í raun fyrir einu
og hálfu ári síðan,“ sagði Berglind enn fremur.
Hún sagði að svo hefði komið fram mikill áhugi
frá utanaðkomandi aðilum á fasteignum á Húsavík
það sem af væri þessari viku áður en ákvörðun Al-
coa hefði legið fyrir.
Stóraukinn
áhugi á fasteign-
um á Húsavík
LÖGREGLUMENN vísuðu háværum mót-
mælendum með valdi út af skrifstofu Alcoa á
Suðurlandsbraut í gær. Hópurinn nefnir sig
Ungliða gegn stóriðju og tók sér mótmæla-
stöðu vegna ákvörðunar Alcoa um að hefja ít-
arlega könnun á hagkvæmni þess að reisa
nýtt álver á Bakka við Húsavík. Ungliðarnir
börðu trommur og blésu í lúðra. Mótmælend-
urnir voru yfir 20 talsins og var lögreglan
kölluð til þar sem ekki þótti vinnufriður á
skrifstofunni. Þeir hlýddu ekki fyrirmælum
lögreglu í fyrstu og voru því dregnir út. Ekki
kom þó til þess að neinn yrði handtekinn.
Lauk aðgerðinni á 40 mínútum samkvæmt
upplýsingum lögreglu.
Í kröfugerð ungliðanna er farið fram á að
ekkert álver verði reist á Norðurlandi og að
fallið verði frá stóriðjuáformum á Íslandi. Þá
er þess krafist að Alcoa hafi sig burt frá Ís-
landi og að byggingu Kárahnjúkavirkjunar
verði hætt. Enn fremur að byggingu álvers í
Reyðarfirði, sem ungliðarnir segja ólöglegt,
verði hætt.
Neitað um þjóðaratkvæðagreiðslu
Í yfirlýsingu hópsins segir enn fremur að
frá upphafi hafi mótspyrna við stóriðjuáætl-
anir verið háð af fræðimönnum og stjórn-
málamönnum á sama tíma og öðrum hafi ver-
ið neitað um þjóðaratkvæðagreiðslu og önnur
úrræði til að hafa áhrif á gang mála. „Nú þeg-
ar sýnt þykir að umræður, blaðaskrif, ræðu-
höld og fortölur dugi ekki til þess að fá rétt-
indum okkar fullnægt neyðumst við til að
grípa sjálf til aðgerða. Við viljum benda Al-
coa, ríkisstjórninni og öðrum þeim sem hlut
eiga að máli á að við erum ósátt við framgang
mála og munum beita öllum ráðum, að ofbeldi
undanskildu, til þess að stöðva framgang al-
þjóðavæðingar og stóriðju á Íslandi,“ segir
þar m.a.
Að sögn Ernu Indriðadóttur, kynningar-
stjóra Alcoa, er það mikið ánægjuefni að ungt
fólk láti sig þjóðfélagsmál varða og tileinki sér
þann lýðræðislega rétt að láta skoðanir sínar í
ljós. „Ungt fólk þarf að læra það. Því miður
urðu ólætin á skrifstofunni svo mikil í dag að
það var ekki vinnufriður þannig að óskað var
eftir því við lögreglu að hún bæði ungu mót-
mælendurna að fara út,“ sagði Erna.
Morgunblaðið/ÞÖK
Mótmælendur við
skrifstofur Alcoa
fjarlægðir með valdi
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 FIMMTUDAGUR 2. MARS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Opið 8-24 alladaga
í Lágmúla og Smáratorgi
HJÖRLEIFUR Valsson lék á
Stradivaríus-fiðlu í Graf-
arvogskirkju í gær þegar
upplestur Passíusálma hófst,
en fiðlan er metin á yfir 100
milljónir króna. Halldór Ás-
grímsson forsætisráðherra
las fyrsta sálminn.
„Á leiðinni heim“ kallast
upplestur Passíusálma í Graf-
arvogskirkju sem hófst í gær
þegar forsætisráðherra las
fyrsta sálminn. Einn til tveir
Passíusálmar verða lesnir
hvern virkan dag og munu 32
þingmenn og ráðherrar sjá um lesturinn, að sögn séra Vigfúsar Þórs Árna-
sonar, sóknarprests í Grafarvogskirkju. Upplestri Passíusálma lýkur á
skírdag þegar Geir H. Haarde utanríkisráðherra les síðasta sálminn.
Hjörleifur Valsson lék á Stradivaríus-fiðlu í gær, á fyrsta degi upplestr-
arins, sem metin er á yfir 100 milljónir króna. Þessi fiðla er ein af þeim síð-
ustu sem Stradivaríus smíðaði og telja sérfræðingar að hún hafi verið
smíðuð á árunum 1732–34, samkvæmt upplýsingum frá Hjörleifi.
Stradivaríus var því 92 ára þegar smíði fiðlunnar hófst. Hjörleifur er með
fiðluna að láni og er búinn að hafa hana í viku. ,,Þetta er óskaplega falleg
fiðla og dásamlegt að spila á hana. Ég er svo heppinn að fá að njóta hennar
hérna í smátíma. Sumir deyja eftir langan og góðan feril án þess að fá
nokkurn tímann að snerta svona fiðlu þannig að ég tel mig mjög lán-
saman,“ segir Hjörleifur. Hörður Bragason, organisti Grafarvogskirkju,
og Birgir Bragason kontrabassaleikari léku undir hjá Hjörleifi í gær.
Hjörleifur Valsson lék á Stradivaríus-fiðlu,
sem metin er á yfir 100 milljónir króna.
Lék á Stradivaríus-fiðlu
á upplestri Passíusálma
Morgunblaðið/Árni Torfason
MARGAR plöntur hafa látið blekkjast af blíðviðr-
inu í febrúar og farið að bruma og jafnvel laufg-
ast. Guðmundur Vernharðsson hjá Gróðrarstöð-
inni Mörk segir að hlýindakafli í febrúar sé ekki
eins hættulegur og í mars þegar sólin er komin
hærra á loft.
Hann segir þó að fjölærar plöntur eins og
páskaliljur geti farið illa út úr hlýindakafla um
miðjan vetur og einnig tegundir eins og gljá-
mispill, blátoppur og reyniblaðra. Tegundir sem
blómstra áður en þær laufgast eins og rósakirsi
og töfratré geta einnig orðið fyrir skemmdum.
Þorkell Gunnarsson, formaður Félags ís-
lenskra skrúðgarðyrkjumeistara, segir að ef
spáð er miklu frosti og jafnvel langvarandi sé
hægt að skýla plöntunum með efni eins og striga
sem lokar ekki á ljós og loft. Þá bendir hann á að
sumir sprauti vatni á plönturnar og láti það
frjósa á þeim til hlífðar. | 25
Þola laufgaðar
plöntur frost?
ERLENDIR ríkisborgarar hér á
landi eru um 7% vinnuaflsins.
Þetta hlutfall hefur hækkað ört á
undanförnum misserum og er núna
hæst á Íslandi af öllum Norður-
löndunum.
Samkvæmt nýjum tölum Hag-
stofunnar eru tæplega 12 þúsund
erlendir ríkisborgarar hér á landi á
aldrinum 16–64 ára, en Vinnumála-
stofnun miðar við þann aldurshóp
þegar hún mælir virkni á vinnu-
markaði. Erlendir ríkisborgarar fá
almennt ekki dvalarleyfi á Íslandi
nema þeir hafi atvinnuleyfi og þess
vegna er virkni erlendra ríkisborg-
ara á vinnumarkaði mjög mikil.
Ekki liggja fyrir nýjar tölur frá
hinum Norðurlöndunum um fjölda
erlendra ríkisborgara á vinnu-
markaði, en Gissur Pétursson, for-
stjóri Vinnumálastofnunar, segir að
hlutfallið sé hæst hér á landi. Í árs-
gamalli skýrslu frá Vinnumála-
stofnun kemur fram, að annars
staðar á Norðurlöndum er virkni
erlendra ríkisborgara á vinnu-
markaði minni en hér á landi. Í
Danmörku voru erlendir ríkisborg-
arar t.d. 5,2% af mannfjölda árið
2002, en hlutfall erlendra ríkis-
borgara af vinnuafli var hins vegar
aðeins 3%.
Huga þarf að
réttindum starfsfólks
Gylfi Arnbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri ASÍ, segir það í
sjálfu sér ekki áhyggjuefni að er-
lendum ríkisborgurum fjölgi hér á
vinnumarkaði. Aðalatriðið sé að
tryggt sé að þetta fólk fá sambæri-
leg kjör og Íslendingar, bæði þess
sjálfs vegna og eins til að tryggt sé
að erlendu ríkisborgararnir grafi
ekki undan íslenskum vinnumark-
aði með lágum launum.
Gylfi segir að erlendu vinnuafli
hafi fjölgað mjög mikið í veltu-
tengdum atvinnugreinum eins og
byggingariðnaði. Það sé visst
áhyggjuefni hvað gerist þegar sam-
dráttur verði í byggingariðnaði.
Hann segist hafa sérstakar áhyggj-
ur af réttindum erlendra starfs-
manna við þær aðstæður, sérstak-
lega í sambandi við réttindi í
sjúkrasjóði og veikindarétt. Verka-
lýðshreyfingin hafi verið að tapa
málum sem varða greiðslur er-
lendra starfsmanna í sjúkrasjóði,
en það þýði jafnframt að þeir njóti
ekki réttinda úr sjúkrasjóðum.
Gylfi segir ólíklegt að sú upp-
sveifla sem er á vinnumarkaði hér
á landi verði um alla framtíð og því
sé nauðsynlegt að huga að stöðu
erlendra starfsmanna þegar sam-
dráttur verði.
Erlendir ríkisborgarar
eru um 7% vinnuaflsins
Hlutfallið er hæst á Íslandi af Norðurlöndunum
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
♦♦♦