Morgunblaðið - 06.03.2006, Page 2
2 F MÁNUDAGUR 6. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
M
ikil gróska hefur verið í
nýbyggingum víða um
land undanfarin miss-
eri og ljóst að margir
hafa skipt um íbúð. Fólk er enda
alltaf að flytja, eins og einhver
sagði, en það á þó ekki við um
hjónin Ingu Jóelsdóttur og Björn
Guðjónsson sem giftu sig 1942 og
hafa síðan búið saman á sama
blettinum við Ægisíðuna í Reykja-
vík. Hann reyndar lengur því hann
fæddist þar fyrir nær 85 árum.
Síðasti grásleppukarlinn
Líf og fjör hefur einkennt Ægi-
síðuna og einhverra hluta vegna
dettur manni í hug þjóðvegur
númer 66 eða Route 66 vestur í
Bandaríkjunum þegar tekið er hús
á Birni og Ingu á Ægisíðu 66 þar
sem þau ólu upp fimm börn. „Ég
var gamaldags húsmóðir og hugs-
aði um börnin mín en hér hefur
alltaf verið mikil umferð síðan gat-
an var lögð,“ segir Inga. „Þegar
enn var róið héðan hittust menn
gjarnan hérna við vörina og oft var
margt um manninn,“ segir Björn.
„Þetta var eins konar samkomu-
staður þar sem var hlegið og rifist.
Það var ákaflega skemmtilegur
tími.“
Á árum áður stunduðu menn út-
gerð frá Ægisíðunni og er Björn
síðasti grásleppukarlinn sem gerði
út frá Grímsstaðavörinni en nú
minna aðeins fáeinir skúrar fyrir
ofan vörina á það mikilvæga starf
sem unnið var við Ægisíðuna og
frá henni um aldir. „Ég fæddist
inn í grásleppuna, pabbi var í
henni og afi og svona gekk þetta
mann fram af manni,“ segir Björn.
„Nú á ég ekkert færi, ekkert net,
engan bát og hef sótt sjóinn í síð-
asta sinn, en nýt þess að horfa út á
hafið héðan úr stofunni okkar. Fer
reyndar stundum niður að skúr-
unum til að minnast gamalla tíma.
Það er ekki hægt annað, þótt ekki
megi lengur míga utan í skúrana
því þeir eru nýfriðaðir. En hérna
var mikil útgerð, allt upp í 16
bátar reru héðan þegar mest var á
árunum fyrir stríð.“
Inga segir að göngustígarnir
þjóni sínum tilgangi og það sé
dásamlegt að hafa allt útsýnið sem
þau hafi úr stofuglugganum. „Það
er sérstaklega fallegt að horfa út á
hafflötinn og fylgjast með sólarlag-
inu,“ segir hún. „Útsýnið er svo
sannarlega gott.“
Í túninu heima
Björn fæddist á býli foreldra
sinna sem hét Bjarnastaðir. Þar
bjó hann með þremur systkinum
og foreldrum sínum auk þess sem
móðurafi hans og -amma bjuggu í
viðbyggingu. Jörðin náði frá þar
sem Tómasarhagi liggur mitt á
milli Dunhaga og Hjarðarhaga og
niður að sjó, þar sem grásleppu-
skúrarnir eru fyrir ofan vörina.
„Ég er úr Flóanum, ólst upp suður
með sjó en flutti til Reykjavíkur
1940 og það hefur mjög margt
breyst síðan, ekki síst hérna við
Ægisíðuna,“ segir Inga. „Bjarna-
staðir voru ósköp venjulegur bær
með húsi, fjósi og hænsnakofa.
Hér voru bara engi og tún allt í
kring og til dæmis aðeins troðn-
ingur út í Skjól. Ægisíðan var síð-
an lögð í túnið hjá tengdapabba og
það voru mestu viðbrigðin að fá
umferðina hérna við húsdyrnar.
Borgin kom til okkar í sveitina.“
Björn segir að hann hafi vissu-
lega alist upp á venjulegum bæ í
Reykjavík. „Það var smábúrekstur
á Bjarnastöðum eins og algengt
var í þá daga, kálgarður fyrir
framan húsið og túnið fyrir neðan.
Margir áttu eina kú eða tvær og
kannski hross. Við vorum með
nokkrar kýr og hænsni og veidd-
um í soðið frá Ægisíðunni. Húsið
var nokkuð reisulegt en það var
hins vegar rifið þegar Tómasar-
hagi var lagður. Þá byggði ég
hérna og við fluttum inn 1955.
Tómasarhaginn liggur þar sem
Bjarnastaðir voru og því var ekki
um annað að ræða en byggja nýtt
neðar í lóðinni. Sumum þótti það
samt brjálæði og ég var talinn vit-
laus að leggja út í svona vitleysu
en húsið reis, ég sótti sjóinn eins
og ég átti kyn til og ég er hérna
enn, sit við Ægisíðuna og horfi út
á sjóinn. Ég hef það ljómandi gott
og get ekki haft það betra en í
túninu heima. Ég þurfti ekki að
fara nema nokkur skref frá
Bjarnastöðum og er ekki margfar-
inn í flutningum.“
Inga segir að þegar þau byrjuðu
að búa á Bjarnastöðum hafi þau í
raun búið í sveit og það hafi í
sjálfu sér ekkert breyst. „Það eru
engar verslanir lengur í göngufæri
fyrir fólk á okkar aldri, enginn
strætó. Við erum bara út úr öllu
og öðrum háð með akstur. En það
eru líka miklir kostir við að búa
hérna og margt fallegt í umhverf-
inu.“
Stofnuðu Þrótt og
tryggðu landið
Knattspyrnufélagið Þróttur var
stofnað 1949, í bragga sem var of-
an við Grímsstaðavörina, og var
Björn á meðal stofnenda félagsins.
Þessi sjósóknari lék áður í vörn-
inni hjá Val og hélt uppteknum
hætti um tíma hjá Þrótti. Það var
fyrir áratugum og nú er hann fóta-
lúinn en slær á létta strengi. „Ég
get farið í fótbolta við þig ef þú vilt
og ef þú þarft á æfingu að halda,“
segir hann kankvís. „En við urðum
að stofna félagið til að halda í
knattspyrnuvellina okkar á milli
Aragötu og Suðurgötu. Borgaryf-
irvöld ætluðu að taka þá af okkur
en vegna þess að við stofnuðum fé-
lagið fengum við að halda þeim.“
Björn fylgist enn með Þróttur-
unum en nú í sjónvarpinu. „Mér
finnst gaman að spekúlera í ung-
um upprennandi leikmönnum –
það er ekki verra að spekúlera í
því en öðru – en þegar maður er
kominn á þennan aldur er alltaf
einhver að koma í heimsókn og
næðið til að fylgjast með boltanum
ekki eins mikið og áður.“
Óþarfi að fara yfir lækinn
Björn er merki þess að ekki þarf
að fara yfir lækinn til að sækja
vatnið. „Ég fæddist hérna og hef
hvergi búið annars staðar. Héðan
stundaði ég mína vinnu alla tíð,
reri frá Ægisíðunni til fiskjar,
gutlaði við þetta til að fá í soðið
eða til að fá nokkrar krónur eins
og gengur, og fór ekkert annað
nema þegar ég þurfti að fara norð-
ur á síld. Fór þrjú sumur í röð
norður. En nú er ekki nokkur
maður lengur í þessu. Það var far-
ið að skattleggja okkur fiskimenn-
ina svo mikið að við gáfumst allir
upp. En það er ágætt að búa hérna
og það er enn mikið líf við Ægisíð-
una þótt breytt sé. Hávaðinn er
samt miklu minni en maður gerði
ráð fyrir. Umferðin er að vísu
stundum mikil og það kemur fyrir
að menn aki hratt enda leiðin góð.
Fólk nýtur þess að ganga sér til
hressingar á göngustígnum með
sjónum hérna fyrir framan
gluggann hjá okkur og við lifum
eins og blóm í eggi á þessum
ánægjulega stað.“
Morgunblaðið/ÞÖK
Inga Jóelsdóttir, Björn Guðjónsson og Bjarni Guðjónsson í stofunni heima á Ægisíðu.
Oft var mikið um að vera og margt um manninn í Grímsstaðarvörinni.
Bjarnastaðir var reisulegt hús með tveimur viðbyggingum.
Björn Guðjónsson og Inga Jólesdóttir búa við Ægisíðuna beint fyrir ofan spilið
hans og vinnuskúrinn. Bjarni, bróðir hans, byggði húsið við hliðina og þangað
flutti móðir þeirra líka en fjölskyldan fékk þessar tvær lóðir fyrir jörðina.
Eins og blóm í eggi
við Ægisíðuna
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Fasteignablað Morgunblaðsins Kringlunni 1, 103 Reykjavík, sími 5691100, Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Magn-
ús Sigurðsson, magnuss@mbl.is, sími 5691223, og Steinþór Guðbjartsson, steinthor@mbl.is, sími 5691257 Aug-
lýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Morgunblaðsins.
101 Reykjavík ............................. 20
Akkurat ....................................... 28
Ás .................................................. 42
Ásberg ......................................... 48
Ásbyrgi ........................................ 50
Berg .............................................. 49
Borgir ........................................... 46
Brynjólfur Jónsson ............ 30–31
Byr .................................................. 17
Eign.is .......................................... 60
Eignaborg .................................... 62
Eignamiðlunin ...................... 18–19
Eignaval ........................................ 35
Eik fasteignafélag ...................... 15
Fasteign.is ........................... 32–33
Fasteignafélagið Kirkjuhvoll ... 61
Fasteignamarkaðurinn .......... 6–7
Fasteignamiðlunin ............ 42–43
Fasteignamiðstöðin ....................63
Fasteignasala Íslands .............. 54
Fasteignasala Mosfellsbæjar .. 10
Fasteignastofan ......................... 53
Fjárfesting ................................... 55
Fold ............................................. 8–9
Foss .............................................. 58
Garðatorg .................................... 59
Garður .......................................... 30
Gimli ...................................... 26–27
HB fasteignir ............................... 48
Heimili ........................................... 45
Híbýli ............................................. 56
Hof ................................................... 3
Hóll ................................................ 22
Hraunhamar ........ 36–37–38–39
Húsakaup .................................... 64
Húsavík .......................................... 11
Höfðabakki 9 .............................. 52
Höfði ............................................. 57
ÍAV ......................................... 40–41
Kjöreign .......................................... 5
Klettur .................................... 12–13
Laugarnes ................................... 24
Lundur ..................................... 16–17
Nethús ........................................... 14
Perla ............................................. 35
Skeifan ......................................... 23
Valhöll ........................................... 51
Efnisyfirlit