Morgunblaðið - 06.03.2006, Blaðsíða 50
NÝVERIÐ hófust byggingarfram-
kvæmdir við nýja álmu við Fosshótel
Húsavík en í henni verða 26 tveggja
manna herbergi. Þegar nýja álman
verður komin í gagnið, ásamt félags-
heimilisálmunni sem einnig verður
breytt að hluta í herbergi, verða her-
bergin orðin 70 talsins.
Það er Trésmiðjan Rein sem bygg-
ir þessa tveggja hæða álmu og er
reiknað með að hún verði tilbúin þeg-
ar aðalferðamannatímabilið hefst í
sumar.
Hallveig Höskuldssdóttir hótel-
stjóri segir að einnig sé unnið að end-
urbótum á eldri herbergjum hótelsins
og má m.a. nefna að verið er að koma
fyrir nettengingum í hverju herbergi.
Þá mun umfangsmikið viðhald einnig
eiga sér stað utanhúss nú á árinu og í
ársbyrjun 2007 er áætlað að hefja
endurbætur á jarðhæð hótelsins.
Hallveig segir sumarið líta vel út
enda svæðið paradís ferðamanna
hvað varðar fugla- og náttúrulíf,
safnamenningu auk ýmiss konar ann-
arrar afþreyingar. „Þá má ekki
gleyma veðursældinni hér og því að
Húsavík er höfuðstaður hvalaskoðun-
ar í Evrópu sem laðar árlega til sín
fjölda ferðamanna sem vilja skoða
hvalina,“ segir Hallveig.
Byggt við Fosshótel Húsavík
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Nýja herbergjaálman kemur baka til við félagsheimilisbygginguna.
Hallur Þór Hallgrímsson, starfsmaður
Trésmiðjunnar Rein, mundar hér borinn.
Reykjavík – Fasteignasalan fast-
eign.is er með í sölu glæsilegt tvílyft
einbýlishús með svölum í vestur og
austur í Vesturási 64. Fasteignin er
alls 260 fermetrar og þar af 54 fm
tvöfaldur bílskúr. „Eignin er á ein-
stökum útsýnisstað í Elliðaárdaln-
um með útsýni yfir dalinn, borgina,
Snæfellsjökul og víðar,“ segir Ólafur
B. Blöndal hjá fasteign.is.
Á neðri hæð er forstofa með
steinflísum og góðum skápum, og
hol og borðstofa einnig með stein-
flísum. Tvö þrep eru niður í að-
alstofu sem er með massífu vönduðu
parketi og háum gluggum. Eldhúsið
er rúmgott með hvít/beykiinnrétt-
ingu, nýlegum Miele-tækjum, elda-
eyju með gashelluborði og háfi yfir.
Gengið er út á sólpall úr eldhúsi. Á
hæðinni er líka eitt herbergi með
parketi og gestasnyrting inn af hol-
inu. Einnig er gott þvottahús og inn-
angengt í bílskúrinn og út í bak-
garðinn. Meðfram fallegum glugga
er steyptur stigi með heillímdu
parketi upp á efri hæðina. Þar er
sjónvarpsstofa með massífu olíu-
bornu eikarparketi og vestur-
svölum. Einnig þrjú rúmgóð barna-
herbergi með parketi og skápar í
tveimur þeirra. Hjónaherbergið er
með parketi og nýlegum, vönduðum,
sérsmíðuðum skápum. Gengið er út
á svalir í austur úr hjóna- og tveim-
ur barnaherbergjum.
Baðherbergið er rúmgott með
flísum á gólfi, innréttingu, baðkari
og sturtuklefa. Lítil geymsla er við
hlið baðherbergis. Óinnréttað,
plássmikið risloft er yfir hæðinni og
eigninni fylgir fallegur garður með
sólpalli og skjólgirðingum.
Ásett verð er 56,7 millj. kr. en til
greina kemur að skipta á minna sér-
býli eða rúmgóðri íbúð í Selásnum.
Vesturás 64
Fasteignasalan fasteign.is er með í sölu glæsilegt tvílyft einbýlishús með svöl-
um í vestur og austur í Vesturási 64. Ásett verð er 56,7 millj. kr. en til greina
kemur að skipta á minna sérbýli eða rúmgóðri íbúð í Selásnum.
50 F MÁNUDAGUR 6. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
a
sb
yr
g
i@
a
sb
yr
g
i.
is
•
w
w
w
.a
sb
yr
g
i.
is
•
w
w
w
.h
u
s.
is
SAMTENGD SÖLUSKRÁ SEX FASTEIGNASALA - EIN SKRÁNING - MINNI KOSTNAÐUR - MARGFALDUR ÁRANGUR
Suðurlandsbraut 54 - við Faxafen - 108 Reykjavík
Sími 568 2444 - Fax 568 2446
INGILEIFUR EINARSSON, löggiltur fasteignasali
RAFN H. SKÚLASON, SKJALAGERÐ, MARÍA ÞÓRARINSDÓTTIR,
ÁGÚSTA KARLSDÓTTIR RITARI.
Við erum í Félagi fasteignasala
SÍMI 568 2444
www.hus.is
HRAUNBÆR M/AUKAHERB.
4ra herb. 113,3 fm góð íbúð á 3ju hæð
ásamt aukaherb. í kjallara. Íbúðin skip-
ist m.a. í hol sem nýtist sem sjónvarps-
hol, 3 svefnherbergi, eldhús með borð-
krók og stóra stofu. Gott herb. í kjallara
með aðgengi að snyrtingu. Mjög góð
sameign. Verð 18,9 millj. 36543
HVAMMABRAUT 12
4ra herb. 104,6 fm góð íbúð á 2. hæð í
mjög góðu fjölbýlishúsi. 3 stór svefn-
herbergi, stór stofa, eldhús með borð-
krók, tengi fyrir þvottavél á baði. Mjög
stórar vestursvalir og frábært útsýni.
Laus 1. feb. nk. Verð 18,9 millj. 37226VEGHÚS - LYFTUHÚS
3ja til 4ra herb. 92 fm íbúð á 7. hæð í
mjög góðu lyftuhúsi. Íbúðin skiptist m.a.
í hol, 2-3 góð svefnherbergi, baðher-
bergi, þvottaherb. innan íbúðar, eldhús
með borðkrók og stóra stofu. Stórar
suðursvalir. Mikið útsýni. Stutt í alla
þjónustu í næsta nágrenni. Laus fljót-
lega. Verð 18,9 millj. 37455
ASPARFELL 2JA LAUS
Mjög snotur og vel umgengin 2ja her-
bergja, tæplega 53 fm íbúð á 3. hæð í
lyftuhúsi með húsverði. Þvottahús á
hæðinni. Laus strax. Lyklar á skrifstofu.
Verð 10,9 millj. 36895
FELLSMÚLI - LAUS
2ja herb. 68 fm vel skipulögð íbúð á 2.
hæð í góð fjölbýlishúsi. Íbúðin þarfnast
öll endurnýjunar við. Suðursvalir. Frá-
bær staðsetning. Laus strax. Verð 15
millj. 37559
KLEPPSVEGUR
VIÐ BREKKULÆK
Vorum að fá í einkasölu góða 2ja herb.
57,4 fm íbúð á 3ju hæð í litlu fjölbýlis-
húsi á rólegum stað við Brekkulækinn.
Góðar innréttingar og sameign. Laus
fljótlega. Verð 12,9 millj. 37372
FAXAFEN - JARÐHÆÐ
Glæsilega innréttað húsnæði á jarð-
hæð sem skiptist í m.a. í stórt and-
dyri, stórt miðjurými og 6 aðra sali,
auk tilh. eldhúss og snyrtinga. Full-
komnar tölvulagnir, loftræstikerfi,
kerfisloft með innfeldri lýsingu og lin-
oleumdúkra á öllu. Tilbúið fyrir t.d.
tölvu- eða hugbúnaðarfyrirtæki eða
t.d. læknastofur. Laust strax. 32718
KRISTINIBARUT - LYFTUHÚS- LAUS
3ja herb. 106,2 fm vönduð íbúð á 2.
hæð í nýlegu fjölbýlishúsi með lyftu.
Íbúðin skiptist m.a. í hol og gang, 2
stór svefnherbergi, þvottaherb., stórt
eldhús og mjög stóra stofu og er
gegnt úr henni út á stóra, afgirta ver-
önd. Vandaðar innréttingar, steinplöt-
ur á borðum, flísalagt baðherb., park-
et og flísar á gólfum. Íbúðin er laus.
Stutt í alla þjónustu. Verð 23,4 millj.
37618
BREIÐAVÍK - LÍTIÐ FJÖLBÝLI
Vel skipulögð og falleg 4ra herbergja
íbúð og bílskúr, samtals 147,7 fm, í
litlu fjölbýli. Eignin skiptist í forstofu,
eldhús, bað, þvottahús innan íbúðar,
stofu og 3 rúmgóð svefnherbergi.
Fallegar flísar og mahóníparket á öll-
um gólfum. Glæsilegar mahóníinn-
réttingar, allt í stíl. Stór bílskúr fylgir
þessari eign og geymsla inn af hon-
um. Sameiginleg hjóla- og vagna-
geymsla. Inngangur af svölum. Þetta
er góð eign á góðum stað. Verð 29,5
millj. Nánari uppl. á Ásbyrgi fast-
eignasölu.
RAUÐAVAÐ - LAUST TIL AFHENDINGAR
Til sölu nýjar og glæsilegar 2ja, 3ja og
4ra herb. í mjög vel skipulögðum fjöl-
býlum. Allar íbúðir með sérinngangi
og stæði í bílageymslu. Stærð íbúð-
anna er 88,5 fm til 118 fm. Íbúðirnar
seljast fullbúnar án gólfefna með
glæsilegum innréttingum, marmara
borðplötum, flísalögð baðherbergi,
fullbúinni bílageymslu og lóð. Útsýni
úr flestum íbúðunum. Stutt verður í
alla þjónustu í nýjum þjónustukjarna. Til afhendingar strax. Verð frá 20,5 millj. til 27,0
millj. Nánari uppl. veitir Ásbyrgi fasteignasala.