Morgunblaðið - 06.03.2006, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. MARS 2006 F 13
Mjög falleg og björt 4ra herbergja 128 fm íbúð á fyrstu hæð í glæsilegu 3ja-4ra hæða fjölbýlishúsi með lyftu.
Sérstæði í bílageymslu fylgir og sérgeymsla í sameign. Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi og fataskáp. Hol
með eikarparketi á gólfi og halógenlýsingu, eins lýsing og parket í allri íbúðinni. Svefnherbergi með parketi á
gólfi og fataskáp. Hjónaherbergi með parketi og fataskáp. Þvottaherbergi með flísum á gólfi og vaskborði.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með baðkari og vaskinnréttingu. Glæsilegt útsýni yfir allan Bláfjallahring-
inn. Ásett verð: 33 millj.
ÁLFKONUHVARF - ELLIÐAVATN
Falleg og vel standsett 3ja herbergja íbúð á fyrstu hæð með sérafnotareiti í garði. Falleg gólfefni, eikarparket
og flísar. Fallegar innréttingar, gaseldavél og fallegur háfur. Snyrtileg sameign, lyfta, sérstæði í bílageymslu.
Ásett verð: 23,9 millj.
ÁLFKONUHVARF - 3JA HERBERGJA
SÉRGARÐUR - STÆÐI Í BÍLSKÝLI
Húsið stendur á frábærum stað þar sem húsin í Baugakórnum liggja í hring og inni í hringnum er gert ráð fyrir leiksvæði fyrir börn.
Í næsta nágrenni er gert ráð fyrir að muni rísa fjölbrautaskóli, leikskóli og barnaskóli og einnig er búið að skipuleggja mikið og gott
íþróttasvæði með frábærri aðstöðu til íþróttaiðkunar í næsta nágrenni við Kórahverfi. Auðveld aðkoma er að Kórahverfinu og stutt í
allar áttir svo sem útivistarparadísina í Heiðmörk og er Elliðavatnið heldur ekki langt undan.
Íbúðirnar skilast fullbúnar án gólfefna, þó verður flísalagt á gólfi og veggjum
baðherbergis og á gólfi þvottahúss og forstofu.
• Innréttingar eru frá INN-X, spónlagðar með eik, kirsuberjaviði eða hlyni
• Heimilistæki eru af gerðinni Whirlpool frá Heimilistækjum
• Flísar á baði, þvottahúsi og forstofu eru frá Álfaborg
• Innihurðir eru spónlagðar með mahóní/eik/birki frá Agli Árnasyni
• Hreinlætistæki og blöndunartæki eru frá Tengi
• Öllum íbúðum fylgir stæði í bílageymslu
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR UM EIGNINA ER HÆGT AÐ NÁLGAST
HJÁ SÖLUMÖNNUM KLETTS FASTEIGNASÖLU Í SÍMA 534 5400
18 ÍBÚÐA LYFTUHÚS Á ÞREMUR HÆÐUM MEÐ BÍLSKÝLI. SÉRINNGANGUR Í ÍBÚÐIR AF SVÖLUM.
FASTEIGNASALAN KLETTUR KYNNIR NÝTT Í SÖLU
BAUGAKÓR 5-7
Íbúðirnar sem um ræðir eru 3ja til 4ra herbergja
3ja herbergja íbúðir eru frá 96-100 fm. Verð frá 24,6 millj.
4ra herbergja íbúðir eru frá 136-140 fm. Verð frá 34,8 millj.
Möguleiki er á að kaupa eina íbúð án stæðis í bílskýli.
baugakor.com og klettur.is
Fasteignasalan Klettur hefur hafið sölu
á RC-húsum. Um er að ræða efni í sum-
arhús og íbúðarhús í miklu úrvali. Efnið í
húsin er sérvalin norsk fura af háum
gæðaflokki (1. sorteringu) og er afgreitt
að mestu tilsniðið frá Noregi. Einangr-
unin í húsin er íslensk steinull frá Sauðár-
króki. Sperrur eru þurrkaðar, þykktar-
heflaðar og afréttaðar. Þær koma
verksmiðjusamsettar ef húsið er einnar
hæðar með burstaþaki (ekki valma-
þaki). Að innan eru húsin klædd með gifsi. Húsin eru
klædd að utan með OSB plötum, 12,5 mm á veggi og 15
mm á þak, og öndunardúk til vindþéttingar. Nánast allt
efni, úti og inni, kemur tilsniðið og fylgir þar allt með sem
þarf til að reisa húsin á því byggingastigi sem um er sam-
ið, að frátöldum festingum í steypta plötu eða öðrum
undirstöðum, endanlegum gólfefnum, innréttingum,
hreinlætistækjum, rafmagns-, hita-, vatns- og frárennslis-
lögnum. Þá fylgir ekki málning eða efni til undirvinnu fyrir
málningu, s.s. sparsl, úthornalistar og þess háttar. Allar ut-
anhússklæðningar er hægt að fá fúavarðar og litaðar.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR ER HÆGT AÐ NÁLGAST Á VEF RC HÚSA OG EINNIG HJÁ SÖLUMÖNNUM KLETTS FASTEIGNASÖLU Í SÍMA 534 5400
FASTEIGNASALAN KLETTUR HEFUR
HAFIÐ SÖLU Á RC-HÚSUM RC HÚS
www.rchus.is
Fasteignasalan Klettur getur boðið upp á nokkuð mikið úrval af lóðum undir
sumarhús við Húsafell og víðar ef áhugi er á því. Nánari upplýsingar er hægt
að fá hjá sölumönnum Kletts fasteignasölu.