Morgunblaðið - 06.03.2006, Side 34

Morgunblaðið - 06.03.2006, Side 34
34 F MÁNUDAGUR 6. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ N ýtt deiliskipulag fyrir Borgarsvæðið í kringum Borg í Grímsnesi var ný- lega auglýst. Um er að ræða 50 íbúðarhúsalóðir, einbýlis- hús, parhús og raðhús. Einnig eru á svæðinu nokkrar 4.500 fermetra at- hafnalóðir sem hugsaðar eru undir mjög snyrtilega starfsemi sem þolir vel nálægð við íbúðarhúsabyggð. Í næsta nágrenni við íbúðarbyggðina er hreppurinn með 18 hektara svæði sem fyrirhugað er að skipuleggja fyrir hesthúsalóðir og athafnalóðir en einnig er fyrirhugað að nýta hluta svæðisins fyrir útivistarsvæði. Á svæðinu verður einnig mjög full- komin hreinsistöð fyrir skólp sem mun fullnægja kröfum framtíðar- innar. Hún verður meðal annars með innrauða geisla sem drepa alla sýkla í skólpvatninu áður en það fer frá henni. Það er Hönnun hf. sem sér um hönnun stöðvarinnar sem er um 200 fermetrar að flatarmáli en það er mun minna en hefðbundnar stöðvar með svipuð afköst. Upp- byggingin á Borg er eftirtektarverð því áhugi virðist vaxandi á því meðal fólks að búa á rólegum stöðum þar sem stutt er í grunnþjónustu fyrir börn á skólaaldri og auðvelt að sinna útivistaráhuga í góðri nálægð við náttúruna. Grímsnes- og Grafn- ingshreppur veðjar á þennan áhuga fólks. Framkvæmdir hafnar Á Borgarsvæðinu eru nú átta hús, fimm einbýlishús, eitt raðhús og tvö parhús. Á Borg er leikskóli og nýr grunnskóli en við hann er unnið að byggingu sundlaugar og íþrótta- húss. Sundlaugin verður tilbúin í sumar og íþróttahúsið í haust. Á svæðinu er einnig félagsheimili sveitarinnar, Borg, og síðan er þar einnig Gamla Borg sem er eins kon- ar menningarhús staðarins og stendur við hlið verslunarinnar Borgar. Nýja hverfið sem hefur ver- ið skipulagt byggist á eldra skipu- lagi sem var tilbúið og er austan við Borgarkjarnann. Gert er ráð fyrir nýju hringtorgi á Biskupstungnabrautina á gatna- mótum Sólheimavegar. Þar verður ekið inn í hverfið eftir Borgarbraut. Nú þegar er búið að úthluta til byggingaraðila nokkrum lóðanna sem eru á eldri hluta skipulagsins. Fyrirtækinu Tindaborgum ehf. hef- ur verið úthlutað nokkrum lóðum og eru framkvæmdir hafnar á staðn- um. Ein gata efst í hverfinu, Hóls- braut, er tilbúin og gert er ráð fyrir að aðrar götur verði tilbúnar í vor. Bundið slitlag verður strax sett á göturnar og gengið frá gangstéttum og öllu umhverfi. „Ég verð vör við mikinn áhuga á svæðinu, bæði eftir lóðum og svo eftir leiguhúsnæði,“ segir Margrét Sigurðardóttir, sveit- arstjóri í Grímsnes- og Grafnings- hreppi. „Ég held að fólk sjái þetta sem vænlegan kost að vera hér utan við mesta þéttbýlið og sækja vinnu annað. Við erum hér með alla grunnþjónustu, leikskóla og grunn- skóla á einum stað og erum svo í ná- lægð við þéttbýlið á Selfossi og reyndar líka í Reykjavík. Ég á von á því að verslunin okkar stækki með vaxandi byggð en hún þjónar okkur mjög vel með ýmislegt sem þarf til heimilisins.“ Í hreppnum búa nú 356 íbúar en þeim fjölgaði um 12 á síðasta ári og gerir Margrét ráð fyrir verulegri fjölgun á næstu árum þegar byggð- in við Borg verður að veruleika. Auk uppbyggingarinnar á Borg hef- ur hreppurinn staðið að gerð bygg- ingarlóða í Ásborgum við Sogið þar sem gert er ráð fyrir íbúðarhúsum fyrir fólk sem vill setjast að í hreppnum með lögheimili. Nú þegar er þar risið eitt hús og gert ráð fyrir að fleiri rísi á næstunni. Margrét segir fyrirhugaðar hest- húsalóðir í nágrenni Borgar hugs- aðar til að koma til móts við vaxandi hóp hestaáhugafólks. Þá stendur hreppurinn að gerð reiðvega í sam- starfi við Vegagerðina út frá Borg og ráðgert er að leggja reiðveg með uppbyggingu Sólheimavegar. Þá hefur hestamannafélagið Trausti sótt um styrki til reiðvegagerðar. „Það er nú þegar gott að búa í Grímsnesinu og verður enn betra í framtíðinni,“ segir Margrét Sigurð- ardóttir sveitarstjóri sem segir upp- bygginguna á Borg spennandi við- bót við hina miklu og þekktu uppbyggingu á sumarhúsasvæðun- um í hreppnum. Nýtt deiliskipulag 50 einbýlishúsa, parhúsa og raðhúsa á Borg í Grímsnesi Gott að búa í Grímsnesinu og verður bara betra Eftir Sigurð Jónsson a1a@simnet.i Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Horft úr einum húsgrunninum, stuttan spöl yfir að leikskólanum. Framkvæmdir eru hafnar við Hólsbraut efst í íbúðahverfinu á Borgarsvæðinu við Borg í Grímsnesi. Unnið er að byggingu sundlaugar og íþróttahúss við grunnskólann Ljósaborg. Verslunin Borg og Gamla borg, fjær sést byggingarkraninn við sundlaugina.Búið er að grafa fyrir götunum í nýja hverfinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.