Morgunblaðið - 06.03.2006, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. MARS 2006 F 63
Opið
mánudaga - fimmtudaga frá kl. 9-12 og 13-17.30,
föstudaga frá kl. 9-12 og 13-17.
Hæðir
GARÐSTÍGUR - HAFNARFJÖRÐUR
Erum með í sölu mikið endurnýjaða hæð
og ris auk bílskúrs á þessum vinsæla stað
í Hafnarfirði. Eign fyrir vandláta. Nánari
uppl. á skrifstofu FM Hlíðasmára 17, sími
550-3000. Einnig mbl.is 50510
ÖLDUGATA - HAFNARFJÖRÐUR
Erum með í einkasölu áhugaverða hæð
og ris í eldra húsi byggðu 1932, auk bíl-
skúrs, samt. 135 fm. Töluvert hefur verið
endurnýjað og lagfært, t.d. nýtt dren, ris
endurnýjað, nýleg eldhúsinnrétting o.fl.
Gólfefni upprunalegar gólffjalir. Áhugaverð
eign á góðum stað. Nánari uppl á skrift-
stofu FM, sími 550-3000.
4ra herbergja
LUNDARBREKKA - KÓPAVOGUR
Erum með í sölu 4ra herb. endaíbúð á
annarri hæð með sérinngangi af svölum.
Afar snyrtileg sameign með gufubaðsað-
stöðu fyrir stigagang. Eign sem vert er að
skoða. Laus til afhendingar við undirr.
kaups. Nánari uppl á skrifstofu FM, sími
550-3000. Verð 18,6 millj. 30864
LAUTASMÁRI - KÓPAVOGUR
Erum með í sölu fallega 134 m2 íbúð á 8.
og efstu hæð með gríðarlega miklu útsýni.
Gólfefni, parket og flísar. Tvennar svalir.
Snyrtileg sameign. Eign sem vert er að
skoða. Nánari uppl á skrifst. FM, sími 550-
3000. 30865
3ja Herb.
ESPIGERÐI
Erum með í sölu 102 m2 íbúð á 8. hæð
með miklu útsýni í þessu vinslæla húsi. Vel
hefur verið vandað til allra innréttinga. Til-
valin eign fyrir hjón sem eru að minnka við
sig. Nánari uppl á skrifst. FM, sími 550-
3000. 21157
TORFUFELL - BREIÐHOLT
Erum með í einkasölu þriggja herb. íbúð á
efstu hæð í snyrtilegu húsið við Torfufell.
Hluti innbús getur fylgt með í kaupum.
Nánari uppl á skrifstofu FM, sími 550-
3000. Verð 13,7 millj. 21163
2ja herb.
GARÐHÚS - GRAFARVOGUR
Erum með í sölu snyrtil. 2ja herb. íbúð á 2.
hæð (miðhæð), auk bílskúrs. Þvottahús í
íbúð. Gólfefni parket. Rúmgóðar suður-
svalir. Snyrtileg sameign. Stutt í skóla og
þjónustu. GETUR VERIÐ LAUS VIÐ UND-
IRRITUN KAUPSAMNINGS. Nánari uppl á
skrifstofu FM, sími 550-3000. 1847
Atvinnuhúsnæði
KÓPAVOGUR - ATVINNUHÚSNÆÐI
Erum með u.þ.b. 808 m2 atvinnuhúsnæði í
góðri leigu til sölu við Hamraborg. Áhuga-
verður fjárfestingakostur fyrir fjárfesta.
Nánari upplýsingar á skrifstofu FM (Hinrik)
sími 550-3000. 90704
Landsbyggðin
ARABÆR - GAULVERJABÆJARHREPP
Til sölu er jörðin Arabær í Gaulverjabæjar-
hreppi. Jörðin er talin vera um 80 ha. og á
land að Þjórsá. Á jörðinni er gott íbúðarhús
144 m2, byggt úr timbri árið 1990 og úti-
hús í góðu ástandi samtals um 480 m2.
Útihúsin hafa að mestu verið nýtt sem
garðávaxtageymslur en undanfarin ár hef-
ur jörðin að mestu verið nýtt fyrir garðrækt.
Nánari upplýsingar á skrifstofu FM, sími
550-3000. Sjá einnig fmeignir.is. 101282
Fyrirtæki
PUB - REYKJANESBÆR
Erum með í sölu vel rekinn veitingastað
“Pub” á frábærum stað í hjarta Reykjanes-
bæjar. Hægt er að kaupa alla húseignina
og reksturinn, eða bara rekstur og innrétt-
ingar. Nánari uppl á skrifst. FM, sími 550-
3000 einnig fmeignir.is.180189
HVERFISKRÁ - KÓPAVOGUR
Erum með í sölu vinsæla hverfiskrá á góð-
um stað í Kópavogi. Traustur rekstur sem
hefur mikla tekjumöguleika fyrir rétta aðila.
Nánari uppl á skrifstofu FM, sími 550-
3000. 180190
Geymslur
MÓHELLA - HAFNARFJÖRÐUR
Erum með í sölu 26,3 m2 geymslu (bílskúr)
í lengju fleiri geymslna við Móhellu í Hafn-
arfirði. Tilvalið fyrir geymslu dóts sem ekki
er oft not fyrir, t.d. snjóleða, tjaldvagna
o.m.fl. Nánari upplýsingar á skrifst. FM,
sími 550-3000. Verð 2,4 millj. 80010
Sími
550 3000
fmeignir@fmeignir.is
www.fmeignir
www.fasteignamidstodin.is
FJÁRFESTAR -
BYGGINGAVERKTAKAR
Hjá Fasteignamiðstöðinni er til sölu umtalsvert af framtíð-
arbyggingarlandi í Reykjavík, og í nágrannasveitarfélög-
um einnig á Reykjanesi og í nágrenni við Selfoss, Hvera-
gerði, Borgarnesi og Egilsstaði. Nánari uppl á skrifstofu
FM (Magnús) Hlíðasmára 17, síma 550-3000.
JARÐIR - LANDSPILDUR -
SUMARHÚS
SJÁ NÁNAR Á fmeignir.is
SÝNISHORN ÚR SÖLUSKRÁ
Sölumenn FM aðstoða.
Sjá mikinn fjölda eigna og mynda
á fmeignir.is og mbl.is.
Seltjarnarnes – Miðborg fast-
eignasala er með til sölu glæsilegt
224,4 fermetra einbýli á einni hæð
með innbyggðum tvöföldum bílskúr
á Bollagörðum 8 á Seltjarnarnesi.
Húsið skiptist í forstofu, hol, stofur,
sjónvarpshol, eldhús með borðkróki,
fimm svefnherbergi, snyrtingu, bað-
herbergi og þvottahús.
Komið er inn í flísalagða forstofu
með fataskáp. Hol er parketlagt.
Snyrting er flísalögð. Úr holi er
gengið inn í þvottahús. Eldhús er
parketlagt og það er með snyrtilegri
viðarinnréttingu og góðum borð-
króki. Samliggjandi stofa og borð-
stofa eru parketlagðar. Úr stofu er
gengið út á stóra suðurverönd með
góðum skjólvegg.
Sjónvarpshol er parketlagt og
með útgengi út á veröndina. Baðher-
bergið er flísalagt í hólf og gólf. Það
er með baðkari, sturtuklefa, innrétt-
ingu, glugga og hita í gólfi. Svefn-
herbergin eru fimm. Þau eru park-
etlögð og fjögur þeirra eru með
fataskápum.
Bílaplan er flísalagt með hitalögn
og tvöfaldi bílskúrinn er fullbúinn
með rafmagni, hita og dyraopnara.
Garðurinn var nýlega endurnýjaður
og var verðlaunaður sumarið 2005.
Ásett verð er 68,5 millj. kr.
Miðborg fasteignasala er með til sölu glæsilegt 224,4 fermetra einbýli á einni
hæð með innbyggðum tvöföldum bílskúr á Bollagörðum 8 á Seltjarnarnesi.
Ásett verð er 68,5 millj. kr.
Bollagarðar 8
RÁÐSTEFNA um þróun fasteigna-
markaðarins og rekstur fasteigna
verður haldin í nýju íþrótta- og sýn-
ingahöllinni í Laugardal fimmtudag-
inn 16. mars. Ráðstefnan er haldin í
tengslum við stórsýninguna Verk og
vit 2006 sem verður í Laugardals-
höll dagana 16. til 19. mars.
Á ráðstefnunni verður leitast við
að svara ýmsum spurningum um
rekstur fasteigna, t.d.: Hvernig hafa
einkaaðilar og opinberir hagað fast-
eignarekstri sínum? Er hagstæðara
að einkafyrirtæki eða fasteignafélög
eigi og reki fasteignir? Getur hinn
frjálsi markaður gert betur en op-
inberir aðilar?
Ráðstefnan hefst á ávarpi Árna
M. Mathiesen fjármálaráðherra.
Halldór B. Þorbergsson, hagfræð-
ingur Viðskiptaráðs Íslands, varpar
ljósi á eignarhald og rekstur fast-
eigna á Íslandi og fer yfir niður-
stöðu nýrrar könnunar þar um.
Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumað-
ur greiningardeildar Landsbanka
Íslands, flytur erindi um atvinnu-
húsnæði á umbrotatímum og Sigfús
Jónsson, framkvæmdastjóri hjá
Nýsi, fer yfir það hvenær henti
frekar að leigja húsnæði en eiga.
Stefán Hermannsson, fram-
kvæmdastjóri Austurhafnar TR,
gerir grein fyrir hvernig var staðið
að útboðs- og samningsformi vegna
tónlistar- og ráðstefnumiðstöðvar í
Reykjavík og Ingólfur Þórisson,
framkvæmdastjóri hjá Landspítala
– háskólasjúkrahúsi, fer yfir und-
irbúning og sjónarmið varðandi
eignarhald og rekstur nýja Land-
spítalans.
Á ráðstefnunni verður einnig far-
ið yfir ólíkt fyrirkomulag á eign-
arhaldi fasteigna hjá hinu opinbera
og einkaaðilum. Gunnar I. Birgis-
son, bæjarstjóri Kópavogs, flytur
erindi um sveitarfélög og rekstur
fasteigna. Stoðir hf. keyptu nýlega
fasteignafélag í Danmörku, Atlas
Ejendomme, og mun Sigríður
Hrefna Hrafnkelsdóttir, fram-
kvæmdastjóri hjá Atlas, segja frá
innrásinni á danskan leigumarkað.
Ásbjörn Gíslason, forstjóri Sam-
skipa, segir frá ólíku fyrirkomulagi
á rekstri og eignarhaldi fasteigna
hjá Samskipum og að lokum mun
Olav Egil Sæboe frá Pro-FM í Nor-
egi flytja erindi um reynslu af fast-
eignastjórnun á Norðurlöndunum.
Olav Egil Sæboe hefur áratuga
reynslu af fasteignastjórnun og
starfar nú við ráðgjöf í fasteigna-
stjórnun í Noregi. Fundarstjóri ráð-
stefnunnar verður Gísli Marteinn
Baldursson.
Ráðstefnan er haldin á vegum AP
almannatengsla í samstarfi við
Fasteignastjórnunarfélag Íslands
og Viðskiptaráð. Við ráðstefnulok
verður formleg opnun Verks og vits
2006 og er ráðstefnugestum boðið
að vera viðstaddir.
Skráning á ráðstefnuna fer fram
með tölvupósti á netfangið skran-
ing@appr.is eða í síma 511-1230
fyrir þriðjudaginn 14. mars. Ráð-
stefnugjald er kr. 14.900. Nánari
upplýsingar veitir Hrönn Hrafns-
dóttir hjá AP almannatengslum.
Ráðstefna um þróun fasteigna-
markaðarins og rekstur fasteigna
SAMTÖK iðnaðarins efna til ráð-
stefnu um útboðsmál við verkleg-
ar framkvæmdir fimmtudaginn
16. mars á sýningunni Verk og
vit 2006. Framsögumenn koma
víða að og meðal annars fjallar
Kristrún Heimisdóttir, lögfræð-
ingur Samtaka iðnaðarins, um
lausn ágreiningsmála, Erlendur
Gíslason, hrl. hjá Logos lög-
mannsþjónustu, ræðir um
ábyrgðir í mannvirkjagerð, Kol-
beinn Kolbeinsson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri Ístaks hf.,
fjallar um útboðsskilmála, Hauk-
ur Magnússon, framkvæmda-
stjóri tæknisviðs ÍAV hf., fjallar
um útboðsgögn og Mikael J.
Traustason, hjá Fjölhönnun ehf.
verkfræðistofu, um viðhorf eft-
irlitsaðila.
Ráðstefnan hefst kl. 14.00 í
sal-1 í nýju íþrótta- og sýning-
arhöllinni í Laugardal og stendur
til 16.30. Að lokinni dagskrá
bjóða SI ráðstefnugestum að
vera við opnun sýningarinnar
Verk og vit 2006 sem hefst kl.
17.00 sama dag.
Ráðstefnan er öllum opin á
meðan húsrúm leyfir og aðgang-
ur ókeypis. Skráning þátttak-
enda er hafin á www.si.is en Eyj-
ólfur Bjarnason hjá SI veitir
nánari upplýsingar um ráðstefn-
una.
Heilbrigður útboðsmarkaður?