Morgunblaðið - 29.05.2006, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 29.05.2006, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. MAÍ 2006 F 33 www.husid.is 3ja herbergja Andrésbrunnur - Rvík Rúmgóð og falleg 3ja herb. 93,6 fm íbúð á 2. hæð í góðu og nýlegu 3ja hæða lyftufjölbýlishúsi á góðum og rólegum stað í Grafarholtinu ásamt um 29 fm stæði í rúmgóðri 87 fm þriggja bíla bílageymslu sem er með þvottaaðstöðu. Þvotthús innan íbúðar. Stórar og góðar suðursvalir. Mahony parket, hurðir og innréttingar. Mjög vel skipulögð og rúmgóð íbúð í fallegu lyftuhúsi. Verð 22,9 m. Áhvíl- andi leigusamningur til 1. des., 110.000- á mánuði, sem kaupandi getur yfirtekið. 2ja herbergja Keilugrandi - Rvík Hlýleg og góð 2ja herb. 52,2 fm íbúð á 2. hæð í góðu fjölbýli á frábærum stað. Íbúðin skiptist í forstofu, svefn- herbergi, stofu, baðherbergi og eld- hús ásamt geymslu í kjallara. Parket og flísar á gólfum. Góðar svalir. Lóð- in er sameiginleg og mjög skemmti- lega hönnuð. Góð íbúð á frábærum stað í vinsælu hverfi. LAUS VIÐ KAUPSAMNING. Verð 14,9 m. 3ja herbergja Grettisgata - 101 Rvík Gullfalleg 3ja herb. 99,8 fm íbúð á jarðhæð á vinsælum stað nærri mið- bænum. Íbúðin skiptist í ágætt bað- herbergi með t.f. þvottavél, geymslu, 2 svefnherb., annað með góðum skápum, rúmgóða skemmtilega stofu sem er opin inn í borðstofu og eldhús, uppþv.vél fylgir. Inn af eld- húsi er búið að útbúa skemmtilega tölvuaðstöðu. Flísar á gólfum. 2 sér- bílastæði fylgja. Verð 23,9 m. 2ja herbergja Langholtsvegur -Rvík Falleg nýuppgerð 2ja herb. íbúð í kjallara í vel við höldnu steinuðu húsi á góðum stað. Íbúðin skiptist í eld- hús, stofu, baðherb. og svefnher- bergi. Íbúðin er öll nýtekin í gegn, nýtt eikarparket á gólfum og nýjar innr. og hurðir. Nýjar neysluvatns- lagnir, nýtt k-gler í öllum gluggum íbúðarinnar að sögn eiganda, sem og nýir rafmagnstenglar og rofar, ný raf- magnstafla. Verð 12,3 m. Atvinnuhúsnæði Höfðabakki - iðnaðarhúsn. Ágætt 128,6 fm iðnaðarhúsnæði með góðri lofthæð, á jarðhæð með innkeyrsluhurð á góðum stað. Hús- næðið skiptist í vinnusal, litla skrif- stofu, kaffiaðstöðu og salerni. Inn- keyrsluhurðin er með hurðaopnara og er hún u.þ.b. 2,6 m á hæð og 3,2 m á breidd. Inngangshurð við hlið innkeyrsluhurðar. Gólf eru lökkuð. Verð 21,5 m. Sumarhús Mýrarsel - Ölfus Höfum fengið í einkasölu 26,739 fm iðnaðar- og athafnalóð á frábærum stað í landi Mýrarsels í Ölfusi. Gert er ráð fyrir heilsársbyggð á svæðinu. Malarvegir verða lagðir að lóðum og kaldavatnslögn komin að lóðarmörk- um. Eiganda er heimilt að byggja á lóðinni í samræmi við skipulagsskil- mála og er heimil ræktun hvers kon- ar gróðurs. Skv. teikningu er gert ráð fyrir að hægt sé að byggja stórt ein- býlishús ásamt hesthúsi og/eða gróðurhúsi á lóðinni. Verð 30 m. 3ja herbergja Seljavegur - 101 Rvík Vorum að fá í einkasölu fallega 66,1 fm, 3ja herb. íbúð á 1. hæð í fjölbýli. Tvö góð herbergi, rúmgott eldhús og stofa. Suðursvalir. Sameiginlegur snyrtilegur inngangur. Teppalagður stigagangur og hús virðist í góðu standi. Þetta er fín íbúð í vesturbæ Reykjavíkur. Verð 16,8 m. 3ja herbergja Selvogsgrunn - Rvík Mjög vel skipulögð og vel með farin 3ja herb. 90,9 fm íbúð á jarðhæð í góðu 3ja hæða fimmbýlishúsi sem var byggt 1958 sem happdrættis- hús fyrir DAS á sínum tíma. Nýlega standsett baðherbergi. Eldhús rúm- gott og góð stofa. Tvö góð herbergi. Góð staðsetning á hornlóð í rólegri götu. Verð 21,5 m. 3ja herbergja Þinghólsbraut - Kóp m. bílsk. Mjög falleg og björt 3ja herb., 59,1 fm risíbúð í tvíbýlishúsi ásamt nýjum 36,0 fm bílskúr sem er tilbúin að ut- an en fokheldur að innan. Skv. nýj- um eignaskiptasamningi sem er í vinnslu er íbúðin 59,1 fm og bílskúr 36,0 fm. Gólfflötur íbúðarinnar er ca 68 fm. Falleg íbúð á góðum stað í Kópavoginum. Þetta er íbúð sem vert er að skoða. Verð 19,5 m. 2ja herbergja Bragagata - Miðbær Falleg og mikið endurnýjuð 62,5 fm 2ja herb. neðri hæð í tvíbýlishúsi með sérinngangi, góður sameigin- legur garður. Nýleg eldhúsinnrétting, flísar á gólfum. Baðherbergi með sturtuklefa og glugga. Þetta er snyrtileg eign á góðum stað í miðbæ Reykjavíkur. Mjög góð fyrstu kaup. Verð 15,9 millj. Glæsilegar og rúmgóðar íbúðir í nýju 3ja hæða húsi með sameiginlegri sólbaðs- og grillaðstöðu á þaki ásamt sameiginlegum sundlaugargarði á Alsaneak á N-Kýpur. Verð frá 6.000.000 kr. Örfá sæti laus í næstu skoðunarferð. Kýpur Sumarhús Sumarhús - Kóngsvegur Gott og vel um gengið 44,5 fm sum- arhús á góðum, skógi vöxnum stað við Kóngsveg í Norðurkotslandi í Grímsnesi, 2 km austan við Þrastar- lund. Húsið skiptist í stofu og eld- hús, tvö svefnherbergi og baðher- bergi með sturtu. Spónaparket á gólfum. Góður sólpallur er við hús- ið. Megnið af innbúi fylgir. Hitaveita og kalt vatn, rafmagn. Húsið er upphitað allan ársins hring. Bústaðurinn er staðsettur ca 65 km frá Reykjavík og það tekur u.þ.b. 45 mín. að keyra Sumarhús Eyrarskógi - Svínadal Gullfallegt sumarhús í byggingu í Eyrarskógi í Hvalfjarðarstranda- hreppi. Húsið er 61,9 fm með góð- um sólpalli. Steyptir sökklar eru undir húsinu, gluggar eru úr harðviði með 6 pinna læsingu, einangruð gólf. Húsið verður afhent tilbúið að utan með bjálkaklæðningu en fok- helt að innan. Teikningar og nánari uppl. á skrifstofu. Verð 10,5 m. • Glæsilegar sérhæðir • Bílskúr fylgir efri hæðum • Tilbúnar til innréttinga • Þvottahús innan íbúðar • Sérgarður fyrir báðar hæðir • Hús fullbúið að utan og lóð frágengin Lækjarvað 15–25 • 2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðir með sérinngangi • Stæði í bílageymslu fylgir öllum íbúðum • Ísskápur og uppþvottavél fylgja • Granít á borðum í eldhúsi og baði, einnig í sólbekkjum • Geymsla og þvottahús innan íbúðar • Hagstæð áhvílandi lán Rauðavað 13–25 • Til afhendingar strax
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.