Morgunblaðið - 06.06.2006, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.06.2006, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR HALLDÓR HÆTTIR Halldór Ásgrímsson, forsætisráð- herra, lýsti því yfir á fundi lands- stjórnar og þingflokks Framsókn- arflokksins á Þingvöllum í gærkvöldi, að hann hefði ákveðið að draga sig í hlé og hætta í stjórn- málum. Gert er ráð fyrir að á rík- isstjórnarfundi í dag verði lögð fram tillaga um að ný ríkisstjórn verði mynduð undir forustu Geirs H. Haarde, utanríkisráðherra og for- manns Sjálfstæðisflokksins. Finnur í stjórnmál á ný Finnur Ingólfsson, stjórnar- formaður VÍ og fyrrverandi ráð- herra, tilkynnti í gær að hann hefði fengið áskoranir frá forustu Fram- sóknarflokksins að hefja þátttöku í stjórnmálum á ný. Hann hefði ákveðið að verða við þessum áskor- unum. Neikvætt lánshæfismat Matsfyrirtækið Standard & Poor’s hefur tilkynnt að það hefði breytt horfum á lánshæfismati rík- issjóðs Íslands í neikvæðar úr stöð- ugum vegna aukinnar hættu á harðri lendingu íslenska hagkerf- isins. Matsfyrirtækið staðfesti einn- ig óbreyttar lánshæfiseinkunnir rík- issjóðs Íslands fyrir langtíma- skuldbindingar í erlendri mynt AA- og AA+ fyrir langtímaskuldbind- ingar í íslenskum krónum. Topolanek í vanda Vaclav Klaus, forseti Tékklands, fól í gær Mirek Topolanek, leiðtoga Borgaralega lýðræðisflokksins (ODS), að hefja stjórnarmynd- unarviðræður, eftir afar nauman sig- ur stjórnarandstöðuflokkanna í þingkosningunum á laugardag. Flest bendir því til að stjórn jafn- aðarmanna í Tékklandi sé fallin eftir átta ár á valdastóli. Garcia forseti Perú á ný Alan Garcia varð á sunnudag for- seti Perú í annað sinn þegar hann bar sigurorð af Ollanta Humala í kosningum sem þykja undirstrika djúpstæðan klofning þjóðarinnar. Þegar 91% atkvæða hafði verið talið í gær hafði Garcia hlotið 53,53% at- kvæða en Humala 46,47% sem er of stórt bil til að Humala geti brúað það. Tóku 50 manns höndum Vígamenn tóku 50 manns höndum í Bagdad í gær og er talið að flestir þeirra hafi verið starfsmenn og við- skiptavinir samgöngufyrirtækja í götunni þar sem atvikið átti sér stað. Flest bendir til að um mannrán hafi verið að ræða. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Minningar 30/32 Fréttaskýring 8 Skák 34 Vesturland 12/13 Myndasögur 36 Viðskipti 14 Dagbók 36/40 Úr verinu 16 Víkverji 36 Erlent 18 Velvakandi 37 Daglegt líf 21/22 Staður&stund 38/39 Menning 21, 41/45 Ljósvakamiðlar 46 Forystugrein 24 Veður 47 Umræðan 26/29 Staksteinar 47 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björnsson, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is „Vænlegasta aðferðin til að vinna gegn fátækt í heiminum er sú sem hinn mikli hagfræðingur frá Perú, Hernando de Soto, hefur sótt fram með.” Þekktasta bók Hernando de Soto er nú komin út á íslensku og fæst í öllum betri bókaverslunum. — Bill Clinton, fyrrum Bandaríkjaforseti Hernando de Soto LEYNDARDÓMUR FJÁRMAGNSINS RSE Rannsóknarmiðstöð um samfélags- og efnahagsmál www.rse.is HÚN var nokkuð óvenjuleg messan, sem fram fór í Digraneskirkju í gær en þá komu mótorhjólamenn saman og gengu til messu. Vélhjólamenn önnuðust messuna og komu safnaðar- gestir á vélfákum sínum til kirkju. Gunnar Sigur- jónsson, prestur og hjólamaður, stóð fyrir messunni og sagði hann að um heimssögulegan viðburð væri að ræða, enda hefði ekki honum vitanlega verið staðið fyr- ir sambærilegri messu hingað til, þótt haldnar hefðu verið t.d. helgistundir á Ingólfstorgi. Aðspurður sagði Gunnar að tilgangurinn með mess- unni væri að fá mótorhjólamenn saman, reyna að opna á umræðu og draga úr fordómum í garð mótorhjóla- manna. Auk Gunnars þjónaði Íris Kristjánsdóttir, sem er þjóðkirkjuprestur eins og Gunnar, sem og Jón Þór Eyjólfsson frá Fíladelfíu. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Séra Gunnar Sigurjónsson settist á mótorhjólið áður en hann gekk inn að altarinu í Digraneskirkju til að messa. Messaði yfir mótorhjólamönnum Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is VÍÐIR Smári Petersen nýstúdent út- skrifaðist 26. maí síðastliðinn af fé- lagsfræðibraut Menntaskólans í Kópavogi með af- burðaárangri. Víðir Smári er aðeins 17 ára gamall og fæddur tveim árum fyrr en þorri íslenskra nýstúd- enta á þessu vori. Hann lauk menntaskólanum á þremur árum og hafði hlaupið yfir 9. bekk í grunnskóla. Auk menntaskólanámsins var Víðir Smári í stífu tónlistarnámi í vetur, sat í liði MK í Gettu bet- ur-keppninni og spilaði með hljómsveitinni Bárujárni í Músíktil- raunum. Víðir Smári var spurður hvort álagið hefði ekki verið mikið í ljósi þess hve námsframvindan var hröð og árangurinn góður. „Nei, ekki þannig. Þetta var ákveðin vinna, en ekki mjög erfið,“ sagði Víðir Smári. Hann sagði að lík- lega hafi erfiðasti hjallinn á leiðinni að stúdentsprófi verið stökkið úr 8. bekk grunnskóla í 10. bekk. „Það var svolítið erfitt að læra fyrir sam- ræmdu prófin, sérstaklega nátt- úrufræði og aðrar greinar sem ég hafði hlaupið yfir í 9. bekk.“ Tónlist í tómstundum Í MK er einingakerfi og kvaðst Víðir Smári hafa tekið að meðaltali um 22 einingar á önn. Hann fékk tónlistarnám sitt einnig metið að hluta, en Víðir Smári lærir á klarin- ett og hefur lokið framhaldsstigi við Tónlistarskólann í Reykjavík. Hann stefnir að burtfararprófi á næsta ári. Tónlistarnámið hóf hann 9 ára gam- all og spilaði upphaflega í Skóla- hljómsveit Kópavogs. Honum þykir nútímatónlist, samin eftir 1910, mest heillandi og nefnir tón- skáldin Stravinsky og Shostakovich í því sam- bandi. Víðir Smári sagði að tónlistin fyllti upp í tómstundirnar og auk hennar hefði hann tíma fyrir margt ann- að. Þær upplýsingar fengust hjá MK að Víðir Smári hefði verið annar tveggja nýstúd- enta sem fengu sérstök verðlaun fyrir góðan námsárangur í vor. Hann hefði einnig ver- ið virkur í félagslífi utan skólatíma og m.a. verið einn liðsmanna skólans í Gettu betur-spurningakeppninni, stundað tónlistarnámið og spilað í hljómsveit í Músíktilraunum í vor. Uppáhaldsnámsgreinar Víðis Smára í menntaskólanum voru saga og félagsfræði. En hvert stefnir hug- urinn að loknu stúdentsprófi? „Ég ætla að byrja á að taka eitt ár í lögfræði við Háskóla Íslands næsta vetur,“ sagði Víðir Smári. Í sumar leggur hann stund á „Skapandi sum- arstörf“ á vegum Kópavogsbæjar. En hvað skyldi Víði Smára þykja um styttingu náms til stúdentsprófs? „Það er vel gerlegt. Mér finnst allt í lagi að stytta nám til stúdentsprófs, en ekki endilega að stytta fram- haldsskólann. Það má eins stytta grunnskólann,“ sagði Víðir Smári. 17 ára nýstúdent náði afburðaárangri „Þetta var ákveðin vinna, en ekki mjög erfið“ Víðir Smári Petersen ÁTTA ökumenn svokallaðra mótor- krossvélhjóla mega búast við kær- um vegna aksturs utan vega en lög- reglan á Selfossi handsamaði þá á Hengilssvæðinu á laugardag í átaki lögreglusveita á suðvesturhorninu og Landhelgisgæslunnar. Þyrla gæslunnar, TF-LIF, var notuð til eftirlitsflugs yfir svæðinu til að fylgjast með hugsanlegum utan- vegaakstri og var lögregla kölluð til þegar til mannanna sást. Þeir mega eiga von á kæru. Einnig voru tveir jeppar stöðvaðir utan vega við Hagavatn. Átta ökumenn teknir utan vega ANÍTA Briem mun leika á móti Brendan Fraser í ævintýramynd byggðri á frægri skáldsögu franska rithöfundarins Jules Verne, Leyndardómar Snæfellsjökuls: för í iður jarðar. Samkvæmt Kvik- myndavefnum IMDB hefur mynd- in fengið heitið Journey 3-D og er hún frumraun leikstjórans Eric Brevig sem hingað til hefur helst skapað sér orðspor fyrir tækni- brellur í myndum á borð við The Island, The Village, og Pearl Harbour. Aníta fer með annað tveggja aðalhlutverka myndarinn- ar, og leikur leiðsögumann sem fylgir persónu Fraser ásamt föru- neyti inn í Snæfellsjökul, og þaðan að miðju jarðar. Meðal handrits- höfunda er D.V. DeVincentis sem hefur m.a. tekið þátt í gerð hand- rita kvik- myndanna High Fidelity og Grosse Pointe Blank. Áætlað er að myndin verði frumsýnd næsta sumar en fyrstu tökur hefjast um miðjan þennan mánuð. Aníta útskrifaðist frá Royal Aca- demy of Dramatic Art í Lundúnum árið 2004 og hefur síðan fengist við ýmis kvikmynda- og sjónvarps- þáttahlutverk og tekið þátt í upp- færslum í West End í Lundúnum. Aníta Briem leikur í Hollywood-stórmynd Aníta Briem LÖGREGLAN í Kópavogi lýsir eftir Oddnýju Hönnu Helgadóttur. Oddný Hanna er 16 ára, um 177 cm á hæð, þéttvaxin, með axlarsítt ljóst hár og græn augu. Hún sást síðast klædd í svartar gallabuxur, svarta Nikita- hettupeysu og í hvítum Puma- strigaskóm. Oddný Hanna sást síðast í Brekkuhverfi í Kópa- vogi um klukkan níu á laugardags- kvöld. Þeir sem geta gefið upplýs- ingar um ferðir Oddnýjar eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í Kópavogi, í síma 560-3050. Lýst eftir sextán ára stúlku

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.