Morgunblaðið - 06.06.2006, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 06.06.2006, Blaðsíða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Bergur MagnúsGuðbjörnsson vélstjóri fæddist á Ísafirði 22. júní 1969. Hann varð bráðkvaddur á Akranesi 28. maí síð- astliðinn. Foreldrar hans eru Áslaug Ár- mannsdóttir kenn- ari, f. 19. október 1947, og Guðbjörn Páll Sölvason skip- stjóri, f. 18. október 1945, þau skildu 1988. Maki Áslaugar er Valgeir Gestsson og maki Guð- björns er Peao Singsawat. Systur Bergs eru: a) Sigrún Lilja kennari, f. 4. apríl 1968, gift Einari Gíslasyni rafmagnsiðnfræðingi, f. 1967, og eiga þau dæturnar Áróru, f. 31. mars 1991, og Áslaugu Dóru, f. 5. júlí 1993. b) Gunnhildur kenn- ari, f. 26. júní 1970, maður hennar er Freyr Halldórsson viðskipta- fræðingur, f. 1972. Árið 2000 hóf Bergur sambúð með Oddnýju Guðmundsdóttur, B.s í umhverfisskipulagi, f. 7. júlí 1967. Þau gengu í hjónaband á sjó- mannadaginn í fyrra, hinn 4. júní. Börn Oddnýjar frá fyrra hjóna- bandi eru Þórhildur, f. 18. mars 1988, og Svavar Kristján, f. 10. febrúar 1995, Kristjánsbörn. Berg- ur og Oddný fluttu ásamt börnun- um á Akranes í júlí 2004. Oddný er dóttir hjónanna Þóru Benediktsdóttur, f. 1947, og Guðmundar Kr. Guðmundssonar skipstjóra, f. 1946. Bróðir Oddnýjar er Guðmundur Kr. Guðmundsson skip- stjóri, f. 1968, kvæntur Soffíu Guð- mundsdóttur kenn- ara, f. 1972, og eiga þau þrjú börn. Bergur fluttist með foreldrum sín- um til Reykjavíkur strax eftir fæð- ingu og bjó þar næstu þrjú árin. Árið 1972 flutti fjölskyldan til Flat- eyrar og þar ólust Bergur og syst- ur hans upp. Bergur gekk í Grunn- skólann á Flateyri og var síðan einn vetur á Núpi í Dýrafirði. Hann fór strax á sjó eftir að grunn- skólanámi lauk. Haustið 1987 sett- ist hann í Vélskólann og útskrif- aðist þaðan vorið 1993. Bergur hefur að mestu leyti verið til sjós á fiskiskipum og farið víða, m.a. til Suður-Afríku og Kóreu. Síðustu tvö ár hefur hann verið á togar- anum Sturlaugi H. Böðvarssyni. Hann fór í land í aprílmánuði sl. og hóf störf í Norðuráli á Grundar- tanga. Útför Bergs verður gerð frá Akraneskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. „Ég veit það að ókeypis er allt það sem er best, en svo verð ég að greiða dýru verði það sem er verst.“ Okkur dettur í hug þessar línur úr uppá- haldsljóði Bergs, „Tvær stjörnur“ eftir Megas nú þegar við sitjum og syrgjum ótímabært fráfall okkar elskulega bróður. Því vinátta, kær- leikur, ást og tryggð var nokkuð sem hann átti ríkulega af og gaf það fús- lega þeim sem vildu þiggja. Sorgina og sársaukann verðum við nú að bera þegar við kveðjum þennan elskulega og elskaða mann. Bergur Magnús Guðbjörnsson var ekki nema tæp- lega 37 ára þegar hann var kvaddur skyndilega á brott. Það er skjótur endir og miskunnarlaus gagnvart þeim sem eftir lifa. Nafn hans átti vel við þann mann sem hann hafði að geyma, þar sem það þýðir Kletturinn Mikli. Lýsingin á íslenskum karl- mönnum í minni karla átti afar vel við hann: „… þéttir á velli og þéttir í lund og þrautgóðir á raunastund“, því það var hann. Fólk treysti honum ósjálfrátt, því hann var alltaf yfirveg- aður og skipti sjaldan skapi. Tryggur og traustur vinum sínum og fjöl- skyldu. Við systkinin vorum náin enda mjög stutt á milli okkar, aðeins tvö ár og tveir mánuðir milli þess yngsta og elsta. Beggi, eins og flest- ur kusu að kalla hann, var miðju- systkinið og eini strákurinn, sem veitti honum svolitla sérstöðu í systk- inahópnum. Eins og góðum bróður sæmir verndaði hann okkur systurn- ar og reyndi að leiðbeina okkur um hitt og þetta, hvort sem við tókum mark á því eða ekki. Við ólumst upp á Flateyri, við frjálsræði það sem oft skapast í svona litlum plássum úti á landi. Við áttum ekki mikið af nánum ættingjum á staðnum, en áttum þó afa og ömmu sem Beggi leitaði mikið til, sérstaklega afa, sem gaukaði oft að stráknum ýmsu góðgæti. Pabbi og afi stunduðu báðir sjómennsku og snemma hneigðist hugur hins unga manns að henni líka. Hann lét sér ekki nægja að sigla um höfin breið, heldur notaði hann hvert tækifærið til að fá sér sundsprett, eða sigla um hann á kajak. Á ættarmótum var það fastur liður að bróðir okkar tæki sundsprett í sjó, við mikla aðdáun yngri frændsystkina. Það hefur kannski byrjað þegar hann var lítill strákur á Flateyri að ekki leið sá dagur á sumrin að hann kom ekki blautur heim eftir að hafa verið að sulla í sjónum, leika sér í fjörunni uppi á Kambi, eða að veiða marhnúta niðri á bryggju. Fjölskyldan flutti frá Flateyri, en Beggi var tregur til að fara þaðan og var síðastur okkar til að yfirgefa æskustöðvarnar. Við gerðum að því góðlátlegt grín og fannst hann lítt ævintýralega sinn- aður. En hann afsannaði þá kenningu okkar í eitt skiptið fyrir öll þegar hann tók sér á hendur miklar og langar ferðir sem lágu til Suður-Afr- íku og um Norður-Japanshaf. Ein- mitt í dvölinni í Suður-Afríku kynnt- ist Beggi ástinni, konunni sem hann kvæntist fyrir tæpu ári, henni Odd- nýju. Við systurnar samglöddumst honum innilega, því með Oddnýju eignaðist hann góða konu og ham- ingjusamt fjölskyldulíf. Þau áttu engin börn saman, en börn Oddnýj- ar, Þórhildur og Svavar, hefðu ekki getað eignast betri stjúpföður því hann var þeim góður vinur og traust fyrirmynd. Beggi unni íslenskri nátt- úru og naut þess að arka um óbyggð- ir með bakapokann á bakinu og tak- ast á við náttúruöflin. Þessu áhugamáli deildi hann með konu sinni. Það var einmitt við þessa iðju á sólskinsbjörtum maídegi sem hann lést svo skyndilega. Það er svo margs að minnast þegar við hugsum um hann Begga okkar, og eiginlega verst að geta ekki spurt hann sjálfan, því hann var stálminnugur. Það var varla svo lítilvægt eða ómerkilegt at- vik sem við gátum ekki spurt hann um og hann mundi það í smáatriðum, enda var hægt að fletta upp í honum eins og alfræðibók. Hann þoldi ekki að hafa rangt fyrir sér og oftar en ekki voru miklar rökræður í gangi sem nánast alltaf enduðu þannig að það kom í ljós hann hafði rétt fyrir sér og við hin urðum að láta undan. Beggi var líka mikill húmoristi og hafði góð tök á tungumálinu sem hann notaði sem verkfæri í frásögn- um sínum, þannig að hrein unun var að hlusta á. Beggi var duglegur að rækta fjölskyldu og vináttubönd. Bergs bróður okkar er sárt saknað af öllum sem þekktu hann og engin orð geta lýst þeim harmi sem fráfall hans er. Oddný, Þórhildur og Svavar, hug- ur okkar er með ykkur á þessari sorgarstund. Gunnhildur Guðbjörnsdóttir og Sigrún Lilja Guðbjörnsdóttir. Í byrjun júní fyrir einu ári hitt- umst við systkinin til að undirbúa ræðuhöld og skemmtidagskrá fyrir brúðkaup systursonar okkar Bergs Magnúsar og Oddnýjar. Í þeirri ræðu lofuðum við því að íþyngja hon- um ekki um of framvegis með skondnum sögum úr uppvexti hans en af nógu var að taka þar sem Berg- ur var okkur öllum mjög hjartfólginn og kynntumst við honum mjög vel strax sem barni. Ekki óraði okkur fyrir því þá að svo auðvelt yrði að efna þetta loforð þar sem lífið virtist blasa við þeim Oddnýju og engin merki voru um það að Bergur væri ekki fullfrískur. Hann var hreystin uppmáluð, sífellt á göngu um landið, kleif hæstu fjöll og tinda og naut úti- vistar með fjölskyldu sinni. Enda var það í gönguferð sem kallið kom, öll- um að óvörum, þó að hann hefði fundið fyrir smáþreytu í nokkurn tíma sem virtist eiga sér eðlilegar skýringar. Bergur var fjölskyldumaður í bestu merkingu þess orðs. Strax í bernsku sýndi hann okkur ættingj- um sínum mikla ræktarsemi og átt- um við oft skemmtilegar stundir með honum þegar við heimsóttum fjöl- skylduna á Flateyri. Hann hafði góða kímnigáfu og var óvenjufordómalaus strax sem barn. Hann átti góð sam- skipti jafnt við unga sem aldna, var einstaklega hlýr í viðmóti enda komst hann fljótt í gott samband við börn Oddnýjar. Þegar hann kom í bæinn sem barn og unglingur, oft í þeim tilgangi að fara í bíó, leit hann á það sem sjálfsagðan hlut að heim- sækja ættingjana og voru heimsókn- ir hans okkur mjög kærkomnar. Það voru ekki einungis kvikmynd- ir sem vöktu áhuga Bergs og fljót- lega varð hann dyggur sjónvarps- áhorfandi. Bergur þurfti oft að hlusta á okkur segja frá því að þegar hann var fimm eða sex ára gamall vildi hann flýta sér heim úr göngu- ferð til þess að missa ekki af Þingsjá. Þetta er hins vegar gott dæmi um hversu fjölbreytt áhugamál hans voru. Aldrei var komið að tómum kofanum hjá Bergi hvort sem rædd voru þjóðmál, saga eða bókmenntir. Íslenskukennarinn í hópi okkar systkinanna leitaði stundum til hans varðandi val lestrarefnis, alltaf mátti treysta því að Bergur væri búinn að lesa það helsta sem hafði komið út á síðustu árum. Bergur starfaði lengst af á sjó og nýtti sér vel þann tíma sem gafst til að auðga andann. Þegar Bergur hafði þekkt Odd- nýju í stuttan tíma var Svavar, sonur hennar, að velta því fyrir sér hvort þau væru rík og svaraði móðir hans því til að Beggi væri ríkur. Svavar svaraði þá að bragði að þau væru rík því að þau ættu Begga. Við sem höf- um fengið að kynnast Bergi höfum svo sannarlega orðið ríkari af þeim kynnum. Minningin um hann á eftir að auðga tilveru þeirra sem þekktu hann. Áslaug, Bubbi, Oddný, Þór- hildur og Svavar, megi minningar um góðan dreng sefa sárustu sorg- ina. Guðbrandur, Steinunn og Halldís. BERGUR MAGNÚS GUÐBJÖRNSSON  Fleiri minningargreinar um Berg Magnús Guðbjörns- son bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höfundar eru: Halldór Ármannsson og Mar- grét Skúladóttir; Ármann; Starfs- félagar og stjórnendur Norðuráls á Grundartanga; Guðrún Ósk, Hrefna, Svava og fjölskyldur; Ólaf- ur Elíasson; Ófeigur Hreinsson; Helena Guttormsdóttir. ✝ Pálína SigurrósGuðjónsdóttir fæddist í Skjaldar- bjarnarvík í Árnes- hreppi í Stranda- sýslu 13. nóvember 1919. Hún lést á Hrafnistu í Hafnar- firði 24. maí síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Guðjón Kristjánsson, bóndi í Þaralátursfirði, f. 24. júní 1880, d. 28. október 1954, og Anna Jónasdóttir, f. 22. ágúst 1881, d. 12. júlí 1954. Pál- ína var næstyngst af níu systkin- um. Hin eru Jónas Kristinn, f. 16. apríl 1906, d. 10. apríl. 1981; Þor- steina, f. 30. október 1907, d. 10. apríl 1991; Eiríkur Annas, f. 25. nóvember 1908; Guðmundur, f. 24. september 1910, d. 4. júlí 1984; Guðjón, f. 22. maí 1942, búsettur í Mosfellsbæ, maki Sigríður Jakobs- dóttir. Þau eiga fjögur börn og tvö barnabörn. 4) Samúel Vilberg, f. 26. febrúar 1944, búsettur í Hafn- arfirði, maki Bjarney Georgsdótt- ir. Þau eiga fjögur börn og sex barnabörn. 5) Þorgerður Erla, f. 18. nóvember 1946, búsett í Borg- arnesi, maki Ágúst Skarphéðins- son. Hún á þrjú börn og tvö barna- börn. 6) Ragnar Sólmundur, f. 26. febrúar 1950, búsettur í Hafnar- firði, maki Þórey Guðmundsdóttir. Þau eiga fimm börn og þrjú barna- börn. 7) Anna Sigríður, f. 25. sept- ember 1951, búsett í Hafnarfirði. Hún á tvö börn og tvö barnabörn. 8) Jón Elías, f. 10. júní 1955, búsett- ur í Reykjavík, maki Antonía Rodr- igues. Þau eiga fimm börn. 9) Ólöf Brynja, f. 16. október 1961, búsett í Hafnardal, maki Reynir Stefáns- son. Þau eiga þrjú börn. Pálína og Jón Jens bjuggu í Mun- aðarnesi til ársins 2000. Þá fluttu þau á Hrafnistu í Hafnarfirði. Útför Pálínu verður gerð frá Víðistaðakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Kristján Sigmundur, f. 17. nóvember 1911, d. 22. desember 1989; Anna Jakobína, f. 6. október 1913; Guð- mundur Óli, f. 20. desember 1914, d. 28. maí 1954; og Ingi- gerður Guðrún, f. 9. apríl 1923, d. 24. ágúst 1986. Pálína giftist Jóni Jens Guðmundsyni í Munaðarnesi. Hann lést 9. mars 2005. Þau eignuðust níu börn. Þau eru: 1) Guðlaug, f. 3. nóvember 1937, búsett í Reykjavík, maki Tómas Einarsson, d. 12. febrúar 2006. Hún á þrjú börn og eitt barnabarn. 2) Guðmundur Gísli, f. 9. júní 1939, búsettur í Grundar- firði, maki Sólveig Jónsdóttir. Þau eiga sex börn og 13 barnabörn. 3) Mamma er konan sem heldur í höndina á manni fyrstu árin en hjartað alla ævi. Þessi setning kom upp í huga minn þegar ég stóð við rúmið þitt og þú varst farin. Það var friður yfir ásjónu þinni og nú voru sex ára erfið veikindi að baki, ég þakkaði góðum Guði fyrir að nú loks varst þú laus við allar þjáningarnar og komin á betri stað, örugglega með pabba þér við hlið. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sig.) Takk fyrir allt og hvíl í friði. Þín dóttir, Anna. Elsku mamma. Það voru blendnar tilfinningar sem bærðu á sér þegar ég vissi að þú varst farin. Það er sárt að þú sért ekki með okkur lengur en samt svo mikill léttir að þessu er lok- ið. Þegar þú veiktist fyrir sex árum tók við endurhæfing þar sem þú varst svo ótrúlega dugleg. En svo kom bakslagið og síðustu árin hefur þú verið skugginn af sjálfri þér. Það hefur verið svo sárt að heimsækja þig við þessar aðstæður. En núna ertu komin á betri stað og komin til pabba og jafnvel farin að trítla um í Þaralátursfirði sem var að þínu mati fallegasti staðurinn á jörðunni. Þar ólst þú upp og þaðan varstu fyrst og fremst. Aðalbláberin voru alltaf best þar. Og eyrarrósin og fjalldalafífillinn voru fallegust þar líka. Það var svo yndislegt að koma til ykkar pabba í heimsókn og vera hjá ykkur á Munaðarnesi. Börnin okkar urðu svo oft eftir og urðu svo rík af lífinu með ykkur þar. Þegar ég var barn og unglingur gengum við venjulega einu sinni á ári upp á Tagl og hlóðum þar vörðu. Stækkuðum hana ár frá ári. Það var alltaf í far- vatninu hjá okkur að fara saman og laga hana. En það varð aldrei af því. Það er því orðið löngu tímabært að fara og skoða vörðuna. Elsku mamma. Ég þakka þér í hjarta mínu fyrir það veganesti sem þú gafst mér fyrir lífið. Þú varst heimspekingur af guðs náð og með svo sterka réttlætiskennd. Guð geymi þig. Þín Ólöf. Mig langar að minnast tengda- móður minnar, Pálínu Sigurrósar Guðjónsdóttur, með nokkrum orð- um. Það var okkur öllum mikið áfall þegar Pálína fékk heilablóðfall fyrir sex árum, þessi fríska og kraftmikla kona sem elskaði að vera úti í nátt- úrunni í gönguferðum og ekki síst að hugsa um blómin sín í garðinum heima á Munaðarnesi. En allt í einu var fótunum kippt undan henni og varð hún að vera að mestu rúmliggj- andi síðan. Ég kynntist Pálínu fyrir 46 árum þegar ég kom að Munaðar- nesi 18 ára gömul, nýtrúlofuð Guð- mundi syni þeirra Pálínu og Jens, og tóku þau mér eins og þeirra eigin dóttur. Áttum við eftir að búa í nánu sambandi í 40 ár þar sem húsið þeirra stóð fyrir neðan hólinn en okkar uppi á hólnum. Allt þar til þau Palla og Jens fluttu suður og ætluðu að hafa vetursetu þar en vera heima á sumrin. En því miður varð ekki af því þar sem veikindi hennar dundu yfir. Ég á Pöllu afar mikið að þakka þar sem hún tók að sér heimili og börn í hvert skipti sem ég þurfti á að halda, sérstaklega þegar ég var að fara og eiga börnin mín. Þá var engin ljósmóðir í Árneshreppi svo ekki var um annað að ræða en að fara til Reykjavíkur eða á Akranes og stóð þá ekki á Pöllu að sjá um allt sem heima var og þurfti ég ekki að hafa áhyggjur af neinu í því sambandi. Þegar börnin komust á legg voru þau fljót að uppgötva ömmu sína fyr- ir neðan hólinn og fóru þau þangað nánast hvern dag. Það var ekki erfitt að hlaupa niður brekkuna en öllu erf- iðara að fara upp og var þá afi alltaf til í að bera krílin heim þegar amma var búin að dekra við þau stóran part úr deginum. Pálína var lítil, grönn og létt á sér og kvik í hreyfingum, hún fór oft í langar í gönguferðir og var stundum nokkra klukkutíma í burtu. Síðasta sumarið sem hún var heima, þá 79 ára, lét hún sig ekki muna um að ganga á Munaðarnesfjall sem er ekki sérstaklega létt því það er mjög bratt. Við Palla áttum margar góðar stundir saman bæði yfir handavinnu og kaffibolla og ekki síst spjalli um heima og geima því Palla var mjög fróð kona og ættfræðina gat hún þul- ið upp eins og ekkert væri. Ég votta börnum hennar og fjöl- skyldum þeirra samúð mína og kveð tengdamóður mína með virðingu og þökk. Hvíl í friði. Sólveig Stefanía Jónsdóttir. PÁLÍNA SIGURRÓS GUÐJÓNSDÓTTIR  Fleiri minningargreinar um Pál- ínu Sigurrós Guðjónsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höfundar eru: Ásta; Unnur Pálína; Guðbjörg, Bryndís og Hafrún Guðmundsdætur; Sigur- rós Sandra og Ingibjörg Bergvins- dætur. Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.