Morgunblaðið - 06.06.2006, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 06.06.2006, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ ÚR VERINU Síðumúla 13 sími 588 2122 www.eltak.is VOGIR Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum. Bjóðum mesta úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum LÍKLEGT er að litlar breytingar verði á verði frystra þorskflaka á Evrópumarkaði á síðara misseri þessa árs og jafnvel er hugsanlegt að verðið lækki aðeins eftir nokkra hækkun á síðasta ári. Kemur það fram í markaðsspá frá FAO, Mat- væla- og landbúnaðarstofnun Sam- einuðu þjóðanna, og er megin- ástæðan sögð aukið framboð af ódýrum fiski frá Kína og lágt gengi dollara. Samkvæmt Evrópsku verð- skránni, EPR, hefur verð á frystum þorskflökum hækkað minna á Evr- ópumarkaði að undanförnu en á öðrum fisktegundum, til dæmis Alaskaufsa, ufsa og lýsingi, og flest bendir til að verðið verði í besta falli óbreytt á næstu mánuðum. Fram kemur að í mars og apríl síðast- liðnum hafi Norðmenn fengið 2% hærra verð en fyrir ári en það, sem af er þessu ári, hafa Norðmenn flutt út um 7.000 tonn af frystum þorsk- flökum og er það í takt við útflutn- inginn á síðasta ári. Nokkur samdráttur var í kaupum Frakka á frystum þorskflökum í fyrra og hann hefur haldið áfram á þessu ári. Er meginskýringin minni innflutningur frá Íslandi og Noregi en miðað við janúar og febrúar í fyrra minnkaði hann um 37% frá Ís- landi og um 14% frá Noregi. Á síð- asta ári jókst innflutningurinn frá Kína um 23% en hann hefur heldur dregist saman á þessu ári. Hlutur Kínverja í frystum þorskflökum á franska markaðnum er nú rétt rúm- lega 22%. Kínversk sókn á breska markaðnum Kínverjar hafa einnig verið að sækja fram á breska markaðnum fyrir þorskflök, sem er sá stærsti í Evrópu, en alls fluttu Bretar inn 79.080 tonn af þorskflökum á síðasta ári. Var það þó heldur minna en 2004. Hafa Kínverjar nú tekið annað sætið af Íslendingum og eru rétt á hælum Dana, sem enn eru stærstir á breska markaðnum þrátt fyrir 11% samdrátt á síðasta ári. Þá jókst útflutningur Kínverja til Bretlands um 10% og var alls 16.470 tonn. Njóta Kínverjar þess að fram- leiðslukostnaður þeirra er miklu lægri en gerist í Evrópu. Sem dæmi um verðmuninn er nefnt að meðalverð á frystum þorsk- flökum frá Kína á breska markaðn- um var 334 kr., 512 kr. frá Íslandi, 451 kr. frá Noregi og 419 kr. frá Danmörku. Við þetta má bæta að Rússar láta æ meira til sín taka á þessum mark- aði en útflutningur þeirra á frystum þorskflökum til Bretlands jókst um 35% á síðasta ári og var þá alls 9.000 tonn. Spá óbreyttu verði á frystum þorskflökum Jafnvel hugsanlegt að verðið lækki á næstunni vegna mikils framboðs frá Kína FJÖLTÆKNISKÓLI Íslands út- skrifaði nemendur frá skólanum í lok maí en á vorönn 2005 var Vél- skóla Íslands og Stýrimannaskól- anum í Reykjavík formlega slitið í síðasta sinn. Nemendur Fjöltækniskólans út- skrifuðust með skipstjórnarpróf og vélstjórnarpróf og vélstjórar sam- hliða með stúdentspróf. Að þessu sinni útskrifuðust nemendur einn- ig af 4. stigi skipstjórnar, varð- skipsdeild, en 4. stigið er haldið í samvinnu við Landhelgisgæsluna á nokkurra ára fresti. Endanleg sameining skólanna átti sér stað í febrúar 2005 þegar nýtt nafn, Fjöltækniskóli Íslands, var tekið upp með endanlegri sam- einingu Vélskóla Íslands og Stýri- mannaskólans í Reykjavík. Miklar breytingar hafa orðið á rekstri skólanna á síðustu árum og er skólinn að mótast sem nýr skóli með breyttar áherslur. Innritaðir nemendur á haustönn voru samtals 317 þar af 70 til skip- stjórnarnáms, 228 til vélstjórn- arnáms og 19 í almenna deild skól- ans. Í fyrsta sinn á haustönn var innritað í nýja vélstjórnartengda náttúrufræðibraut og á almenna braut. Nemendur sem luku námi frá Fjöltækniskólanum að þessu sinni voru 42, þar af 23 á vélstjórn- arsviði og 19 á skipstjórnarsviði. Viðurkenningar hlutu Jón Ingi Hjaltalín á skipstjórnarsviði fyrir hæstu einkunn siglingagreina á 2. stigi og Arnar Páll Ágústsson á 3. stigi. Árni Viggó Sigurjónsson á vélstjórnarsviði fyrir hönnun skipa, íslensku og dönsku. Ólafur Karl Brynjarsson fyrir vélstjórnar- greinar og rafmagnsfræðigreinar. Viðurkenningu fyrir 100% mæt- ingu á skólaárinu fengu þeir Jón Páll Ásgeirsson, Gunnlaugur Stef- ánsson, Guðmundur Rúnar Jónsson og Reynir Baldursson, en Reynir hefur mætt 100% frá upphafi skólagöngu. Menntun Nemendur við Fjöltækniskólann voru 317 við upphaf nýliðins skólaárs. Í vor voru nemendur útskrifaðir með réttindi til skip- og vélstjórnar. Fjöltækniskólinn útskrifar skip- og vélstjóra Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.