Morgunblaðið - 06.06.2006, Blaðsíða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Atvinnuauglýsingar
Stýrimaður
óskast á togskipið Hring SH.
Upplýsingar í síma 430 3500.
Guðmundur Runólfsson Hf.
Ráðgjafi
Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB gagnvart
Íslandi og Noregi auglýsir eftir stöðu ráðgjafa
í upplýsinga- og greiningardeild. Um er að
ræða tímabundið starf í u.þ.b. 8 mánuði, frá
og með september 2006, með möguleika á
framlengingu.
Menntun og hæfniskröfur:
Háskólapróf.
Góð þekking á Evrópusambandinu og
evrópskum stjórnmálum.
Mjög góð skrifleg íslensku- og enskukunn-
átta. Kunnátta í norsku er kostur.
Reynsla á sviði upplýsingatækni.
Sjálfstæði, frumkvæði og geta til að vinna
undir álagi.
Umsóknarfrestur er til 10. júní næstkomandi.
Umsókn og starfsferilsskrá sendist á ensku
til Fastanefndar framkvæmdastjórnar ESB
gagnvart Íslandi og Noregi, Haakon VII gt 10,
Postboks 1643 Vika, 0119 Oslo merkt „Adviser
- Iceland“. Meðmæli og prófgögn sendist ekki
með að sinni.
Vinsamlegast
hafið samband í
síma 893 4694
eftir klukkan
14.00
í Hveragerði.
Einnig vantar
fólk í
sumarafleysingar.
Aðstoðarverslunarstjóri
- sölumaður
Leitum eftir drífandi, stundvísum og heiðarleg-
um starfsmanni í verkfæraverslun. Upplýsingar
um aldur og fyrri störf og meðmæli sendist
á tölvupósti: wl@simnet.is sem fyrst. Þarf að
geta hafið starf fljótlega.
Raðauglýsingar 569 1100
Kennsla
Nám fyrir nemendur úr 10. bekk
Sumarskólinn í FB er með nám fyrir nemendur sem
ekki gekk sem skyldi á samræmdu prófunum í vor.
Kennslugreinar eru stærðfræði, enska, íslenska og danska.
Kennslan hefst miðvikudaginn 7. júní og lýkur föstudaginn 23. júní.
Upplýsingar og skráning á www.fb.is
Tilkynningar
Mat á umhverfisáhrifum -
Ákvörðun Skipulagsstofnunar um
matsskyldu framkvæmda
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að
eftirtaldar framkvæmdir skuli ekki háðar mati
á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum um mat
á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 m.s.b.
Hringvegur milli Ármótasels og Skjöldólfs-
staða 2, Fljótsdalshéraði
Sigurðarskáli í Kverkfjöllum, Fljótsdals-
héraði
Ákvarðanirnar liggja frammi hjá Skipulagsstofn-
un, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.
Þær er einnig að finna á heimasíðu Skipulags-
stofnunar: www.skipulag.is .
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til um-
hverfisráðherra og er kærufrestur til 6. júlí
2006.
Skipulagsstofnun.
Atvinnuauglýsingar
sími 569 1100
Raðauglýsingar
augl@mbl.is
ÍSLENSKA veðrið er furðulegt þar sem
sama daginn geta öll veðrabrigði komið upp.
Það rignir, það snjóar, það gengur á með éljum,
það skiptist á logn og hvassviðri og að lokum
getur sólin farið að skína. Kannski má það sama
segja um íslenska skáklandsliðið í opnum flokki
á Ólympíumótinu á Ítalíu þar sem í 11. og 3. síð-
ustu umferð mótsins fyllti það íslenska skák-
áhugamenn stolti þegar það malaði lið Argent-
ínu mélinu smærra. Lokatölur viðureignarinnar
urðu 3½ –½ þar sem Henrik Danielsen, Stefán
Kristjánsson og Þröstur Þórhallsson unnu sínar
skákir á meðan Hannes gerði jafntefli.
Í sömu hlutföllum og stoltið urðu skákáhuga-
menn fyrir miklum vonbrigðum þegar íslenska
liðið tapaði 0-4 gegn liði Ungverja í næstu um-
ferð. Hannes var beygður í duftið hægt og síg-
andi af Almasi (2.657), Jóhann sá aldrei til sólar
gegn Gymiesi (2.614), Henrik var rólega en
ákveðið ýtt út af borðinu gegn Berkens (2.593)
og Stefán Kristjánsson lagði allt í sölurnar gegn
Balogh (2.576) en án árangurs. Þetta þýddi að
fyrir lokaumferðina var liðið í 47.–52. sæti og í
henni var att kappi við lið Qatar.
Í þeirri viðureign unnu Helgi Ólafsson og
Þröstur Þórhallsson sannfærandi sigra á 3. og 4.
borði á meðan Hannes Hlíf-
ar og Jóhann Hjartarson
mættu stórmeisturunum og
hjónunum Mohammed Al-
Modiahki (2.579) og Zhu
Chen (2.483). Hannes hélt
jöfnu eftir að hafa fengið að-
eins lakara tafl gegn Al-
Modiahki en Jóhann fékk
snemma óteflandi stöðu
gegn fyrrverandi vonar-
stjörnu kínverska alþýðulýð-
veldisins og þó að hann berð-
ist um hæl og hnakka náði hann ekki að koma í
veg fyrir beiskan ósigur gegn fyrrverandi
heimsmeistara kvenna í skák. Þessi sigur gegn
Qatar hafði í för með sér að íslenska liðið fékk
28½ vinning og hafnaði í 43.–48. sæti en eftir
nánari stigaútreikninga lenti liðið í 45. sæti. Fyr-
irfram mátti búast við að liðið lenti í 27. sæti af
148 keppnissveitum svo að niðurstaðan er vita-
skuld umtalsverð vonbrigði.
Árangur einstakra liðs-
manna varð þessi:
1. borð: Hannes Hlífar Stefánsson
(2.579) 4½ v. af 10 mögulegum
(tapar 5 stigum, árangur upp á
2.541 stig)
2. borð: Jóhann Hjartarson (2.619)
4 v. af 10 mögulegum (tapar 23
stigum, árangur upp á 2.443 stig)
3. borð: Helgi Ólafsson (2.521) 5 v.
af 8 mögulegum (græðir 4 stig, ár-
angur upp á 2.559 stig)
4. borð: Henrik Danielsen (2.520)
4½ v. af 8 mögulegum (tapar 4 stigum, árangur upp á 2.479
stig)
1.vm.: Stefán Kristjánsson (2.480) 5½ v. af 9 mögulegum
(græðir 6 stig, árangur upp á 2.525 stig)
2. vm.: Þröstur Þórhallsson (2.448) 5 v. af 7 mögulegum
(græðir 5 stig, árangur upp á 2.489 stig.)
Gengi Hannesar og Jóhanns var nokkuð und-
ir væntingum. Hannes hóf mótið af krafti en dal-
aði þegar á leið. Jóhann hóf keppnina vel en tap-
aði svo þremur skákum í röð en náði að rétta úr
kútnum áður en hann tapaði síðustu tveim skák-
unum. Henrik Danielsen átti köflótt mót á með-
an Helgi Ólafsson, Stefán Kristjánsson og
Þröstur Þórhallsson stóðu sig vel á heildina litið.
Að ósekju hefðu Helgi og Þröstur mátt tefla
meira en Þröstur vann síðustu þrjár skákirnar.
Fyrirfram mátti búast við að íslenska liðið í
kvennaflokki myndi lenda í 55. sæti af 103
keppnisliðum en dömurnar íslensku stóðu sig
betur en það, þær lentu í 45.–52. sæti með 20
vinninga af 42 mögulegum. Lenka Ptácníková
(2.183) tefldi af öryggi á mótinu, tapaði í fyrstu
umferð en vann svo 5 skákir og gerði 5 jafntefli,
þ.e. 7½ vinningur af 11 mögulegum. Árangur
hennar samsvarar 2.292 stigum og hækkar hún
um 25 stig. Guðlaug Þorsteinsdóttir (2.138) gekk
vel á öðru borði og fékk hún 7 vinninga af 11
mögulegum og hækkar á stigum. Guðfríður
Lilja Grétarsdóttir (2.013) fékk 4½ vinning af 11
mögulegum og lækkar þó nokkuð á stigum sem
og Sigurlaug Friðþjófsdóttir (1.876) sem fékk 1
vinning af 5 mögulegum.
Flestum að óvörum urðu Armenar hlutskarp-
astir í opnum flokki með 36 vinninga, Kínverjar
komu næstir með 34 vinninga og Bandaríkja-
menn náðu bronsinu á meðan stigahæsta sveit-
in, Rússar, urðu að gera sér sjötta sætið að góðu,
einu sæti neðar en lið Ungverja. Úkraína varð
sigurvegari í kvennaflokki með 29½ vinning en
Rússar komu næstir með 28 vinninga.
Það skiptast
á skin og skúrir
SKÁK
Tórínó á Ítalíu
ÓLYMPÍUSKÁKMÓTIÐ 2006
20. maí – 4. júní 2006
HELGI ÁSS GRÉTARSSON
Þröstur Þórhallsson og Lenka Ptácníková
fengu hæstu vinningshlutföll íslensku
keppendanna á ÓL.