Morgunblaðið - 06.06.2006, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2006 21
DAGLEGT LÍF Í JÚNÍ
MÁN - FÖS
Nú eru Vínbúðirnar Dalvegi og Holtagörðum opnar alla virka daga frá kl. 9.00 til 20.00.
BREYTTIR TÍMAR
Umbo›s- og sölua›ili
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Minnistöflur
ÞAÐ er bara goðsögn að svo-
kölluð hvolpafita fari af börnum
og unglingum, að mati ástralsks
sérfræðings. Foreldrar blekkja
sjálfa sig ef þeir trúa þessari
goðsögn, að því er Aftenposten
hefur eftir sérfræðingnum
Louise Baur frá háskólanum í
Brisbane í Ástralíu. Baur segir
engar vísindalegar sannanir fyr-
ir því að börn og unglingar losni
við aukakílóin með aldrinum.
Hún telur meiri líkur á því að of
þung börn og unglingar eigi eft-
ir að eiga í vandræðum með of-
fitu síðar á lífsleiðinni en að fitan
fari af þeim.
Hvolpafita
fer ekkert
endilega af
börnum
HEILSA
EF SJÓNIN er farin að dapr-
ast vegna aldurs er hægt að fá
ódýr gleraugu í næstu búð. En
ef sérstakra glerja er þörf er
kostnaðurinn meiri. Á vef
dönsku neytendasamtakanna
eru gefin góð ráð sem vert er
að hafa í huga áður en fjárfest
er í nýjum gleraugum, m.a.:
Gerið samanburð á verði
og þjónustu á mörgum
stöðum áður en ákvörðun
er tekin.
Börn, eldri borgarar og
fólk með augnsjúkdóma
getur stundum fengið
gleraugu niðurgreidd, at-
hugið hvort möguleiki er á
slíku.
Leyfið augunum að venj-
ast nýju gleraugunum,
það tekur smá tíma.
Ef ætlunin er að kaupa
gleraugu í útlöndum,
kynnið ykkur fyrst reglur
um verslun utan landa-
mæra.
Ef gleraugu eru keypt er-
lendis eða á netinu getur
verið erfitt að láta laga
þau eða skila þeim ef eitt-
hvað hefur farið úrskeiðis.
Morgunblaðið/ÞÖK
Gerið sam-
anburð á
gleraugna-
verði
NEYTENDUR
HUNANGSFLUGUR eru jafnvel taldar framleiða það sem gæti orðið næsta yng-
ingarlyfið. Um er að ræða prótein sem býflugurnar framleiða í miklu magni og ný
doktorsrannsókn bendir til að það geti hindrað öldrun, að því er fram kemur á vefn-
um forskning.no.
Margt er líkt með mönnum og býflugum og er þá átt við félagslega þáttinn sem á
sér ekki hliðstæðu hjá öðrum dýrategundum. Próteinið vitellogenin sem býflugur
framleiða í miklu magni samhliða því að verpa mörg þúsund eggjum á dag, vakti at-
hygli Siri-Christine Seehuus við Umhverfis- og líftækniháskólann í Noregi. Rann-
sóknin leiddi í ljós að vitellogenin sem býflugur framleiða getur verndað býflugur
fyrir öldrun vegna þess að það er áhrifaríkt andoxunarefni. Inni í býflugnabúinu eld-
ast býflugur hægt en öldrunarferlið hefst þegar þær fljúga út í heim. Vissulega eldast
býflugur á annan hátt en menn en hugsanlega getur efnið einnig gagnast mannfólk-
inu. Seehuus segir að spennandi verði að fylgjast með lyfjaþróun næstu 20–30 árin. Í
frétt forskning.no segir að of snemmt sé að gefa drauminn um eilífa æsku upp á bát-
inn, verið geti að hann svífi um loftin með býflugunum.
Yngingarlyf úr hunangsflugum?
Morgunblaðið/Golli
HEILSA
Fréttir á SMS