Morgunblaðið - 06.06.2006, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 06.06.2006, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN FURÐU margir gengu grufl- andi að því hvað við tæki, þegar úr- slit kosninganna í Reykjavík lágu fyrir. Að vísu ruglaði ýmsa í ríminu látalæti og tilgerð ríkisstjórn- arflokkanna. Fögnuður þeirra við lok taln- ingar hefði þó ekki þurft að blekkja neinn, enda vissu sjálf- stæðismenn að þeir höfðu náð átt- unda manninum, þótt til annars flokks teldist að nafni til. Þar sem minnihlutaflokkarnir höfðu nú náð meirihluta í borg- arstjórn, töldu forystumenn Frjálslynda flokksins að þeim bæri lýðræðisleg skylda til að axla ábyrgð samkvæmt því, ef mál- efnaleg samstaða næðist. Þeir töldu þó á því engar líkur að Val- hallarmenn vildu við þá semja, eins og á daginn kom. Og svo hófst farsinn. Í þykjust- unni hófu sjálfstæðismenn samn- ingaumleitanir, vafalaust til að friða allfjölmennan hóp flokks- manna sinna, sem elska framsókn- armenn líkt og bændur kláða- maurinn á sinni tíð. Fyrrverandi bæjarstjóraefni Davíðs, Kjartans og Hannesar Hólmsteins, Gísli Marteinn, þurfti varla að opna munninn á viðræðu- fundi flokkanna til að frjálslyndir áttuðu sig á hvar fiskur lá undir steini. Hinsvegar urðu ýmsir í röð- um frjálslyndra fyrir vonbrigðum að Vilhjálmur oddviti skyldi taka þátt í þeim hráskinnaleik. Þegar svo tjaldið féll í þessum hluta fars- ans, var hann einkar óheppinn, þegar hann valdi flugvallarmálið sem ásteytingarstein. Hann hefði engar viðræður þurft til að kynna sér afstöðu frjálslyndra í því máli. Sjálfur hafði hann hinsvegar á lokadögum kosningabaráttunnar farið hræðsluhringi í málinu og tekið ruglingslega afstöðu umfram aðra og var þó í þeim efnum um auðugan garð að gresja. Lokaatriði leiksýningarinnar var svo þegar Framsókn og Val- hallarmenn skriðu saman í eins sæng, og ríkisstjórnin beðin að blessa heimilið. Frjálslyndum hefir verið legið á hálsi fyrir að ganga ekki til sam- starfs við fyrrum R-lista flokka. Því er til að svara aðallega, að þau öfl voru sterkust í röðum frjáls- lyndra, sem í engu falli hefðu sam- ið um stjórn borgarinnar við Framsóknarflokkinn, auk þess sem þeir töldu sig ekki hafa fengið umboð frá sínum kjósendum að endurreisa R-lista stjórn í Reykja- vík. Aðkoma handbendis forsætis- ráðherra að borgarstjórnarkosn- ingunum var heldur ekki með þeim hætti að samræmdist viðhorfi frjálslyndra til framkvæmdar lýð- ræðis. Um starfshætti hans geta margir af fylgismönnum Fram- sóknarflokksins í Reykjavík borið vitni. Mun enda hafa rifjazt upp fyrir þeim ýmsum aðfarirnar þeg- ar Guðmundi G. Þórarinssyni, verkfræðingi, var bolað úr þing- sæti á sínum tíma af köppum sem sóðalegustu eiga slóðina í íslenzkri pólitík síðari áratuga. Og Morg- unblaðið gefur hinum nýja spor- göngumanni þeirra þá einkunn í leiðara 30. maí sl. að hann sé ,,gott efni í æfðan stjórnmálamann“. Þeir, sem halda að þetta séu hrós- yrði, fara villur vega. Þetta er þvert á móti hárbeitt háðsyrði, svo sem menn geta kynnt sér með því að fletta stjórnmálasögunni um miðbik síðustu aldar. En Frjálslyndi flokkurinn hefir nú náð þeirri fótfestu í höfuðborg- inni, sem hann þurfti á að halda, enda mun hann ekki liggja á liði sínu í baráttunni gegn þeirri óbil- gjörnu auðvaldsstjórn, sem alltof lengi hefir deilt og drottnað á Ís- landi. Sverrir Hermannsson Farsinn Höfundur er fv. form. Frjálslynda flokksins. ÞAÐ ER í tísku núna að stilla upp sem andstæðum notkun mann- vits til nýsköpunar og frumfram- leiðslu efna eins og áls. En fyrir þessari staðhæfingu eru aðeins tilfinn- ingarök, þetta tvennt getur þróast hlið við hlið.Reynslan hefur og kennt okkur að þekk- ingariðnaður getur verð stopull. Mörg voru þau hugbún- aðarfyrirtæki sem urðu gjaldþrota á ár- unum 2000 til 2001. En það voru miklir hagsmunir í veði nú rétt fyrir kosningar og það var eins og ekkert mátti koma fram um andstöðu Samfylkingarinnar við fleiri hálend- islón. Sjöundi maður á lista flokks- ins í Reykjavík, sem er öflugur tals- maður umhverfisverndar, hafði verið beðinn um að tala á fundi samtakanna „Íslandsvina“ á kjör- dag. Á síðustu stundu var honum bannað að halda ræðu sína. Gilti sama regla um Vinstri-græna? Sagt er að þrjú þúsund manns hafi gengið gegn hálendisvirkjunum og sumir raunar gegn öllum virkj- unum, einnig gufuaflsvirkjunum, á sjálfan kosningadaginn í Reykjavík. Gangan snérist meir í stuðning- yfirlýsingu við V-listann en nokkuð annað sennilega þvert á upphaflega ætlun skipuleggjenda. En það var sitthvað í umræddri göngu „Íslandsvina“ sem vakti með mér bæði ugg og andúð. Hvers vegna var leyft að halda á spjaldi eða klæðast bolum með áletruninni: „Drekkjum Valgerði, ekki Íslandi“. Hvílík smekkleysa! Eru „Íslands- vinir“búnir að biðjast afsökunar á þessum gjörningi? Eða eru einhverjir þeirra farnir að dreyma um manndráp? Slíkt er því miður ekki óþekkt er- lendis hjá öfgafullum umhverfisverndar- sinnum sem byggja meir á tilfinningum en skynsemi. Fróðlegt var að hlusta á viðtal við for- stöðukonu samtakanna „Íslandsvina“. Meg- inmál hennar í þeim hluta viðtalsins sem sjónvarpið birti, var ekki andstaða gegn virkjunum á hálendinu heldur barátta gegn erlendri stóriðju og orkusölu til hennar. Sama fólk og heldur fram gildi íslensks hugvits, einkum til útflutnings, er á móti er- lendri fjárfestingu hér á landi. Á tímum alþekktrar útrásar íslenskra fyrirtækja verður efnahagsleg þjóð- ernishyggja meginmál. Rugling- urinn er yfirþyrmandi. Um er gamla efnahagsstefna Al- þýðubandalagsins sem gerði flokk- inn vinsælan á 8unda áratug síðustu aldar þegar verið var að stækka landhelgina og allir töldu að óend- anlega mikill fiskur væri í sjónum. En þessi stefna varð flokknum æ meiri fjötur um fót og átti stóran hlut í hægfara hnignun hans á næstu áratugum. En nú gengur þessi einangrunarstefna í endurnýj- un lífdaga, m.a. hjá Vinstri- grænum. Tilfinningaleg andstaða gegn virkjunum brýst í auknum mæli fram í allra handa draugagangi: Hvatningu til ofbeldis; hættulegri þjóðernishyggju. Ekki vantar held- ur að tilfinningarnar færist í skáld- legan búning dulúðar. Sagt er að verið sé að nauðga „fjallkonunni“ og gyðjum landsins, flæma burt álfa og vætti. Er nýja kjörorðið að verða „Íslandi allt“? Vissulega hefur Kárahnúkavirkj- unin skaðað margt og marga. Ákaf- ir fylgismenn hennar eru margir haldnir frumstæðri blöndu af fortíð- arhyggju og gagnrýnislausri fram- tíðarsýn. En margir andstæðingar vikjunnar eru farnir að rugla út og suður og áróðurinn virðist höfða til margra kjósenda. Við allar að- stæður er það skynsemin sem víkur fyrir óljósum skynjunum og uppá- komum. Eru stóriðja og „þekkingar- iðnaður“ andstæður? Gísli Gunnarsson fjallar um andstöðu gegn virkjunum og stóriðju ’Tilfinningaleg andstaðagegn virkjunum brýst í auknum mæli fram í allra handa draugagangi: Hvatningu til ofbeldis; hættulegri þjóðernis- hyggju.‘ Gísli Gunnarsson Höfundur er prófessor í sagnfræði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.