Morgunblaðið - 06.06.2006, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2006 31
MINNINGAR
Ástkær maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi.
JÓHANNES R. SNORRASON
fyrrverandi yfirflugstjóri,
Espigerði 4,
Reykjavík,
er látinn.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn
9. júní kl.13.
Arna Hjörleifsdóttir,
Hjördís Jóhannesdóttir, Gunnar Bergsveinsson,
Hjörleifur Jóhannesson, Árdís Kjartansdóttir,
Jóhannes Örn Jóhannesson, Ragna D. Davíðsdóttir,
Snorri H. Jóhannesson, Jóhanna Björnsdóttir,
Margrét B. Jóhannesdóttir, Baldvin Thor Jóhannesson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, systir og amma,
HELGA JÓHANNSDÓTTIR,
lést laugardaginn 3. júní.
Útför Helgu verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykja-
vík föstudaginn 9. júní og hefst athöfnin kl. 15:00.
Jón M. Samsonarson,
Heiðbrá Jónsdóttir, Einar Baldvin Baldursson
Svala Jónsdóttir,
Hildur Eir Jónsdóttir, José Enrique Gómez-Gil Mira
Sigrún Drífa Jónsdóttir, Árni Sören Ægisson,
Gyða Jóhannsdóttir
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
VIGDÍS HANNESDÓTTIR
frá Hvoli, Vestmannaeyjum,
áður Hólmgarði 5,
Melbæ 23,
Reykjavík,
sem andaðist á Landspítalanum í Fossvogi
sunnudaginn 28. maí sl., verður jarðsungin frá Árbæjarkirkju
miðvikudaginn 7. júní kl: 15.00.
Ása Haraldsdóttir, Tómas Kristinsson,
Hannes Haraldsson, Elín Jónsdóttir,
Ómar Haraldsson, Gréta Gunnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir,
HJALTI ÞORVARÐSSON
fyrrverandi rafveitustjóri
á Selfossi,
lést að Ljósheimum á Selfossi föstudaginn
2. júní.
Útförin fer fram frá Selfosskirkju fimmtudaginn
15. júní kl. 14.00.
Sigurveig Sigurðardóttir,
Sverrir Hjaltason, Guðrún Eyja Erlingsdóttir,
Sigurður Hjaltason, Aagot F. Snorradóttir,
Anna Hjaltadóttir, Guðmundur Þorsteinsson,
Þorvarður Hjaltason, Ólafía Sigurðardóttir
og fjölskyldur
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÍVAR ANDERSEN
vélstjóri,
lést föstudaginn 2. júní.
Ingibjörg Ívarsdóttir,
Guðmundur Ívarsson,
Erla Ívarsdóttir, Haraldur Sigursteinsson,
Gretar Ívarsson, Anna Dís Sveinbjörnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝ FanneyDaníelsdóttir
fæddist að Sellandi
í Fnjóskadal í
S-Þing. 1. mars
1912. Hún lést á
heimili sínu, Tún-
götu 4 á Húsavík,
mánudaginn 29.
maí síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru hjónin Aðal-
björg Þórðardóttir
og Daníel Jónsson.
Fanney ólst upp að
Sellandi til 18 ára
aldurs en þá flutti fjölskyldan að
Stóra-Hamri í Eyjafirði. Hjónin
eignuðust sex börn og ólu upp
einn fósturson. Systkinin eru nú
öll látin.
Árið 1941 giftist Fanney Jóni
Helga Jakobssyni frá Haga í Að-
aldal í S-Þing., f. 27. 11. 1914, d.
29.4. 1988. Þau bjuggu alla tíð á
Húsavík og frá 1951 var heimili
þeirra í Túngötu 4.
Börn Fanneyjar og
Jóns eru: 1) Rann-
veig Aðalbjörg, f.
25.4. 1943, maki
Guðmundur Annas
Jónsson. Þau eiga
fjögur börn og tíu
barnabörn. 2) Dan-
íel Aðalsteinn, f.
28.1. 1945, maki
Steinunn Harðar-
dóttir. 3) Bergljót,
f. 16.2. 1948, maki
Þorvaldur Vest-
mann Magnússon.
Þau eiga þrjú börn og þrjú
barnabörn. 4) Jakob, f. 13.3.
1949, sambýliskona Sigurbjörg
Guðjónsdóttir. 5) Örn Ármann, f.
28.7. 1950, maki Anna Gerður
Richter. Þau eiga þrjú börn og
þrjú barnabörn.
Útför Fanneyjar verður gerð
frá Húsavíkurkirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 14.
Það er með söknuði og sorg í
huga sem ég kveð nú tengdamóður
mína, Fanneyju Daníelsdóttur en
hún andaðist að kvöldi mánudags-
ins 29. maí s.l. á 95. aldursári.
En í sorginni er einnig gleði og
þakklæti til forsjónarinnar fyrir að
hafa gert henni fært að eyða síð-
ustu æviárunum innan veggja eigin
heimilis og að hafa gefið henni
bærilega heilsu til að njóta þeirra.
Kynni okkar hófust fyrir um 36
árum og ennþá fannst mér hún búa
yfir þeim lífskrafti sem einkenndi
hana við upphaf kynna okkar.
Fanney var ákveðin og viljaföst
kona, sagði sínar skoðanir umbúða-
laust og kom ávallt til dyranna eins
og hún var klædd. Henni var mjög
umhugað um velferð samferða-
manna sinna, hvort heldur sem um
var að ræða hennar eigin fjöl-
skyldu eða óviðkomandi og studdi
iðulega hjálparstarf við bágstadda
af miklu örlæti.
Fanney var yngst sex systkina
sem öll eru nú látin. Rætur Fann-
eyjar stóðu djúpt í Fnjóskadalnum
og hún gat illa hugsað sér að eyða
ekki einhverjum dögum í dalnum á
sumrin og var búin að skipuleggja
vikudvöl í sumar á Illugastöðum.
Árið 1941 ganga Fanney og Jón
Helgi Jakobsson frá Haga í Að-
aldal í hjónaband. Þau reistu sér
heimili á Túngötu 4 og þar var
heimili Fanneyjar alla tíð síðan.
Eiginmann sinn missti Fanney árið
1988.
Jón og Fanney eignuðust fimm
börn sem öll eru á lífi og afkom-
endur þeirra hjóna eru nú orðnir
30.
Fanney hlaut hefðbundna skóla-
göngu á uppvaxtarárum sínum sem
var stutt á okkar tíma mælikvarða.
Hún var eitt ár í Héraðsskólanum
á Laugum í Þingeyjarsýslum
(1931-1932) og síðan í Húsmæðra-
skólanum á Laugum skólaárið
1934-1935.
Fanney var greind kona, vel les-
in og hagmælt og liggja eftir hana
fjölmargar tækifærisvísur. Hún
var lítið fyrir að flíka vísum sínum
en fjölskyldumeðlimir fengu gjarn-
an kveðjur í bundnu máli á afmæl-
isdögum og við önnur sérstök tæki-
færi. Hún las alla tíð mikið og það
var henni mikið áhyggjuefni þegar
aldurinn færðist yfir og sjónin tók
að daprast. Áhugaefnin voru mörg
og fjölbreytileg. Síðustu mánuðina
var hún að lesa og kynna sér efni
um sálfræði og til skamms tíma
keypti hún reglulega tímaritið
„Lifandi vísindi“ og urðu greinar í
ritinu oft tilefni til umræðna okkar
í milli.
Flestir höfundar vöktu áhuga
hennar en sérstakt uppáhald hafði
hún þó á Gunnari Dal.
Önnur lönd og þjóðir vöktu
áhuga hennar og heimsóttu þau
hjónin fjölmörg lönd í Evrópu og
fóru í eina heimsókn til Bandaríkj-
anna og Kanada. Síðast fyrir
tveimur árum fór hún til Spánar
með dóttur og dótturdóttur sinni
og fjölskyldum þeirra til sumar-
leyfisdvalar á Krít.
Löng lífsleið er nú að baki og ég
veit að hún kvaddi sátt við sitt
dagsverk og full tilhlökkunar að
hitta horfna ástvini á nýjum stað.
Á þessari stundu er mér efst í
huga þakklæti fyrir að hafa fengið
að njóta samfylgdar hennar.
Guð blessi og varðveiti minningu
Fanneyjar Daníelsdóttur.
Þorvaldur Vestmann
Magnússon.
Tengdamóðir mín Fanney Dan-
íelsdóttir er látin, 94 ára gömul.
Andlátið bar brátt að og fékk hún
að sofna að kvöldi til í rúminu sínu
heima, hinsta svefni. Fyrr um dag-
inn hafði hún notið sólar, en fátt
fannst henni betra en að finna yl
sólar leika um sig. Fyrr höfðu
nokkrir fuglar glatt hana og tveir
spóar notið góðs af kleinunum
hennar.
Þegar ég minnist Fanneyjar,
kemur fyrst upp í hugann, vinnu-
semi og dugnaður. Hún hélt heimili
með miklum myndarbrag, fyrir Jón
og börnin fimm og lasburða
tengdamóður, meðan hún lifði.
Þegar ég kynntist henni voru börn-
in uppkominn og farin að heiman,
en samt var heimilið rekið áfram í
sama dúr og nutum við góðs af og
vil ég sérstaklega geta allra sokka-
leistanna og vettlinganna, sem hún
prjónaði á börn og aðra afkom-
endur fram til hins síðasta. Þegar
stund gafst, var hún nýtt í blóma-
rækt og garðrækt. Það var sáð og
plantað og settir niður laukar og
ræktað grænmeti og í gróðurhús-
inu voru rósir og vínber og græn-
meti af ýmsu tagi. Ég gleymi aldrei
fyrstu rósunum sem sprungu út.
Þetta voru dýrðardagar. Einnig
hafði Fanney mikið yndi af því að
ferðast, bæði innanlands og utan.
Hún ferðaðist með Jóni til Norður-
landanna og nokkur Evrópulönd.
Einnig var farið til Kanada og
vestur-íslensk skyldmenni heim-
sótt.
Eftir að Jón féll frá 1988, ferðað-
ist hún með okkur fjölskyldunni til
Kýpur og þaðan til Egyptalands og
Ísraels og var hún hugfangin af að
koma á söguslóðir Jesú Krists.
Fanney var mjög trúuð og kirkju-
rækin, en jafnframt trúði hún á
annað líf. Fjölskyldan var dugleg
að taka hana með í sólarlandaferð-
ir, enda hafði Fanney sérstaka un-
un af sólinni.
Seinasta áratuginn fór heilsunni
að hraka og sjónin að daprast, en
hún fékk töluverða sjón eftir augn-
steinaaðgerð. Þannig gat hún lesið
með stækkunargleri, sem var henni
mikils virði. Hún naut ástríkrar að-
stoðar elstu dóttur sinnar og sonar,
Stúllu og Danna, til að búa á Tún-
götunni til hinstu stundar, og er
þeim þakkað fyrir umönnunina.
Ég kveð tengdamóður mína með
virðingu og þökk.
Anna Gerður Richter.
FANNEY
DANÍELSDÓTTIR
Fleiri minningargreinar
um Fanneyju Daníelsdóttur bíða
birtingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga. Höfundar eru: Erna
Dögg og Elfa.
Kársnesbraut 98 • Kópavogi
564 4566 • www.solsteinar.is
Okkar ástkæra,
SOFFÍA ARINBJARNAR
frá Hafnarfirði,
Hlíðarhúsum 7,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum í Fossvogi föstudaginn
26. maí.
Jarðsungið verður frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
miðvikudaginn 7. júní kl. 15:00.
Kristján Stefánsson,
Hildur Betty Kristjánsdóttir, Guðmundur Óli Hilmisson,
Laufey Dögg Kristjánsdóttir, Arthúr Vilhelm Jóhannesson,
Vilborg Arinbjarnar
og barnabörn.
Móðir okkar,
KRISTÍN JÓNSDÓTTIR,
Freyjugötu 21,
Sauðárkróki,
verður jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju miðviku-
daginn 7. júní kl. 14.00.
Aðstandendur.