Morgunblaðið - 06.06.2006, Síða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Vísbendingar segja hrútnum að vera
staðfastur, sama hvað hann tekur sér
fyrir hendur. Varanlegar, traustar og
skynsamlegar athafnir eru lykillinn að
því að treysta stöðu sína í sambandi.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Hugur nautsins er í sjaldgæfu stuði.
Þeir sem eru í kringum það eiga hugs-
anlega í erfiðleikum með að halda í við
hugmyndaflæðið. Svarið er: Slíttu þig
lausan og fylgdu áformum þínum eftir
eigin höfði.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Tvíburinn er ekki viss um hvernig aðrir
upplifa hann, en staða himintunglanna
er til merkis um það að hann sé að ná
árangri. Eins og tvíburinn Prince syng-
ur þarf maður ekki endilega að vera
svalur til þess að hafa áhrif á einhvern.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Krabbinn er upptekinn af því að hugsa
langt fram í tímann, en þarf að gera
skammtímaráðstafanir. Þú vildir óska
að þú hefðir aðstoðarmann, einhvern
sem fær borgað fyrir að sinna hvers-
dagslegum viðfangsefnum sem hann má
varla vera að.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljónið er manneskja sem aðrir opna sig
gagnvart. Hvers vegna er einhver stífla
milli þín og ótilgreindrar manneskju í
fiskamerkinu? Ef þú kemst að því, átt-
arðu þig á mörgu í sambandi þínu við
að minnsta kosti tíu aðra einstaklinga.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Peningaradar meyjunnar er vel stilltur
um þessar mundir. Komdu þér inn í
samninga sem virðast lofa góðu. Þegar
þú ert búin að greiða úr fjármálunum
fær ástarævintýri loks byr undir báða
vængi.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Óvenjulegt mál kallar á óvenjulegar að-
ferðir. Hóaðu saman liði sem klárar
málin með hraði. Þú skýtur aðdáanda
kannski skelk í bringu ef þú ert of
framhleypin. Vertu aðeins óframfærn-
ari.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Ef þú gerir næstum því það sama í dag
og í gær verður þú kannski sáttur, en
hættan er líka sú að dagurinn falli al-
gerlega í gleymskunnar dá. Hristu upp
í hlutunum og vertu djarfur. Skapaðu
dýrmætar minningar.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaðurinn er ráðgjafi sem fyllir
andagift, ekki síst meyju. Tímabundnar
áhyggjur gætu gert vart við sig í
vinnunni tengdar týndu skjali eða ein-
hverju ámóta en úr þeim greiðist
skjótt.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Rétti tíminn til þess að mennta sig er
núna. Fjárfesting í menntun skilar þér
umtalsverðum hagnaði eftir nokkra
mánuði. Sjálfstraustið á eftir að hríslast
um þig þegar þú tekur um stjórnvölinn.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberinn er ónæmur fyrir hörku
veraldarinnar. Hann er fær um að
mýkja sjálf náttúruöflin í þágu einhvers
sem hann elskar. Vinur þarfnast við-
urkenningar og þú ert akkúrat rétta
manneskjan til að veita hana.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Fiskurinn hefur sitt hvað að kenna öðr-
um. Ekki er víst að það skiljist akkúrat
núna, en seinna muntu sjá að þú hafðir
áhrif. Daður kemur við sögu í kvöld –
skemmtileg aðferð til að fá útrás, en
ekkert til að taka alvarlega.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Hið samstillta tungl í vog
syngur kyrrláta laglínu.
En Venus og Júpíter eru
eins og elskhugar sem eru svo vanir mik-
illi spennu að þeir vita ekki hvað þeir
eiga af sér að gera þegar friðsældin tekur
við. Sambönd eru ýmist í þægilegum eða
áleitnum fasa. Kannski berjumst við þeg-
ar við ættum að vera sátt.
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 tilkynnir, 8
sleifin, 9 haldast, 10
ferskur, 11 laska, 13 ann-
ríki, 15 grunsemdar, 18
frásögnin, 21 mjólk í mál,
22 metta, 23 viljugu, 24
álappalegt.
Lóðrétt | 2 gæsla, 3 syst-
ir, 4 menga, 5 liðorm-
urinn, 6 afkvæmi, 7 nagli,
12 ætt, 14 spil, 15 næð-
ing, 16 furða sig á, 17 fá-
tæk, 18 sæti, 19 skarp-
skyggn, 20 þrenging.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 hagur, 4 hopar, 7 gruns, 8 ómótt, 9 ann, 11 ró-
ar, 13 æska, 14 ældir, 15 tærð, 17 alda, 20 eik, 22 putti,
23 regns, 24 reisa, 25 tosar.
Lóðrétt: 1 hugur, 2 gaufa, 3 rósa, 4 hjón, 5 plógs, 6
rætna, 10 næddi, 12 ræð, 13 æra, 15 tapar, 16 rotni, 18
logns, 19 ansar, 20 eira, 21 Krít.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða
Tónlist
Gamla Bókasafnið í Hafnarfirði | Tónleikar
7. júní kl. 20 í gamla bókasafninu. Fram
koma hljómsveitirnar Kimono, Coral,
Lokbrá, Shima, Changer. Húsið opnar kl. 19,
frítt inn. Nánari upplýsingar á www.-
myspace.com/gamlabokasafnid
Iðnó | Tangókvöld í Iðnó kl. 20–23. Daði og
Dísa leiðbeina áhugasömum tangóunn-
endum fyrsta klukkutímann, en kl. 21 stígur
Tangósveit lýðveldisins á svið. Miðaverð
1.500.
Myndlist
Anima gallerí | Erla Þórarinsdóttir, Dældir
og duldir. Til 25. júní.
Aurum | Árni Sæberg ljósmyndari hjá
Morgunblaðinu sýnir í tilefni stórafmælis
síns ljósmyndir í verslun Aurum. Til 9. júní.
Bókasafn Seltjarnarness | Jón Axel Eg-
ilsson sýnir vatnslitamyndir til 16. júní. Sýn-
ingin er opin á sýningartíma safnsins frá kl.
10 til 17 alla virka daga.
Byggðasafn Garðskaga | Bergljót S.
Sveinsdóttir sýnir vatnslitamyndir til 14.
júní.
Café Karólína | Sunna Sigfríðardóttir.
Myndirnar eru af blómum. Myndirnar eru
allar unnar með bleki á pappír. Til 30. júní.
Energia | Sandra María Sigurðardóttir –
Málverkasýningin moments stendur yfir.
Viðfangsefni sýningarinnar er manneskjan.
Til 30. júní.
Gallerí Fold | Málverkasýning Braga Ás-
geirssonar í Baksalnum og báðum hlið-
arsölum Gallerís Foldar við Rauðarárstíg.
Sýningin er sett upp í tilefni af 75 ára af-
mæli listamansins. Til 11. júní.
Gallerí Humar eða frægð! | Sýning með
hljóðtengdum myndverkum í tilefni Fjölljóð-
ahátíðar. Finnbogi Pétursson, Haraldur
Jónsson, Steingrímur Eyfjörð, Kira Kira,
Ólafur J. Engilbertsson og listnemar við
LHÍ sem sýna bókverk.
Gel Gallerí | Dirk Leroux „A Model for The
Treeman“. Til 8. júní.
Gerðuberg | Guðjón Stefán Kristinsson –
Sagnir og seiðmenn. Á sýningunni er að
finna verk úr rekaviði og vegghleðslu úr
grjóti og gleri. Ketill Larsen – Andblær frá
öðrum heimi. Ketill sýnir ævintýraleg lands-
lagsmálverk. Jón Ólafsson – Kvunndags-
fólk. Portrettmyndir málaðar með akrýllit-
um. Sjá www.gerduberg.is Til 30. júní.
Hafnarborg | Sýning á ljósmyndum og mál-
verkum norska listmálarans og ljósmynd-
arans Patrik Huse til 3. júlí.
Hallgrímskirkja | Sumarsýning Listvina-
félags Hallgrímskirkju. Ásgerður Búadóttir
sýnir í forkirkju Hallgrímskirkju. Ásgerður
er frumkvöðull nútímaveflistar á Íslandi og
hafa verk hennar ætíð haft sterka skír-
skotun til landsins og til náttúrunnar. Sýn-
ingin er í samvinnu við Listasafn Háskóla
Íslands. Til 26. ágúst.
Hrafnista Hafnarfirði | Eiríkur Smith, list-
málari, sýnir í Menningarsal til 12. júní.
Hönnunarsafn Íslands | Sýningin 3x3 er
þriðja samsýning leirlistakvennanna Guð-
nýjar Magnúsdóttur, Koggu og Kristínar
Garðarsdóttur. Öll verk á sýningunni eru ný
og unnin sérstaklega fyrir þessa sýningu.
Til 18. júní.
Kaffi Sólon | Þórunn Maggý Mýrdal Guð-
mundsdóttir sýnir kröftug málverk. Til 9.
júní.
Karólína Restaurant | Joris Rademaker
sýnir ný verk Mjúkar línur/ Smooth lines. Til
6. okt.
Lista- og menningaverstöðin Hólmaröst |
Málverkasýning Elfars Guðna. Opið frá kl.
14–18 alla daga. Sýningu lýkur 11. júní.
Listasafn Íslands | Sýningar á verkum
Birgis Andréssonar og Steingríms Eyfjörð í
Listasafni Íslands. Verkin á sýningunum
spanna allan feril listamannanna. Vegleg
fræðsludagskrá í tengslum við sýninguna,
sjá á: www.listasafn.is. Til 25. júní. Ókeypis
aðgangur.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Yfirlits-
sýning á verkum Guðmundar Einarssonar
frá Miðdal. Unnið í samstarfi við Nátt-
úrufræðistofu Kópavogs. Safnbúð og kaffi-
stofa. Til 3. júlí.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Sýning fyrir unga listunnendur sem sett er
upp í tengslum við útgáfu nýrrar bókar
Eddu útgáfu um myndlist fyrir börn þar
sem kynnt eru verk úr safneign Listasafns
Reykjavíkur. Til 3. des.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Sýning á
völdum skúlptúrum og portrettum Sig-
urjóns Ólafssonar. Opið daglega nema
mánudaga 14 – 17. Kaffistofan opin á sama
tíma. Sumartónleikar hefjast 11. júlí.
Nýlistasafnið | Gæðingarnir. Sýning sem
gefur Íslendingum einstakt tækifæri á að
kynnast verkum 24 ungra listamanna al-
staðar að úr heiminum. Sýnt er í Ný-
listasafninu og 100° sal Orkuveitu Reykja-
víkur.
Reykjavíkurborg | Stella Sigurgeirsdóttir
sýnir skilti á 20 stöðum víða um borgina til
28. ágúst.
Skriðuklaustur | Svandís Egilsdóttir sýnir
olíumyndir og verk unnin í gifs og lakkrís í
gallerí Klaustri. Til 7. júní.
Thorvaldsen Bar | Marinó Thorlacius með
ljósmyndasýninguna „dreams“. Ljósmynd-
irnar hans eru alveg sér á báti og hafa þær
vakið mikla athygli bæði hérlendis sem og
erlendis. Til 9. júní.
Þjóðminjasafn Íslands | Ljósmyndir Rob
Hornstra eru afrakstur af ferðum hans um
Ísland og veita sýn á Ísland nútímans og
vitna um samfélagsbreytingar síðustu ára.
Þjóðminjasafn Íslands | Rjúpnaskyttur
hjálpuðu Bryndísi Snæbjörnsdóttur og
Mark Wilson að skapa listaverk. Skytturnar
skutu haglaskotum á kort af miðborg
Reykjavíkur. Gæludýrahúsin sem urðu fyrir
skoti voru mynduð og eru til sýnis á Veggn-
um. Líka var unnið með nemendum Austur-
bæjarskóla og má sjá afraksturinn á Torg-
inu. Til 11. júní.
Söfn
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra-
steinn er opinn alla daga í sumar kl. 9 – 17.
Hljóðleiðsögn á íslensku, ensku, þýsku og
sænsku. Margmiðlunarsýning og gönguleið-
ir í nágrenninu. Frekari upplýsingar á
www.gljufrasteinn.is og í 586 8066.
Listasafn Árnesinga | Tvær sýningar í safn-
inu. Sýningin Hér er verðlaunasýning
Hrafnhildar Sigurðardóttur, en hún tók við
norrænu textíllistaverðlaununum í Svíþjóð
2005. Sýningin Formleikur – Geometria er
sýning Sonju Hakansson, en hún var tilbúin
með þessa einkasýningu sama ár og hún
lést árið 2003. Til 18. júní.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Sigríður
Bachmann í Skotinu, nýjum sýningarkosti
hjá Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Sýnir Sig-
ríður myndir sem hún hefur tekið af börn-
um. Til 7. júní.
Minjasafnið á Akureyri | Sumarsýning. Ef
þú giftist ? Brúðkaupssiðir fyrr og nú. Ef þú
giftist fjallar um brúðkaup og brúðkaupssiði
í gegnum tíðina. Sýningin er unnin í sam-
starfi við Þjóðminjasafn Íslands og er opin
alla daga milli 10 og 17. Til 15. sept.
Perlan | Sögusafnið Perlunni er opið alla
daga kl. 10–18. Hljóðleiðsögn leiðir gesti í
gegnum fjölda leikmynda sem segja söguna
frá landnámi til 1550. ww.sagamuseum.is
Þjóðminjasafn Íslands | Nú stendur yfir
sýning á níu fornleifarannsóknum
Kristnihátíðarsjóðs í Rannsóknarýminu á 2.
hæð. Hér gefst tækifæri til að skoða úrval
gripa sem komið hafa úr jörð á síðustu ár-
um en mikil gróska hefur verið í fornleifa-
rannsóknum. Vafalaust munu niðurstöður
þeirra með tímanum breyta Íslandssög-
unni. Boðið er upp á fræðslu og þjónustu
fyrir safngesti. Þar eru sýningar auk safn-
búðar og kaffihúss. Opið alla daga kl. 10–17.
Bækur
Listasafn ASÍ | ASÍ–Fraktal–Grill Huginn
Þór Arason og Unnar Örn J. Auðarson
unnu sýninguna í sameiningu með safnið í
huga. Listamennirnir reyna að fletta ofan af