Morgunblaðið - 06.06.2006, Blaðsíða 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
POSEIDON ADVENTURE kl. 7 - 9 og 11 B.i. 16.ára.
THE DA VINCI CODE kl. 6 - 8 og 10 B.I. 14 ára
MI:3 kl. 5.30 - 8 og 10 B.I. 14 ára
SHAGGY DOG kl. 6 og 8
eeee
VJV, Topp5.is
VERÐUR HANN HUNDHEPPINN EÐA HVAÐ!
Leitið Sannleikans - Hverju Trúir Þú?
SAMBÍÓ AKUREYRI SAMBÍÓ KEFLAVÍK
POSEIDON ADVENTURE kl. 6 - 8 - 10
AMERICAN DREAMZ kl. 6 - 8
MI : 3 kl. 10 B.i. 14 ára
POSEIDON ADVENTURE kl. 8 - 10
X-MEN 3 kl. 8 B.i. 12 ára
DA VINCI CODE kl. 10:10 B.i. 14 ára
FRÁ LEIKSTJÓRA "TROY" OG "PERFECT STORM"
HALTU NIÐRI Í ÞÉR ANDANUM. MÖGNUÐ SPENNA FRÁ BYRJUN TIL ENDA.
eee
S.V. MBL.
eee
VJV - TOPP5.is
eee
D.Ö.J KVIKMYNDIR.COM
SAMBÍÓIN KRINGLUNNI ER EINA STAFRÆ
DIGITAL
Bíó
SAMBÍÓIN KRINGLUNNI
FRÁ LEIKSTJÓRA "TROY" OG "PERFECT STORM"
HALTU NIÐRI Í ÞÉR ANDANUM. MÖGNUÐ SPENNA FRÁ BYRJUN TIL ENDA.
eee
V.J.V.Topp5.is
eee
V.J.V.Topp5.is
K
vikmyndin Omen, í leikstjórn
John Moore, verður frumsýnd í
dag en myndin er endurgerð
einnar þekktustu hryllings-
myndar kvikmyndasögunnar,
The Omen í leikstjórn Richard Donner, frá
árinu 1976.
Omen sækir efnivið sinn í Opinberunarbók
Jóhannesar, fjallar um djöfulleg öfl og þar
sem tala djöfulsins 666 kemur talsvert við
sögu þótti tilvalið að frumsýna endurgerðina
hinn 6.6.’06.
Ekkert að því að endurgera
Aðalleikarar og leikstjóri Omen komu ný-
lega saman á hóteli í New York og var sú
sem þetta skrifar í hópi nokkurra blaða-
manna sem þau ræddu við um gerð mynd-
arinnar. Fyrstur sest hjá okkur Liev
Schreiber sem leikur Robert Thorn, föður
drengsins Damien sem reynist svo vera djöf-
ullinn holdi klæddur. Blaðamaður Times byrj-
ar á því að spyrja Schreiber hreint út hvað
honum finnist um þá skoðun margra að
Hollywood sé alltof upptekið af því að end-
urgera klassískar myndir.
„Jah, mesta hættan við endurgerðir er auð-
vitað samanburður. Ef maður óttast hann
ekki þá verður að hafa í huga að í hlut eiga
góðar sögur með epíska byggingu. Ég held að
góðar sögur hafi tilhneigingu til að verða
sagðar aftur og aftur og ég er þakklátur fyrir
endurgerðir. Ég er hrifinn af leikritum
Shakespeare, til dæmis, en ég missti af fyrstu
uppsetningunni á Hamlet og er mjög feginn
að leikritið var sett upp aftur,“ segir Schreib-
er og uppsker hlátur viðstaddra. Hann er svo
spurður hvers vegna hann hafi tekið þetta
hlutverk að sér:
„Ég er auðvitað atvinnuleikari og ég vinn
við að taka að mér hlutverk. Og eftir að hafa
talað við John [Moore] leist mér vel á hug-
myndir hans. Ég er líka hrifinn af sögum þar
sem fjallað er um efni sem á rætur í menn-
ingu, þjóðsögum og trúarbrögðum. Mér finn-
ast trú og trúarbrögð sérstaklega áhugaverð
viðfangsefni. Persónuleg trú fólks – hvort fólk
trúir og hvað það er tilbúið til að gera í nafni
trúarinnar – er mikið tabú og efni í áhugavert
drama.“
Vill vinna fyrir UNICEF,
skrifa og leika
Schreiber kveður og Mia Farrow sest í
hans stað. Hún segir mjög skemmtilega frá
og þetta korter sem hún situr með okkur tal-
ar hún út í eitt og minnst um sjálfa myndina.
Hún segir blaðamanni Times (miðaldra manni
sem étur úr lófa hennar) sögur af því þegar
hún var að þvælast um Indland með Bítl-
unum ásamt Prudence systur sinni og þeir
sömdu um hana lagið Dear Prudence.
Hún talar talsvert um starf sitt með UNI-
CEF sem á hug hennar allan um þessar
mundir. Hún er á leið til Darfur í annað sinn
nú í sumar; „Eftir að hafa komið þangað finn-
ur maður fyrir gríðarlegri ábyrgðartilfinn-
ingu. Mig langar mest af öllu núna til að
koma sögum þessa fólks til skila.“
Farrow segist standa á ákveðnum tímamót-
um. Fjögur af þeim fimm börnum hennar
sem enn búa heima verða 18 ára á þessu ári
og fara því að heiman til háskólanáms í haust.
Þá verður bara einn unglingur eftir á heim-
ilinu og segist hún hafa margar hugmyndir
og getað talað endalaust um allt sem hana
langar til að gera. Auk starfa sinna fyrir
UNICEF, langar hana til að skrifa, leika
meira og svo ótal margt fleira, segir hún.
Barnið hennar Rosemary
Í kvikmyndinni Omen leikur Farrow frú
Baylock, barnfóstru Damien. Efni Omen er
nátengt efni myndarinnar sem gerði Farrow
að stjörnu árið 1968, Rosemary’s Baby í leik-
stjórn Roman Polanski.
„Rosemary’s Baby er það besta sem kom
fyrir mig á ferli mínum. Alla leikara dreymir
um að leika í einni mynd sem lifir mann ef
svo má segja. Að fá að taka þátt í mynd sem
stenst tímans tönn og er dáð af mörgum kyn-
slóðum. Hitt er að þessi mynd var besta
menntun sem ég hefði getað fengið. Þetta var
„lengsta“ mynd sem ég hef leikið í – hún var
sjö eða átta mánuði í tökum – og ég lærði
gríðarlega mikið. Roman Polanski er algjör
meistari og allir sem unnu við þessa mynd
voru í fararbroddi á sínu sviði á þeim tíma.
Svo slær myndin algjörlega í gegn – nokkuð
sem er aldrei hægt að segja fyrir um með
nokkra mynd – og þar af leiðandi komst ég í
góða stöðu. Ég hef því yfirleitt getað gert það
sem ég hef viljað. Hef getað tekið mér frí,
jafnvel árum saman, og komið svo aftur.“
Hún segist hafa haft mjög gaman af því að
leika í Omen. Henni fannst „æðislegt að vinna
í Prag“ þar sem myndin var tekin og talar vel
um leikstjórann Moore sem hún segir að sé
„sveigjanlegur og skapandi.“
Fékk hrikalegar martraðir
fyrsta mánuðinn
Farrow kveður og Julia Stiles sest í hennar
stað. Stiles leikur Katherine Thorn, móður
Damien. Einn blaðamannanna hafði heyrt að
Stiles væri hjátrúarfull og spurði hana hvort
það hefði skipt hana máli við gerð mynd-
arinnar.
„Með því að leika í svona mynd þá hugsar
maður auðvitað; er ég að storka örlögunum?
Já, ég hugsaði talsvert um þetta og þrátt fyr-
ir hvað ég var heilluð af persónunni og hrifin
af upprunalegu myndinni, þá var ég hikandi
og velti því fyrir mér hversu mikið af rullunni
ég myndi taka með mér heim. En ég komst
yfir þetta og hugsaði sem svo að þessar
vangaveltur væru til marks um hversu öflug
sagan er. Og satt að segja fékk ég hrikalegar
martraðir fyrsta mánuðinn sem við vorum í
tökum. En ég held að þessar pælingar hafi
ekki endilega snúist um hjátrú, heldur um
það hvort ég vildi hafa þessa hluti í brenni-
depli í mínu lífi á þessum tíma.“
Hún er því næst spurð eftir hverju hún fari
almennt þegar hún velji hlutverk:
„Ég hugsa fyrst og fremst um að vinna
með góðu fagfólki og líka um að leika hlut-
verk sem eru ólík innbyrðis. Það var mjög
mikið atriði fyrir mig að færa mig frá ung-
lingamyndum. Þegar ég var táningur lék ég í
slatta af myndum sem að mínu mati voru
misjafnar, en síðan tók ég meðvitaða ákvörð-
un um að taka að mér fágaðri hlutverk og
leika í fágaðri myndum. En eitt það skemmti-
legasta við þennan bransa er fjölbreytnin og
líka óvissan, maður veit aldrei hvað er næst á
dagskrá.“
Hver vill að Nonni litli leiki djöfulinn?
Stiles kveður og leikstjórinn John Moore
sest í hennar stað. Hann er strax spurður að
því hvers vegna ráðist hafi verið í að end-
urgera myndina og það stendur ekki á
svarinu. „Þetta er helvíti góð saga,“ svarar
hann hressilega. „Fyrir mér var þetta eins og
þegar maður heyrir góða sögu eða brandara á
barnum og getur ekki beðið eftir því að segja
hana sjálfur. Mér fannst sagan það góð og
hún hræddi mig það mikið að ég varð alveg
heillaður. Svo hef ég líka beðið óþreyjufullur
eftir tækifæri – hversu barnslega sem það
kann að hljóma – til að tjá mig um þá stað-
reynd að við erum sokkin í mjög djúpan skít
og ég held að ástandið sé ekkert að batna.“
Moore segist sammála þeirri hugmynd að
uppgangur hryllingsmynda að undanförnu
endurspegli ákveðinn ótta í samfélaginu.
„Maður fer á hryllingsmynd og getur þá
tekist á við óttann sem maður finnur fyrir í
daglegu lífi sínu í tvo tíma, í vernduðu um-
hverfi. Þetta er næstum því eins og líkams-
rækt, fólk fær kannski smá útrás.“
Þá er hann spurður að því hvort margir
drengir hafi komið til greina í hlutverk Dam-
ien? „Nei, ekki svo margir. Ég átti reyndar
von á því að það yrði erfitt að fá foreldra til
að senda börnin sín í prufu fyrir þetta hlut-
verk. Í alvöru talað, hver vill að Nonni litli
leiki djöfulinn sjálfan? En við fengum slatta
af fólki og við völdum Seamus [Davey-
Fitzpatrick] næstum því strax. En þetta var
enginn fjöldi sem mætti í prufur og ég held
að eðli hlutverksins hafi spilað þar inn í.“
„Helvíti góð saga“
Vince Valitutti
Ekki bara lítill saklaus drengur með hundinn sinn: Seamus Davey-Fitzpatrick í hlutverki sínu sem andkristur.
Eftir Birnu Önnu Björnsdóttur í New York
bab@mbl.is