Morgunblaðið - 15.07.2006, Side 17

Morgunblaðið - 15.07.2006, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2006 17 ERLENT A llt líf hér er gegnsýrt af samskiptum þjóð- arbrotanna sem hér búa, allur dagurinn fer í að tala um þau,“ segir Kolfinna Baldvinsdóttir, sem býr og starfar í Pristina, höfuðstað Kosovo- héraðs. Hún er þar á vegum sænskr- ar stofnunar og vinnur að því að mennta fólk, meðal annars í stjórnun og rekstri. Kosovo er undir stjórn Sameinuðu þjóðanna en er enn tæknilega hluti af Serbíu. Nú standa yfir viðræður um framtíð héraðsins en Kosovo-Albanar sem eru um 90% af íbúum héraðsins, vilja að héraðið fái sjálfstæði. Serbar búa á afviknum svæðum í héraðinu þangað sem þeir hörfuðu eftir að Kosovo-stríðinu lauk 1999. Kolfinna segir Serbana alls ekki sátta við hugmyndina um sjálfstæði, en Svartfjallaland fékk sjálfstæði frá Serbíu á dögunum. „Það er búið að vera í deiglunni að Kosovo fái sjálf- stæði jafnvel í lok ársins. Því nær sem dregur þeirri stundu virðast Serbarnir verða ósáttari, þeir vilja að Kosovo verði áfram serbneskt svæði. Það er því að hitna í kolunum hér.“ Hún segir fólk vera farið að taka lögin í sínar eigin hendur, til dæmis hafi nokkrir Serbar frá bænum Mitrovice, sem er í um hálftíma akst- ursfjarlægð frá Pristina, tekið sig til og keypt þjónustu næstum 400 mála- liða. Það geti ekki boðað gott. Kolfinna segir að Serbarnir í Kos- ovo búi að mörgu leyti í öðrum heimi en Albanarnir. Hún nefnir sem dæmi áðurnefndan bæ Mitrovice. Lítil á rennur í gegnum hann og skiptir hon- um í tvo hluta, serbneskan og alb- anskan. Engin samskipti eru þar á milli þótt fólk búi í sama bænum. „Það er brú yfir ána en það fer eng- inn yfir hana og fólki er ráðlagt að gera það ekki,“ segir Kolfinna og bætir við að hún eigi þó vini og kunn- ingja úr báðum hópum. Komst að því að kærastinn væri Serbi Sem dæmi um spennuna á milli hópanna nefnir hún vinkonu sína, Kosovo-Albana, sem hafði verið með manni í þrjú ár. Hann hafði allan tím- ann sagst vera frá Svartfjallalandi en nýlega komst hún að því að hann væri Serbi og þá gekk hún út. Nú sé hún óhuggandi auk þess sem hún þori ekki að segja fjölskyldu sinni frá því að maðurinn sem hún var með hafi verið Serbi. „Þjóðernið virðist vera ástinni yfirsterkara. Sem Ís- lendingur sem hefur aldrei átt í deil- um við neina þjóð, er erfitt að reyna að skilja þetta, hatrið er svo mikið eftir allt sem hefur gengið á. Þessi vinkona mín missti bróður og föðurbróður í stríðinu, eignir þeirra voru gerðar upptækar og eftir þriggja mánaða dvöl í flótta- mannabúðum í Makedóníu var þeim neitað um ferðaleyfi og þurftu því að snúa aftur í brunarústirnar hér í Pristina. Þetta gerðist fyrir einungis sex árum svo ef ég set mig í hennar spor get ég vel skilið reiðina og skömmina eftir að hafa uppgötvað uppruna kærastans.“ Óttast okurlánara Kolfinna bendir á að innviðir sam- félagsins í Kosovo séu í lamasessi, þarna verði gjarnan vatns- og raf- magnslaust, víðast hvar séu vegir ekki malbikaðir og skólarnir og sjúkrahúsin ekki vel búin. Þá bendir hún á að Sameinuðu þjóðirnar séu að draga saman seglin á svæðinu og að efnahagsástandið eigi eftir að versna mjög við það. Um 90% íbúa Pristina vinni í eða í kringum erlendar stofn- anir. Hún segir marga kunningja sína hafa tekið lán fyrir húsunum sínum, bílnum sínum eða veitingastaðnum sem þeir reki. Hins vegar sé ekki hægt að fá lán í banka nema maður hafi föst laun og bankareikning og því hafi flestir leitað til okurlánara. Þeir séu engin lömb að leika við og ef fólk sjái ekki fram á að geta borgað sé hætta á að það borgi með lífi sínu. Margir hafi komið að máli við hana um hvort hún geti hjálpað þeim að komast úr landi. Sjálf er Kolfinna ánægð í Kosovo þar sem hún býr ásamt manni og börnum. „Mér finnst mjög gaman að vera hérna, fólkið er svo gott og ég á marga góða vini. Ég ferðast líka mik- ið um, þetta er svo lítið land og því stutt í allar áttir,“ segir hún að lok- um. Hitnar í kolunum í Kosovo Albanir í Kosovo vilja sjálfstæði héraðsins sem gæti verið í sjónmáli en serbneski minnihlutinn er því afar andsnúinn. Bryndís Sveinsdóttir ræddi við Kolfinnu Baldvinsdóttur sem býr og starfar í Kosovo. bryndis@mbl.is Kolfinna ásamt ungum vini sínum í Kosovo. Hún segir innviði samfélagsins í lamasessi, oft verði vatns- og rafmagnslaust og víðast hvar séu malavegir. MAÐUR er manns gaman segir máltækið og því stund- um sagt að mikil einvera sé óæskileg fyrir geðheilsuna. Ef marka má nýja rannsókn danskra vísindamanna getur einveran haft skaðlegri áhrif, með því að auka líkurnar á hjartasjúkdómum. Þannig bendir rannsókn vísindamannanna, sem starfa við Aarhus Sygehus- háskólann í Danmörku, á að einhleypar konur, sem eru komnar yfir sextugt, og karl- ar, sem eru eldri en fimm- tugir og búa einir, séu mun líklegri til að fá hjartakveisur og hjartaáföll en jafnaldrar þeirra í fullri sambúð, að því er kemur fram á fréttavef breska útvarpsins, BBC. Alls könnuðu rannsakend- urnir heilsufarsgögn yfir 138.000 manns sem búsettir eru í Árhúsum. Af þessum fjölda voru 646 einstaklingar greindir með alvarlegar hjartakveisur eða fengu hjartaáfall á tímabilinu 2000 til 2002. Þegar bak- grunnur þeirra var kannaður kom í ljós að aldur og búsetu- hagir voru líklegustu þætt- irnir til að veita vísbendingu um hverjir væru líklegir til að þróa með sér slíka sjúk- dóma. Sérfræðingar segja hins vegar að reykingar og óhollt mataræði séu algengari í lífs- tíl einhleyps fólks og að það skýri m.a. ofangreinda fylgni. Einveran er óholl B&L verslun og varahlutir Brú Shell Fossháls

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.