Morgunblaðið - 15.07.2006, Page 18

Morgunblaðið - 15.07.2006, Page 18
Blönduós | Þessir krakkar sem voru á leið í hesthúsin hjá pabba sínum í blíðunni voru ekki í neinum vafa um að best væri að búa á Blönduósi. Bæjarhátíðin sem nú er hafin og nefnist Húnavaka hefur upp á margt að bjóða. Þeir sem áhuga hafa á menningu, listum og hún- vetnsku mannlífi hafa úr mörgu að velja þessa helgina. Þessi blessuð börn litu björt- um augum á tækifæri helg- arinnar við botn Húnaflóa. Talið frá vinstri: Harpa Hrönn Hilm- arsdótir, Aron Orri Tryggvason með Týru í fangi og hans bróðir Kristófer Már. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Hlakka til Húnavöku um helgina Á leið í hesthús Suðurnes | Akureyri |Árborg Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 569-1100, Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Herinn fer, hvað svo? | Margir Suð- urnesjamenn hafa misst atvinnuna eftir að hafa unnið í áratugi hjá Varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli, þó nokkuð hafi ræst úr. Það leikur mörgum forvitni á að vita hvernig viðskilnaður Bandaríkjamanna verður á vellinum, lítið er um svör hvað verður um framtíð mannvirkja, verður stærsta draugabyggð landsins á varn- arsvæðinu? Það er von allra að staðurinn eigi eftir að iða af lífi.    Gaman á næstunni | Um þessar mundir er unnið að undirbúningi bæjarhátíða í flestum bæjarfélögum á Suðurnesjum. Hátíðirnar eru misstórar og hefjast í Vog- um 12. ágúst með fjölskylduhátíð. 18. til 20. ágúst halda Garðmenn Sólseturshátíð á Garðsskaga. Sandgerðisdagar innan seilingar, verða haldnir 26. til 28. ágúst, síðasta og stærsta hátíðin er Ljósanótt í Reykjanesbæ sem verður 2. til 4. sept- ember. Svo lýkur formlegum útihátíðum um miðjan september með hinum vinsælu Grindavíkurréttum þar sem hobbíbændur og aðrir njóta stemmingar sem ávallt er.    Bættar samgöngur | Í öllum bæj- arfélögum á Suðurnesjum eru miklar gatnaframkvæmdir um þessar mundir til að svara eftirspurn eftir byggingalóðum. Vegagerðin er með mörg verkefni í gangi á Reykjanesskaga. Má nefna tvöföldun á Reykjanesbraut, vinnu við Suður- strandaveg við Grindavík, malbikun á vegi útá Reykjanes frá Stað og lagningu Ósa- botnavegar sem kemur til með að opna skemmtilega hringleið með sjónum frá Grindavík til Sandgerðis, Garðs og Reykjanesbæjar. Það hefur lengi verið barist fyrir að fá veg fyrir Ósabotna en þar sem herinn var með mikilvæga stöð á svæðinu fékkst ekki leyfi. Margur hefur verið handtekinn af herlögreglunni fyrir að ganga leiðina. En í október geta Suð- urnesjamenn og aðrir ekið hana án þess að verða stoppaðir af vopnuðum dátum. Á Ósabotnaleið eru margir merkir staðir frá fyrri tíð, s.s. Þórshöfn, Gálgar, og versl- unarstaðurinn Básendar. Úr bæjarlífinu SUÐURNES EFTIR REYNI SVEINSSON FRÉTTARITARA Snæfell | Íshestar hafa undanfarin ár staðið fyrir hestaferðum á Snæfells- svæðið, þar sem meðal annars er komið við á áhrifasvæði Kárahnjúkavirkjunar, Eyjabökkum og Vatnajökli. Í sumar verða farnar fjórar ferðir um þetta svæði og ferðalangarnir úr fyrstu ferð- inni komu til byggða um seinustu helgi eftir viku ferðalag. Þetta sumar nota margir til að fara um áhrifasvæði Kárahnjúkavirkjunar. Boðið er upp á skipulagðar gönguferðir um svæðið sem bráðlega hverfur undir vatn en einnig er möguleiki að fara og fylgjast með framkvæmdum við virkj- unina sjálfa úr fjarlægð. Koma innan úr óbyggðum Á laugardag varopnaður nýr sýn-ingarskáli við Samgönguminjasafnið á Ystafelli. Halldór Blöndal orti við afhendingu: Þegar gamall bognar bíll í bljúgri elli er alltaf pláss á Ystafelli. Stefán Friðbjarnarson blaðamaður veltir upp þeirri spurningu hvort verið sé að „varðveita“ Kjósarskarðsveg í holu- brettaformi sem minjar um veröld sem var í sam- gönguháttum þjóð- arinnar. Tjaldar milljón holna her; hér sprakk margur barði. Landsins versta akbraut er enn í Kjósarskarði! Guðmundur G. Hall- dórsson frétti að Bjart- marz-fjölskyldan væri rakið íhaldsfólk og orti um framboð Jónínu Bjart- marz til varaformanns: Jónínu vegur vænkast má vaxa nú liljur í hennar garði sem höfuðbólinu hrökklaðist frá á hjáleiguna í Vonarskarði. Afhending á Ystafelli pebl@mbl.is ♦♦♦ Fjarðabyggð | Alls hafa tuttugu manns sótt um að verða næsti bæjarstjóri Fjarða- byggðar. Starfið var auglýst laus til um- sóknar í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu 25. júní sl. en IMG Mannafli var falið að hafa umsjón með ráðningarferlinu og mati umsókna. Umsækjendur eru: Bergur Elías Ágústsson, fv. bæjarstjóri Vestmannaeyja, Birgir Jóhannesson, hag- verkfræðingur, Björn Bergmann Þor- valdsson, framkvæmdastjóri stjórnsýslu- sviðs flotaflugstöðvar Varnarliðsins, Björn Elísson, ráðgjafi hjá Talningu ehf., Björn S. Lárusson, framkvæmdastjóri sam- félagssamskipta hjá Bechtel, Bryndís Bjarnarson, fv. bæjarfulltrúi í Mosfellsbæ, Einar Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri Svefns og heilsu ehf., Guðmundur Helgi Sigfússon, forstöðumaður Umhverfismála- sviðs Fjarðabyggðar, Guðmundur Rúnar Svavarsson, framkvæmdastjóri Kerhóls hf., Gunnar Páll Viðarsson, tæknifræðing- ur hjá Suðurverki hf., Helga Jónsdóttir, borgarritari og sviðsstjóri Stjórnsýslu- og starfsmannasviðs Rvk.borgar, Jón Hrói Finnsson, ráðgjafi hjá ParX, Kristófer Ragnarsson, viðskiptafræðingur, Ólafur Jakobsson, lektor HÍ, Ólöf Inga Sigur- bjartsdóttir, héraðsráðunautur hjá Bú- garði, Páll Björgvin Guðmundsson, fjár- málastjóri Fjarðabyggðar, Róbert Trausti Árnason, rekstrarráðgjafi. Sigríður Stef- ánsdóttir, forstöðukona félagsþjónustu- sviðs Fjarðabyggðar, Snorri Styrkársson, markaðs- og verkefnastjóri hjá Element hf. og Veturliði Þór Stefánsson, sendiráðs- ritari 20 sóttu um bæjar- stjórastarfið Skagafjörður | Veðrið hefur ekki leikið við landsmenn alla í sumar. Óhagstætt tíðarf- ar hefur verið til heyskapar síðustu daga í Skagafirðinum. Úrkoma hefur verið nánast daglega og því hefur mun minna hey náðst í rúllur en ella. Undantekning var síðasti mánudagur, þá var þurrkur sem hélst fram á miðjan þriðjudag og náðist heilmikið af heyi. Þá var víða mikið flatt og margir bændur fengu rigningu í hálfþurrt hey. Í miðhér- aðinu eru tún farin að spretta úr sér en í út- sveitunum var spretta seinni til en þar mun þó heyskapur eflaust hefjast um leið og veðrátta breytist til batnaðar. Veður hamlar heyskapnum FASTEIGNA MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/ Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali. Hér er um að ræða mjög glæsilegt og vandað 46,1 fm. sumarhús auk svefnlofts á 4.918 fm. skógi vaxinni og fallegri lóð. Húsið er byggt árið 1996 og er innréttað á afar vandað- an máta. Stórar verandir umlykja húsið. Hitaveita er í húsinu. Útsýni er óviðjafnanlegt yfir suður- landsundirlendið með óheftu útsýni m.a. til Mosfells, Vörðufells, Eyja- fjallajökuls, Mýrdalsjökuls og Heklu. Verð 15,7 millj. Sumarhús - Efstadalsskógi - Opið hús Eigendur verða á staðnum laugardag og sunnudag milli kl.13.00 og 16.00

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.