Morgunblaðið - 15.07.2006, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2006 19
MINNSTAÐUR
q q q q q q q q q q q q q q q q
q q q q q q q q q q q q q q q q
q q q q q q q q q q q q q q q q
q q q q q q q q q q q q q q q q
Spennandi sumar framundan hjá Landsvirkjun
Sumarið er okkar tími!
Tilvalið að líta inn
Nánari upplýsingar um opnunartíma á www.landsvirkjun.is
og í síma 515 9000.
Sýningarnar eru opnar alla eftirmiðdaga í sumar.
M
IX
A
•
fí
t
•
6
0
3
2
9
Kynnist Kárahnjúkavirkjun!
Upplýsingar um Kárahnjúkaframkvæmdirnar
ásamt ferðamennsku og útivist norðan
Vatnajökuls. Góður viðkomustaður áður en
haldið er upp á Fljótsdalsheiði.
Végarður í Fljótsdal
List og saga
„Andlit Þjórsdæla – mannlíf fyrr og nú“.
Málverkasýning Hlífars Snæbjörnssonar.
Athyglisverð sölusýning á landslags-
málverkum.
Sultartangastöð ofan Þjórsárdals
Með krafta í kögglum!
Sýning á myndum Halldórs Péturssonar
listmálara við Grettissögu.
Kynnið ykkur orkumannvirki sem kemur
á óvart.
Blöndustöð, Húnaþingi
Orka í iðrum jarðar!
Heimsækið gestastofuna í Kröflu, sjáið
myndir frá Kröflueldum.
Kynnist jarðvarma og orkuvinnslu.
Kröflustöð í Mývatnssveit
„Hvað er með Ásum?“
Ævintýraferð í goðheima fyrir alla fjöl-
skylduna. Goðastyttur Hallsteins
Sigurðssonar við texta Árna Björnssonar,
þjóðháttafræðings.
Laxárstöðvar í Aðaldal
Ísland í augum innflytjenda
Hvaða sýn hafa innflytjendur á land og
þjóð? Listsýning nokkurra innflytjenda.
Skemmtidagskrá margar helgar í sumar.
Ljósafossstöð við Sog
SUÐURNES
Reykjanes | Forvarnardeild Sjóvár og
bílaleigur víðs vegar um landið hafa efnt
til átaks sem beint er að erlendum ferða-
mönnum sem taka sér bílaleigubíl við
komuna til landsins. Að sögn Einars Guð-
mundssonar, forvarnarfulltrúa Sjóvár,
þurfti að beita óhefðbundnum aðferðum
við kynningu á átakinu, enda mun erf-
iðara að ná til erlendra ökumanna en ís-
lenskra. Því hafi verið farin sú leið að
hengja spjöld á stýri bílaleigubifreiða,
þar sem erlendir ferðamenn eru upp-
lýstir um malarvegi, hraðakstur og nauð-
syn bílbeltanotkunar. Þá hefur illa út-
leiknum fólksbíl verið komið fyrir við
Reykjanesbraut í nágrenni Flug-
stöðvar Leifs Eiríkssonar og honum
ætlað að vera erlendum ferðamönn-
um víti til varnaðar. Einar segir fulla
ástæðu til að efna til átaks sem þessa
enda lendi mun fleiri útlendingar
hlutfallslega í banaslysum en Íslend-
ingar. Með átakinu segir Einar Sjóvá
vonast til að slysum og óhöppum er-
lendra ferðamanna fækki og þeir skili
sér heilir heim. Víti til varnaðar Erlendir ökumenn beðnir um að aka varlega á misgóðum íslenskum vegum
Erlendir öku-
menn í brennidepli
Í grein sem birtist í Morgunblaðinu í
gær gætti misskilnings milli blaða-
manns og viðmælanda hans, Hildar
Margrétardóttur, listakonu og íbúa í
Álafosskvos. Í greininni kom fram að
tengibraut sem leggja á meðfram
Álafosskvos lægi allt að 48 metrum
frá árfarveginum. Hið rétta er að
brautinni er ætlað að liggja innan 48
metra beltisins og því nær íbúð-
arbyggð en 48 metrum nemur. Hildur
vill einnig koma því á framfæri að
Umhverfisstofnun og Skipulags-
stofnun hafa reynst henni mjög vel og
veitt allar þær upplýsingar sem hún
óskaði eftir, og því sé ekki rétt að all-
ar stofnanir hafi brugðist illa við fyr-
irspurnum hennar. Beðist er velvirð-
ingar á mistökunum.
Leiðrétting
♦♦♦
Reykjanesbær | Miðland ehf., sem
haft hefur veg og vanda af undirbún-
ingi og skipulagningu íbúðahverfis
innan bæjarmarka Reykjanesbæjar,
hefur nú boðið lóðir á landinu til sölu.
Um er að ræða fyrsta áfanga fram-
kvæmdanna, en í honum stendur til
að selja 28 einbýlishúsalóðir auk þess
sem landeigendur hyggjast reisa
nokkurn fjölda lágreistra fjölbýlis-
húsa á svæðinu.
Það sem hvað mesta athygli hefur
vakið er aðferðin við sölu lóðanna.
Lóðirnar sem fyrirhugað er að byggja
á eru boðnar til sölu á uppboðsvefnum
www.midland.is. Þar getur fólk sem
skráir sig inn séð þær lóðir sem í boði
eru hverju sinni, fengið nánari upp-
lýsingar um þær og gert tilboð í þær.
Þannig svipar vefnum nokkuð til vin-
sælasta uppboðsvefs í heimi, Ebay-
.com. Að sögn Elíasar Georgssonar,
annars eigenda Miðlands ehf., er um
nýmæli á Íslandi að ræða og þó víðar
væri leitað. Elías segir ekki ólíklegt
að aðferðin verði notuð við sölu land-
areigna einkaaðila og jafnvel sveitar-
félaga í framtíðinni, enda sé aðferðin
mun hentugri og nútímalegri heldur
en núverandi fyrirkomulag.
Upphaflega var það land sem nú er
kallað Neðra-Nikel hluti af jörðinni
Vatnsnesi í Keflavík. Á stríðsárunum
tók íslenska ríkið landið eignarnámi
að kröfu varnarliðsins. 1942 reisti
bandaríski herinn herskálahverfi á
svæðinu og var það kennt við fallinn
hermann úr byggingardeild Banda-
ríkjahers, Julius R. Nikel. Á vestur-
hluta svæðisins var olíubirgðastöð
varnarliðsins um langt skeið og síðar
kom í ljós að mikið magn olíu hafði
lekið niður í jarðveginn þá áratugi
sem starfsemin var á svæðinu. Nikel-
svæðið var lengi vel talið sá landfræði-
legi fleygur sem skildi bæjarfélögin
Njarðvík og Keflavík að. Ellert Ei-
ríksson, fyrrverandi bæjarstjóri
Keflavíkur, var einn af þeim fyrstu til
að átta sig á mikilvægi svæðisins fyrir
framtíðaruppbyggingu Suðurnesja og
hóf hann að berjast fyrir því að landið
yrði afhent heimamönnum á nýjan
leik í þeirri mynd sem varnarliðið tók
við því.
Lóðir á Nikel-
svæðinu
til sölu
TENGLAR
..............................................
www.midland.is