Morgunblaðið - 15.07.2006, Síða 20
20 LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
Hafnarstræti 97, 600 Akureyri.
Sími 462 3505.
ÚTSALA - ÚTSALA
Opið 10-17
Nýtt Kortatímabil
AKUREYRI
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
„ÞETTA hefur gengið alveg óskap-
lega vel og allir eru ánægðir,“ segir
Haukur Vilhjálmsson, menningar-
fulltrúi Félags heyrnarlausra, en
alla þessa viku hefur staðið yfir á
Akureyri Menningarhátíð heyrn-
arlausra. Þátttakendur eru um 250
talsins, flestir Norðurlandabúar,
en einnig hefur fólk komið víða að
úr heiminum. Samhliða hátíðinni
hefur staðið yfir alþjóðleg Döff-
leiklistarhátíð á vegum Drauma-
smiðjunnar og ber hún yfirskrift-
ina Draumar 2006. „Við ákváðum
að keyra okkar hátíð samhliða
þessari, það er ekki oft sem við
fáum svona tækifæri, þar sem svo
margir heyrnarlausir eru saman
komnir á sama stað,“ segir Mar-
grét Pétursdóttir hjá Drauma-
smiðjunni.
Haukur segir að vel hafi tekist til
með menningarhátíðina, en slíkar
hátíðir eru haldnar á fjögurra ára
fresti, til skiptis á Norðurlönd-
unum og þá í því landi sem fer með
formennsku í félagskap heyrn-
arlausra á Norðurlöndum. Svíar
taka nú við formennskunni af Ís-
lendingum og verður næsta hátíð
því í Svíþjóð að fjórum árum liðn-
um.
Norðurlandabúar eru áberandi
en þó segir Haukur að fólk hafi
komið víða að til að taka þátt í há-
tíðinni, nefnir Bandaríkin, Holland,
Frakkland, Singapúr og Ástralíu
sem dæmi.
Dagskráin hefur verið mjög
blönduð að sögn Hauks, boðið upp
á skoðunarferðir af ýmsu tagi, farið
í Mývatnssveit í blíðskaparveðri og
eins var hvalaskoðunarferð út frá
Húsavík sem tókst einkar vel. „Við
sáum m.a. steypireyð, stærsta hval
heims, sem er mjög sjaldgæft og
fólk var að vonum afar ánægt með
vel heppnaða ferð,“ segir hann.
Kristinn Jón Björnsson, fram-
kvæmdastjóri Félags heyrn-
arlausra, segir einstaka upplifun að
fara í Mývatnssveit nú, leið-
sögumenn voru með í för og túlkar
sem túlkuðu yfir á táknmál fjög-
urra landa. „Ég hef aldrei áður far-
ið í svona ferð með túlk, þetta var
allt annars konar upplifun fyrir
mig en áður, þegar ég hef ferðast
einn. Við fengum mikla fræðslu um
landið, þetta var ógleymanleg
ferð,“ segir Kristinn.
Listasmiðjur voru í gangi alla
daga, unnið með ýmis efni, ull og
gler og einnig útbúin víkingakeðja.
Þá voru haldnir fyrirlestrar um
margvísleg málefni er heyrn-
arlausa varða, „við höfum rætt um
táknmál og menningu um rann-
sóknir á myndlíkingum í táknum
og hvernig þau birtast,“ segir
Haukur um fyrirlestrana sem hafa
verið vel sóttir og fólk áhugasamt.
„Það eru alltaf miklar umræður um
efnið að loknum hverjum fyr-
irlestri,“ segir hann. Þannig urðu
miklar umræður um túlkun og
ábyrgð túlka, um heyrnarlausa í al-
menna skólakerfinu sem hafa með
sér túlk og hvert sé hlutverk hans
og ábyrgð miðað við kennarann.
„Þetta var mjög skemmtileg um-
ræða,“ segir Haukur.
Á kvöldin hafa heyrnarlausir svo
komið sér upp eigin kaffihúsi á
Græna hattinum og þar hefur verið
rappað fram á nótt. Listsýningar
eru einnig í boði, þar eru verk eftir
heyrnarlausa. Börn eru líka með í
för sumra þátttakenda og þau hafa
sótt útilífsskóla á Hömrum.
„Það eru allir rosalega ánægðir,
þetta hefur verið afar skemmtileg
hátíð og eftirminnileg og allt sam-
starf við Akureyrarbæ hefur verið
með miklum ágætum,“ segir Hauk-
ur.
Menningarhátíð heyrnarlausra hefur tekist einkar vel
Skemmtileg og eftirminnileg hátíð
Morgunblaðið/Ragnhildur Aðalsteinsdóttir
Píkusögur Það var troðfullt úr úr dyrum þegar franskur leikhópur
sýndi Píkusögur á leiklistarhátíðinni Draumum.
Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur
maggath@mbl.is
SUMARTÓNLEIKAR við Mývatn fagna nú
20. starfsári sínu með tónleikum
í kvöld, laugarskvöldið 15. júlí, kl. 21 í
Reykjahlíðarkirkju.
Þar munu tvær sópransöngkonur sem
báðar rekja ættir sínar í Þingeyjarsýslu,
þær Elma Atladóttir og Bryndís Jóns-
dóttir, flytja sönglög eftir ýmis þingeysk
tónskáld og einnig sönglög við ljóð eftir
tvær þekktar skáldkonur, þær Jakobínu
Sigurðardóttur og Huldu.
Meðal tónskálda eru bræðurnir Páll H.
Jónsson og Áskell Jónsson, Örn Frið-
riksson, Árni Björnsson og Elísabet Jóns-
dóttir frá Grenjaðarstað. Píanóleikari er
Þóra Fríða Sæmundsdóttir.
Moregunblaðið/Margrét Þóra
Söngfuglar Þóra Fríða Sæmundsdóttir,
Elma Atladóttir og Bryndís Jónsdóttir
koma fram á afmælistónleikum í Reykja-
hlíðakirkju í kvöld.
Sumartón-
leikar í 20 ár
Snorri opnar| Snorri Ásmundsson opnar
sýningu hjá Jónasi Viðar galleríi að Kaup-
vangstræti 12 á Akureyri í dag, laugardag-
inn 15. júlí klukkan 16. Snorri hefur komið
víða við í listsköpun sinni og á að baki sér-
kennilegan feril sem listamaður. Snorri
hefur verið mjög umdeildur og hafa gjörn-
ingar hans oftar en ekki snert viðkvæma
strengi hjá samborgurum. Sýningin stend-
ur yfir til 30. júlí næstkomandi.
„BOLTINN byrjaði að rúlla eftir að við próf-
uðum eina barnasýningu árið 2000,“ segir
Margrét Pétursdóttir hjá Draumasmiðjunni,
sem stendur fyrir alþjóðlegu Döff-leiklistarhá-
tíðinni Draumum 2006. Þetta er leiklistarhátíð
leikhúsa sem sérhæfa sig í leikhús fyrir heyrn-
arlausa.
Hátíðin hófst á sýningu Draumasmiðjunnar
á leikritinu Viðtalinu sem hlaut góðar við-
tökur.
Upphafið má rekja til þess að hún fór ásamt
ungu barni sínu á sýningu á Galdrakarlinum í
Oz þar sem lokaatriðið var einnig flutt á tákn-
máli. „Ég fékk einhverja hugljómun, vildi
prófa þetta og hélt ég hefði fundið upp hjólið;
leikhús fyrir heyrnarlausa. Komst svo að því
þegar ég kynnti hugmyndina að svo var alls
ekki, það voru til í útlöndum 100 ára gömul
leikfélög heyrnarlausra!“ segir Margrét, en
hún hefur lagt stund á nám í táknmáli und-
anfarin tvö ár. „Ég hef lært alveg geysilega
mikið hér á Akureyri nú í vikunni,“ segir hún.
Mikil gróska er í hinum svonefndu Döff-
leikhúsum um þessar mundir, segir hún og vís-
ar líka til þess að leikhús séu æ meira að fikra
sig út úr hinum hefðbundna ramma, leggja
áherslu á líkamlega tjáningu og nefnir hún
uppsetningu á Rómeó og Júlíu sem dæmi þar
um.
Aðsókn á sýningar hefur verið feikigóð,
troðfullt á þær allar og menn haft á orði að
húsnæðið hefði þurft að vera stærra, en sýnt
er í Rýminu, nýju leikhús Leikfélags Akureyr-
ar. Svíar hafa boðið upp á sýningu sem er
dansleikhús, Frakkar tóku hinar frægu Píku-
sögur fyrir á frönsku táknmáli, eins konar
uppistand var í boði frá Singapúr svo dæmi
séu tekin af því sem í boði var. Sú sýning verð-
ur í Tjarnarbíói í Reykjavík annað kvöld kl.
20.30.
Hátíðinni lýkur svo með fjölskyldusýningu í
dag kl. 15, en á ferðinni er bandarískur leik-
hópur. „Þau nota ekkert tungumál í sýning-
unni, þannig að þessi sýning hentar jafnt heyr-
andi sem heyrnarlausum,“ segir Margrét.
Leikhóparnir munu svo verða með atriði á
lokahófi Menningarhátíðarinnar í Íþróttahöll-
inni í kvöld.
Mikil gróska í Döff-leikhúsunum
Stokkseyri | Á hverju ári stíga at-
hafnamenn og -konur á Stokkseyri
eitt skref fram á við til móts við nýja
tíma. Það má vel komast svo að orði
að framkvæmdir séu látnar fylgja
nýrri hugsun. Hin nýja hugsun
byggist á því að breyta gömlu og
grónu sjávarþorpi þar sem aðal-
áherslan var á fiskvinnslu í það að
takast á við ný viðgangsefni á sviði
lista, menningar og ferðaþjónustu.
„Það er komin samfélagsleg
stemmning hér á Stokkseyri fyrir
þeirri uppbyggingu sem hér er orðin
og þeirri nýbylgju sem komin er af
stað hérna,“ sagði Björn Ingi
Bjarnason, einn frumkvöðlanna í
þorpinu. Hann benti á söfnin í þorp-
inu, Veiðisafnið, Tónminjasafn Páls
Ísólfssonar og gallerí listmálarana
Elfars, Gussa, Valgerðar Þóru, Reg-
ínu og Sjafnar Har sem legðust á
eitt um að skapa aðdráttarafl og svo
líka Töfragarðinn sem hefði þegar
sannað gildi sitt. Svo bættust við
fleiri aðilar sem legðust á hinar
metnaðarfullu menningarárar á
Stokkseyri til að skapa staðnum enn
betri framtíð, Kajakferðirnar væru
alltaf vinsælar, Shellskálinn væri
með minigolf og vespuleigu og svo
væri eina garðyrkjustöðin í Árborg á
Stokkseyri með suðræna stemmn-
ingu.
Á nokkrum árum hefur frystihús-
ið í þorpinu orðið að menningarmið-
stöð eða Menningarverstöðinni
Hólmaröst þar sem miklir salir
verða menningarvinnslusalir svo
tengingunni við upprunann sé hald-
ið. Í þessum menningarvinnslusölum
hússins eru listmálarar að störfum
og með sýningar, glerlistakona
starfar í húsnæði þar sem fiskmót-
taka var áður. Draugasetrið og
Draugabarinn er þarna að finna og
orgelsmiður er einnig til húsa í ein-
um salanna. Þá er nú unnið að því að
koma fyrir nýjum þætti í starfsem-
inni í húsinu en það er álfa- og trölla-
setur með öllu því hugarflugi sem
það býður upp á. Á hlaðinu við hlið
Hólmarastar hefur veitingastaður-
inn Við fjöruborðið skotið rótum og
dregur að sér fjölda gesta með góð-
um mat þar sem aðaláherslan er á
humarinn og skemmtilega umgjörð.
Nú er frekari rótum skotið undir
starfsemina í kringum Hólmaröstina
með því að koma fyrir útisviði á
bryggjunni framundan húsinu þar
sem hljómsveitir geta troðið upp eða
hvaðeina sem fólki dettur í hug að
sýna. Þá hefur líka verið komið fyrir
mikilli dælu á bryggjunni sem notuð
verður til að mynda gosbrunn sem
þeytir vatni upp í 18 metra hæð.
Björn Ingi sagði að þessi gosbrunn-
ur gæti orðið farandbrunnur því
hægt væri að flytja dæluna og koma
henni fyrir annars staðar þar sem
menn væru með viðburði.
„Með þessu nýja sviði getum við
stillt upp tónleikum hvenær sem er,
leikþáttum nú eða haldið útifundi.
Þetta er góð viðbót við þá gerjun
sem er hérna í tónlistinni. Hljóm-
sveitin Nilfisk hefur vakið athygli og
það eru fleiri hljómsveitir á sama
róli og þeir sem vilja koma hingað og
spila. Það er alveg frábært að upp-
lifa þetta og fylgjast með þessari
gerjun hérna, hvernig allir takast á
við verkefnin af jákvæðni og standa
saman. Afraksturinn er sá að hér um
hlöðin fara þúsundir gesta á hverju
ári, ég held þeir nálgist 100 þúsund
sem koma hingað í heimsókn,“ sagði
Björn Ingi Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri og einn frumkvöðl-
anna á Stokkseyri.
Mikil samfélagsleg stemmning fyrir
menningartengdri uppbyggingu
Tugþúsundir
gesta á ári hverju
um bæjarhlöðin
Morgunblaðið / Sigurður Jónsson
Svið á eyrinni Bræðurnir Rúnar og Halldór Ásgeirssynir og Björn Ingi
Björnsson framan við nýja bryggjusviðið en þeir bræður unnu við uppsetn-
ingu nýja sviðsins á Stokkseyrarbryggju ásamt Jóni bróður sínum.
Ekkert kallar á endurskoðun| Bæjarráð
Akureyrar telur að engar þær upplýsingar
hafi komið fram sem kalli á endurskoðun á
áætlun varðandi lagningu tengibrauta í
bænum. Ráðið minnti í bókun sinni á sam-
þykkt bæjarstjórnar frá því í apríl síðast-
liðnum þar sem gert er ráð fyrir að Miðhús-
abraut verði lögð að Súluvegi á þessu ári og
í samkomulagi núverandi meirihluta kemur
fram að þörfin fyrir lagningu Dalsbrautar
verði metin þegar Miðhúsabraut hefur ver-
ið í notkun í tvö ár. Þannig sé komið til móts
við mismunandi sjónarmið íbúa og fag-
manna í þessu máli.