Morgunblaðið - 15.07.2006, Side 21
M
eð tilkomu brúar yf-
ir Eyrarsund fyrir
sex árum varð til
eitt atvinnusvæði
sem nær yfir
Kaupmannahöfn og Malmö í Sví-
þjóð. Malmö er þriðja stærsta
borg Svíþjóðar og í hana hefur
hlaupið enn meiri vöxtur eftir að
hún varð hluti af Eyrarsundssvæð-
inu. Eyrarsundsbrúin er flott
mannvirki sem gaman er að skoða
og keyra yfir. Nokkrir tugir þús-
unda hafa einnig fengið að hlaupa
yfir brúna í árlegu hálfmaraþoni
sem haldið var í sjötta og síðasta
skipti á 17. júní.
Þegar komið er yfir í Svíaríki er
upplagt að fá sér hádegismat í
bryggju- og strandhverfinu Västra
Hamnen í Malmö, t.d. á veitinga-
staðnum Salt & Brygga sem bygg-
ir á grundvallarreglunni um „slow
food“ – andstöðu skyndibita. Gott
ráð fyrir ferðapyngjuna er að fá
sér hádegismat á fínu veit-
ingastöðunum en velja ódýrari
veitingastaði fyrir kvöldmat.
Í Västra Hamnen stendur Turn-
ing Torso upp úr. Allt önnur upp-
lifun er að sjá þessa byggingu í
raunveruleikanum en á myndum.
Hún hefur hlotið mikla athygli
fyrir frumlegan arkitektúr San-
tiago Calatrava og er að verða ein-
kennismerki Malmö.
Höfuðborg Skánar er vinsæll
verslunarstaður, m.a. hjá Kaup-
mannahafnarbúum. Hagstæðara er
að versla í Svíþjóð en Danmörku
og það geta Íslendingar líka haft í
huga. Í Malmö hafa á síðustu ár-
um skotið upp kollinum margar
skemmtilegar tískuverslanir.
Nefna má tvær slíkar í gamla
bænum, þ.e. Lilla Svarta á Adel-
gatan og Issue á Stora Nygatan,
sem er orðin vinsæl verslunargata.
Hefðbundnu búðirnar eru þarna
líka og léttur göngutúr um bæinn
því upplagður eftir hádegismat.
Þegar kemur að því að velja
gistingu í hringferð sem þessari er
vert að hafa í huga að það getur
borgað sig að velja hótel fremur
en farfuglaheimili. Sérstaklega ef
bara á að stoppa eina nótt á hverj-
um stað og fjölskylda ferðast sam-
an. Kostnaðurinn við gistingu á
farfuglaheimili safnast saman þeg-
ar kaupa þarf rúmföt og morg-
unmat fyrir fjóra og verður að lok-
um sambærilegur við herbergi á
hóteli þar sem allt er innifalið.
Strandbæirnir Skanör
og Falsterbo
Stuttir útúrdúrar úr Eyrar-
sundshringnum eru t.d. há-
skólabærinn Lundur þar sem
margir Íslendingar hafa stundað
nám eða „litlatáin“ á Skáni, Ska-
nör med Falsterbo. Um 20 mín-
útna akstur er á milli Lundar og
Malmö og vel þess virði að kíkja á
einn af elstu bæjum Svíþjóðar.
Dómkirkjan og háskólasvæðið er
aðalsmerki Lundar. Á sumrin
tæmist bærinn reyndar því sem
næst þar sem íbúarnir flykkjast í
sumarhúsin sín við ströndina eða í
skerjagarðinum.
Til Skanör med Falsterbo er um
hálftímaakstur frá Malmö og þeg-
ar komið er út á einhverja af
sandströndunum er eins og tíminn
standi í stað. Af hverju að fara til
Majorka? Sjórinn er reyndar að-
eins kaldari í Svíþjóð, en sólin ylj-
ar jafn vel eftir sundsprettinn.
Sveitarfélagið Skanör med Fal-
sterbo er í raun tveir litlir
strandbæir, Skanör norðan megin
og Falsterbo sunnan megin á litlu
nesi. Í Skanör fylla skúturnar fal-
lega höfnina og baðströndin er þar
við hliðina. Í höfninni eru fisk-
búðir fullar af fólki að ná í fisk á
grillið eða í lautarkörfuna og veit-
ingastaðurinn Fiskrögeriet sem
sænsku konungshjónin heimsækja
víst oft á Skánarferðum sínum.
Góð strönd er rétt við golfskál-
ann í Falsterbo og í smá göngu-
fjarlægð er einnig Falsterboviti,
sem er bygging frá átjándu öld.
Hafnarstemning í Helsingborg
Eftir afslöppunina við syðstu
strendur Eyrarsunds er ekið norð-
ureftir á ný. Landskrona er næsta
borg á vegi ferðalanga frá Malmö.
Þaðan er hægt að taka ferju út í
eyjuna Ven, einnig kölluð eyja
stjörnufræðingsins Tycho Brahe.
Þar má skoða safn tileinkað hon-
um sem opnað var á síðasta ári.
Helsingborg er síðasti áfanga-
staðurinn Svíþjóðarmegin í Eyrar-
sundshringnum. Við höfnina er
skemmtilegt svæði fyrir gangandi
vegfarendur, Kajpromenaden.
Skútur og snekkjur vagga við
bryggju og hægt að velja úr veit-
ingastöðum og kaffihúsum til að
njóta útsýnisins yfir til Danmerk-
ur. Margar fallegar byggingar
standa við höfnina, þ. á m. er Dun-
kers kulturhus, menningarhús sem
m.a. á frægðina að þakka sér-
stökum arkitektúr danska arki-
tektsins Kim Utzon.
Tveir ísar á dag eru nauðsyn-
legir í sænska sumarhitanum og í
Glassfabriken við Kungsgatan í
Helsingborg er mikið úrval. Al-
mennt er Skánn þekktur fyrir
góðan mat og í Helsingborg eru
margir góðir veitingastaðir. Rétti
staðurinn til að leita að þeim er
við göngu- og verslunargötuna
Kullagatan og hliðargötur hennar.
Í leiðinni er hægt að rekast á litl-
ar hönnunarverslanir. Vinsæll
sænskur sjónvarpskokkur, Niklas
Ekstedt, rekur t.d. veitingastað
undir eigin nafni við Norra Stor-
gatan, þar sem hægt er að velja á
milli „bistro“ á neðri hæðinni eða
þess dýrasta og fínasta á efri hæð-
inni.
Frá Helsingborg er hægt að
gera nokkra útúrdúra áður en
haldið er til Danmerkur. T.d. til
Höganäs þar sem kaupa má af-
gangs glervörur og postulín frá
Kosta Boda og Orrefors á góðu
verði. Mölle er einnig hugsanlegur
útúrdúr, vestasti oddi Skánar þar
sem tíminn hefur staðið í stað.
Louisiana skyldustopp
En Helsingjaeyri á Norður-
Sjálandi í Danmörku er næsti
áfangastaður í hringnum góða.
Kronborg kastalinn blasir m.a.s.
við frá höfninni í Helsingborg og
þangað liggur leiðin nú með ferju.
Ferjuleiðin á milli Helsingborgar
og Helsingør var alfaraleiðin á
milli Svíþjóðar og Danmerkur áð-
ur en Eyrarsundsbrúin var byggð.
Ferðin tekur einungis um tuttugu
mínútur og auðvelt er að finna
ferjuna niðri við höfn.
Stolt Helsingjaeyrar er Kron-
borgkastalinn sem reistur var á
16. öld. Þar er upplagt að fá sér
kaffi og skoða höllina og virkið.
Kronborgkastali er af og til not-
aður af dönsku drottningunni fyrir
veislur og er helst þekktur sem
heimili Hamlets í samnefndu verki
Shakespeares.
Ferðalangar ættu að stoppa á
Louisiana nútímalistasafninu sem
er á fallegum stað nálægt Humle-
bæk. Barnafólk getur líka notið
þess að fara á listasöfn, ekki síst í
Louisiana, þar sem börnin fá
miklu meira en eitt lítið fönd-
urhorn. Þar er sérstakt 500 m²
barnahús á þremur hæðum sem er
lagt undir skapandi starf með
börnum.
Strandvegurinn niður til Kaup-
mannahafnar er skemmtilegur bíl-
túr en nauðsynlegt er að stoppa
oft á leiðinni til að kíkja á kaffi-
hús, fá sér ís eða stinga tá í sjó.
Þetta er ein fallegasta leiðin sem
hægt er að keyra í Danmörku þar
til skiptis er keyrt inni í skógi og
með útsýni yfir opið haf. Öll flottu
húsin er líka gaman að sjá.
Rétt áður en komið er aftur til
Kaupmannahafnar er keyrt í
gegnum Charlottenlund sem telst
úthverfi höfuðborgarinnar. Þar er
strandhótel sem á rætur að rekja
til 17. aldar, Skovshoved Hotel.
Bandaríska ferðatímaritið Condé
Nast Traveller telur það meðal 50
mest aðlaðandi hótela í heiminum
og hefur útsýnið yfir Eyrarsund
ábyggilega sitt að segja.
Eyrarsundshringinn er í sjálfu
sér hægt að bruna á einum degi
en þá er varla nokkurs staðar
hægt að stoppa. Skemmtilegra er
að gefa sér nokkra daga, gista á
leiðinni og kynnast hverjum og
einum stað aðeins.
FERÐALÖG
Ekið í kringum
Eyrarsund
Kaupmannahöfn er sjálfsagður áfangastaður
Íslendinga allt árið um kring. Strikið, Nýhöfn og
Tívolí iða alltaf af Íslendingum. En hvernig væri að
víkka sjóndeildarhringinn aðeins? spyr Steingerður
Ólafsdóttir. Leigja sér bíl og skreppa yfir til
Svíþjóðar í smáhring – Eyrarsundshringinn.
Stolt Helsingjaeyrar er Kronborgkastalinn sem reistur var á 16.
öld, en hann er notaður af dönsku drottningunni fyrir veislur.
Turning Torso eftir Santiago Calatrava er að
verða einkennismerki Malmö.
1
!" 2
!" 3
40
4!" ,5+ -
2
3
6
6
7 8 . 9 : ; <
9=7-,6,5
:0 )0 7 )
6 7 >"
0
73
)
!"
júlí
Daglegtlíf
Svíþjóð:
Salt & Brygga
Sundspromenaden 7, Malmö
www.saltobrygga.se
Café Kust
Storgatan 14, Falsterbo
Skanörs Fiskrögeri
Skanör
www.rogeriet.se
Dunkers Kulturhus
Sundstorget, Helsingborg
www.dunkerskulturhus.se
Helsingborgs Glassfabrik
Kungsgatan 12, Helsingborg
Danmörk:
Kronborg kastalinn, Helsingør
www.kronborg.dk
Louisiana listasafnið, Humlebæk
www.louisiana.dk
Skovshoved Hotel
Strandvejen 267, Charlottenlund
www.skovshovedhotel.dk
Dunkers kulturhus við höfnina í Helsingfors.
KOMDU VIÐ Á DALVÍK
OG TAKTU ÞÁTT Í FJÖLSKYLDURATLEIK
1. vinningur – Úrvalsfiskur frá Samherja að verðmæti 100.000 kr.
Landflutningar Samskip flytja vinninginn heim að dyrum.
2.-6. vinningur – 65 lítra ferðakistlar frá Sæplasti, frábærir ferðafélagar
sem munu innihalda sýnishorn af matseðli Fiskidagsins mikla 2006,
að verðmæti 30.000 kr. hver.
Hægt er að taka þátt í leiknum í allt sumar til kl. 22.00 föstudaginn 11. ágúst.
Þátttökuseðlar liggja frammi á helstu þjónustustöðum í Dalvíkurbyggð.
Á Dalvík 12. júlí - 11. ágúst • Vinningar að verðmæti 250.000
Þátttaka ókeypis og öllum heimil • Nánar á www.julli.is
Léttur leikur í tengslum við fjölskylduhátíðina „Fiskidagurinn mikli“ þar sem fjölskyldan fær sér
göngutúr um Dalvík og finnur út hvað sex hús heita og við hvaða götu þau standa.
Fylgstu með á heimasíðu dagsins www.julli.is
FISKISÚPUKVÖLDIÐ MIKLA 11. ÁGÚST OG FISKIDAGURINN MIKLI 12. ÁGÚST
Í DALVÍKURBYGGÐ Í SJÖTTA SINN Í ÁR
Fjölsk
ylduh
átíð!