Morgunblaðið - 15.07.2006, Page 21

Morgunblaðið - 15.07.2006, Page 21
M eð tilkomu brúar yf- ir Eyrarsund fyrir sex árum varð til eitt atvinnusvæði sem nær yfir Kaupmannahöfn og Malmö í Sví- þjóð. Malmö er þriðja stærsta borg Svíþjóðar og í hana hefur hlaupið enn meiri vöxtur eftir að hún varð hluti af Eyrarsundssvæð- inu. Eyrarsundsbrúin er flott mannvirki sem gaman er að skoða og keyra yfir. Nokkrir tugir þús- unda hafa einnig fengið að hlaupa yfir brúna í árlegu hálfmaraþoni sem haldið var í sjötta og síðasta skipti á 17. júní. Þegar komið er yfir í Svíaríki er upplagt að fá sér hádegismat í bryggju- og strandhverfinu Västra Hamnen í Malmö, t.d. á veitinga- staðnum Salt & Brygga sem bygg- ir á grundvallarreglunni um „slow food“ – andstöðu skyndibita. Gott ráð fyrir ferðapyngjuna er að fá sér hádegismat á fínu veit- ingastöðunum en velja ódýrari veitingastaði fyrir kvöldmat. Í Västra Hamnen stendur Turn- ing Torso upp úr. Allt önnur upp- lifun er að sjá þessa byggingu í raunveruleikanum en á myndum. Hún hefur hlotið mikla athygli fyrir frumlegan arkitektúr San- tiago Calatrava og er að verða ein- kennismerki Malmö. Höfuðborg Skánar er vinsæll verslunarstaður, m.a. hjá Kaup- mannahafnarbúum. Hagstæðara er að versla í Svíþjóð en Danmörku og það geta Íslendingar líka haft í huga. Í Malmö hafa á síðustu ár- um skotið upp kollinum margar skemmtilegar tískuverslanir. Nefna má tvær slíkar í gamla bænum, þ.e. Lilla Svarta á Adel- gatan og Issue á Stora Nygatan, sem er orðin vinsæl verslunargata. Hefðbundnu búðirnar eru þarna líka og léttur göngutúr um bæinn því upplagður eftir hádegismat. Þegar kemur að því að velja gistingu í hringferð sem þessari er vert að hafa í huga að það getur borgað sig að velja hótel fremur en farfuglaheimili. Sérstaklega ef bara á að stoppa eina nótt á hverj- um stað og fjölskylda ferðast sam- an. Kostnaðurinn við gistingu á farfuglaheimili safnast saman þeg- ar kaupa þarf rúmföt og morg- unmat fyrir fjóra og verður að lok- um sambærilegur við herbergi á hóteli þar sem allt er innifalið. Strandbæirnir Skanör og Falsterbo Stuttir útúrdúrar úr Eyrar- sundshringnum eru t.d. há- skólabærinn Lundur þar sem margir Íslendingar hafa stundað nám eða „litlatáin“ á Skáni, Ska- nör med Falsterbo. Um 20 mín- útna akstur er á milli Lundar og Malmö og vel þess virði að kíkja á einn af elstu bæjum Svíþjóðar. Dómkirkjan og háskólasvæðið er aðalsmerki Lundar. Á sumrin tæmist bærinn reyndar því sem næst þar sem íbúarnir flykkjast í sumarhúsin sín við ströndina eða í skerjagarðinum. Til Skanör med Falsterbo er um hálftímaakstur frá Malmö og þeg- ar komið er út á einhverja af sandströndunum er eins og tíminn standi í stað. Af hverju að fara til Majorka? Sjórinn er reyndar að- eins kaldari í Svíþjóð, en sólin ylj- ar jafn vel eftir sundsprettinn. Sveitarfélagið Skanör med Fal- sterbo er í raun tveir litlir strandbæir, Skanör norðan megin og Falsterbo sunnan megin á litlu nesi. Í Skanör fylla skúturnar fal- lega höfnina og baðströndin er þar við hliðina. Í höfninni eru fisk- búðir fullar af fólki að ná í fisk á grillið eða í lautarkörfuna og veit- ingastaðurinn Fiskrögeriet sem sænsku konungshjónin heimsækja víst oft á Skánarferðum sínum. Góð strönd er rétt við golfskál- ann í Falsterbo og í smá göngu- fjarlægð er einnig Falsterboviti, sem er bygging frá átjándu öld. Hafnarstemning í Helsingborg Eftir afslöppunina við syðstu strendur Eyrarsunds er ekið norð- ureftir á ný. Landskrona er næsta borg á vegi ferðalanga frá Malmö. Þaðan er hægt að taka ferju út í eyjuna Ven, einnig kölluð eyja stjörnufræðingsins Tycho Brahe. Þar má skoða safn tileinkað hon- um sem opnað var á síðasta ári. Helsingborg er síðasti áfanga- staðurinn Svíþjóðarmegin í Eyrar- sundshringnum. Við höfnina er skemmtilegt svæði fyrir gangandi vegfarendur, Kajpromenaden. Skútur og snekkjur vagga við bryggju og hægt að velja úr veit- ingastöðum og kaffihúsum til að njóta útsýnisins yfir til Danmerk- ur. Margar fallegar byggingar standa við höfnina, þ. á m. er Dun- kers kulturhus, menningarhús sem m.a. á frægðina að þakka sér- stökum arkitektúr danska arki- tektsins Kim Utzon. Tveir ísar á dag eru nauðsyn- legir í sænska sumarhitanum og í Glassfabriken við Kungsgatan í Helsingborg er mikið úrval. Al- mennt er Skánn þekktur fyrir góðan mat og í Helsingborg eru margir góðir veitingastaðir. Rétti staðurinn til að leita að þeim er við göngu- og verslunargötuna Kullagatan og hliðargötur hennar. Í leiðinni er hægt að rekast á litl- ar hönnunarverslanir. Vinsæll sænskur sjónvarpskokkur, Niklas Ekstedt, rekur t.d. veitingastað undir eigin nafni við Norra Stor- gatan, þar sem hægt er að velja á milli „bistro“ á neðri hæðinni eða þess dýrasta og fínasta á efri hæð- inni. Frá Helsingborg er hægt að gera nokkra útúrdúra áður en haldið er til Danmerkur. T.d. til Höganäs þar sem kaupa má af- gangs glervörur og postulín frá Kosta Boda og Orrefors á góðu verði. Mölle er einnig hugsanlegur útúrdúr, vestasti oddi Skánar þar sem tíminn hefur staðið í stað. Louisiana skyldustopp En Helsingjaeyri á Norður- Sjálandi í Danmörku er næsti áfangastaður í hringnum góða. Kronborg kastalinn blasir m.a.s. við frá höfninni í Helsingborg og þangað liggur leiðin nú með ferju. Ferjuleiðin á milli Helsingborgar og Helsingør var alfaraleiðin á milli Svíþjóðar og Danmerkur áð- ur en Eyrarsundsbrúin var byggð. Ferðin tekur einungis um tuttugu mínútur og auðvelt er að finna ferjuna niðri við höfn. Stolt Helsingjaeyrar er Kron- borgkastalinn sem reistur var á 16. öld. Þar er upplagt að fá sér kaffi og skoða höllina og virkið. Kronborgkastali er af og til not- aður af dönsku drottningunni fyrir veislur og er helst þekktur sem heimili Hamlets í samnefndu verki Shakespeares. Ferðalangar ættu að stoppa á Louisiana nútímalistasafninu sem er á fallegum stað nálægt Humle- bæk. Barnafólk getur líka notið þess að fara á listasöfn, ekki síst í Louisiana, þar sem börnin fá miklu meira en eitt lítið fönd- urhorn. Þar er sérstakt 500 m² barnahús á þremur hæðum sem er lagt undir skapandi starf með börnum. Strandvegurinn niður til Kaup- mannahafnar er skemmtilegur bíl- túr en nauðsynlegt er að stoppa oft á leiðinni til að kíkja á kaffi- hús, fá sér ís eða stinga tá í sjó. Þetta er ein fallegasta leiðin sem hægt er að keyra í Danmörku þar til skiptis er keyrt inni í skógi og með útsýni yfir opið haf. Öll flottu húsin er líka gaman að sjá. Rétt áður en komið er aftur til Kaupmannahafnar er keyrt í gegnum Charlottenlund sem telst úthverfi höfuðborgarinnar. Þar er strandhótel sem á rætur að rekja til 17. aldar, Skovshoved Hotel. Bandaríska ferðatímaritið Condé Nast Traveller telur það meðal 50 mest aðlaðandi hótela í heiminum og hefur útsýnið yfir Eyrarsund ábyggilega sitt að segja. Eyrarsundshringinn er í sjálfu sér hægt að bruna á einum degi en þá er varla nokkurs staðar hægt að stoppa. Skemmtilegra er að gefa sér nokkra daga, gista á leiðinni og kynnast hverjum og einum stað aðeins.  FERÐALÖG Ekið í kringum Eyrarsund Kaupmannahöfn er sjálfsagður áfangastaður Íslendinga allt árið um kring. Strikið, Nýhöfn og Tívolí iða alltaf af Íslendingum. En hvernig væri að víkka sjóndeildarhringinn aðeins? spyr Steingerður Ólafsdóttir. Leigja sér bíl og skreppa yfir til Svíþjóðar í smáhring – Eyrarsundshringinn. Stolt Helsingjaeyrar er Kronborgkastalinn sem reistur var á 16. öld, en hann er notaður af dönsku drottningunni fyrir veislur. Turning Torso eftir Santiago Calatrava er að verða einkennismerki Malmö.    1  !" 2 !"  3 40  4 !" ,5+ - 2 3 6   6   7 8 . 9 : ; < 9=7-,6,5 :0 )0 7 )  6  7 >"  0   7 3 ) !"  júlí Daglegtlíf Svíþjóð: Salt & Brygga Sundspromenaden 7, Malmö www.saltobrygga.se Café Kust Storgatan 14, Falsterbo Skanörs Fiskrögeri Skanör www.rogeriet.se Dunkers Kulturhus Sundstorget, Helsingborg www.dunkerskulturhus.se Helsingborgs Glassfabrik Kungsgatan 12, Helsingborg Danmörk: Kronborg kastalinn, Helsingør www.kronborg.dk Louisiana listasafnið, Humlebæk www.louisiana.dk Skovshoved Hotel Strandvejen 267, Charlottenlund www.skovshovedhotel.dk Dunkers kulturhus við höfnina í Helsingfors. KOMDU VIÐ Á DALVÍK OG TAKTU ÞÁTT Í FJÖLSKYLDURATLEIK 1. vinningur – Úrvalsfiskur frá Samherja að verðmæti 100.000 kr. Landflutningar Samskip flytja vinninginn heim að dyrum. 2.-6. vinningur – 65 lítra ferðakistlar frá Sæplasti, frábærir ferðafélagar sem munu innihalda sýnishorn af matseðli Fiskidagsins mikla 2006, að verðmæti 30.000 kr. hver. Hægt er að taka þátt í leiknum í allt sumar til kl. 22.00 föstudaginn 11. ágúst. Þátttökuseðlar liggja frammi á helstu þjónustustöðum í Dalvíkurbyggð. Á Dalvík 12. júlí - 11. ágúst • Vinningar að verðmæti 250.000 Þátttaka ókeypis og öllum heimil • Nánar á www.julli.is Léttur leikur í tengslum við fjölskylduhátíðina „Fiskidagurinn mikli“ þar sem fjölskyldan fær sér göngutúr um Dalvík og finnur út hvað sex hús heita og við hvaða götu þau standa. Fylgstu með á heimasíðu dagsins www.julli.is FISKISÚPUKVÖLDIÐ MIKLA 11. ÁGÚST OG FISKIDAGURINN MIKLI 12. ÁGÚST Í DALVÍKURBYGGÐ Í SJÖTTA SINN Í ÁR Fjölsk ylduh átíð!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.