Morgunblaðið - 15.07.2006, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF Í JÚLÍ
Gönguferð í
Pýreneafjöllunum
19.–26. ágúst bjóða Göngu-Hrólfur og
Úrval Útsýn upp á spennandi göngu-
ferð um spænska þjóð-
garða Pýreneafjallanna.
Flogið er til Barcelona
og síðan ekið í þjóðgarð-
inn Sant Maurici og
Agüestortes þar sem
gengið verður næstu 3
daga. Fjölbreytt gran-
ítlandslagið kemur sífellt
á óvart þar sem stór-
brotin fjöll rísa með
hvassar eggjar yfir fag-
urbláum vötnum og
djúpum dölum. Gróð-
urfarið er einstakt, m.a.
má sjá breiður af lyng-
rósum og írisum, en inni
á milli birtast svo kunn-
ugleg blóm á borð við blóðberg og
ljónslappa. Gengið er um fjallaskörð
og eftir gömlum þjóðleiðum milli lítilla
þorpa sem kúra eins og steinborgir í
fjallshlíðunum. Litlu húsin falla sér-
lega vel að umhverfinu og sér-
kennilega ferhyrnda kirkjuturna ber
við himin. Þá er haldið í elsta þjóð-
garð Spánar, Ordesa og Monte Per-
dido, en þar hefur ísaldarjökullinn
grafið djúpa og fagurmótaða dali í
kalksteinsfjöllin og skilið eftir ávala
fjallshryggi sem unun er að ganga
um.
Jólaferð til Aspen
GB ferðir bjóða upp á jólaskíðaferð til
Aspen í Colorado í Bandaríkjum 19.–
29. desember. Um er að ræða fimm
stjörnu jólaferð þar sem gist verður á
svítuhótelinu Aspen Meadows.
Flogið er með Icelandair til
Minneapolis, þaðan sem flogið verður
með United Airlines til Denver. Innifal-
ið í verði eru svo 10 nætur í svítu á
Aspen Meadows með morgunverði,
ferðir í fjöllin og aðgangur að heilsu-
lind hótelsins.
Í Aspen eru fjögur fjöll, sem henta
ættu öllum, en þar er auk þess gott
snjóbrettasvæði og m.a. sérstakur
snjóbrettagarður í Buttermilk, þar
sem X-Games fara fram ár hvert. Í
Aspen eru auk þess yfir hundrað
veitingastaðir og fjölbreytt næturlíf
fyrir þá sem vilja.
Upplýsingar og bókanir hjá Úrvali–
Útsýn
Sími: 585-4000
Netfang: silja@uu.is
Vefslóðir: www.uu.is/ithrottir/
gonguferdir
www.gonguhrolfur.is
Göngugarpar í Pýreneafjöllum.
Nánari upplýsingar um jólaskíða-
ferðina:
www.gbferdir.is
Ása María Björnsdóttir To-gola upplifði mikið æv-intýri í apríl síðastliðnumþegar henni gafst tækifæri
til að heimsækja Malí, á vesturströnd
Afríku. Eftirvæntingin snerist ekki
síst um að fá að heimsækja hina fimm
ára gömlu Ramatou Coulibali, sem á
heima í þorpinu Bougoula og er
styrktarbarn Ásu í gegnum styrkt-
arsamtökin Plan International. Ása
gerðist fyrst styrktarforeldri haustið
2004 þegar hún hóf að styrkja 13 ára
stúlku í Benin og ári síðar bættist Ra-
matou við, en Plan Malí hóf hjálp-
arstarf í Bougoula árið 1986.
Plan International var stofnað á
Spáni og hefur verið starfrækt frá
árinu 1937. Fjáröflunarstarfsemi er
rekin í sextán löndum með það að
markmiði að styrkja börn í öðrum 46
löndum.
Steikjandi sólskin og um fjörutíu
stiga hiti vermdi Íslendinginn á með-
an á dvölinni stóð, en með í för var
eiginmaður Ásu, Daouda Togola frá
Fílabeinsströndinni, en hann á ættir
að rekja til Malí. Fulltrúar Plan Malí
tóku á móti hjónunum með pomp og
prakt. Að lokinni bílferð eftir mal-
arvegum og moldartroðningum og
viðkomu á markaðstorgi þar sem
keyptir voru ávextir, vatn og jurtin
kola, sem heimamenn tyggja, og hefð
er fyrir að gefa þjóðhöfðingjum í virð-
ingarskyni, var loks komið til Bou-
goula. Þar tók hópur fólks á móti
ferðalöngunum með trumbuslætti og
söng í virðingar- og þakklætisskyni.
Ramatou færði Ásu vatn að drekka,
heimagerða listmuni og maís að gjöf.
Það vakti mikla gleði þegar heima-
menn uppgötvuðu að „Madam To-
gola“ væri gift Malí-ættuðum manni,
sem talaði í ofanálag tungumál
þeirra. Hvíta evrópska konan vakti
hins vegar blendnar tilfinningar hjá
börnunum og sum urðu hrædd við
þessa skrýtnu veru með sítt rautt
hár. „Önnur voru vogaðri og vildu
taka í höndina á mér sem þykir al-
menn kurteisi. Litla Ramatou reynd-
ist ansi kjörkuð, hélt aftur af tárunum
í fanginu á mér í heilar tíu mínútur á
meðan við færðum fjölskyldu hennar
gjafir og vorum kynnt fyrir nánustu
ættmennum. Eftir að hafa snætt há-
degisverð í boði þorpsbúa vorum við
leyst út með enn fleiri gjöfum, fullri
körfu af gómsætum mangóávöxtum
og lifandi kjúklingi, sem við gætum
matreitt síðar.“
Skólar, brunnar, heilsugæsla
Ása María og Daouda kynntu sér
alla starfsemi Plan Malí og litu auk
þess inn hjá bæjarfógetanum, sem
hafði búið sig undir heimsóknina.
„Það var frábært að sjá hversu lítið
hjálparstarf gefur mikið og hvað það
skiptir miklu máli fyrir byggðina,“
segir Ása og bætir við að samtökin
hafi reist m.a. tvær skólabyggingar
fyrir um þrjú hundruð börn, tvo
vatnsbrunna og heilsugæslu þar sem
bæði hjúkrunarkona og ljósmóðir eru
starfandi.
Hefði samtakanna ekki notið við,
hefðu börnin þarna ekki fengið neina
kennslu, verið án almennrar heilsu-
gæslu og þurft að ganga langar leiðir
eftir drykkjarhæfu vatni. Það er í
raun ótrúlegt að trúa því að lífs-
gæðamunurinn geti verið svo mikill
frá höfuðborginni Bamako, sem er
skammt undan. „Konurnar í þorpinu
viðurkenndu fyrir mér að þær hefðu
verið tregar í fyrstu að senda stúlk-
urnar í skóla, en nú voru þær orðnar
ánægðar og farnar að sjá árangur af
menntuninni. Sjálf er ég mjög ánægð
og þakklát fyrir að fá að vera þátttak-
andi í þessu hjálparstarfi því ég hef
fengið að upplifa það mjög sterkt
hversu mikilvægur minn litli stuðn-
ingur er þorpsbúum. Plan-reikn-
ingana mína kem ég því til að borga
með mikilli gleði í framtíðinni,“ sagði
Ása að lokum, en hún er nýflutt heim
til Íslands frá Noregi þar sem hún
gerðist fyrst styrktaraðili. Hún stefn-
ir að því að bæta þriðju stúlkunni við
von bráðar, líklega þó ekki fyrr en
hún lýkur því námi, sem hún nú
stundar, sem er háskólanám í nær-
ingarfræðum, en með hverju barni
greiðir Ása 2.500 krónur á mánuði.
MALÍ | Ása María Björnsdóttir heimsótti styrktarbarn sitt til Afríku
Sá að stuðningurinn skiptir máli
Ása María Björnsdóttir Togola og eiginmaðurinn Daouda með Ramatou litlu.
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
TENGLAR
.....................................................
www.plan-norge.no
www.plan-international.org
www.plan-uk.org
Einn af þorpsbrunnunum skoðaður.
SPÁNN er vinsæll viðkomu-
staður hjá fólki í leit að sól og
sumaryl. Spánn hefur þó upp á
margt annað að bjóða og vel
þess virði að kynna sér fjöl-
breytilega menningu landsins
í næstu heimsókn. Þar er m.a.
að finna þrjár borgir á heims-
minjaskrá Sameinuðu þjóð-
anna – Toledo, Cáceres og
Córdoba – sem myndu krydda
skemmtilega upp á næstu
Spánarför.
Toledo, sem er eina 70 km
frá Madrid, er t.d. þekkt fyrir
að kristnir menn, múslimar og
gyðingar bjuggu þar árhundr-
uðum saman að því er virðist
að mestu í sátt og samlyndi og
er gaman að virða fyrir sér
þau áhrif sem þessi menning-
arlegi bræðingur hefur haft á
arkitektúr borgarinnar, t.d.
mudéjar-stílinn.
Córdoba í Andalúsíu
byggðist upp í dal við árbakka
Gudalquivir. Það var síðan
sem höfuðstaður máraríkisins
sem Córdoba stóð í hvað mest-
um blóma, en í dag er í borg-
inni að finna moskudóm-
kirkju, gyðingahverfi,
rómverskar brýr og fjölda
áhugaverðra bygginga og
safna.
Cáceres átti sinn glæsileg-
asta tíma á valdaskeiði kaþ-
ólska konungsins Ferdinands
og drottningar hans Ísabellu,
sem bæði áttu sinn þátt í upp-
götvun Ameríku. Í hinum
gamla bæjarhluta er að finna
fjölda halla og bygginga sem
gegndu hernaðarhlutverki og
umluktar eru múrum mára.
Það mikla safn fornrar bygg-
ingalistar sem Cáceres hefur
að geyma felur enda í sér að
borgin er skráð sem sá staður
í Evrópu sem hefur þriðja
stærsta samansafn minn-
isverðra bygginga.
Heimsminjar
í sumarfríinu
SPÁNN