Morgunblaðið - 15.07.2006, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 15.07.2006, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2006 25 varðar að henni sé vel stýrt, til starfa veljist okkar besta fólk. Því verður flokkspólitískum sjón- armiðum við ráðningar hjá hinu op- inbera að linna. Það á að vera eft- irsótt og spennandi að starfa fyrir hið opinbera. Lagarammi starfsem- innar má heldur ekki standa í vegi fyrir árangursríkum stjórn- arháttum. Nýleg dæmi af Land- spítala – háskólasjúkrahúsi þar sem tekist er á um rétt stjórnenda spítalans til að gera kröfur til yf- irmanna hans um að vera ekki sam- hliða í einkapraxís úti í bæ, sýna vel við hvað er að eiga. Lög um op- inbera starfsmenn standa í vegi nú- tímalegra stjórnunarhátta. Reynsl- an sýnir að þessum lögum verður varla breytt nema með samningum við samtök opinberra starfsmanna. Það er stórt verkefni sem bíður næstu ríkisstjórnar. Sérstaða Samfylkingarinnar Samfylkingin er sá íslenskra stjórnmálaflokka sem hefur hug- myndalega burði til að tryggja hér jöfnuð og hagkvæmni að norrænni fyrirmynd. Það er hennar sérstaða, sem felst í fordómaleysi gagnvart frjálsum markaði þar sem hann á við, samhliða efnahagslegum jöfn- uði og vel hugsuðu mennta-, heil- brigðis- og velferðarkerfi. Þessu þarf að koma skýrt til skila. Í þessu felst einnig tiltekin mannúðarstefna. Að samfélagið eigi að skapa jöfn tækifæri fyrir fólk til þroska og áhrifa á eigið líf. Að það sé sameiginlegur hagur allra, að sem flestir njóti hæfileika sinna og eigi hlutdeild í efnislegum, félagslegum og menningarlegum gæðum samfélagsins. Að aðbún- aður þeirra, sem eiga undir högg að sækja, sé mikilvægur mælikvarði á það hversu vel okkur tekst. Þetta er ekki bara hlutverk stjórnmála- manna, heldur samfélagsins alls. Um það á Samfylkingin að hafa for- ystu. Burðir skipta sköpum Hér hafa verið nefnd nokkur brýn mál úr íslensku samfélagi, fleiri mætti auðvitað nefna. Öll krefjast þau vandaðrar stefnumót- unar og framkvæmdar. Þar skiptir forysta, reynsla, þekking og atgervi þeirra sem fara með hið póltíska vald miklu. Enn fremur tengsl þeirra við aðra sem fara með vald í okkar samfélagi, samtök og fyr- irtæki. Þetta er eitt þeirra atriða sem taka þarf tillit til við val á póli- tískum samstarfsaðilum. Er samstarf við Sjálfstæðisflokkinn hugsanlegt eða æskilegt? Þessi grein er rituð og birt hér til þess að samfylkingarfólk um allt land velti þeim kosti fyrir sér að vinna í ríkisstjórn með Sjálfstæð- isflokknum, en mörg okkar hafa til- hneigingu til að líta fremur á dekkri hliðar hans en styrkleika. Dekkri hliðar sem í stjórnmálum samtím- ans birtast í auknum ójöfnuði, í pólitískri fyrirgreiðslu við einka- væðingu hlutar Landsbankans í VÍS og síðan helmingaskiptakerfi við sölu Landsbanka og Bún- aðarbanka, birtist í pólitískum stöðuveitingum m.a. í Seðlabanka, lögreglu- og dómskerfi, Rík- isútvarpinu og utanríkisþjónustu og ótrúlegri bíræfni í eftirlauna- málum ráðherra, skeytingarleysi í aðbúnaði aldraðra, svo helstu mál séu nefnd. Þessi atriði mega þó ekki verða til þess að viðurkenna ekki aðra styrkleika Sjálfstæð- isflokksins. Forystuskipti hafa orðið í Sjálf- stæðisflokknum og víst er að þar fara fyrir einstaklingar, sem vel má vinna með náist góð samstaða um fyrrgreind stefnumál. Og mér sýn- ist við yfirferð þeirra, að Samfylk- ingin og Sjálfstæðisflokkurinn eigi þar býsna margt sameiginlegt. Samfylkingin hefur á að skipa hæfileikaríkum þingmönnum og öflugum formanni. Það er að- alsmerki góðra stjórnenda og for- ystumanna að velja sér til sam- starfs sterka aðila, hafa styrk til að standast þeim snúning og laða fram það besta í fari þeirra. Neikvæð reynsla Alþýðuflokks og Fram- sóknarflokks af tveggja flokka samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn, kann að vera til marks um innri veikleika þeirra sjálfra, sem Sjálf- stæðisflokknum verður varla kennt um. Samfylkingin gangi óbundin til kosninga Samfylkingin á ekki að mynda bandalag með tilteknum flokkum fyrir næstu kosningar. Tímar R- listans eru liðnir. Vinstri grænir brutu upp R-listann undir forystu Svandísar Svavarsdóttur og greiddu þar með leið Sjálfstæð- isflokksins til valda í Reykjavík. Undir forystu Steingríms J. Sigfús- sonar klufu þeir sig út úr samein- ingarferli vinstri flokkanna þegar Samfylkingin var mynduð. Í bæði skiptin voru flokkshagsmunir settir ofar möguleikum sameinaðra vinstri manna til áhrifa. Vinstri grænir eiga því engan móralskan rétt gagnvart Samfylkingu um að vera annað en einungis einn mögu- legra samstarfskosta. Samfylkingin á að ganga óbundin til næstu kosninga. Niðurstöður kosninganna sjálfra, stefnumál og líkur á árangri, eiga að ráða vali Samfylkingarinnar. Þar á engum dyrum að loka fyrir fram. Sjálf- stæðisflokkurinn, eins og aðrir flokkar, á að vera þar meðal ann- arra kosta. aðeins með tvennu móti, veita auknu fé til ríkisháskólanna og/eða heimild þeirra til að taka skóla- gjöld. Undan því verður ekki vikist. Breska leiðin þar sem skólagjöld eru sett samhliða sjálfkrafa náms- lánum, sem ekki eru innheimt fyrr en viðkomandi hefur náð tilteknu tekjumarki, sýnist mér tryggja jafnrétti til náms að svo miklu leyti sem það snýst um peninga. Ytra gæðamat á skólastarfi er takmarkað við grunnskóla, þó ný háskólalög eigi að bæta eitthvað úr því. Þessu þarf að breyta. Í öllu skólastarfi verði leitast við að nota alþjóðleg gæðaviðmið og sam- anburð. Brýn verkefni í heilbrigðismálum Ísland ver miklu fé til heilbrigð- ismála í alþjóðlegum samanburði, þrátt fyrir að þjóðin sé ung og ætti því að vera þurftaminni hvað varð- ar lyf og læknisþjónustu. Ekki ligg- ur fyrir hvaða þættir heilbrigð- isþjónustunnar eru dýrari en í samanburðarlöndum og því erfitt að segja hvar þurfi að auka skil- virkni. Kerfið hér er ólíkt því sem víðast gerist með nær óheftum að- gangi almennings að sérfræðilækn- um og veiku frumheilsugæslukerfi, einkum á Reykjavíkursvæðinu. Enn fremur er stofnanavistun aldr- aðra hér mun meiri en t.d. á Norð- urlöndum og okurverð á lyfjum verður ekki skýrt með smæð mark- aðarins. Rannsóknir og greining á ís- lenska heilbrigðiskerfinu eru of fá- ar og duga illa sem grunnur stefnu- mörkunar. Úr því þarf að bæta. Ágætt dæmi um þetta er einka- rekstur í heilbrigðisþjónustu, sem hér er tískuorð, tískuorð sem í heil- brigðiskerfinu byggist því miður á pólitískri hugmyndafræði, en ekki rannsóknum sem sýni að aukinn einkarekstur skili betri árangri. Erlendar rannsóknir, að ekki sé minnst á háborg einkarekstrar í heilbrigðiþjónustu, Bandaríkin, benda því miður ekki til þess að svörin séu einhlít, svo ekki sé meira sagt. Einkarekstur skilar ekki sjálfkrafa betri árangri nema með virkri samkeppni, hvorki hér né annars staðar. Fordómalaust þarf að skoða hvaða rekstrarform skili mestu fyrir almenning. Fyrirsjáanleg er aukning heil- brigðisútgjalda. Forgangsröðun og gagnrýnið mat á öllum kostn- aðarþáttum er því óumflýjanlegt. Þessi verkefni krefjast því sterkrar ríkisstjórnar ekki síst gagnvart öflugri eiginhags- munagæslu fagstétta í heilbrigð- iskerfinu. Lagaumgjörð og stjórnun opinberrar starfsemi Opinber starfsemi tekur til sín ríflega 46% þjóðartekna. Miklu Byggðastofnunar eru atvinnuþró- unarvandi landsbyggðarinnar í hnotskurn. Byggðastefna næstu rík- isstjórnar á að felast í því að styrkja sveitarstjórnarstigið. Sveit- arfélög eru enn of mörg og of smá. Sannfæra þarf íbúa þeirra um það að stækkun sveitarfélaga upp að til- teknu marki eða samvinna er meg- inatriði til að styrkja samkeppn- isstöðu þeirra, bæði um fólk og atvinnustarfsemi. Bjóða þarf veru- lega fjárhagslega hvata þeim sveit- arfélögum sem sameinast og styrkja fjölskyldur sem flytjast af jaðarsvæðum, þar sem atvinnuleysi hefur verið viðvarandi. Flytja þarf yfirstjórn löggæslu, umönnunar aldraðra og heilsugæslu til þeirra sveitarfélaga, sem mögulega geta tekið við þeim. Framhaldskóla sömuleiðis. Aðeins með þeim hætti verða til lífvænlegir byggðakjarn- ar. Brýn verkefni í menntamálum Fyrir jafnaðarmannaflokk er skólakerfið ekki síst tæki til aukins jafnaðar. Greiður aðgangur allra að menntun og árangur skiptir miklu í félagslegum hreyfanleika og vinnur þannig gegn stéttaskiptingu. Menntun og félagsstaða foreldra veitir þeim börnum, er vel standa, forskot sem bæta þarf öðrum upp með afbragðs skólum. Yfirvöld menntamála verða að hafa sýn á það hvernig íslenskt menntakerfi skuli þróast. Fram- haldsskólastigið er veikur hlekkur vegna mikils brottfalls nemenda, en um 40% árganga ljúka ekki fram- haldsskólanámi. Gera þarf áætlun um aðgerðir gegn brottfalli á fram- haldsskólastigi þar sem einkum tvennt þarf til: betri undirbúning nemenda úr grunnskólum, en sam- kvæmt rannsóknum er árangur nemenda þar, það sem mest segir fyrir um afdrif þeirra í framhalds- skólum. Erfið staða drengja í skóla- kerfinu kallar enn fremur á ný úr- ræði og það sama má segja um börn innflytjenda. Grunnskólann þarf að efla með auknum kröfum til nemenda og kennara, samhliða eflingu kenn- aramenntunar og áherslu á al- þjóðleg viðmið í kennslu og námi á grunnskólastigi. Sjálfsagt er að fjölga kostum í rekstrar- og stjórn- arformi grunnskóla og leyfa for- eldrum að velja sjálfum skóla fyrir sín börn. Hátt brottfall úr framhalds- skólum skýrist enn fremur af skorti á áhugaverðum kostum í iðn- og starfsmenntun á framhalds- skólastigi, en slíka menntun þarf að efla í samstarfi við fagsamtök greinanna. Brýnt er að jafna samkeppn- isstöðu háskólanna eigi ríkishá- skólar ekki að verða annars flokks skólar innan örfárra ára. Það gerist alla umgjörð atvinnulífsins um leið og samkeppni verði tryggð og hag- ur neytenda virtur. Leita þarf bestu fyrirmynda stjórnvalds- aðgerða og regluverks til að sætta sjónarmið um hagkvæmni fyr- irtækjasamsteypa og fyr- irtækjastærðar og þess að sam- keppni sé tryggð. Þær stofnanir, sem með þau völd og eftirlit fara, þurfa að vera búnar okkar fremstu sérfræðingum og stjórnendum. Pólitísk sjónarmið við ráðningar æðstu manna í lögreglu, eftirlits- og dómskerfi, eins og hér tíðkast, verða að heyra sögunni til. Traust verður að ríkja á þessum lykilstofn- unum. Börn náttúrunnar Íslendingar sækja drjúgan hlut eigin sjálfsmyndar og þjóðern- isskilnings til náttúru landsins eins og Guðmundur Hálfdanarson sagn- fræðingur hefur sýnt fram á. Þetta birtist vel í deilum samtímans um virkjanir og stóriðju andspænis kröfum um vernd óbyggðanna. Hafa þar báðir aðilar nokkuð til síns máls og verða að setja sig hvor í annars spor. Það verður verkefni komandi ríkisstjórna að leita leiða til að sætta þessi sjónarmið, eins og kostur er, með samræðum og upp- lýsingamiðlun. Stjórnvöld geta ekki vísað ábyrgðinni á orkufyrirtæki og sveitarstjórnir, eins og nýr iðnaðar- áðherra reynir að gera. Byggðastefna Stóriðjustefna liðinna ára tengist ekki síst atvinnuþróun á lands- byggðinni eftir áratuga samdrátt í sjávarútvegi og landbúnaði. Ferða- þjónusta, sem oft er vísað til í þessu sambandi, er því miður árs- tíðabundin láglaunaatvinnugrein, sem ekki mun bæta upp að fullu áð- urnefndan samdrátt fyrir þá fjöl- mörgu sem eiga rætur og eignir sínar á landsbyggðinni og vilja búa þar. Nýja hagkerfið, sem svo er nefnt; þekkingariðnaður, skapandi atvinnugreinar krefjast tiltekins umhverfis og mannafla, sem varla er fyrir hendi nema á nokkrum stöðum á landinu. Erfiðleikar é minnst á nda býr ovéska andaðs mbóta- og mfylking íklega ein ssum m nahags- mjög um- sjálf- a rúm ndi fram- lokks Al- i á ráðin rík- og það að okksins ð koma gerist r ekki stjórnar komið er markað misserin. andi að til Heimsmet gsta dæm- r aðild að nt þess. erslu á nu og lík- því máli rn með G. Þó á um ærstum stum S er hér óg að gsins eins forsætis- nig brott- n gera Ís- jálfstæða sextíu ára komu slenskum sserum er ur verði Eftir rða að narþörf a hafist ýrslu um ldar. fi rðleggja selja fisk. ar orðið ðarins nbyrðis um sem g við blas- ostur er, samstarfskostir Samfylkingarinnar ’Þessi verkefni krefjaststerkrar og samhentrar ríkisstjórnar. Samfylk- ingin á að ganga óbundin til næstu kosninga og stefna og styrkur að ráða vali á samstarfs- aðilum. Sjálfstæðisflokk- urinn er þar einn kosta, en að sjálfsögðu ekki sá eini.‘ Höfundur er félagi í Samfylkingunni. Viljum frekar ferðast en að fjárfesta í steinsteypu Blaðakonu leikur forvitni á því hvernig Stoj- anov og Hajduk fjármagni svo löng ferðalög sem raun ber vitni. Segjast þau hafa fengið styrki frá ýmsum aðilum fyrir þessa ferð, m.a. frá alþjóðlegum samtökum Farfuglaheimila og Icelandair. „En auk þess höfðum við lagt fyrir. Við lifum afar einföldu lífi heima í Liege í Belg- íu, þar sem við erum ekki að borga af íbúð og rekum ekki bíl. Við höfum kosið að eyða pen- ingunum frekar í ferðalög heldur en stein- steypu, ef svo má að orði komast,“ segja Stoj- anov og Hajduk. Spurð hvort þau séu nú þegar farin að leggja drög að næstu hjólreiðaferð líta Stojanov og Hajduk hvort á annað áður en þau fara að skellihlæja. „Við þurfum nú aðeins að fá að jafna okkur fyrst á þessari ferð, enda erum við dauðþreytt eftir fjórtán mánaða ferðalag, en hver veit,“ segir Elena Stojanov, en bætir svo við að kannski muni næsta ævintýri þeirra fel- ast í því að takast á við foreldrahlutverkið, enda ekki verið mikill tími til barneigna á síðustu ár- um sökum ferðalaga. Spurð hvað taki við þegar þau komi heim segjast Stojanov og Hajduk munu ganga frá greinum fyrir tímarit Far- fuglaheimila sem gefið er út í Belgíu um ferða- lag þeirra, auk þess sem þau munu opna ljós- myndasýningu með myndum úr ferðinni og einnig halda fyrirlestra um reynslu sína. Belgíu að þeirri ferð lokinni tók hinn hvers- dagslegi raunveruleiki aftur við. Fljótlega fór þó að bera á ákveðinni óþreyju, því okkur lang- aði til þess að komast aftur út í heim til þess að upplifa og sjá meira,“ segir Elena Stojanov og Philippe Hajduk bætir við að sér hafi strax fundist nauðsynlegt að leggja leiðina á norð- lægari slóðir sem nokkurs konar mótvægi við ferðina til Afríku. Aðspurð hvort mikill munur sé á því að ferðast á suðrænum eða norrænum slóðum hugsa Stojanov og Hajduk sig aðeins um en svara því síðan til að fyrir utan veðráttuna, sem sé auðvitað afar ólík, því þau hafi t.d. aldrei áð- ur upplifað lárétta rigningu fyrr en þau komu hingað til lands, þá hafi það komið þeim mest á óvart hversu fólk á norðurslóðum var vingjarn- legt og reiðubúið að aðstoða þau. „Í Afríku vor- um við alls staðar boðin velkominn. Fyrirfram höfðum við búist við því að fólk á norðurslóðum væri lokaðra og ekki eins vin- gjarnlegt, en reynslan hefur sýnt okkur að hér er fólk tilbúið að taka manni opnum örmum,“ segir Elena Stojanov og bendir til dæmis á að á ferðalagi þeirra hér á landi hafi þau oft leitað til ábúenda á bóndabæjum um að fá að tjalda í garðinum hjá viðkomandi til þess að njóta skjóls frá vindum. „Undantekningarlaust tók fólk okkur afar vel og langflestir buðu okkur að gista innandyra,“ segir Elena Stojanov og kann Íslendingum bestu þakkir fyrir gestrisn- ina. Morgunblaðið/Kristinn Belgíska hjólareiðaparið Elena Stojanov og Philippe Hajduk lætur ævintýramennskuna ráða för. Fyrir sex árum héldu þau í tveggja ára hjólreiðaferð um Afríku og fyrir fjórtán mánuðum lögðu þau síðan upp í ferð um fjórtán Evrópulönd sem lauk hér á landi fyrir skemmstu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.