Morgunblaðið - 15.07.2006, Side 26

Morgunblaðið - 15.07.2006, Side 26
26 LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MENNING Austurríski listahópurinn Gelitin opnar á laugardag sýn- inguna Hugris í galleríi Kling og Bang. Gelitin er að margra mati með fremstu listahópum samtím- ans og hafa verk listamannanna fjögurra, Ali Janka, Florian Reither, Wolfgang Gantner og Tobias Urban, vakið mikla at- hygli. Viðbrögð gagnrýnenda og sýningargesta hafa spannað allan skalann frá hrifningu og kátínu til hneykslunar. Sem dæmi um nýjustu uppátæki Gelitin má nefna 60 metra langa helsærða „tuskudúkku“ sem liggur í fjallshlíð í norður- hluta Ítalíu og verkið eða gjörninginn „The B-Thing“, sem fór þannig fram að listamennirnir fjarlægðu glugga á skrifstofu sem þeir leigðu í öðrum Tvíburaturnanna í New York árið 2000 og komu fyrir svölum á byggingunni þar sem glugginn var áður. Verkið „Arc de Triomphe“ sem félagarnir sýndu í Salsburg árið 2003 var tekið niður eftir að hafa valdið miklu fjölmiðlafári, en í verkinu var karlmannsstytta sem fetti sig aftur á bak og brúkaði liminn á allsérstæðan hátt. Heimasíða hópsins er www.gelitin.net. Myndlist | Listhópurinn Gelitin heldur sýninguna Hugris í Galleríi Kling og Bang Aðþrengdir Austurríkismenn Eftir Ásgeir Ingvarsson asgeiri@mbl.is EFTIR HÁFLEYGT spjall við Ali Janka þykir mér nauðsynlegt að fá álit fleiri með- lima hópsins, ef ske kynni að þeir myndu veita jarðbundnari svör. Florian Reiter býð- ur sig fram og við setjumst niður innan um manngerð framtíðarheimkynni Puffin Muff- in í aðalsal Kling og Bang, og vindum okkur beint að efninu: „Til að geta gagnrýnt þarftu að þekkja það sem þú vilt gangrýna, sem um leið kallar á að þú takir alvarlega það sem þú vilt gagnrýna. Það er ekki fyrir okkur. Við erum ekki að gagnrýna, en við erum heldur ekki ofur-skapandi listamenn. Við leitumst bara við að búa til heim til að lifa í. Við erum slæmir neytendur,“ segir Florian og kímir. Hann er slánalegur, virðist örlítið feiminn og forðast augnsamband. Hann brosir vand- ræðalega og þá glittir í brennda tönn. Lengi lifi fjöldaframleiðslan Talið berst yfir í list á tímum fjöldafram- leiðslu, kenningar Walter Benjamin og álíka pælingar. Florian segir frá kynnum sínum af sérfræðingi í list Auguste Rodin: „Hún sagði mér frá því hvernig Rodin átti heilan lager af höndum og fótum í ýmsum stellingum, í þúsundatali, sem hann setti saman til að smíða styttur. Algjör fjöldaframleiðsla.“ Ég spyr Florian hvort þeir Gelitin séu að gagnrýna þetta en hann er fljótur að svara: „Nei, nei. Þetta er allt gott og blessað.“ En hvaða hlutverki gegnir þá listin, fyrst hún er ekki að gagnrýna, hvorki sjálfa sig né aðra?: „Listin er farin að verða eins og sál- greining samfélagsins. Sálgreining er í sjálfu sér ofmetin, en samt ekki svo galin. Í stað þess að gagnrýna reynum við að beina sjón- um að grundvallaratriðunum: kjarna tilver- unnar.“ Sjálfstæð lífvera Ég heyri að Florian veitir jarðbundnari svör en Ali,og spyr hann um hvernig Gelitin starfar: „Samstarfið hefur þróast í sjálf- stæða lífveru, frekar en að geta kallast hóp- ur einstaklinga. Við vinnum aðeins sem heild. Ef við myndum ekki vinna saman myndum við ekki halda sambandi hvor við annan, því við höfum ólík áhugasvið. Þetta þróaðist ekki þannig að við værum vinir sem byrjuðu að vinna saman. Leiðir okkar lágu saman með þeim hætti að við vorum að vinna að ýmsum verkefnum og sýningum með ýmsu fólki. Smátt og smátt fékk hitt fólkið sér alvöru vinnu, opnaði ljósmyndastúdíó eða arkitektastofur, en við fundum enga vinnu. Við vorum afgangs,“ segir Florian og hlær. Talið berst yfir í íslenska vinnumarkaðinn, og Florian furðar sig á við hvað Íslending- arnir eru að fást: „Það er ekki langt síðan allir lifðu á fiski, en nú virðist enginn vinna við fiskveiðar lengur.“ Ég segi honum að Ís- lendingarnir hafi farið að vinna í bönkum í staðinn: „En hversu marga banka þarf 300.000 manna þjóð? Það virðist sem allir sem við hittum hérna aki um á jeppa og séu í stjórnunarstöðu, en við getum ekki alveg skilið hverju þetta fólk er að stjórna.“ Og það er kannski þetta sem sýningin í Kling og Bang á að fjalla um. Hver veit. Ég fæ Florian alltént til að staðfesta það að verk Gelitin snúist meira um samfélagið en listræna fagurfræði. Ég reyni að fá betri hugmynd um hvað hópurinn vill túlka á sýn- ingunni: „Í okkar huga er vel heppnuð sýn- ing þegar fyrsta hugsun fólks þegar það sér verkin er „Þetta er ekkert mál! Þetta get ég gert!“. Það er alveg ferlega gaman, því þá getur maður sagt fólki að drífa sig: „Farðu þá og gerðu þetta!““ Eva Longoria má vara sig Florian segir mér frá þeim innblæstri sem hann fann, þegar hann ferðaðist með hópn- um um landið. Florian upplifði landið öðru- vísi en Ali, sem hreifst af þöglum mosanum: „Undarlegir hlutir gerðust á ferðalagi okkar. Við sátum fjórir og horfðum á sjónvarpið og sáum í fyrsta skipti Aðþrengdar eiginkonur, og það var alveg ótrúlegt. Ég skildi hvorki upp né niður. Það var ekkert samhengi, og engin leið að skilja hegðun sögupersónanna. Ég gat ekki skilið af hverju ein var glöð og hin döpur. Þetta var allt mjög dularfullt.“ Ég spyr Florian, hvort þeir séu ekki að gera það sama. Hann hlær, og segir: „Jú, eiginlega. En við gerum það miklu betur en Aðþrengdar eiginkonur.“ Hugris, sýning Gelitin í Kling og Bang, segir Florian að snúist ekki um nekt eða standpínur eða ádeilu: „En það er betra að sitja í sófanum heima og hugsa um Hugris en að glápa á Aðþrengdar eiginkonur, eða jafnvel HM í fótbolta. Eins og kunningi minn sagði mér eitt sinn: áður en hann horfir á sjónvarpið, horfir hann út um gluggann.“ Afgangs listamenn Morgunblaðið/Sverrir Gelitin: Wolfgang Gantner og Florian Reiter til vinstri og Ali Janka til hægri. Toibias Ur- ban hafði látið sig hverfa og var gripið á það ráð að fá Heklu Dögg Jónsdóttur sem stað- gengil hans. Túlkar hún Tobian, standandi á fötu með rauðan poka á höfði. ÉG SEST niður með Ali Janka í hálfkláraðri sýningu Gelitin-hópsins í Kling og Bang-galleríi. Ég hafði átt von á að fá að tala við allan hópinn, en einn meðlimur hafði látið sig hverfa. Hinir tveir eru önnum kafnir og segja Ali ágætis fulltrúa hópsins. Ég fæ á tilfinninguna að þeir nenni ekki að veita fleiri viðtöl, hafi gert nóg af því síðustu misseri. Ég hætti ekki á að styggja listamenn- ina, sem virðast illa sofnir, og sest niður með Ali, einum fjórða af Gelit- in. Hinn þögli mosi Hann segir mér af ferðalagi um ís- lenska náttúru, undarlega þögn og upplifanir: „Það er eins og eitthvað sé ekki með felldu, eins og þú sért í miðju upptökustúdíói.“ Hann er útitekinn, með fallegt augnaráð og þétt alskegg. Fjólublá flauelspeysa með blómamynstri ljær honum barnalegt yfirbragð og sak- leysislegt tónfall þýskunnar ratar inn í enskuna hjá honum og full- komnar myndina. Svo segir hann, eins og upp úr þurru: „Ég meina, ef mosinn myndi öskra, þá yrði það ansi hávært öskur. En hann öskrar ekki (en gerir það kannski stundum, ef þú bíður nógu lengi).“ Hann slær mig út af laginu. Ég hafði undirbúið hefðbundnar listaspíruspurningar um tilgang list- arinnar, samfélagslega gagnrýni og tilvísanir. Best að spyrja um hvað sýningin fjalli, og hvort eitthvað sé til í þeim orðrómi að sýningin verði gagnrýni á stóriðjustefnu Íslend- inga: „Nei. Ég er mjög hrifinn af ál- verum,“ segir Ali af algjörri ein- lægni. „Og við fundum á ferðum okkar heita lind, og það er notalegt að sjá alla þessa orku sem rennur í straumum eftir landslaginu og kóln- ar. Þessi náttúrulega sóun á orku er algjör munaður.“ The famous Puffin Muffin Ali útskýrir fyrir mér hvað gestir munu sjá í Kling og Bang, en þarf stundum að hugsa sig lengi um til að finna réttu orðin. Á meðan hann mótar orðin bifast yfirvararskeggið á honum: Gelitin leggur undir sig allt sýningarrýmið. Á einum stað verður nokkurs konar fyrirlestr- arsalur, og á móti gestum tekur lítil manngerð eyðieyja. Ali nefnir furðu- verur eins og Puffin Muffin, Italian Stallion, Phony Pony og svolítið sem hann kallar dæmigert fyrir Reykja- vík: Bananas and Ananas: „Okkur langar að rannsaka mörkin milli ímyndaðs ferlis og raunverulegrar, áþreifanlegrar niðurstöðu,“ segir Ali, í einni bunu, eftir mikla umhugs- un. Mig grunar að þetta sé kannski staðlaður frasi hjá honum. Þegar Gelitin er annars vegar er engin leið að vera viss. Eins og kálhaus … Listamennirnir hafa starfað sam- an undir merkjum Gelitin síðan 1993 en vinskapur þeirra og samstarf nær allt aftur til 1978. Ég spyr Ali hvort það sé ekki rétt að listamenn eigi erfitt með að vinna með öðrum, og hvernig meðlimir Ge- litin nái að vinna svona farsællega saman og svona lengi: „Þetta er ekki ósvipað því að ætla að lyfta borði. Einn maður getur ekki lyft því, og heldur ekki tveir. Þegar við tökum höndum saman allir fjórir getum við loksins lyft borðinu,“ segir Ali, og ég held hann sé aftur kominn niður á jörðina þegar hann bætir við „Gelit- in er eins og kálhaus. Blöð kálhauss- ins leggjast hvert yfir annað, bæta við hvert annað og styrkja. Innst inni, undir þessu öllu, verður til ferskur kjarni. Auðvitað koma upp ólíkar listrænar skoðanir innan hópsins, en það koma líka upp ólíkar skoðanir innan einstaklingsins, og við leysum úr þeim eftir sömu leið- um, til að finna bestu leiðina.“ Ali finnst samstarfið gott en nú til dags vinna meðlimir hópsins aðeins saman, en ekki hver í sínu lagi: „Þegar þú ert einn á báti sem lista- maður ertu í djúpum skít, því þá þarftu stanslaust að vera á fundum og í viðtölum. Maður þarf eiginlega að vera á lyfjum til að geta afborið allt þetta umstang sem fylgir list- inni. Ég gæti ekki gert það einn, og myndi ekki vilja það.“ List án ásetnings Og hvað er Gelitin, að mati Ali, svo að fást við? Hvað gengur þeim til með list sinni? Sumir hafa sagt Ge- litin gagnrýna listheiminn. Aðrir segja Gelitin reyna að hneyksla og ögra. Enn aðrir segja Gelitin gera það sem þeir gera af því bara.: „Við höfum engan æðri ásetning, ekkert „manifestó“. Samstarfið varð ekki til svo að við gætum náð ein- hverju markmiði. Það bara gerðist, spratt fram. Við erum ekki að gagn- rýna neitt, heldur erum við bara að búa til það sem okkur þykir vanta.“ Ali segir alla meðlimi hópsins hafa ólíka skoðun á listinni: „Stundum vinnum við verk úti á götu eða uppi á fjalli. Sumir kalla það ekki list, því það er ekki innan veggja gallerís. Ef við myndum gera það sama í kjötbúð myndu einhverjir kalla það slátrun, og ef við gerðum það sama í svefni myndu sumir kalla það drauma.“ Hann þvertekur fyrir að hópurinn reyni að hneyksla eða reyna á áhorf- endur: „Fjargviðrið sem varð t.d. vegna „Arc de Triomphe“ er gott dæmi. Það var ekkert hneykslanlegt við sýninguna, og enginn var að amast við henni, nema stjórn- málamenn sem notuðu fjölmiðla- maskínuna til að vekja athygli á sjálfum sér. Það kom okkur á óvart hvernig það atvikaðist allt saman, en í dag erum við ekki jafnbláeygir.“ Gæsir og rúmföt Hópurinn er mikið á ferðinni og mjög afkastamikill – hélt t.d 12 sýn- ingar í 8 löndum á síðasta ári. Þeir eru samt ekki alltaf á ferðinni: „Við eigum heimahöfn í Vín og eigum okkar eigið líf – erum ekki saman öllum stundum: Florian á frábæra fjölskyldu, Wolfgang heldur gæsir sem gæludýr og Tobias … ég held að Tobiasi þyki góð lyktin af eigin rúmi, því hann skiptir aldrei um lök.“ Það fer að líða að lokum viðtalsins, og við Ali höfum spjallað vítt og breitt um verk Gelitin. Áður en ég slekk á snældunni inni ég hann eftir því hvort ég sé nokkuð að gleyma að spyrja hann að einhverju mikilvægu: „Það er athyglisvert að þú hefur ekki spurt neinna þeirra spurninga þar sem við yfirleitt bindum snaran endi á viðtöl, eins og „Af hverju heit- ir hópurinn Gelitin?“.“ „Gelitin er eins og kálhaus“ Meðal verka Gelitin sem vakið hafa mesta athygli síðustu ár er þessi risavaxna tuskudúkka sem smíðuð var úr heyböggum og bleikri bómull á fjallshlíð í norðurhluta Ítalíu. Fjöldi ferðamanna leggja leið sína árlega til kan- ínunnar stóru, sem liggur eins eins og útjaskað leikfang í landslaginu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.