Morgunblaðið - 15.07.2006, Síða 31

Morgunblaðið - 15.07.2006, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2006 31 MINNINGAR ✝ SteingrímurKolbeinsson fæddist í Reykjavík 21. apríl 1944. Hann lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu í Nes- kaupstað miðviku- daginn 5. júlí síðastliðinn. For- eldrar hans voru Andrés Kolbeinn Steingrímsson, f. 1. ágúst 1907, d. 7. mars 1985, og Þór- hildur Árnadóttir, f. 11. september 1919, d. 14. júní 1999. Systkini Stein- gríms eru Hulda Björk, Árni Heið- ar og Sigurborg, sem er látin. Eiginkona Steingríms er Hjör- dís Arnfinnsdóttir. Þau eiga fimm börn, þau eru: 1) Kristín Guðleif, gift Mikael Hansen. Hún á fimm börn úr fyrra hjóna- bandi. 2) Andrés Kolbeinn, kvæntur Huldu K. Óladóttur. Hann á þrjú börn. 3) Sigurður Þór, hann á einn son. 4) Rúnar Þröstur, hann á tvö börn. 5) Arnfinnur Ægir, sambýliskona Hjördís Nílssen. Hann á tvö börn. Steingrímur verður jarðsung- inn frá Norðfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 11. Elsku tengdapabbi, nú hefur þú fengið hvíldina og ert laus frá þeim þrautum sem þú þurftir að þola síð- ustu vikur ævi þinnar. Það var mjög sárt að kveðja þig, Steini, eins og þú varst alltaf kallaður. Þetta er okkur öllum ofsalega erfitt en við huggum okkur við það að þú þurfir ekki að þjást lengur og sért kominn á góðan stað þar sem vel hefur verið tekið á móti þér. Þú varst yndislegur maður og er ég þakklát fyrir að hafa kynnst þér og þínu fólki, alltaf gat ég og Addi sonur þinn leitað til þín með allt og þú varst ekki lengi að finna svör og lausnir á öllu. Betri afa er ekki hægt að hugsa sér, þess fengu börnin mín svo sann- arlega að njóta og eiga börn og barna- börn þín um sárt að binda núna. Ég hef hugsað mikið um minning- arnar sem ég og fjölskyldan mín eig- um um þig, Steini, og vorum við að skoða myndbandsupptöku frá því þú bauðst okkur öllum út í Hellisfjörð í sumarbústaðinn, það var dásamlegur tími. Það er yndislegt að hugsa um allar minningarnar og maður heldur fast í þær, já, Steini minn, og ekki vantaði blíðuna frá þér og tengda- mömmu þegar við komum með krakkana í heimsókn og þá vantaði ekki flottheitin hjá henni Hjördísi tengdamóður minni við baksturinn. Endalausar veislur og eru snúðarnir hennar þeirra uppáhald og ef við vor- um ekki með bæði börnin passaðir þú að við tækjum örugglega snúða með handa barninu sem ekki var með í för. Þetta er svo lýsandi dæmi um hvernig þú varst og heimilið ykkar alltaf opið fyrir öllum. Nú er komið að kveðjustund, elsku Steini minn. Það er sárt að hugsa til þess að þú komir ekki aftur til okkar hingað á Eskifjörð í kaffisopa, þótt þú hafir yfirleitt verið á hraðferð og drukkið kaffið þitt á dálitlum hraða en þú varst bara svoleiðis, drakkst kaffið og svo kom jæja og þið rokin. Ég ætla að enda þessa grein með hversu ynd- islegur þú varst, til dæmis vildir þú ekki láta hafa mikið fyrir þér í veik- indum þínum heldur fórst sjálfur og reddaðir því sem þú þurftir að gera, þótt þú værir mjög veikur. Þú varst algjör hetja, Steini minn, ég á ekki nógu gott lýsingarorð yfir það. Við munum sakna þín sárt en ég er þakk- lát fyrir að hafa getað verið hjá þér áð- ur en þú fórst frá okkur. Ég veit að nú líður þér betur og takk fyrir allt, Steini. Elsku Hjördís, Kristín, Addi, Þröstur, Þór og Ægir, megi góður guð styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Hulda K. Óladóttir. Nafni minn og afi Steingrímur Kol- beinsson andaðist á fjórðungssjúkra- húsinu í Neskaupstað 5. júlí síðastlið- inn, eftir erfiða baráttu við illvígan sjúkdóm. Mig langar til að minnast hans nú við leiðarlok. Afi var yndislegur maður, það var ekki það til sem hann vildi ekki fyrir mig gera. Þær voru margar ferðirnar sem ég var búinn að fara með afa og ömmu, um landið. Afi var hafsjór fróðleiks og miðlaði af þekkingu sinni í þessum ferðum sem því miður verða ekki fleiri, en ég mun geyma í minn- ingu minni. Afi var búinn að gera sér ljóst að hverju stefndi, og af æðru- leysi stappaði hann í okkur stálinu, bað okkur að vera glöð og hress, hann færi sáttur. Ég veit að það gladdi afa mikið að geta verið heima fram á síð- asta dag, umvafinn umhyggju og kærleika eiginkonu, sem stóð sem klettur við hlið hans þar til yfir lauk. Það voru miklar gleðistundir hjá afa þegar börnin og barnabörnin komu í heimsókn, þá ljómaði afi. Afi vildi ekki láta hafa mikið fyrir sér, hann fór alltaf sjálfur með ömmu á sjúkrahúsið í sprautur sem hann þurfti, þannig var það einnig 5. júlí síð- astliðinn, þá um morguninn fór hann í fylgd ömmu uppá sjúkrahús, en í þetta skipti átti hann ekki afturkvæmt, hann andaðist kl. 11 það kvöld. Það gladdi mig mikið að afi skyldi biðja mig um að smíða kross á leiðið sitt, mér er svo ljúft að gera þetta og ég vona að afa líki handbragðið þegar því er lokið. Ég þakka guði fyrir að mér skyldi auðnast að fá að vera hjá honum og halda í hönd hans þegar hann skildi við, friður og ró einkenndi ásjónu hans þegar hann tók síðustu andvörpin. Ég bið guð að styrkja og blessa ömmu og fjölskylduna á þessari sorgarstundu, þau hafa misst svo mikið. Elsku afi, nú ert þú horfinn úr þessum heimi, og ég vil þakka þér all- an þann kærleika, blíðu og gleði sem þú sýndir mér. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Steingrímur Óli Andrésson. Horfinn er yfir móðuna miklu elskulegur afi minn Steingrímur Kol- beinsson. Hann lést á sjúkrahúsinu í Neskaupstað 5. júlí síðastliðinn. Mér er bæði ljúft og skylt að minnast hans við leiðarlok. Afi minn barðist við ill- vígan sjúkdóm sem að lokum dró hann til dauða. Afi var besti afi í heimi. Umhyggja hans fyrir fjöl- skyldunni var alveg með eindæmum, ekkert var til sparað, til að konan, börnin og barnabörnin hefðu það sem best. Ég var ekki gömul þegar ég fór að heimsækja afa og ömmu á Norð- firði, þær heimsóknir urðu mér ógleymanlegar. Þar var ekki í kot vís- að. Afi og amma vissu hvað litlum börnum kom best. Það var alltaf séð til þess að enginn færi svangur frá þeim. Afi var yndislegur maður, hann var alveg sérstaklega barngóður og naut þess að hafa barnabörnin í kringum sig. Þá var hann í essinu sínu. Fljótlega eftir að afi greindist með þennan illvíga sjúkdóm gerði hann sér ljóst, að það gat brugðið til beggja vona. Hann fór því að ganga frá sín- um málum, og búa allt í haginn fyrir ömmu ef illa færi, og nú er þessi góði maður horfinn af sjónarsviðinu. Afi hafði alltaf verið heilsuhraustur, varla kennt sér meins, því kom þessi sjúk- dómsgreining eins og þruma úr heið- skíru lofti. Nú verður skrítið að koma í heimsókn í Miðstrætið á Norðfirði og sjá ekki afa í stólnum sínum, og eins er skrítið að vita til þess að elsku afi á ekki eftir að koma í kaffisopa til okkar á Eskifjörð. En minningin um elskulegan afa mun lifa í hjarta mínu um ókomin ár. Afi minn átti gamla antikklukku, mikinn kjörgrip, sem hann hafði mik- ið uppáhald á. Ég fylltist stolti þegar afi minn nokkrum dögum fyrir andlát sitt bað mig að taka við klukkunni og sjá um hana. Hún er nú komin upp á vegg í herbergi mínu og mun minna mig á afa minn um alla framtíð. Ég var við dánarbeð elsku afa þegar yfir lauk og hélt í hönd hans, friður og ró hvíldu yfir honum er hann yfirgaf þennan heim. Elsku hjartans afi minn, ég þakka þér fyrir ástúð þína og kærleika mér til handa. Ég bið góðan guð að veita ömmu og börnunum styrk í þeirra miklu sorg. Elsku afi minn, ég kveð þig svo með orðum úr ritningunni. Guði séu þakkir, sem gefur oss sigurinn fyr- ir Drottin vorn Jesú Krist! Hjördís Bára Andrésdóttir. STEINGRÍMUR KOLBEINSSON Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, RANNVEIG FRIÐRIKA KRISTJÁNSDÓTTIR, áður búsett á Boðahlein 5, Garðabæ, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði mánudaginn 10. júlí. Jarðarförin fer fram frá Kópavogskirkju mánudag- inn 17. júlí kl. 15.00. Kristján Þorkelsson, Kristján E. Kristjánsson, Áslaug Gísladóttir, Brynhildur Kristjánsdóttir, Stefán Sigurðsson, Auður Kristjánsdóttir, Roger Olofsson, Alfa Kristjánsdóttir, Sigmar Þormar, Bárður Halldórsson, Grétar Sveinsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, KRISTÍN MAGNÚSDÓTTIR, Rjúpufelli 42, Reykjavík, áður Vestmannabraut 10, Vestmannaeyjum, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 17. júlí kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag Íslands. Einar Ottó Högnason, Magnús Hörður Högnason, Hrafnhildur Sigurðardóttir, Guðmundur Ingi Einarsson, Kristín Högna Magnúsdóttir. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, HANNES JÓNSSON fyrrverandi sendiherra, sem lést mánudaginn 10. júlí sl. verður jarðsung- inn frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 18. júlí kl. 13.00. Karin Waag Hjálmarsdóttir, Hjálmar Waag Hannesson, Anna Birgis, María Inga Hannesdóttir, Ólafur Georgsson, Guðrún Andrésdóttir, Kristín Hanna Hannesdóttir, Páll Torfi Önundarson, Jakob Bragi Hannesson, Glódís Karin E. Hannesdóttir, Guðmundur Hannes Hannesson, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, EIRÍKS HJALTA JÓNSSONAR, Strandgötu 79a, Eskifirði. Tómas Hjaltason, Björg Sigurðardóttir, Guðjón Hjaltason, Elín Hjaltadóttir, Einar Eyjólfsson, barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæri, RAGNAR MARNÓ BJARNASON rafvirkjameistari, Háagerði 31, lést á hjúkrunarheimilinu Grund fimmtudaginn 13. júlí. Diana Ragnarsdóttir, Þorsteinn Kárason, Sigurbjörg Laufey Þorsteinsdóttir, Ragna Huldrún Þorsteinsdóttir, Jeffrey Sokolov. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, VALGARÐUR STEFÁNSSON, Bræðraborgarstíg 23, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 20. júlí kl. 13.00. Ingibjörg R. Guðlaugsdóttir, Ásdís Ingibjargardóttir, Guðlaugur Valgarðsson, Guðrún Helga Stefánsdóttir, Lárus Valgarðsson, Valgerður R. Valgarðsdóttir, Ingibjörg Helga og Auður Olga Skúladætur, Ísold og Silfrún Una Guðlaugsdætur, Veronika Sesselja Lárusdóttir, Áslákur Hrafn og Iðunn Rannveig Thorarensen. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, EYJÓLFUR THORODDSEN, Boðagranda 4, Reykjavík, andaðist á Landspítalanum Hringbraut fimmtu- daginn 13. júlí. Jarðarförin verður auglýst síðar. Elín Bjarnadóttir, Bjarni Thoroddsen, Ástríður H. Þ. Thoroddsen, Ólafur Örn Thoroddsen, Sigríður Jónsdóttir, Jóhann Thoroddsen, Katla Kristvinsdóttir, Ólína Elín Thoroddsen, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.