Morgunblaðið - 15.07.2006, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 15.07.2006, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2006 33 MESSUR ÁSKIRKJA: Vegna sumarleyfa starfsfólks er ekki messað í Áskirkju. Fyrsta messa eftir sumarleyfi verður 30. júlí. BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11:00. Organisti Aðalheiður Þorsteins- dóttir. Kór Bústaðakirkju syngur. Prestur sr. Hans Markús Hafsteinsson. Molasopi eftir messu. DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11:00. Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson prédikar. Sönghópur úr Dómkórnum syngur. Organisti Marteinn H. Friðriksson. GRENSÁSKIRKJA: Messa kl. 11. Alt- arisganga. Kirkjukór Grensáskirkju syngur. Organisti Árni Arinbjarnarson. Samskot til Hjálparstarfs kirkjunnar. Molasopi eftir messu. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir. GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili: Guðs- þjónusta kl. 14:00. Organisti Kjartan Ólafsson. Sr. Hreinn S. Hákonarson. HALLGRÍMSKIRKJA: Laugardagur: Org- eltónleikar kl. 12:00 á vegum Alþjóðlega orgelsumarsins. Ji-Youn Han frá Suður- Kóreu leikur. Sunnudagur: Messa kl. 11:00. Sr. Kristján Valur Ingólfsson prédik- ar og þjónar fyrir altari ásamt messuþjón- um. Organisti Lenka Mátéová. Hópur úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngur. Kaffi- sopi eftir messu. Orgeltónleikar sunnu- dagskvöld kl. 20:00. Ji-Youn Han leikur á orgelið. HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11:00. Org- anisti Douglas A. Brotchie. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. LANDSPÍTALI – HÁSKÓLASJÚKRAHÚS: Guðsþjónusta kl. 14:00 á Landspítala Landakoti. Rósa Kristjánsdóttir, organisti Birgir Ás Guðmundsson. LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands biskups. Vegna sumarleyfa sóknarprests og starfsfólks er ekki messað í Langholts- kirkju í júlímánuði. Bent er á messu í Bú- staðakirkju kl. 11. Sr Pálmi Matthíasson sóknarprestur í Bústaðakirkju þjónar Lang- holtsprestakalli í júlímánuði og síminn í Bú- staðakirkju er 5538500. LAUGARNESKIRKJA: Nú stendur yfir sum- arleyfi hjá söfnuði Laugarneskirkju og er safnaðarfólk hvatt til að heimsækja ná- grannakirkjurnar á helgum dögum. Sókn- arprestur er þó að störfum fram til 15. júlí. Fyrsta messa eftir sumarleyfi verður sunnudaginn 20. ágúst kl. 20:00. NESKIRKJA: Messa kl. 11. Fermd verður Jóhanna María Ævarsdóttir, Fálkagötu 19. Séra Örn Bárður Jónsson prédikar og þjón- ar fyrir altari. Félagar úr Kór Neskirkju syngja. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Kaffi á Kirkjutorginu eftir messu. SELTJARNARNESKIRKJA: Helgistund kl. 11:00. Ritningarlestur og bæn. Sr. Arna Grétarsdóttir. Verið hjartanlega velkomin. FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Almennt guðs- þjónustuhald fellur niður til 13. ágúst, vegna sumarleyfa starfsfólks. Sunnudag- inn 13. ágúst verður guðsþjónusta kl. 14 sem varðar upphaf fermingarstarfs Fríkirkj- unnar. Hægt er að ná í safnaðarprest í sumar. Prestarnir. ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta fellur niður sunnudaginn 16. júlí vegna hrein- gerninga og viðhalds kirkjunnar. Sókn- arfólki er bent á guðsþjónustuhald í ná- grannakirkjum. Næsta guðsþjónusta verður sunnudaginn 23. júlí. DIGRANESKIRKJA: Sameiginleg guðs- þjónusta Digranes-, Linda- og Hjallasókna í Hjallakirkju kl. 11. GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Elínborg Gísladóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Grafarvogskirkju syngur. Organisti Gróa Hreinsdóttir. HJALLAKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar. Barn borið til skírn- ar. Félagar úr Kór kirkjunnar leiða safn- aðarsönginn. Organisti Jón Ólafur Sigurðs- son. Við minnum á bæna- og kyrrðarstund á þriðjudögum kl. 18. KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Sóknarprestur sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti Þóra Vigdís Guðmundsdóttir. Boðið verður upp á hressingu að lokinni guðsþjónustu. LINDAKIRKJA í Kópavogi: Sameiginleg guðsþjónusta Linda-, Hjalla- og Digranes- sókna í Hjallakirkju kl. 11. SELJAKIRKJA: Guðsþjónusta með alt- arisgöngu kl. 20. Sunna Dóra Möller guð- fræðinemi prédikar. Sr. Bolli Pétur Bolla- son þjónar fyrir altari. Kór Seljakirkju leiðir söng undir stjórn Kára Þormar. ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Samkoma fellur niður vegna útilegu kirkjunnar. Þáttur kirkjunnar „Um trúna og tilveruna“ er sýnd- ur á Omega kl. 15. BOÐUNARKIRKJAN, Hlíðasmári 9, Kóp: Samkomur alla laugardaga kl. 11:00. Bænastund alla miðvikudaga kl. 20:00. Biblíufræðsla allan sólarhringinn á Útvarp Boðun FM 105,5. Allir alltaf velkomnir. HJÁLPRÆÐISHERINN: Samkoma sunnu- dag kl. 20. Umsjón: Miriam Óskarsdóttir. Elín Kjaran talar. Opið hús daglega kl. 16– 22 (nema mánudaga). Söngstund kl. 10.30 og dagskrá kl. 20. Bæn og fyrirbæn á þriðjudagskvöldum og lofgjörð- arsamkoma á fimmtudagskvöldum. Allir velkomnir. FRÍKIRKJAN KEFAS, Fagraþingi 2a: Sam- koma sunnudag kl. 20. Gestaprédikari er Pétur Erlendsson. Lofgjörð og fyrirbænir. Kaffi og samfélag eftir samkomu. Allir vel- komnir. FÍLADELFÍA: Brauðsbrotning kl. 11. Ræðumaður Vörður Leví Traustason. Al- menn samkoma kl. 16.30. Ræðumenn: Biblíuskólanemar úr biblíuskólum erlend- is. Gospelkór Fíladelfíu leiðir lofgjörð. Fyr- irbænir í lok samkomu. Allir velkomnir. Ath. barnakirkjan er komin í sumarfrí, hefst aft- ur 27. ágúst. Hægt er að hlusta á beina út- sendingu á Lindinni FM 102,9 eða horfa á: www.gospel.is. Á Omega er sýnd sam- koma frá Fíladelfíu kl. 20. www.gospel.is KROSSINN: Almenn samkoma að Hlíða- smára 5 kl. 16.30. BETANÍA, Lynghálsi 3: Samkoma kl. 11 sunnudaga. Einnig samkomur kl. 19.30 á föstudögum. KIRKJA JESÚ KRISTS Hinna síðari daga heilögu, Mormónar, Ásabraut 2, Garða- bæ: Guðsþjónusta sunnudag kl. 9 árdegis á ensku og kl. 12 á hádegi á íslensku. KAÞÓLSKA KIRKJAN: Reykjavík, Kristskirkja í Landakoti, dóm- kirkja og basilíka: Sunnudaga: Messa kl. 10.30. Messa á ensku kl. 18.00. Alla virka daga: Messa kl. 18.00. Tilbeiðslu- stund er haldin í Kristskirkju á hverju fimmtudagskvöldi að messu lokinni, þ.e. frá kl. 18.30 til 19.15. Reykjavík, Mar- íukirkja við Raufarsel: Sunnudaga: Messa kl. 11.00. Laugardaga: Messa á ensku kl. 18.30. Virka daga: Messa kl. 18.30. Til- beiðslustund á mánudögum frá kl. 19.00 til 20.00. Riftún í Ölfusi: Sunnudaga: Messa kl. 16.00. Miðvikudaga kl. 20.00. Hafnarfjörður, Jósefskirkja: Sunnudaga: Messa kl. 10.30. Alla virka daga: Messa kl. 18.30. Tilbeiðslustund á hverjum degi kl. 17.15. Karmelklaustur: Sunnudaga: Messa kl. 08.30. Virka daga: Messa kl. 8.00. Keflavík, Barbörukapella: Skólavegi 38: Sunnudaga: Messa kl. 14.00. Stykk- ishólmur, Austurgötu 7: Alla virka daga: Messa kl. 18.30. Sunnudaga: Messa kl. 10.00. Ísafjörður: Sunnudaga: Messa kl. 11.00. Flateyri: Laugardaga: Messa kl. 18.00. Bolungarvík: Sunnudaga kl. 16.00. Suðureyri: Sunnudaga: Messa kl. 19.00. Akureyri, Kaþólska kirkjan: Pét- urskirkja, Hrafnagilsstræti 2: Laugardaga: Messa kl. 18.00. Sunnudaga: Messa kl. 11.00 Tilbeiðslustund á hverjum föstudegi kl. 17.00 og messa kl. 18.00. KIRKJA SJÖUNDA DAGS AÐVENTISTA: Aðventkirkjan Ingólfsstræti 19, Reykja- vík. Biblíufræðsla kl. 10:00. Guðþjónusta kl. 11:00. Ræðumaður: Manfred Lemke. Loftsalurinn Hólshrauni 3, Hafnarfirði: Guðþjónusta/Biblíufræðsla kl. 11:00. Ræðumaður: Gavin Anthony. Safn- aðarheimili aðventista Gagnheiði 40, Sel- fossi: Biblíufræðsla kl. 10:00. Guðþjón- usta kl. 11:00. Ræðumaður Birgir Vilhelm. Safnaðarheimili aðventista Blikabraut 2, Keflavík: Biblíufræðsla kl. 10.15. Guðþjón- usta kl. 11:00. Ræðumaður: Jóhann Þor- valdsson. Aðventkirkjan Brekastíg 17, Vestmannaeyjum: Biblíufræðsla kl. 10:00. Guðsþjónusta kl. 11.00. Ræðumaður: Eric Guðmundsson. LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum: Messa í Landakirkju kl. 11. Ferming Einars Hrafns Stefánssonar. Kór Landakirkju syngur und- ir stjórn Hauks Guðlaugssonar organista. Gengið verður að borði Drottins. Guðspjall dagsins er úr Lúkasarguðspjalli og fjallar um köllun Péturs, er Jesús Kristur segir við hann: „Óttast þú ekki, héðan í frá skalt þú menn veiða.“ Prestar sr. KristjánBjörnsson og sr. Þorvaldur Víðisson. LÁGAFELLSKIRKJA: Messa sunnudag kl. 11. Fermdar verða: Kristín Júlía Erlings- dóttir og Ragnheiður Þóra Björnsdóttir. Prestur sr. Ragnheiður Jónsdóttir. Org- anisti Guðmundur Ómar Óskarsson. Kór Lágafellskirkju syngur. Einsöngvari Bjarni Atlason. Allir velkomnir. Prestarnir. HAFNARFJARÐARKIRKJA: Morgunsöngur kl. 10.30. Ath. tímann. Prestur sr. Gunnþór Þ. Ingason. Organisti og píanóleikari Kjart- an Ólafsson. Félagar úr kór kirkjunnar leiða söng. VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: Helgi- stund á sumarkvöldi sunnudag kl. 20. Prestur Bragi J. Ingibergsson. Einsöngur Sigurður Skagfjörð. Organisti Gróa Hreins- dóttir. Allir velkomnir. FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Ferming kl.11. Fermdur verður Atli Þorkelsson, búsettur í Bandaríkjunum. Prestur: Einar Eyjólfsson. GARÐAKIRKJA: Messa kl. 11. Félagar úr Kór Vídalínskirkju leiða sönginn. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Sr. Friðrik J. Hjartar þjónar. Biðjum fyrir betri tíð. Rúta fer frá Ví- dalínskirkju kl. 19.30 og frá Hleinum litlu síðar. Allir velkomnir. KEFLAVÍKURKIRKJA: Önnur kvöldguðs- þjónusta sumarsins fer fram á sunnudag kl. 20. Prestur sr. Skúli S. Ólafsson og org- anisti er Ester Ólafsdóttir. HÓLADÓMKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Sig- hvatur Karlsson prédikar. Sr. Jón Ármann Gíslason og sr. Örnólfur J. Ólafsson þjóna fyrir altari. Kl. 14 samkoma í kirkjunni. Ein- söngur Kristveig Sigurðardóttir. Aðalsteinn Júlíusson og Kristján Þ. Halldórsson. Kór Snartarstaðakirkju syngur undir stjórn Björns Leifssonar. Valmar Valjaots leiðir tónlistarflutning úr Mývatnssveit. AKUREYRARKIRKJA: Kvöldguðsþjónusta kl. 20.30. Sr. Svavar A. Jónsson. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja. Organisti Ey- þór Ingi Jónsson. GLERÁRKIRKJA: Kvöldguðsþjónusta kl. 20.30. Sr. Arnaldur Bárðarson þjónar. Örn Viðar Birgisson tenór leiðir söng. Organisti er Arnór Vilbergsson. Allir velkomnir, kaffi- sopi í safnaðarsal. HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: Almenn samkoma sunnudag kl. 20. Níels Jakob Erlingsson talar. Bænastund kl. 19.30. All- ir velkomnir. LAUFÁSPRESTAKALL: Laufáskirkja: Guðsþjónusta sunnudag kl. 13.30 í upp- hafi starfsdaga í Gamla bænum í Laufási. Allir velkomnir. Svalbarðskirkja: Guðsþjón- usta sunnudagskvöld kl. 20.30. EGILSSTAÐAKIRKJA: Messa sunnudag kl. 11. Kyrrðarstund mánudag 17. júlí kl. 18. Sóknarprestur. KLYPPSSTAÐUR í Loðmundarfirði: Messa sunnudag kl. 14. Prófastur Múlaprófasts- dæmis sr. Jóhanna I. Sigmarsdóttir prédik- ar og þjónar fyrir altari. Allir velkomnir. VÍKURKIRKJA í Mýrdal: Almenn guðsþjón- usta sunnudag kl. 11. Organisti Kristín Waage. Félagar í kór Víkurkirkju leiða al- mennan söng. Sr. Haraldur M. Krist- jánsson sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Fjölmennum til kirkju. Sókn- arprestur og sóknarnefnd. ÓLAFSVALLAKIRKJA á Skeiðum: Guðs- þjónusta sunnudag kl. 14. Sóknarprestur. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa sunnu- dag kl. 17. Í messunni verður flutt tónlist frá sumartónleikum helgarinnar. Sókn- arprestur. SELFOSSKIRKJA: Messa sunnudag kl. 11. Léttur hádegisverður og kaffisopi á eft- ir. Sóknarprestur. SÓLHEIMAKIRKJA: Guðsþjónusta sunnu- dag kl. 14. Séra Birgir Thomsen þjónar fyrir altari og prédikar. Organisti er Ester Ólafs- dóttir. Lokabæn flytur Úlfhildur Stef- ánsdóttir. Eyþór Jóhannsson og Kristján Már Ólafsson aðstoða við athöfnina. ÞINGVALLAKIRKJA: Ef veður leyfir verður göngumessa á Þingvöllum sunnudaginn 16. júlí. Messan hefst fyrir framan Hótel Valhöll kl.14. Gengið verður þaðan til kirkju með viðdvöl á þremur stöðum. Lestrar, söngvar og bænir messunnar verða við Lögberg, við Flosagjá og hjá þjóð- argrafreitnum. Messunni lýkur í kirkjunni. Sóknarprestur predikar og leiðir gönguna ásamt Guðmundi Vilhjálmssyni organista, sem leikur á harmonikku. Guðspjall dagsins: Jesús kennir af skipi. (Lúk. 4). Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Klyppstaðakirkja í Loðmundafirði. Sunnudagskvöldið 16. júlí kl. 20 er guðsþjónusta með alt- arisgöngu í Seljakirkju. Sunna Dóra Möller guðfræðinemi prédikar. Sr. Bolli Pétur Bollason þjónar fyrir altari. Kór Seljakirkju leiðir sönginn undir stjórn Kára Þormar. Nánar um kirkjustarf í Seljakirkju á seljakirkja.is All- ir velkomnir. Sólrík sum- armessa í Seljakirkju FRÉTTIR BANDARÍSKU starfsþróunar- samtökin – National Career Deve- lopment Association – hafa veitt dr. Guðbjörgu Vilhjálmsdóttur, dósent í félagsvísindadeild Há- skóla Íslands, viðurkenningu fyrir framlag hennar til menntunar náms- og starfsráðgjafa og stefnu- mótunar í málaflokknum á Íslandi. Guðbjörg tók við verðlaununum, sem veitt eru árlega fyrir leiðtoga- störf á alþjóðavettvangi á sviði náms- og starfsráðgjafar, við sér- staka athöfn á ráðstefnu samtak- anna í Chicago þann 6. júlí síðast- liðinn. Bandarísku starfsþróunarsam- tökin eru víðtækustu samtök náms- og starfsráðgjafa í Banda- ríkjunum. Samtökin eru sam- starfsvettvangur rannsókna um starfsþróun og hafa að markmiði að efla ráðgjöf um starfsþróun til fólks á öllum aldri. Félagsmenn eru starfandi náms- og starfsráð- gjafar á öllum skólastigum eða í einkafyrirtækj- um og stunda nám, kennslu og rannsóknir á sviði náms- og starfsráðgjafar. Guðbjörg hef- ur veitt forstöðu námi í náms- og starfsráðgjöf við félagsvísindadeild Háskóla Íslands frá árinu 1991. Náminu var hleypt af stokkunum árið áður, 1990, og þá höfðu innan við tíu Íslendingar hlotið formlega menntun í náms- og starfsráðgjöf. Fram til ársins 2004 var námsleiðin eins árs við- bótarnám við BA- eða B.Ed.- gráðu, en undanfarin tvö ár hefur námsráðgjöf verið tveggja ára nám á meistarastigi. Frá upphafi hafa um 200 náms- og starfsráðgjafar útskrifast frá Háskóla Íslands. Hlaut alþjóðleg verð- laun í starfsþróun Guðbjörg Vilhjálmsdóttir „ÉG veit þú kemur,“ söng Árni Johnsen og lék undir á gítarinn fyr- ir framan aðalskrifstofur kjúklinga- staðarins KFC á fimmtudag. Starfsmenn fyrirtækisins vissu ekki hvaðan á þá stóð veðrið en Árni stoppaði ekki sönginn fyrr en hann fann eigandann, Helga Vilhjálms- son, innan veggja fyrirtækisins. Árni dró þá upp boðskort á Þjóðhátíð. Hann býður þó Helga ekki í eigin nafni, heldur var hann sendiboði Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar. Ölgerðin ætlar að bjóða helstu viðskiptavinum sín- um til Eyja með beinu leiguflugi í lúxusskemmtiferð á Þjóðhátíð um Verslunarmannahelgina og sér fyr- irtækið Practical um allan und- irbúning. Fólkið flýgur með Lands- flugi og við tekur sólarhringsævintýri úti í eyjum. Árni var ánægður, sagðist hafa fengið fábærar viðtökur á tugum heimila og vinnustaða: „Það er ótrú- legt hvað maður er alltaf til í tuskið, enda er ég búinn að róa í áratugi fyrir Þjóðhátíð Vestmannaeyja.“ Marín Magnúsdóttir, fram- kvæmdastjóri Practical, segir að þegar Ölgerðin hafi leitað til sín með skipulagningu ferðarinnar hafi hún fljótt séð að Þjóðhátíð og Árni væru samofin. Morgunblaðið/Árni Sæberg Árni Johnsen, Marín Magnúsdóttir hjá Practical og Kristinn starfmaður Ölgerðarinnar ásamt starfsfólki veitingahúsakeðjunnar KFC. Fólki boðið á Þjóðhátíð LÖGREGLAN í Keflavík lýsir eftir vitnum að atviki á Reykjanesbraut við Álverið í Straumsvík mánudag- inn 3 júlí. Þar mættust fólksbíll og vörubíll með grjóthlass og hrundi mikið af grjóti af vörubílspallinum yfir fólksbílinn sem skemmdist mik- ið. Atvikið varð um kl. 14.30 á mánudag og var hvítur sendi- ferðabíll á undan fólksbílnum. Þeir sem þekkja til málsins eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í Keflavík í síma 4202450. Lýst eftir vitnum VEGNA slæms veðurútlits fyrir morgundaginn hefur verið ákveðið að fresta 2. umferð Íslandsmótsins í motocrossi til sunnudagsins 16. júlí. Dagskráin breytist ekki að öðru leyti. Motocross- keppninni frestað ÁKVEÐIÐ hefur verið að bjóða upp á umræður á vef samgöngu- ráðuneytisins en þar verða kynnt mál sem eru til umfjöllunar í ráðu- neytinu og leitast við að fá fram viðbrögð einstaklinga sem og hags- munaaðila. Þannig mun standa til boða að senda innlegg í tilteknar umræður á tölvupósti á netfangið postur@sam.stjr.is. Í fréttatilkynningu á vef sam- gönguráðuneytisins segir að þetta sé gert í því skyni að fá viðbrögð við málum sem eru nánast á hugmyndastigi, áður en frekari vinna er lögð í málin. Fyrsta málið sem leitað verður viðbragða við er hvort breyta eigi bílprófsaldri úr 17 árum í 18. Nánari upplýsingar er að finna á vef ráðuneytisins, www.samgong- uraduneyti.is. Umræður á vef samgöngu- ráðuneytis

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.