Morgunblaðið - 15.07.2006, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2006 45
SAMBÍÓ ÁLFABAKKA SAMBÍÓ KRINGLUNNI
NÚ ER KOMIÐ
AÐ HENNI
AÐ SKORA
eeee
KVIKMYNDIR.IS
STAFRÆNA / DIGITAL BÍÓIÐ Á ÍSLANDI
SÝNDI BÆÐI
MEÐ
ÍSLENSKU OG
ENSKU TALI
KVIKMYNDIR.IS
VINSÆLASTA MYNDIN Í USA 2 VIKUR Í RÖÐ.
DIGITAL
Bíó
SAMBÍÓIN KRINGLUNNI
EIN ALLRA BESTA MYND ÁRSINS. BRYAN SINGER KOMIN Í HÓP ÞEIRRA FREMSTU
MESTA OFURMENNI HEIMS HEFUR SNÚIÐ AFTUR. OFURMÖGNUÐ STÓRMYND OG SÚPERSKEMMTUN FYRIR ALLA.
DIGITAL
Bíó
SAMBÍÓIN KRINGLUNNI
S.U.S. XFM 91,9„SANNKALLAÐ AUGNAYNDI OG ÞRUSUGÓÐ SKEMMTUN Í
ÞOKKABÓT, EINHVER BESTA AFÞREYING SUMARSINS“
TOMMI KVIKMYNDIR.IS
SÚPERMAN ER SANNARLEGA KOMINN AFTUR.
M.M.J. KVIKMYNDIR.COM
SUPERMAN kl. 12:40 - 1:40 - 3:50 - 4:50 - 7 - 8 - 10:10 - 11:10 B.I. 10.ÁRA.
SUPERMAN LUXUS VIP kl. 1:40 - 4:50 - 8 - 11:10 B.I. 10.ÁRA.
THE BREAK UP kl. 3:50 - 6 - 8 - 8:15 - 10:20 - 10:30
FAST AND THE FURIOUS 3 kl. 8 - 10:20 B.I. 12.ÁRA.
BÍLAR M/- ÍSL TALI kl. 12:30 - 1 - 3 - 5:30
CARS M/ENSKU TALI kl. 1 - 3:30
SHE´S THE MAN kl. 6
SUPERMAN kl. 1 - 2 - 4 - 6 - 8 - 10 - 11:10 B.I. 10.ÁRA. DIGITAL SÝN.
BÍLAR M/- ÍSL TALI kl. 1 - 3:30 - 6
THE BREAK UP kl. 8:20 - 10:30
eeee
SUPERMAN RETURNS SKAPAR SÉR SESS MEÐAL BESTU
MYNDASÖGU-KVIKMYNDUM SEM GERÐAR HAFA VERIÐ
V.J.V. Topp5.is
H.J. MBL.
eee
FRÁBÆR SUMARMYND HLAÐIN SPENNU OG MÖGNUÐUM ATRIÐUM.
Þ.Þ. FRÉTTABLAÐIÐ
og áður kom fram en reiknar með því
að fá einhverja hjálp þegar hann tón-
jafnar plötuna og gerir hana útgáfu-
hæfa en Villi segir að öll hráa heim-
ilisstemningin muni haldast.
„Ég vil gefa plötuna út á Íslandi
fyrst. Ég á nú í viðræðum við nokkra
aðila um útgáfu en það er ekkert
komið á hreint ennþá. Mig langar líka
til að gefa þetta út í Englandi og jafn-
vel annars staðar. Ég ætlaði að vera
duglegur að kynna mér markaðinn
og kynnast fólki á meðan ég var að
taka upp en það hefur hins vegar all-
ur tíminn farið í upptökurnar og því
hef ég ekki haft tíma til þess. Ég ætla
að vinna betur að þeim málum þegar
ég er búinn með plötuna og útgáfan á
Íslandi er komin á hreint,“ segir Villi
en hann ætlar að koma til landsins og
spila í tengslum við útgáfuna.
„Ég á bara eftir að ákveða hvort ég
mun gera það einn eða búa til ein-
hverja hljómsveit. Þetta á ég alveg
eftir að skipuleggja. Kannski leigi ég
rúgbrauð og keyri hringinn og reyni
að spila alls staðar. Aðalatriðið er að
þetta verði gaman. Það er dálítið
langt síðan ég tók þá ákvörðun að ég
ætla ekki að gera hluti sem mér
finnst ekki gaman að gera,“ segir
Villi en hann ætlar sér einnig að spila
í London og hefur ákveðið að hvíla
Villa-nafnið og þess í stað nota Vil-
helm í tengslum við sólóútgáfuna en
platan hefur ekki enn fengið nafn.
Í mynd með Bond-gellu
Eitt lag af plötunni verður í stutt-
mynd sem tekin var upp í kastala í
Norður-Englandi fyrir skömmu.
Ungur leikstjóri, Abi Van Walsum,
hefur lengi unnið að myndinni en Villi
kynntist henni í gegnum íslenska vin-
konu sína sem var úti að læra mynd-
list. „Við hittumst og ég hélt fyrst að
þetta væri bara eitthvað skólaverk-
efni en svo kom í ljós að þetta væri
stærðarinnar framleiðsla. Abi var bú-
in að leigja þennan risakastala í viku
og það voru tuttugu manns að vinna
að þessari mynd. Þrír leikarar leika í
henni, þar á meðal Rosamund Pike
sem er mjög þekkt leikkona,“ segir
Villi en hún lék meðal annars Bond-
gellu í Die Another Day og var í einu
af aðalhlutverkunum í nýlegu kvik-
myndauppfærslunni af Pride and
Prejudice sem skartaði Keiru Knig-
htley í aðalhlutverki.
„Ég fór á tökustaðinn og fékk að
fylgjast með en flest fólkið sem vinn-
ur að myndinni er mikið fagfólk og
virt á sínum sviðum í Englandi. Þetta
var ótrúlega skemmtilegt. Handritið
hefur fengið frábæra gagnrýni, en ég
vissi reyndar ekki að handrit gætu
fengið gagnrýni. Myndin heitir Last
Night og fjallar um stúlku sem hittir
föður sinn rétt áður en hann deyr. Ég
reikna með að myndin fari á kvik-
myndahátíðir þegar hún verður tilbú-
in,“ segir Villi en Abi stefnir að því að
klára myndina í haust.
Hljómsveitir hætta aldrei
Villi segir að framhaldið sé ekki
ákveðið. Hann muni hugsanlega
flytja heim þegar Þórdís klárar nám-
ið en þau hafa ekki tekið endanlega
ákvörðun um það hvar þau ætla að
búa. Ekki er stefnt að því að Naglbít-
arnir komi saman á nýjan leik á næst-
unni. „Hljómsveitir hætta aldrei en
nei það er ekki á dagskrá núna. Ég er
með tvær aðrar sólóplötur sem mig
langar að gera. Þær eru mun líkari
plötunni sem ég er að klára núna en
Naglbítatónlistinni.
Ég er byrjaður að mála aftur nú
þegar ég er búinn með mesta sköp-
unarferlið í tengslum við plötuna. Ég
er með svo mikinn athyglisbrest, get
ekki gert margt í einu, en það er
mjög þægilegt að hella sér út í ein-
hverja eina sköpun í einu. Ég mála
bara og mála og svo sem ég lög á fullu
og svo tek ég upp stanslaust. Ég hef
líka verið að skrifa mjög mikið. Ég
veit ekki alveg hvort ég get lýst til-
finningunni í tengslum við sköpunina.
Þeir þekkja þetta sem hafa upplifað
hana. Þú losar um einhverja spennu
innra með þér og það er ótrúlega
gaman að sjá hlutina smella saman
og verða að einhverju, ef þú ert trúr
sjálfum þér og vinnur í fullkominni
einlægni.“
Nálgast má tóndæmi af plötunni á
www.myspace.com/revwhitedog
jongunnar@mbl.is
ANNAÐ 90’s partí sumarsins verð-
ur haldið í kvöld á Bar 11. Kvöldið
er hluti af samvinnuverkefninu
NO LIMITS sem að standa lista-
maðurinn Curver og Kiki-Ow
(Kitty Von Sometime).
Í fréttatilkynningu frá Curver
segir að staða tónlistar og tísku
frá tíunda áratugnum sé að styrkj-
ast. Mikið hafi borið á „90’s“ tón-
list upp á síðkastið; í bíómyndum,
auglýsingum og meira að segja á
handboltaleikjum, en þar vitnar
Curver til þess að í hléum lands-
leiks Íslendinga og Svía á dög-
unum hljómuðu lög eins og „No
Limits“ með 2Unlimited í hljóð-
kerfi Laugardalshallarinnar. Enn-
fremur segir Curver að „allt sé að
springa“ af „90’s“ kvöldum á
skemmtistöðum Evrópu.
Fyrir kvöldið í kvöld hvetja að-
standendur gesti til að mæta með
broskalla, flautur, hvíta hanska,
öndunargrímur og glowsticks,
íklædda málningargöllum, Stüssy-
fötum, hvítum gallabuxum eða
smekkbuxum – þ.e. í svokölluðum
rave-stíl.
Kvöldið byrjar á miðnætti og er
aðgangur ókeypis.
Fólk | Tíunda áratugnum gert hátt undir höfði á Bar 11 í kvöld
Gestir hvattir til að
mæta með öndunargrímur
Síðasta 90’s kvöld Curvers og Kiki-Ow var vel sótt
og öruggt að þau brosa undir grímunum.
Bankastræti 3 • S. 551 3635
www.stella.is
SNYRTIVÖRUR