Morgunblaðið - 14.08.2006, Síða 1
STOFNAÐ 1913 218. TBL. 94. ÁRG. MÁNUDAGUR 14. ÁGÚST 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Gaman að
hlaupa
Hvernig skal haga lokaundirbúningi
fyrir Reykjavíkurmaraþon? | 16
Fasteignir og Íþróttir í dag
Fasteignir | Nýja Morgunblaðshúsið Tilraunahús við Ægisíðu
Viðhald sólpalla Íþróttir | Undirbúningur fyrir Spánarleikinn hafinn
Liverpool fékk skjöldinn Rússar sigursælir á EM í Gautaborg
LAX úr Skógá undir Eyjafjöllum, sem
merktur var í vor af rannsóknafyrirtækinu
Laxfiskum, fór á ferðum sínum um úthafið
miklu dýpra en hingað til hefur verið talið
að laxar fari. Laxinn, sem er hængur, skil-
aði sér aftur í ána í byrjun ágúst.
Rafeindafiskmerki er hann bar sýndi að
hann synti ítrekað með hraði frá yfirborði
niður í djúp Norður-Atlantshafsins og
dýpst fór hann niður á um 600 metra dýpi.
Uppsjávareðli laxins var þó á sínum stað
því mest hélt hann sig í efstu lögum sjávar
og gjarnan alveg við yfirborð að kvöldi og
nóttu, að sögn Jóhannesar Sturlaugssonar,
líffræðings hjá Laxfiskum. Annar mæli-
merktur lax frá fyrirtækinu, sem merktur
var í Botnsá í Hvalfirði, stakk bakinu og
um leið merki sem hann bar, ítrekað upp
fyrir yfirborð sjávar á ferðum sínum á
kvöldin og nóttunni. Skráningar mæli-
merkjanna frá þessum tveimur löxum sýna
öfgar í lífi laxins allt frá öldutoppum og
niður í myrkvuð undirdjúp.
Synti í suðvestur
Þegar ferðir mælimerkta laxins úr
Skógá eru skoðaðar sést að hann synti úr
ánni í vor og á hlý mið í hafinu suður og
suðvestur af landinu. Á hringferð sinni hef-
ur laxinn að lágmarki lagt að baki mörg
hundruð kílómetra. „Á slíkum langferðum
sem geta náð upp í þúsundir kílómetra, er
annáluð ratvísi laxins eitt af lykilatrið-
unum sem við sögu koma,“ segir Jóhannes.
„En hluti þeirra miklu sunddýfa sem mæld-
ar hafa verið hjá laxi í rannsóknum mínum
endurspegla ákveðið atferli sem hann beit-
ir til að átta sig og rata, svo sem þegar
hann fer um straumaskil.“ | 6
Hængurinn úr Skógá var orðinn vænn eft-
ir sumarfríið í úthafinu þar sem hann kaf-
aði ítrekað niður á allt að 600 metra.
Öfgar í
lífi laxins
í hafinu
KIRKJUBEKKIR Hallgrímskirkju voru þétt setnir í
svonefndri Regnbogamessu sem fram fór í gær. Lauk
Hinsegin dögum formlega með guðsþjónustunni.
Séra Pat Bumgardner prédikaði og var öllum vel-
komið að sækja guðsþjónustuna. Jafnframt tóku
nokkrir íslenskir prestar þátt í athöfninni auk fjölda
tónlistarfólks.
ÁST – Áhugahópur samkynhneigðra um trúarlíf
stóð að Regnbogamessunni í samvinnu við Hinsegin
daga. | 40
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gerður af meistarans höndum
ÞEIM Bretum sem eiga sjónvarp
með plasma-flatskjá fjölgar hratt
en þessi þróun veldur stóraukinni
orkuþörf, að sögn breska dagblaðs-
ins The Guardian. Nýju plasma-
sjónvörpin geta þurft allt að fjórum
sinnum meira rafmagn en gömlu
túbutækin. Hefur blaðið eftir dr.
Joseph Reger, yfirmanni tækni-
mála hjá Fujitsu Siemens-
tölvufyrirtækinu í München í
Þýskalandi, að aukna orkuþörfin
svari til þess að reisa verði tvö
kjarnorkuver í Bretlandi eingöngu
vegna plasmaskjánna.
„Ef allir plasmaskjáirnir [í Bret-
landi] væru í gangi samtímis þyrftu
þeir um 2,5 gígavött,“ segir Reger.
„Þessa orku væri hægt að fram-
leiða með tveim kjarnorkuverum.“
En Reger segir að þegar allt sé tínt
til í stafrænu byltingunni sem sé að
ganga í garð á heimilinu, þ. á m. ný-
ir DVD-spilarar og upptökutæki,
geti aukin orkuþörf Breta orðið allt
að sex gígavött samanlagt.
Um fjórðungur allrar losunar á
koltvísýringi í andrúmsloftið stafar
af orku til heimilisnota eða álíka
hlutfall og vegna samgangna.
Margir skilja sjónvarpstæki sín og
DVD-spilara eftir í biðstöðu en
slökkva ekki á þeim; þetta eitt út af
fyrir sig merkir að milljón tonn af
koltvísýringi að auki fara út í loftið
árlega.
Reger er þó bjartsýnn og segir
að hagkvæmari tækni muni leysa
plasmaskjáina af hólmi en það geti
tekið allmörg ár. Aukin umhverf-
isvitund meðal almennings muni
valda því að fólk kaupi framvegis
tæki með merkingu eins og „Sér-
lega lítil rafmagnsnotkun í bið-
stöðu“.
Orkubruðl
að nota
plasmaskjá
Boulogne-Sur-Mer. AFP. | Tugir lög-
reglumanna, sumir vopnaðir
haglabyssum, reyna nú að finna
dularfullt, svart kattardýr sem
sést hefur á sveimi í norðanverðu
Frakklandi. Aðgerðin hófst sl.
miðvikudag þegar felmtri slegið
fólk sagðist hafa séð pardusdýr á
vinsælli baðströnd við borgina
Boulogne-Sur-Mer.
Um 80 lögreglumenn og þyrla
voru send á staðinn og ströndinni
var lokað en ekkert fannst. Belg-
ískir ferðamenn og fólk sem býr á
staðnum sagðist um helgina hafa
séð dýrið.
Lögreglumaður sá það loks í
sjónauka. „Þetta er dökkt eða
svart kattardýr, býsna stórt, ekki
mjög hátt en langt. Þetta er ekki
pardusdýr en stórt kattardýr,
a.m.k. metri að lengd,“ sagði einn
lögreglumannanna. Dýrið flýr
ávallt inn í skóga þegar reynt er
að ná því. Ekki er vitað hvaða teg-
und er um að ræða og sirkus í
grenndinni segist ekki hafa misst
nein dýr frá sér.
Dularfullt
kattardýr
á sveimi
JAFNT Ísraelar sem Hizbollah-samtökin heita því
að virða vopnahléið sem öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna samþykkti á föstudag en ljóst er að ólík
túlkun deiluaðila á skilmálunum getur orðið til að
átökin haldi áfram. Klofningur var í ríkisstjórn
Líbanons í gær vegna deilna um framkvæmd
vopnahlésins en það á að taka gildi klukkan fimm
fyrir hádegi í dag að ísl. tíma. Var stjórnarfundi
slitið án samkomulags.
Skilmálar vopnahlésins um afvopnun vígasveita
Hizbollah sunnan Litani-ár í Suður-Líbanon eru
sagðir valda deilunum. Hizbollah, sem hefur tvo
ráðherra af 15 í stjórninni, hefur barist við
ísraelskt innrásarlið á svæðinu síðustu vikurnar og
skotið fjölda flugskeyta á Ísrael.
Stjórn Ísraels samþykkti tillöguna um vopnahlé
í gærmorgun en hefur krafist þess að sveitir Hiz-
bollah verði afvopnaðar, fyrr yfirgefi Ísraelsher
ekki svæðið. Ályktun öryggisráðsins á föstudag var
Brown, aðstoðarframkvæmda-
stjóri SÞ, sagði í gær í viðtali við
breska ríkisútvarpið, BBC, að
tekið gæti allt að mánuð fyrir
gæsluliðið að koma sér fyrir á
svæðinu.
Ísraelar héldu uppi hörðum
árásum á skotmörk í Líbanon í
gær, þ. á m. í Týrus og höfuð-
borginni Beirút. Var fullyrt að
þeir hefðu talið Nasrallah vera í
húsaþyrpingu sem þeir sprengdu í tætlur en sjón-
varpsstöð Hizbollah sagði hann ekki hafa verið á
staðnum. Ljóst virðist að þorri þeirra Líbana sem
hafa fallið eru óbreyttir borgarar. Hafa bæði Ísr-
aelar og háttsettir embættismenn SÞ sakað Hiz-
bollah-menn um að reyna eftir mætti að hafast við
innan um óbreytta borgara, nota þá sem „mann-
lega skildi“ til að gera erfiðara fyrir Ísraelsher að
hlífa óbreyttum borgurum. Alls hafa rösklega 1.100
manns fallið í átökunum síðustu vikurnar, um 1.000
Líbanar og vel á annað hundrað Ísraelar.
túlkuð svo að samtímis því sem Ísraelar hyrfu með
her sinn frá S-Líbanon myndu líbanski herinn og
væntanlegt, erlent friðargæslulið afvopna sveitir
Hizbollah sunnan Litani.
Gæti tekið mánuð að koma alþjóðlega
friðargæsluliðinu á staðinn
Líbanska stjórnin sagði þegar á laugardag að
hún samþykkti vopnahlé. En sama dag lét leiðtogi
Hizbollah, Sayyed Hassan Nasrallah, svo um mælt
að liðsmenn hans áskildu sér rétt til að berjast
gegn ísraelskum hermönnum „meðan þeir eru á
ferli í landi okkar, gera þar árásir eða hernema
það“.
Allmargar þjóðir hafa þegar boðist til að leggja
fram hermenn í friðargæsluliðið. En Mark Malloch
Segjast virða vopnahlé SÞ
Klofningur í Líbanons-
stjórn vegna skilmála
um afvopnun Hizbollah
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Hassan Nasrallah
♦♦♦