Morgunblaðið - 14.08.2006, Síða 6

Morgunblaðið - 14.08.2006, Síða 6
6 MÁNUDAGUR 14. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR LAX úr Skógá undir Eyjafjöllum, sem merktur var í vor af Jóhannesi Sturlaugssyni, líffræðingi hjá rann- sóknafyrirtækinu Laxfiskum, sýndi að laxar fara miklu dýpra á ferðum sínum í úthafinu en hingað til hefur verið talið. Rafeindafiskmerki er lax- inn, sem er hængur, bar, sýndi að hann synti ítrekað með hraði frá yf- irborði niður í djúp Norður-Atlants- hafsins og dýpst fór hann niður á um 600 metra dýpi eða sem samsvarar hæð Hallgrímskirkju ríflega sjö sinn- um. Uppsjávareðli laxins var þó á sín- um stað því mest hélt hann sig í efstu lögum sjávar og gjarnan alveg við yf- irborð að kvöldi og nóttu. Að deginum fór fæðuöflunin yfirleitt fram á 20–50 metra dýpi. Annar mælimerktur lax frá rann- sóknamerkingum Laxfiska, sem merktur var í Botnsá í Hvalfirði, sýndi enn sterkar þá tilhneigingu laxa að fara um nálægt yfirborði sjáv- ar. Þannig sýndu mælingar selt- unema sem merki þess fisks bar að laxinn stakk bakinu og um leið merki sínu ítrekað upp fyrir yfirborði sjávar á ferðum sínum í sumar að kvöldi og nóttu sem vísar til þess að eitthvert góðgæti hafi þá verið í boði í bláyfir- borðinu, að sögn Jóhannesar. Skráningar mælimerkjanna frá þeim tveimur löxum sem þegar hafa verið endurheimtir í sumar sýna öfg- ar í lífi laxins allt frá öldutoppum og niður í myrkvuð undirdjúp og allt þar á milli. Sótti á hlý mið Þegar ferðir mælimerkta laxins úr Skógá eru skoðaðar sést að hann synti úr ánni í vor og á hlý mið í haf- inu suður og suðvestur af landinu. Á því ferðalagi komst hann í feitt, ef svo má að orði komast, því hann þyngdist um tæp tvö kíló í „sumarfríinu“. Hann sneri svo aftur í ána nú fyrir skömmu. Á þessari hringferð sinni hefur laxinn að lágmarki lagt að baki mörg hundruð kílómetra. „Á slíkum langferðum sem geta náð upp í þús- undir kílómetra, er annáluð ratvísi laxins eitt af lykilatriðunum sem við sögu koma,“ segir Jóhannes. „En hluti þeirra miklu sunddýfa sem mældar hafa verið hjá laxi í rann- sóknum mínum endurspegla ákveðið atferli sem hann beitir til að átta sig og rata, svo sem þegar hann fer um straumaskil.“ Mælt á 30 sekúndna fresti Þær niðurstöður sem nú þegar eru komnar í hús hjá Laxfiskum yfir heildarsjóferðir laxa telja hundruð þúsunda skráninga frá hundruðum skráningadaga þar sem atferli og um- hverfi laxins er mælt, stundum á allt að 30 sekúndna fresti. Mælitækin sem fiskarnir báru eru frá íslenska fyrirtækinu Stjörnu-Odda. Merkin mæla fiskdýpi og hitastig og sum einnig seltu. Upplýsingar gefa færi á að kortleggja ýmsa hegðun laxanna sem og dreifingu þeirra í hafinu. Um leið gefst tækifæri til að álykta um ýmsa þætti því tengdu sem snerta ferðalag fiskanna í hafi bæði samhliða ætisleit þeirra og einnig hvað varðar ferðir þeirra aftur heim í árnar til hrygningar. Að sögn Jóhannesar eru rannsókn- ir fyrirtækisins Laxfiska þær fyrstu á heimsvísu þar sem náðst hefur að mæla ferðalag Atlantshafslaxins í sjónum í heild með hliðsjón af fisk- dýpi og umhverfishita allt frá því að hann yfirgefur ána og heldur á æt- isslóð í hafi þar til hann gengur á ný í ána til hrygningar. Að sögn Jóhannesar fengust fyrstu gögnin af þessum toga á síðasta ári og nú eru frekari gögn væntanleg. Þau munu gera það mögulegt að stað- setja laxinn innan þeirra hafsvæða sem hann fer um. Staðarákvörðun laxanna í sjó er gerð með samanburði á þeim sjávarhita sem laxinn upplifir á ferðum sínum við önnur sjávarhita- gögn, m.a. frá sniðmælingum Haf- rannsóknastofnunar og frá mæling- um gervitungla. Með því móti hefur m.a. mátt sjá að laxarnir voru snöggir að koma sér á haf út eftir að ánni sleppti, segir Jóhannes. Upphaf rannsóknanna var styrkt af Rannís og Fiskræktarsjóður styrkti merkingarnar 2006. Hængurinn var um 2 kg þegar hann var merktur í Skógá í vor en var orðinn tæp fjögur kg þegar hann veiddist í ánni í byrjun ágúst. Fyrirtækið Laxfiskar rannsakar atferli og umhverfi laxa í sjó með rafeindafiskimerkjum Synti ítrekað með hraði nið- ur á 600 m dýpi SJÓSUNDKAPPINN Benedikt S. Lafleur, sem hyggst synda Erm- arsundið til þess að vekja athygli á mansali, þurfti að hverfa frá sundi á laugardaginn þegar hann synti annan áfanga Reykjavík- ursundsins. Í kjölfarið ákvað Benedikt að hætta við að synda þriðja áfanga sundsins, þar sem það þjónaði engum sérstökum til- gangi lengur. Benedikt komst í hann krappan á laugardaginn þegar hann ætlaði synda frá bækistöð Lýsis í Örfirisey að Bakkavör á Seltjarnarnesi. Eftir rúmlega 5 km sund var skyggni orðið svo lélegt að hann tapaði áttum og björgunarsveitarmenn sem fylgdu honum gátu ekki lengur ábyrgst öryggi hans. „Sundið gekk mjög vel framan af og ég fékk vind sem ýtti mér nánast að Gróttu. Það fór hins vegar mikill tími og orka í að synda fram fyrir Gróttu og þá straumakvörn sem þar er og eftir það fór skyggnið að leika okkur björgunarsveitarmenn grátt,“ segir Benedikt. Hann segir að þótt sundið hafi ekki tekist hafi hann öðlast ómetanlega reynslu og nýja þekkingu sem muni reyn- ast honum dýrmæt í Ermarsund- inu. Hann segist nú búa yfir auknu úthaldi og kuldaþoli og hafa aukna reynslu af glímunni við sjávaröflin auk þess sem hann hafi fundið nýja og betri leið til þess að nærast á meðan á sund- inu stendur. „Það er gríðarlega mikilvægt fyrir sjósundmenn að finna rétta fæðu á sundinu þar sem ógleði gerir vart við sig vegna seltu sjósins og næring- arskorts“ segir Benedikt og kveð- ur leynivopnið við sjávarógleði vera blöndu af aloe vera og tei. Benedikt heldur út til Englands á morgun þar sem hann mun meðal annars þreyta sex tíma sundpróf sem allir sem hyggjast synda yfir Ermarsundið þurfa að taka. 26. ágúst kemur samstarfsfólk Bene- dikts til Englands og í kjölfarið mun hann gera tilraun til þess að komast yfir sundið. Mikill áhugi og hlýhugur Sundleiðin um Ermarsund er á milli 32 til 35 km löng og tekur það þaulvana sjósundmenn frá 11 til 16 klukkutíma að synda yfir. Benedikt segist hafa fundið fyrir miklum áhuga á sundinu og hlý- hug bæði frá fyrirtækjum og ein- staklingum sem hafa styrkt hann. Talsvert vanti þó upp á almennan fjárstuðning til þess að endar nái saman hjá sér. Benedikt segist þess þó fullviss að Íslendingar muni taka við sér þegar hann syndir Ermarsundið og sýni því verðuga málefni sem hann hefur vakið athygli á dyggan stuðning. Morgunblaðið/Árni Sæberg Benedikt S. Lafleur lét engan bilbug á sér finna í ísköldum sjónum. Benedikt neyddist til að hætta sundi AÐ BAKI verkefnavali Íslensku friðargæslunnar virðist ekki liggja nein greining á því hvar Íslendingar geta gert mest gagn, að sögn Þórunnar Svein- bjarnardóttur, þingmanns Sam- fylkingar og full- trúa í utanríkis- málanefnd þingsins. Hún segir verkefna- valið bera það með sér að það sem hafi stýrt því á undanförnum árum séu „kröfur annarra til okkar um að taka þátt í samvinnu og þá fyrst og fremst á vegum Atlants- hafsbandalagsins, en ekki stefnu- mótun heima fyrir um hvernig við viljum beita okkur í friðargæslumál- um eða friðaruppbyggingu hvers konar“, segir Þórunn. Íslendingar hafi hvorki þjálfun, burði né þekk- ingu til að sinna friðargæslustörfum sem krefjast vopnaburðar. Það geri hins vegar velflest þeirra verkefna sem Íslendingar hafi kosið að taka þátt í og þetta komi til vegna þess að unnið sé með NATÓ. „Verkefnin hafa valið okkur en við ekki þau,“ segir Þórunn. Hún segir Samfylk- inguna margoft hafa bent á að til séu alls kyns önnur nærtækari verk- efni sem flokkist til uppbyggingar og friðaruppbyggingar að loknum stríðsátökum. Um sé að ræða verk- efni í stjórn-, veitu- og upplýsinga- kerfum og í menntun, heilsugæslu og öðru slíku. „Þar höfum við reynslu og þekkingu og getum beitt okkur mjög vel,“ segir Þórunn. 573 milljónir renna til Íslensku friðargæslunnar á árinu Þórunn bendir á að háar fjárhæð- ir renni til Íslensku friðargæslunn- ar. Á fjárlögum þessa árs nemi þær 573 milljónum króna og þetta sé verulegur hluti þess sem stjórnvöld reikni til þróunarsamvinnu. Nefna megi að samkvæmt fjárlögum ársins renni 660 milljónir króna til þróun- armála og alþjóðlegrar hjálparstarf- semi. „Síðan þegar eitthvað gerist, en auðvitað getur alltaf eitthvað komið fyrir í hættulegum verkefnum, er eins og menn vakni upp við vondan draum og það rennur upp fyrir ráða- mönnum og öðrum að þetta geta verið mjög hættuleg verkefni. Það er auðvitað ábyrgðarhluti að senda fólk í slík verkefni og það hefur komið í ljós að þegar menn lenda í hættu eru menn hér heima ekki eins tilbúnir til þess að styðja við þessi verkefni og þeir væru ella,“ segir Þórunn. Um norrænu friðargæslusveitirn- ar á Sri Lanka segir Þórunn að verkefnið þar hafi gengið mjög vel, en hins vegar hafi aðstæður breyst mjög mikið. Það sé þó nokkuð sem menn verði að búa sig undir að geti gerst. „Ég er ekki endilega viss um að það séu rétt viðbrögð að segja að nú verðum við að hætta þessu því þetta sé orðið of hættulegt. En það verður hins vegar að fara mjög vel í gegnum það hvað við getum gert þarna eða hvort ástandið í landinu kalli á það að það þurfi að kalla fólk heim og það á þá væntanlega við um alla friðargæsluliða sem eru þar.“ Segir enga greiningu hafa verið gerða á hvar Íslendingar geti gert mest gagn í friðargæslu Verkefnaval mótast af kröfum annarra Þórunn Svein- bjarnardóttir Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is VALGERÐUR Sverrisdóttir utan- ríkisráðherra mun eiga fund með Jonas Gahr Störe, utanrík- isráðherra Noregs, í dag, þar sem ástandið á Sri Lanka verður meðal umræðuefna, en rætt hefur verið um þörfina á að fjölga íslenskum og norskum friðargæsluliðum eftir að hin Norðurlöndin drógu sig út úr friðargæslu í landinu. Að sögn Sig- fúsar Inga Sigfússonar, aðstoð- armanns Valgerðar, verða málefni friðargæslunnar rædd á fundinum, en þar verður ekki tekin ákvörðun um hvort íslenskum friðargæslulið- um verði fjölgað. Hann segir að ákvörðun um það verði þó líklega tekin í þessari viku. Ekki tekin ákvörðun um friðargæslu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.