Morgunblaðið - 14.08.2006, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 14.08.2006, Qupperneq 8
8 MÁNUDAGUR 14. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Skráðum einkahluta-félögum hefurfjölgað mjög hér á landi á undanförnum ár- um, eins og fram kom sl. miðvikudag í fréttaskýr- ingu Morgunblaðsins um skattamál. Lög um einka- hlutafélög tóku fyrst gildi árið 1994 en árið 2004 fór fjöldi félaganna í fyrsta sinn yfir 20 þúsund. Í dag er 25.631 einkahlutafélag skráð hjá ríkisskattstjóra, en stærstur hluti þessara einkahlutafélaga er stofn- aður utan um rekstur ein- yrkja. En hver eru áhrif fjölgunar einkahlutafélaga á tekjur ríkisins og á tekjur einstakra sveitarfé- laga? Að sögn Indriða H. Þorláksson- ar ríkisskattstjóra hefur ekki ver- ið gerð úttekt á því hver áhrif laga um einkahlutafélög og fjölgun þeirra hafa haft á tekjur ríkisins. „Í sjálfu sér má reikna með því að með fjölgun félaganna hafi tekjur ríkisins af hlutafélögum aukist, en á móti kemur að rekstur í öðru formi, þ.e.a.s einstaklingsrekstur, hann hefur dregist saman,“ segir Indriði. Heildaráhrif þessa hafi ekki verið metin. Fram kemur í tölum á vef ríkisskattstjóra að fjöldi starfandi einstaklinga, sem reikna sér endurgjald [laun] hefur minnkað með árunum. Í tölum um rekstrarhagnað einstaklinga, sem þeir telja til tekna af atvinnu- rekstri fyrir utan hið reiknaða endurgjald, er einnig um minnkun að ræða, bæði í krónum talið sem og hlutfallslega. Árið 1993 nam reiknað endurgjald einstaklinga rúmum 12,6 milljörðum króna, en 2004 var það 11,6 milljarðar króna. Séu tölur um hreinar tekjur af atvinnurekstri skoðaðar komi hið sama í ljós. Árið 1993 námu þær 5,5 milljörðum króna, en voru 4,1 milljarður króna árið 2004. Indriði segir þessar tölur sýna að á tímabilinu 1993–2004 hafi tekjur af atvinnurekstri sem koma til skattlagningar hjá ein- staklingum minnkað verulega. „Þetta er fyrst og fremst afleiðing af því að þessir aðilar, sem áður störfuðu sem sjálfstætt starfandi einstaklingar, hafa fært sinn rekstur yfir í hlutafélög. Þá kem- ur skattlagningin fram hjá félög- unum og er partur af skýringunni á því að tekjur af félögum hafa aukist. Að hluta til er það bara til- færsla á milli. Hvort tekjur hjá einstaklingum hafi minnkað meira eða minna heldur en aukningin hjá félögunum, það hefur ekki verið kannað,“ segir Indriði. Skatttekjur m.a. aukist vegna einkavæðingar banka Skatttekjur ríkisins af rekstr- arhagnaði hlutafélaga hafa aukist á undanförnum árum en þær fóru úr 4 milljörðum króna árið 1991 í 13,6 milljarða árið 2004, að sögn Indriða, en skatthlutfallið lækkaði úr 30% í 18% árið 2002. Indriði segir erfitt að útskýra með ein- földum hætti hvers vegna skatt- tekjur af rekstrarhagnaði hluta- félaga hafi hækkað. Hluti skýringarinnar sé þó sá að félög- unum hafi fjölgað mjög mikið, meðal annars vegna þess að ein- staklingsrekstur hafi færst yfir í þau. „Annað er að á þessum árum eru að koma inn í skattgreiðslur stóru félögin, þ.e.a.s fjármála- stofnanir. Meðan bankarnir voru reknir sem ríkisbankar og störf- uðu með allt öðrum hætti voru þeir nánast engir skattgreiðend- ur,“ segir Indriði. Ríkissjóður geri ráðstafanir Fram kom í fréttaskýringu Morgunblaðsins á miðvikudag að þegar einstaklingar eru eingöngu með fjármagnstekjur, eða reikna sér lágmarkslaun í gegnum einka- hlutafélagið sitt og taka afganginn sem fjármagnstekjur, verði sveit- arfélögin af tekjum vegna útsvars sem þau hefðu fengið ef þessir einstaklingar hefðu eingöngu launatekjur. Var haft eftir Gunn- laugi A. Júlíussyni, sviðsstjóra hag- og upplýsingasviðs Sam- bands íslenskra sveitarfélaga, að sennilega verði sveitarfélögin í landinu af um 800–1.000 milljón- um á ári vegna þessa. Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segir bæjar- félagið ætla að skoða þessi mál næstu daga, meðal annars vegna þeirrar umræðu sem átt hafi sér stað. „[Við] höfum að sjálfsögðu þungar áhyggjur af þessu eins og önnur sveitarfélög,“ segir Elliði, sem telur líklegt að Vestmanna- eyjabær hafi orðið fyrir umtals- verðum tekjumissi vegna útsvar- smissis. Talsvert sé um einkahlutafélög í kringum útgerð- ir og í iðnaði í Vestmannaeyjum. Hann kveðst telja „mjög mikil- vægt að ríkissjóður grípi til ráð- stafana til að vega upp á móti þessum tekjumissi sveitarfélag- anna“ komi það í ljós að sveitar- félögin séu að verða af tekjum vegna þessa fyrirkomulags. „Þá er það alveg ljóst að það þarf að vega upp á móti tekjumissi sveit- arfélaganna, hvort sem það er með breytingu á skiptingu útsvars og skatts eða með öðrum leiðum. En hins vegar er það rétt sem komið hefur fram að þetta eru við- kvæmar breytingar ef gera á og betra að stíga varlega niður.“ Fréttaskýring | Fjölgun einkahlutafélaga og tekjur ríkis og sveitarfélaga Heildaráhrif ekki metin Skatttekjur af rekstrarhagnaði hlutafélaga aukast þótt skatthlutfall hafi lækkað Frá Vestmannaeyjum. Skoðað hvort sveitarfélög fái hluta virðisaukaskatts  Halldór Halldórsson, bæj- arstjóri Ísafjarðar, segir bæinn telja sig hafa orðið af útsvar- stekjum vegna fjölgunar ein- staklinga sem eru aðeins með fjármagnstekjur eða reikna sér lágmarkslaun í gegnum einka- hlutafélag sitt og taka afganginn sem fjármagnstekjur. Skoða þurfi hvort sveitarfélögin í land- inu eigi ekki að fá hlutdeild í virðisaukaskatti eða fjármagns- tekjuskatti. Nauðsynlegt sé að víkka tekjustofn sveitarfélag- anna. Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is EVRÓPUMEISTARAMÓTINU í mýrarbolta á Ísafirði 2006 er lokið en það fór fram í Tungudal um helgina. Mótið fór fram í blíðskaparveðri og heppnaðist vel og voru keppendur ánægðir með daginn, segir á heima- síðu Mýrarboltafélags Íslands, myrarbolti.com. Alls tóku 26 lið þátt í því, sautján karlalið og níu kvenna- lið. Samtals voru 242 keppendur í þessum liðum. Á heimasíðu félagsins kemur fram að mýrarknatt- spyrna eigi rætur sínar að rekja til sumaræfinga finnskra gönguskíðakappa sem vildu fá fjölbreytni í æfingarnar yfir sumartímann. Í skóglendi N- Finnlands er að finna talsvert mýrlendi sem myndast á auðum blettum í skóginum, eftir að tré hafa verið höggvin. Á einu slíku svæði var byrjað að spila knatt- spyrnu á litlum velli. Í upphafi var þetta eingöngu til skemmtunar en þróaðist fljótlega yfir í keppni þar sem lítil mót voru haldin á svæðinu. Fyrir fjórum ár- um var byrjað að skipuleggja stærra mót í kringum þessa furðulegu íþróttagrein og í stuttu máli er þetta í dag orðið einn stærsti viðburðurinn í N-Finnlandi yfir sumartímann. Alls 270 lið taka þátt í „heims- meistaramótinu“ árlega. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns Barist um boltann í mýrinni UM 40 þúsund manns komu saman á Dalvík um helgina, á Fiskideg- inum mikla sem þar var haldinn í sjötta sinn. Aldrei áður hafa svo margir sótt Dalvíkinga heim á Fiskidegi. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, var heið- ursgestur dagsins að þessu sinni. Hann lauk miklu lofsorði á Dalvík- inga í ávarpi sínu, gestrisni þeirra væri einstök, en fjölmargir bæj- arbúar opnuðu heimili sín og buðu gestum upp á fiskisúpu á föstu- dagskvöld. Það hefði verið þeim hjónum ógleymanlegt, að fá tæki- færi til að líta inn á heimili og njóta gestrisni heimamanna. Svo hefði tekið við heilmikil fiskiveisla, tugir tonna af fiski voru á boð- stólum fyrir gesti og þetta bæri vott um mikinn stórhug heima- manna. Fiskidagurinn væri óður til hafsins, hann líkti hátíðinni við það að sjómannadegi og 17. júní hefði verið steypt saman í eina stórhátíð, þjóðinni allri hefði verið boðið til matarveislu. Fiskidagurinn væri eins konar kraftaverk. Bökuðu saltfiskvöfflur Alls var boðið upp á 14 fiskrétti, m.a. rétti sem hvergi fyrirfinnast annars staðar í heiminum, en sem dæmi má taka að opnað var heil- mikið saltfiskvöffluhús á hafn- arbakkanum og stóðu margir sjálf- boðaliðar vaktina. Bökuðu saltfiskvöfflur ofan í þakkláta gesti, sem flestir kunnu vel að meta þessa nýjung. Þá var slegið Ís- landsmet, en framleidd var asísk fiskisúpa á staðnum í stærsta potti landsins. Skemmtidagskrá var í gangi allan daginn á tveimur svið- um og tróðu fjölmargir skemmti- kraftar upp við mikinn fögnuð gesta. Um 300 sjálfboðaliðar voru að störfum á Fiskideginum, enda veitti ekki af að þjónusta allan þann fjölda gesta sem sótti bæinn heim. Hvarvetna þar sem auðan blett var að finna hafði fólk komið sér fyrir, lagt húsbílum á bílaplön og tjaldbúðum komið upp á túni kringum Dalvíkurkirkju, þegar tjaldstæði bæjarins var orðið yf- irfullt. Aldrei fjölmennara á Fiskideginum mikla Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Dorrit Moussaieff, eiginkona hans, voru meðal þeirra sem sóttu Fiskidaginn mikla á Dalvík. Fjölmargir gestir hátíðarinnar skemmtu sér konunglega á Dalvík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.