Morgunblaðið - 14.08.2006, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. ÁGÚST 2006 9
FRÉTTIR
Mánudagur 14. ágúst
Eðalbuff m/sætri kartöflu
Þriðjudagur 15. ágúst
Aloo-Saag spínatpottur
Miðvikudagur 16. ágúst
Fyllt paprika m/brokkólísalati
Fimmtudagur 17. ágúst
Ítalskur pottur m/pastasalati
Föstudagur 18. ágúst
Próteinbollur m/cashewhnetusósu
Helgin 19.-20. ágúst
Karrý korma m/nanbrauði
SEXTÁNDA Pæjumótið í Siglufirði
fór fram um helgina. Þar mættu
tæplega 1.300 stelpur á aldrinum 5–
13 ára og léku fótbolta, alls 550 leiki.
Liðin sem voru um 130 talsins
komu víðsvegar að af landinu og
einnig voru blönduð lið frá tveimur
stöðum sem hvorugur náði í full-
skipað lið. Það er mikil barátta á
mótum sem þessu og mikil stemn-
ing á hliðarlínunni þar sem for-
eldrar og forráðamenn liðanna
hvetja sína menn og gefa óspart
skipanir inn á völlinn til leikmanna.
Mótið hófst á föstudegi í leið-
indaveðri en á laugardag og sunnu-
dag hélst þurrt og var bærilegt veð-
ur. Vellirnir voru því blautir og
þungir eftir mikla vætu und-
anfarnar vikur.
Aðalatriðið að hafa
gaman af þessu
Sigursælasta liðið á mótinu var
Stjarnan í Garðabæ. Þær hömpuðu
alls fimm gullverðlaunum í mótslok
og auk þess tvennum silfur- og
tvennum bronsverðlaunum. ÍR náði
tvennum gullverðlaunum og einum
silfurverðlaunum og KS á Siglufirði
og Fjölnir náðu einum gull-
verðlaunum hvort félag. Auk þess
hlaut KS ein silfurverðlaun. Þrjú
efstu lið í hverjum flokki fengu bik-
ar í verðlaun og allir keppendur
fengu verðlaunapening. Einnig fékk
prúðasta liðið í hverjum flokki við-
urkenningu. En í þessu móti gildir
það sem einn þjálfarinn sagði í
leikslok þegar hann huggaði einn
leikmanninn. „Þið stóðuð ykkur frá-
bærlega. Það geta ekki allir unnið
enda er aðalatriðið að hafa gaman af
þessu. Á næsta ári verðið þið enn
betri og þá tökum við bikarinn.“
1.300 stelpur tóku þátt
í Pæjumóti í Siglufirði
Morgunblaðið/Örn Þórarinsson
Stelpurnar í Þrótti Neskaupstað voru prúðasta liðið í 7. flokki.
FLUGFÉLAG Íslands hefur tekið í notkun
tvær 37 sæta DASH 8-flugvélar sem sinna
munu ýmsum verkefnum fyrir félagið.
Nemur heildarfjárfesting í tengslum við
kaup á vélunum um 10 milljónum Bandaríkja-
dala og er því um verulega stórt skref að
ræða fyrir Flugfélag Íslands. Eru kaupin
stærsta fjárfesting félagsins frá því það var
stofnað árið 1997, að sögn Árna Gunnars-
sonar, framkvæmdastjóra félagsins.
Segir í tilkynningu frá félaginu að grunn-
urinn að fjárfestingunni liggi í góðum rekstri
félagsins á undanförnum árum og þeim samn-
ingum sem gerðir hafa verið um notkun nýju
vélanna.
Hefur félagið samið við grænlensku heima-
stjórnina um flug til austurstrandar Græn-
lands til næstu 5 ára auk þess sem félagið
hefur flogið til vesturstrandar Grænlands á
vegum Arctic Travel Group.
Flugrekstur í miklum blóma
„Þessi fjárfesting sýnir að innanlandsflug
og flugrekstur á Reykjavíkurflugvelli er í
miklum blóma. Ef til vill ólíkt því sem margir
halda,“ segir Árni. „Við erum að leggja út í
þessar fjárfestingar með tilliti til þess að vel
sé búið að rekstri félagsins til frambúðar.“
Í tilkynningunni segir að farþegafjöldi
Flugfélags Íslands í innanlandsflugi hafi vax-
ið um rúmlega 30%. Fjöldi farþega á flugleið-
inni milli Reykjavíkur og Egilsstaða hafi tvö-
faldast og fjöldi farþega milli Reykjavíkur og
Akureyrar annarsvegar og Reykjavíkur og
Ísafjarðar hinsvegar vaxið á þessu tímabili
um hátt á annan tug prósenta.
Flugvélarnar koma til viðbótar þeim vélum
sem fyrir eru í flota félagsins sem eru af
gerðinni Fokker og Twin Otter.
„Framleiðslu á Fokker-vélunum hefur verið
hætt og við gerum því ráð fyrir því að DASH-
vélarnar muni taka við þeirra hlutverki þegar
endurnýjunar verður þörf,“ segir Árni, en auk
37 sæta véla er hægt að fá vélar með 50 sæt-
um og 78 sætum af gerðinni DASH.
Segir í tilkynningu frá flugfélaginu að
DASH 8-vélarnar hafi ýmsa eiginleika sem
ekki hafa verið í boði á íslenskum flugmark-
aði. Þær þurfi stutta flugbraut, þoli meiri
krossvind en sambærilegar vélar auk þess að
taka meiri frakt.
Flugfélag Íslands festir kaup
á tveimur nýjum flugvélum
ELÍN Arnar hefur verið
ráðin ritstjóri tímaritsins
Vikunnar. Elín er kvik-
myndagerðarmaður að
mennt og hefur unnið fjöl-
miðlatengd störf um nokk-
urt skeið, auk þess sem hún
hefur skrifað tvær barna-
bækur. Elín tekur við af
Kristjáni Þorvaldssyni, sem
hefur ritstýrt Vikunni síðan
í júlí, en hann mun snúa sér að öðr-
um verkefnum hjá tímaritaútgáfu
Fróða. Elín segist munu
halda því sem nú sé þegar til
staðar í blaðinu auk þess
sem til standi að bæta við
fréttum af konum og endur-
spegla það sem er að gerast í
þjóðfélaginu frá kvenlegu
hliðinni. „Það er von mín að
okkur takist að hleypa rödd-
um að sem hingað til hafa
ekki átt greiðan aðgang að
fjölmiðlum“ er haft eftir Elínu í til-
kynningu vegna ráðningarinnar.
Nýr ritstjóri Vikunnar
Elín Arnar
HRINGFERÐ ungu hjólreiðakapp-
anna þriggja sem hjóluðu kringum
Ísland til að kynna starfsemi Spes-
samtakanna lauk í gær þegar Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson borg-
arstjóri tók á móti þeim á Ingólfs-
torgi. Ásamt því að kynna starfsemi
Spes-samtakanna söfnuðu piltarnir
framlögum og áheitum fyrir sam-
tökin.
Af því tilefni mun borgarstjórinn
líka tilkynna um rausnarlega gjöf til
samtakanna, en allt fé sem Spes
aflar rennur til byggingar barna-
þorps fyrir foreldralaus börn í Tógó
í Vestur-Afríku.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Spes-ferð í kring-
um landið lokið
EVRÓPUMÓTIÐ í brids hófst í
Varsjá í Póllandi á sunnudag. Ís-
lenska landsliðið í opna flokknum
tapaði fyrir Búlgaríu, 9:21, í
fyrstu umferð en vann Írland,
18:12, í annarri umferð en alls eru
spilaðir 34 leikir á mótinu
Eftir tvær umferðir eru Íslend-
ingar um miðjan hóp með 27 stig
en Ítalir eru efstir með 45 stig.
Í dag spilar íslenska liðið við
Tyrki, Portúgala og Rússa.
Keppni í kvennaflokki hefst á
fimmtudag.
Evrópumótið í brids í Póllandi
Tap og sigur fyrsta daginn