Morgunblaðið - 14.08.2006, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 14. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Umræðan –
daglegt
málþing
þjóðarinnar
á morgun
UMFERÐARÓHAPP varð í Hval-
fjarðargöngunum á sjötta tím-
anum seinni partinn í gær er
fólksbifreið var ekið utan í gang-
avegg. Lögregla segir að óveru-
legar tafir hafi orðið á umferð
sökum þess að óhappið átti sér
stað þar sem þrjár akreinar eru í
göngunum. Því hafi verið hægt að
beina umferð í suðurátt inn á vest-
ari akreinina sem ætluð er umferð
í norður. Minniháttar meiðsl urðu
á fólki í slysinu.
Ók utan í ganga-
vegg í Hvalfirði
F
yrir rúmlega ári skráði
tveggja barna móðir úr
Hafnarfirði, Rebekka
Guðleifsdóttir, sig sem
notanda á ljósmyndav-
efnum flickr.com í þeim tilgangi að
hýsa þar portrettmyndir sem hún
hafði verið að dunda sér við og vildi fá
viðbrögð fólks við. Ljósmyndir not-
enda vefjarins vöktu smám saman at-
hygli hennar og hún fór að leika sér
með ofureinfalda stafræna myndavél í
kjölfarið. Þegar hún fór að birta af-
raksturinn létu viðbrögðin ekki á sér
standa og sífellt jókst fjöldi þeirra sem
skoðuðu síðu Rebekku. „Í kjölfarið af
því fékk ég mér almennilega mynda-
vél og hellti mér í þetta. Ég varð gjör-
samlega heltekin af þessu,“ segir Re-
bekka. Síðan þá hefur gestum
síðunnar fjölgað gríðarlega og nú er
svo komið að á annan tug þúsunda
gesta lítur á síðuna á hverjum degi til
þess eins að líta myndir Rebekku.S-
íðan er sú vinsælasta innan flickr.-
com-samfélagsins og talið að 1,6 millj-
ónir manna hafi lagt leið sína þangað á
rúmu ári. Rebekka hefur einnig feng-
ið viðbrögð við listsköpun sinni utan
netsamfélagsins og í sunnudagsblaði
breska dagblaðsins The Guardian,
Observer, auk þess sem Wall Street
Journal setti hana á lista yfir helstu
áhrifavalda innan samfélags nýrra
miðla eða „New Media Power List“
eins og blaðið kallaði listann. Á þeim
lista mátti meðal annars finna fyr-
irsætuna Christine Dolce, sem rekur
eina vinsælustu myspace-síðuna.
Áttaði sig ekki á möguleikum
ljósmyndunar sem listmiðils
„Ég ákvað að verða einhvers konar
listamaður á unga aldri og hef verið að
teikna síðan ég man eftir mér,“ segir
Rebekka. Hún hafði hins vegar aldrei
íhugað þann möguleika að verða ljós-
myndari, enda ekki litið á ljósmyndun
sem listmiðil út af fyrir sig fyrr en hún
kynntist henni af eigin raun. „Ég
nálgast ljósmyndun á annan hátt en
blaðaljósmyndari svo dæmi sé tekið.
Fyrst bý ég til myndina í huganum og
svo vinn ég með hana eins og málverk.
Ég skoða litasamsetningarnar í þaula
og virkilega leik mér að þeim áður en
ég lít á þær sem kláraðar,“ segir Re-
bekka. En það er ekki nóg að hafa list-
rænt innsæi, tæknikunnáttan verður
einnig að vera fyrir hendi þegar ljós-
myndir eru teknar og unnið er með
þær áfram í tölvu. Rebekka segist
hafa lagt mikla áherslu á að læra allt
sem viðkemur tæknilegu hliðinni og
að undanförnu hafi hún smátt og
smátt uppgötvað hina miklu mögu-
leika sem ljósmyndun býður upp á og
hún hafði ekki minnstu hugmynd um
að væru framkvæmanlegir fyrir rúmu
ári. „Sem dæmi má nefna næt-
urmyndatökurnar mínar sem fólki
virðist líka mjög vel við. Ég rakst á
mann sem var að taka myndir í kol-
niðamyrkri og spurði hann út í
tæknina. Í kjölfarið lagði ég mig fram
við að læra þetta og með því að hafa
ljósop vélarinnar opið í lengri tíma að
nóttu til fá myndirnar draumkenndan
blæ,“ segir Rebekka.
Mikið lagt á sig til að skapa
hrífandi stemmningu
Listsköpunin á hug Rebekku allan
og hún leggur margt á sig til þess að
gleðja aðdáendur sína og standa undir
orðstínum. „Ég hef margoft legið and-
vaka í sumarbirtunni og verið með
hugmynd í hausnum sem ég hef ekki
getað losnað við. Þetta endar með því
að ég tek með mér föt til skiptanna,
myndavélina mína, ljósastandinn og
þrífótinn og dríf mig af stað,“ segir
hún og heldur áfram „svo er ég að ves-
enast í tvo til þrjá tíma við að stilla
upp flassinu mínu og búa til furðu-
legar senur.“ Rebekka hefur verið
með krónískt kvef síðustu vikurnar
eftir að hafa hoppað berfætt í dögg-
votu grasi á köldu sumarkvöldi, til
þess eins að skapa réttu stemmn-
inguna fyrir eina mynd.
En hvað er það sem erlendir gestir
heimasíðu Rebekku sjá við myndir
hennar? „Ég virðist hafa stíl sem fólk
þekkir svo það tengir sjálft sig
kannski svolítið við myndirnar mínar,
enda nota ég oft sama viðfangsefnið.
Ég nota til að mynda sjálfa mig mjög
oft sem mótíf myndanna og ég held að
fólk hreinlega tengi sig við mig og
finnist það sem ég er að taka mér fyrir
hendur spennandi,“ segir hún. Að
jafnaði setur hún eina mynd inn á vef-
inn á hverjum degi og á annan tug
þúsunda skoðar hana og mörg hundr-
uð manns skilja eftir athugasemdir
um myndina og Rebekku er ýmist
hrósað í hástert eða dáðst að þokka og
útliti hins íslenska áhugaljósmyndara.
Rebekka er heldur ekki í nokkrum
vafa um að íslenskt landslag og norð-
urskautsbirtan hafi aðdráttarafl.
„Fólk sér ævintýraheim sem það
þekkir ekki í myndunum mínum, sér-
staklega þeir sem hafa aldrei komið til
Íslands,“ segir hún. „Fólk skilur held-
ur ekki hvers konar land þetta er, að
ung stúlka geti farið út um hádimma
nótt og dundað sér undir berum
himni, án þess að eiga það á hættu að
verða rænd,“ segir Rebekka.
„Þetta er mín köllun“
En hvað skyldi taka við hjá hinni
ungu Hafnarfjarðarmær sem hefur
skotið sér á stjörnuhimininn á ör-
skotsstundu? „Ég er í Listaháskól-
anum núna og ætla að einblína á það.
Það er gott að vera í námi og geta gert
tilraunir í stað þess að einblína á það
að fara vinna strax,“ segir Rebekka
sem hefur þó fullan hug á að gera ljós-
myndun að atvinnu sinni. Rebekka
hefur engu að síður tekið nokkur
skref í átt að atvinnumennsku. Hún
hefur séð um myndatöku fyrir tíma-
ritið Lífsstíl auk þess sem hún er nú
að vinna verkefni fyrir Toyota á Ís-
landi sem hún getur lítið tjáð sig um
að svo stöddu. „Svo er heilmikil eft-
irspurn á síðunni eftir útprentunum af
myndunum mínum þar sem þær eru
ekki í sérstaklega miklum gæðum á
síðunni. Ég hef hug á að koma upp
einhvers konar netverslun þar sem
fólk gæti pantað myndir sem ég
mundi prenta og senda út,“ segir Re-
bekka. „Annars gerist þetta allt svo
hratt. Ég hef ekkert verið að rembast
við að fá vinnu út á þetta, ég er bara
að læra og koma mér á framfæri.
Þetta er mín köllun, það er ekki nokk-
ur spurning,“ segir hinn upprennandi
ljósmyndari sem er gangandi sönnun
töfra netsins sem samskiptaforms.
Rebekka Guðleifsdóttir þykir hafa sérstæðan stíl og hefur getið sér gott orð fyrir ljósmyndir sínar
Gleður augu tug-
þúsunda gesta
á degi hverjum
Ljósmyndir/Rebekka Guðleifsdóttir
Þessa mynd tók Rebekka af sonum sínum, þeim Hauki og Bjarka.
Rebekka beið tímunum saman til að ná að mynda einlægan hlátur hestanna.
Sjálfsmynd listamannsins.
Eftir Friðrik Ársælsson
fridrik@mbl.is
NETIÐ hefur valdið gríðarlegri
byltingu á sviði miðlunarmenn-
ingar og gert fjölda fólks kleift
að koma list sinni á framfæri sem
hefði án atbeina netsins safnað
ryki í geymslum fólks. Einn
þeirra vefja sem listamenn nota
til að kynna efni sitt fyrir öðrum
listamönnum og almenningi er
ljósmyndavefurinn flickr.com.
Vefurinn er uppbyggður eins og
hinn feikivinsæli myspace-vefur
og þar getur fólk sem hefur
áhuga á ljósmyndum skoðað
myndir hvert annars, skilið eftir
skilaboð um hverja mynd og þar
með vakið athygli á sjálfu sér og
sinni nálgun á ljósmyndalistina.
Þannig leiðir eitt af öðru og til
verður stórt netsamfélag þar sem
hver og einn ljósmyndari á sér
sína félaga sem sækja vefinn
heim á degi hverjum og skilja eft-
ir skilaboð.
Netsamfélag
ljósmyndara
SLAGSMÁL brutust út á skemmti-
stað við Vegamótastíg á sjötta
tímanum aðfaranótt sunnudagsog
var einn af gestum staðarins sleg-
inn og snúinn niður með þeim af-
leiðingum að nokkrar framtanna
hans losnuðu. Sá slasaði var flutt-
ur á slysadeild LSH til skoðunar
og aðhlynningar. Ofbeldismað-
urinn flúði af vettvangi og hefur
ekkert spurst til hans að sögn lög-
reglu. Ekki er vitað hvort menn-
irnir þekktust áður.
Tennur slegnar
úr manni