Morgunblaðið - 14.08.2006, Side 12

Morgunblaðið - 14.08.2006, Side 12
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Sekt Lyfjafyrirtækið GlaxoSmithKline mun greiða um 5 milljarða ís- lenskra króna vegna ásakana um of háa verðlagningu á lyfjum. BRESKA lyfjafyrirtækið Glax- oSmithKline hefur fallist á að greiða 70 milljónir bandaríkja- dollara, um 5 milljarða íslenskra króna, í dómsátt í Bandaríkjun- um vegna ásakana um of háa verðlagningu á lyfjum fyrirtæk- isins. Einstaklingar, trygginga- félög og sex ríki höfðu sett fram ásakanir á hendur fyrirtækinu. Frá þessu er greint í frétt á fréttavef BBC-fréttastofunnar. Í september á síðasta ári greiddi GlaxoSmithKline 150 milljónir dollara, eða tæplega 11 milljarða króna, til bandarísku alríkisstjórnarinnar vegna verð- lagningar á lyfjum sem heilbrigð- isstofnanir höfðu keypt af fyr- irtækinu. Í frétt BBC segir að þótt Glax- oSmithKline hafi samþykkt að greiða umræddar greiðslur til að ljúka þeim málum sem höfðuð hafi verið gegn fyrirtækinu, þá felist ekki í því viðurkenning á cut-ríkis, Richard Blumenthel, að þessi málalok séu sigur fyrir þá sem hafi höfðað mál á hendur fyrirtækinu. því að það hafi gert eitthvað rangt. Aðalatriðið sé að ljúka þessum málum. Hins vegar er haft eftir saksóknara Connecti- Greiða bætur vegna of hárr- ar verðlagningar á lyfjum andi gengi norsku krónunnar hefðu haft áhrif á afkomuna. Christian Rynning-Tønnesen, forstjóri Norske Skog, sagði í morgun að fækkað yrði í hópi yfirmanna hjá félaginu en einnig verði starfsfólki fækkað í verksmiðjum. Ekki kom fram hvar uppsagnirnar yrðu mest- ar, en fyrirtækið sagði að dregið yrði úr framleiðslu í Suður-Kóreu þar sem eftirspurn eftir dagblaða- pappír hefði minnkað um 20% á undanförnum fjórum árum. NORSKI dagblaðapappírsframleið- andinn Norske Skogindustrier ASA tilkynnti fyrir helgi að tap á öðrum ársfjórðungi hefði numið 180 millj- ónum norskra króna og 20-faldast frá sama tímabili í fyrra. Gripið yrði til víðtækrar endurskipulagn- ingar á rekstrinum og fækkað yrði um 1.000 störf hjá fyrirtækinu en alls vinna 9.400 manns hjá fyrir- tækinu. Fyrirtækið sagði að kostnaðar- söm endurnýjun tækja og hækk- Norske Skog segir upp þúsund starfsmönnum Morgunblaðið/Jim Smart Uppsagnir Vegna taps mun norski pappírsframleiðandinn Norske Skov segja upp um 1.000 starfsmönnum, en nú starfa um 9.400 hjá fyrirtækinu. 12 MÁNUDAGUR 14. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● JAPANSKI bílaframleiðandinn Honda stendur í ströngu þessa dag- ana þar sem verið er að setja á laggirnar rekstrarein- ingu í Banda- ríkjunum, Honda Airc- raft Company, sem ætlað er að hafa um- sjón með fram- leiðslu fyrstu Honda-þotunnar en áætlað er að hún muni taka á loft árið 2010, að því er segir í frétt á fréttavef BBC. Þotan mun vera sjö sæta en einingin er undir stjórn verkfræðingsins Michimasa Fujino, sem hefur haft smíði Honda- þotunnar á sínum snærum síðustu 20 árin. Honda er eitt af mörgum fyr- irtækjum sem telja einkaþotumark- aðinn álitlegan þessi misserin, þar sem breyting hefur orðið á ferða- máta forstjóra fyrirtækja í Banda- ríkjunum, sem notast nú í auknum mæli við einkaþotur í starfi sínu vítt og breitt um landið. Forsvarsmenn Honda segja að þotan verði rúmbetri, hraðskreiðari og sparneytnari en hefðbundnar einkaþotur. Hafist verður handa við að taka á móti pöntunum í október næstkomandi þegar verð þotunnar verður gefið upp, að því er segir í frétt BBC. Fyrsta Honda-þotan tekur á loft árið 2010 ● Búist er við því að Baugur Group leggi á næstu dögum fram form- legt yfirtökutilboð í House of Fra- ser að því er kemur fram í frétt The Daily Telegraph. Samkvæmt heimildum breska blaðsins mun tilboðið hljóða upp á 148 pens á hlut, eða 350 milljónir punda (um 47 milljarða íslenskra króna) sam- tals. Áreiðanleikakannanir hafa verið í gangi frá því í vor og er bú- ist við því að tilboð Baugs verði lagt fram í síðari hluta þessarar viku. Samstarfsaðilar Baugs í yfirtök- unni eru HBOS bankinn, FL Group og Kevin Stanford, annar stofn- enda Karen Millen keðjunnar. Verði tilboðið samþykkt mun Don McCarthy verða stjórnarformaður House of Fraser, en hann seldi verslanakeðjuna Rubicon til Mosa- ic Fashions í síðasta mánuði. Styttist í yfirtöku- tilboð Baugs á HoF ● DAGBLAÐASTRÍÐIÐ í Danmörku mun vara nokkur ár og verður danskur dagblaðamarkaður aldrei samur að því loknu, að því er segir í frétt Berlingske Tidende. Segir þar að morgunblöðin muni lifa af átökin, en framtíð eftirmiðdagsblað- anna sé ekki eins örugg. Sérfræð- ingar segja að úrslitin muni ráðast á auglýsingamarkaðnum, og að stóru dönsku blöðin, eins og Berl- ingske og Politiken, sem nú stefna á útgáfu fríblaða, hyggist nýta sam- legðaráhrif slíkrar útgáfu við sölu auglýsinga. Áralöng barátta danskra dagblaða fram undan HANDBÆRT fé frá rekstri ríkis- sjóðs eftir fyrri árshelming 2006 jókst um 29,7 milljarða króna, sem er sextán milljörðum hagstæðari út- koma en á sama tíma í fyrra. Þá er útkoman 35 milljörðum hagstæðari en gert var ráð fyrir í áætlun. Tekjur reyndust um 17 milljörð- um hærri en í fyrra meðan gjöldin hækkuðu um 1,3 milljarða. Hreinn lánsfjárjöfnuður er jákvæður um 27,5 milljarða króna sem er 1,6 millj- örðum betra en á sama tíma í fyrra. Kemur þetta fram í Vefriti fjármála- ráðuneytisins. Innheimtar tekjur ríkissjóðs námu 183 milljörðum króna á fyrri helmingi þessa árs. Það er rúmum 17 milljörðum meira en á sama tíma í fyrra, eða 10,4% aukning. Ef tekið er tillit til tilfærslu milli mánaða vegna tekjuskatts lögaðila nemur aukning- in 8,5%. Skatttekjur og trygginga- gjöld jukust um rúm 14% að nafn- virði. Á sama tíma hækkaði almennt verðlag um 5,7% og raunaukning skatttekna og tryggingargjalda var því 8%. Fjármagnstekjuskattur eykst um 43% Skattar á tekjur og hagnað námu 65 milljörðum króna og jukust um 16 milljarða frá síðasta ári, eða 33%. Þar af jókst tekjuskattur einstak- linga um 12% og lögaðila um 98% og fjármagnstekjuskattur um 43%. Innheimt tryggingagjöld jukust um 15% milli ára, eða 6,2% umfram hækkun launavísitölu á sama tíma. Innheimta eignarskatta nam 5,5 milljörðum króna sem er 27% minna en á sama tímabili í fyrra. Innheimta almennra veltuskatta gefur nokkuð góða mynd af þróun innlendrar eftirspurnar. Hún nam 82 milljörðum króna á fyrri helmingi ársins og jókst um 10% að nafnvirði frá fyrra ári eða 4% umfram hækkun vísitölu neysluverðs. Tekjur af virð- isaukaskatti hafa aukist um rúm 7% sem jafngildir tæplega 2% raun- aukningu. Lántökur nema 16,2 milljörðum Af helstu einstökum liðum veltu- tengdra skatta er enn mest aukning í vörugjöldum af ökutækjum en þau skiluðu 15% meiri tekjum en á sama tíma í fyrra. Nýskráningar bifreiða á fyrri helmingi ársins voru 4,4% fleiri en á sama tíma 2005. Greidd gjöld nema 153,2 milljörð- um króna og hækka um 1,3 milljarða milli ára, eða 0,8%. Mest munar um 2,5 milljarða hækkun heilbrigðis- mála og 1,9 milljarða í almanna- trygginga- og velferðarmálum. Þá hækka greiðslur til menntamála um 1,6 milljarða. Samtals vega þessir þrír málaflokkar tæplega 2⁄3 af heild- argjöldum ríkissjóðs fyrir utan vexti. Greiðslur vegna almennrar opin- berrar þjónustu hækka um 1,3 millj- arða og greiðslur til löggæslu hækka um 1 milljarð milli ára. Greiðslur til efnahags- og atvinnumála standa í stað milli ára. Lántökur ársins nema 16,2 millj- örðum króna en afborganir lána eru 38,9 milljarðar. Greiðslur vegna al- mennrar opinberrar þjónustu hækka um 1,3 milljarða og greiðslur til löggæslu hækka um 1 milljarð milli ára. Greiðslur til efnahags- og atvinnumála standa í stað milli ára. Afkoma ríkissjóðs mun betri en búist var við Hækkun Tekjur ríkissjóðs reyndust um sautján milljörðum króna hærri en á sama tíma í fyrra, en gjöldin hækkuðu um 1,3 milljarða króna. Morgunblaðið/Ásdís ● Í frétt Morgunblaðsins á laugardag var ranglega farið með tölur varðandi aukningu á eignarhlut Eyris Invest ehf. í Marel hf. Hið rétta er að eftir kaupin er eignarhlutur Eyris 33,5% og var andvirði kaupanna 780 millj- ónir króna miðað við lokagengi bréfa Marel. Leiðrétting KANADÍSKA frystigeymslufyrirtækið Atlas Cold Storage hefur ákveðið að selja eina frystieiningu til að minnka skuldir og draga úr vaxtagreiðslum, en eins og áður hefur komið fram hefur Avion Group gert kauptilboð í félagið að andvirði 574 milljóna kanadískra dala, sem samsvarar um 36 milljörðum króna. Ekki er víst hvort sala Atlas á eining- unni muni hafa áhrif á kauptilboð Av- ion, en í frétt Globe and Mail segir að einingin sé sú þriðja sem fyrirtækið set- ur á sölulista á árinu. Tilboð Avion Group hljóðar upp á sjö kanadíska dollara á hlut en gengi bréf- anna var 7,55 dalir á hlut á föstudaginn. Eru skiptar skoðanir um hvort tilboð Avion Group sé sanngjarnt, en Magnús Þorsteinsson, stjórnarformaður Avion, hefur sagst tregur til að greiða hærra verð fyrir fyrirtækið. Sjóðsfyrirtækið ABC, sem á 3,1 millj- ón hluta í Atlas Cold Storage telur hins vegar að kauptilboð Avion Group sé of lágt og endurspegli ekki virði félagsins. Atlas Cold Storage selur eina einingu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.