Morgunblaðið - 14.08.2006, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 14.08.2006, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. ÁGÚST 2006 17 DAGLEGT LÍF Í ÁGÚST GÓÐ HEILSA GULLI BETRI Lið-a-mót FRÁ www.nowfoods.com APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR A ll ta f ó d ýr ir ÁSkólavörðustíg var nýlegaopnuð fyrsta snyrtistofan áÍslandi sem notar eingöngu lífrænar snyrtivörur. „Sérstök hugmyndafræði liggur á bak við snyrtivörurnar frá Dr. Hauschka sem við notum og unnið er út frá heildrænum sjónarmiðum, við horfum á heildina en ekki húðina í andlitinu sem afmarkað fyrirbæri,“ segir Inga Stefánsdóttir snyrtifræð- ingur og annar eiganda snyrti- og nuddstofunnar Dr. Hauschka „Húð- in er lifandi vefur í sífelldri end- urnýjun og viðkvæm fyrir innri og ytri áhrifum, s.s streitu, mengun og lifnaðarháttum okkar almennt og ekki síst þeim efnum sem við setjum á hana. Við greinum því ekki í ákveðnar húðgerðir eins og þurra eða feita húð eins og almennt er gert, heldur metum ástand húðar hverju sinni með það að markmiði að hvetja húðina sjálfa, með hjálp náttúrulegra efna, að leiðrétta ástand sitt og komast í jafnvægi. Við vinnum frá grunni, horfum á rót vandans en meðhöndlum ekki bara einkenni. Dr. Hauschka styður eðli- lega og náttúrulega starfsemi húð- arinnar og við lítum svo á að heil- brigð húð sé falleg húð, sama á hvaða aldri hún er,“ segir Inga og bætir við að allar vörurnar frá Dr. Hauschka séu án allra aukaefna, lit- ar og rotvarnarefna og það séu ein- göngu notaðar hreinar olíur, mjög virkar lífrænar jurtir og ilmolíur, sem gagnast húðinni á einhvern hátt, í vörurnar. Húðin vinnur á nóttunni „Ýmislegt í notkun á vörunum er frábrugðið því sem við eigum að venjast t.d. eru ekki notuð næt- urkrem, húðin á að vera hrein á nóttunni því þá er hennar tími til að vinna, hún þarf að hreinsa sig, anda og endurnýjast eftir að hafa verndað okkur yfir daginn. Við notum krem sparlega og teljum að mikið af feit- um og ríkulegum kremum, til dæmis á þurra húð, hafi frekar þau áhrif að letja húðina til að vinna sitt eðlilega starf og geti gert hana jafnvel enn þurrari og háðari kremunum. Hjá Dr. Hauschka er sérstök meðferð til að hjálpa feitri og óhreinni húð, eng- in þurrkandi efni eða kornakrem eru notuð heldur hreinsandi og græðandi jurtir og olíur í stað krema. Þegar næg fita er á yfirborði húðar fær hún þau skilaboð að draga úr eigin fituframleiðslu og kemst smám saman í jafnvægi, “ segir Inga en hún rekur snyrtistof- una á Skólavörðustígnum ásamt Sigrún Másdóttir. Inga og Sigrún eru einu tveir snyrtifræðingarnir á Íslandi sem eru með réttindi til að nota Dr. Hauschka vörur. Á snyrti- stofunni er boðið upp á alla almenna snyrtingu, nudd og svæðanudd með vörunum, aðalsérstaða stofunnar er þó andlitsböðin, en hægt er að velja um tveggja klukkustunda and- litsbað, 75 mín. og 60 mínútna húð- hreinsun. Örvar sogæðakerfið „Andlitsböðin hjá Dr. Hauschka eru ólík öðrum andlitsböðum, við vinnum með manneskjuna sem heild. Mikilvægt er að skapa gott andrúmsloft þar sem einblínt er á meðferðina og einstaklinginn sem þiggur hana. Oftast næst fram ein- stök slökun og áhersla er lögð á mjúkar, léttar og taktfastar hreyf- ingar, en meðferðin hefst með hit- andi ilmolíu fótabaði og léttu fót- anuddi en heitir fætur hafa mikil áhrif á hvernig manneskjan tekur á móti andlitsbaðinu."  SNYRTING | Fyrsta snyrtistofan sem er eingöngu með lífrænar snyrtivörur Eyþór/Morgunblaðið Inga segir að heitir fætur skipti máli þegar farið er í andlitsbað. Falleg húð er heilbrigð Hægt er að fá nánari upplýsingar hjá Dr. Hauschka snyrti- og nudd- stofunni í síma 564 5455. Síðumúla 34 - sími 568 6076 Ýmislegt áhugavert fyrir safnara Ýmislegt áhugavert fyrir safnara Borðstofuhús ögn Stakir skápar Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.