Morgunblaðið - 14.08.2006, Qupperneq 18
18 MÁNUDAGUR 14. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
F
und okkar Sivjar vegna viðtalsins bar
nokkuð skjótt að enda nóg að gera hjá
ráðherra eins stærsta málaflokks
ríkisins, heilbrigðismála.
Við tyllum okkur niður seinnipartinn á
föstudegi í heilbrigðisráðuneytinu og Siv
tekur á móti mér með þykka blaðabunka
undir sitt hvorri hendinni enda eflaust
ærinn starfi að fara yfir öll þau plögg og
pappíra sem til verða í ráðuneytinu. Heilbrigðismálin eru að
vísu ekki aðalumfjöllunarefni dagsins, heldur framboð Sivjar til
formennsku í Framsóknarflokknum, sem hún hafði tilkynnt um
daginn áður. Við byrjum þó á ögn léttari nótum.
– Áður en lengra er haldið langar mig að spyrjast aðeins fyrir
um bakgrunn þinn. Þú átt ættir þínar að rekja til Noregs.
Segðu okkur aðeins frá uppvaxtarárunum og hvað kom til að
ungur sjúkraþjálfari skellti sér út í pólitík?
„Ættir mínar liggja bæði til Noregs og Siglufjarðar. Móðir
mín, sem er norsk, varð ófrísk af mér í Berlín en ákvað að fara
til Noregs þar sem ég fæddist á sjúkrahúsi í Ósló. Ég kom hins
vegar hingað til lands nokkurra mánaða gömul en amma og afi
og systur mömmu voru áfram úti í Noregi og systir mömmu átti
börn á mínum aldri þannig að við sóttum mikið þangað,“ segir
Siv og bætir við að ekki hafi verið algengt á þessum árum að
börn dveldu langdvölum á sumrin í útlöndum. „Þetta var
geysilega skemmtilegur tími og gaf okkur krökkunum breiðari
sýn á lífið og tilveruna fyrir vikið,“ segir hún.
Námið skemmtilegra
en vonir stóðu til
Að loknu stúdentsprófi í MR tók við sjúkraþjálfaranám við
Háskóla Íslands, sem Siv segir að hafi verið einn
skemmtilegasti tími ævinnar. „Námið var eiginlega miklu
skemmtilegra en ég átti von á,“ segir Siv sem útskrifaðist árið
1986, ári eftir að hún og maður hennar, Þorsteinn Húnbogason,
eignuðust sitt fyrsta barn, Húnboga.
Það leið þó ekki á löngu þar til hún var komin á fullt í
pólitíkina og hennar fyrsta strandhögg var í bæjarpólitíkinni á
Seltjarnarnesinu þar sem Siv hafði alist upp.
„Árið 1990 fór ég í stórt prófkjör úti á Seltjarnarnesi þar sem
ég var kjörin oddviti Neslistans. Síðar um haustið varð ég
formaður Sambands ungra framsóknarmanna, fyrst kvenna í
52 ára sögu sambandsins þá,“ segir hún og bætir við að því
embætti fylgi seta í flestum stjórnum og ráðum flokksins,
þannig að hún komst fljótlega vel inn í flokksstarfið. Yngra
barn Sivjar og Þorsteins, Hákon, fæddist árið 1993 og ári síðar
tók við mikið pólitískt langhlaup þar sem Siv fór þrisvar í
kosningabaráttu á innan við ári; fyrst í
sveitarstjórnarkosningar á Seltjarnarnesi 1994, svo í stórt
prófkjör framsóknarmanna á Reykjanesi um haustið sama ár
og loks í þingkosningunum vorið 1995 þegar Siv komst inn á
þing. Hún segir að þetta tímabil hafi verið strembið enda ekki
auðvelt að standa í kosningabaráttu og barnauppeldi á sama
tíma. „Ég man t.d. eftir því veturinn 1994 að nóttina fyrir
prófkjör framsóknarmanna á Reykjanesi varð Hákon, yngri
sonur minn, veikur og við vöktum yfir honum yfir alla nóttina,
eftir allt sem á undan var gengið í prófkjörinu. Ég man að ég
hugsaði með mér að ef ég kæmist í gegnum þessa nótt, kæmist
ég í gegnum allt,“ segir Siv og hlær. Hún bætir því við að þetta
hafi verið afar skemmtilegur tími þrátt fyrir álagið.
Meðvituð ákvörðun að bíða
– Snúum okkur að pólitíkinni. Það hefur ríkt nokkur spenna í
sumar varðandi framboð þitt til formanns. Þú tilkynnir um
framboð rúmri viku fyrir flokksþing. Hvers vegna beiðstu
svona lengi?
„Það var algerlega meðvituð ákvörðun. Aðalástæðan fyrir því
að ég beið með yfirlýsingu var sú að ég vildi gefa
flokksmönnum kost á að íhuga þá stöðu sem er uppi og leyfa
þeim að velta fyrir sér í næði hvað væri sterkast fyrir flokkinn.
Ég vildi líka gefa flokksmönnum ró til að velja fulltrúa á
flokksþingið, sem lauk [á fimmtudaginn]. Ég vildi að það væri
sem mestur friður um þessi forystumál og fannst að
flokksmenn ættu að íhuga vel hvaða fólk það vildi sjá taka við
flokknum.
Svo vildi ég líka vera algerlega sannfærð um að ég vildi
takast á við hlutverkið, þetta veigamikla verkefni sem það
óhjákvæmilega er að leiða öflugan stjórnmálaflokk. Ég hef á
mínum ferli í pólitík fylgst með stjórnmálaforingjum eins og
Steingrími Hermannssyni, Halldóri Ásgrímssyni og Davíð
Oddssyni og tel mig gera mér ágæta grein fyrir því hvað
formennska í stjórnmálaflokki felur í sér. Ég vildi ekki taka
ákvörðunina nema að vel ígrunduðu máli og vera algerlega
sannfærð innst í mínu hjarta að ég væri að taka rétta ákvörðun.
Eins vildi ég fara yfir þetta með fjölskyldu minni, vegna þess að
það er ekki bara álag á formanni stjórnmálaflokks heldur
fjölskyldunni líka.“
– Er langt síðan þú byrjaðir að velta þessu fyrir þér? Hvenær
tókstu endanlega ákvörðun um framboð?
„Þetta er ferli sem þróast og þroskast. Þegar ljóst var að
Halldór væri ákveðinn í að fara frá, fann ég að það blundaði í
mér að takast á við að leiða Framsóknarflokkinn. Mér fannst
það spennandi og eftirsóknarvert og þeir sem eru í
stjórnmálum vilja auðvitað hafa áhrif og takast á við krefjandi
verkefni. En mér fannst það ekki sjálfgefið og vildi fara í
gegnum það með sjálfri mér og minni fjölskyldu hvort ég og við
værum reiðubúin. Niðurstaða mín er sú að ég er algerlega
reiðubúin til þess.“
Brotthvarf Halldórs
markar vatnaskil
– Hvers vegna tókstu þessa ákvörðun?
„Aðallega vegna þess að ég tel að það sé flokknum í hag að ég
gefi kost á mér. Ég held að það sé heilbrigt, eðlilegt og reyndar
bráðnauðsynlegt við þessar aðstæður að það verði kosið um
forystu flokksins og lýðræðið fái að njóta sín í
Framsóknarflokknum. Nú er farsæll foringi að fara frá.
Halldór Ásgrímsson hefur unnið mikið og farsælt starf í þágu
flokks og þjóðar. Það eru í raun vatnaskil í flokknum og þá er
eðlilegt að fólk fái að kjósa. Það er ekkert gefið í því hver
niðurstaðan verður og ég er sannfærð um að flokkurinn verður
sterkari fyrir vikið. Ég sé einungis kosti við að bjóða
flokksmönnum upp á þetta val. Fólk sem er virkt í
stjórnmálahreyfingu vill hafa áhrif og þá er nauðsynlegt að
bjóða upp á raunhæfa valkosti. Að afloknum þessum
kosningum kemur forysta með umboð,“ segir Siv.
– Nú eru tveir eða fleiri í framboði til æðstu embætta
flokksins. Er að þínu mati málefnaágreiningur milli
frambjóðenda?
„Við sem höfum ákveðið að gefa kost á okkur til þessara
forystustarfa erum auðvitað öll rótgrónir og dyggir
stuðningsmenn flokksins og stefnu hans. Það er í sjálfu sér ekki
málefnaágreiningur á milli okkar. Hins vegar er það svo að fólk
hefur mismunandi sýn á forgangsröðun og hvernig leiða á þau
verkefni sem framundan eru til farsællar niðurstöðu. Fólk
hefur að sjálfsögðu mismunandi sýn á málin í ljósi reynslu
sinnar. Þetta er ólíkt fólk sem gefur kost á sér og nálgast
verkefnin á ólíkan hátt, en ég tel ekki að málefnaágreiningur sé
til staðar. Við viljum öll efla flokkinn sem frjálslyndan
félagshyggjuflokk á miðju stjórnmálanna sem styður jöfnuð.“
Möguleiki á kynslóðaskiptum
– Mætti segja sem svo að ákveðið uppgjör eigi sér stað í
flokknum núna?
„Það er möguleiki á kynslóðaskiptum í forystunni og ég tel
eðlilegt að það gerist hvað formennsku flokksins varðar. Ef
niðurstaðan verður sú að flokksmenn kjósi kynslóðaskipti tel ég
það geta skipt talsverðu máli fyrir flokkinn og framtíð hans.“
– Sumir telja að þú, Guðni Ágústsson og Haukur Logi
Karlsson annars vegar standið saman í þessum slag en Jón
Sigurðsson, Jónína Bjartmarz og Birkir Jón Jónsson hins
vegar. Er það rétt?
„Nei, það er ekkert til í þessu. Við erum öll að fara fram á
okkar eigin forsendum. Frambjóðendurnir eru hæfir
einstaklingar og öflugir og geta tekist á við þetta. Ég er
allavega ekki í neinu bandalagi en get auðvitað ekki talað fyrir
munn annarra. Ég get unnið vel með öllum þessum
frambjóðendum. Fari svo að mér verði falið að leiða
Framsóknarflokkinn inn í nýja tíma á næstu árum mun ég
takast á við það hlutverk. Fari svo að mér verði ekki falið að
gera það, að þessu sinni, mun ég að sjálfsögðu taka þeirri
niðurstöðu. Það er þá niðurstaða úr því vali sem boðið er upp á
með mínu framboði og annarra,“ segir Siv sem telur ólíklegt að
hún verði hluti af þriggja manna forystu, fari svo að hún hljóti
ekki kosningu sem formaður. „En ég mun þó að sjálfsögðu taka
niðurstöðu flokksþingsins,“ bætir hún við.
Framsókn horfi til fram
Nokkur spenna hefur ríkt um
formannsframboð Sivjar Friðleifsdóttur
en í síðustu viku tók hún af skarið og
boðaði kynslóðaskipti í flokknum með
framboði sínu. Árni Helgason ræddi við
Siv um Framsóknarflokkinn og
stjórnmálin almennt.
Morgunblaðið/Eyþór
Ráðherrann „Það er möguleiki á kynslóðaskiptum í forystunni og ég tel eðlilegt að það gerist hvað formennsku flokksins varð-
ar,“ segir Siv Friðleifsdóttir sem tilkynnti um framboð sitt til formanns Framsóknarflokksins á fimmtudaginn.