Morgunblaðið - 14.08.2006, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 14.08.2006, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. ÁGÚST 2006 19 Útilokar ekki framboð síðar – Þú talar um að ef þér verði ekki falið að leiða flokkinn „að þessu sinni“. Sérðu fyrir þér að bjóða þig fram aftur seinna ef svo fer að þú verður ekki kjörinn formaður? „Maður útilokar ekkert í stjórnmálum.“ – Málefni Framsóknarflokksins hafa verið mikið til umfjöllunar í sumar. Geturðu lýst fyrir okkur þinni sýn á það sem gerst hefur, frá því að Halldór Ásgrímsson tilkynnti að hann væri að hætta og þá atburðarás sem tók við í kjölfarið? „Þessi atburðarás var að vissu leyti óvænt. Ég hefði kosið að hún hefði verið öðruvísi en það er ekki eðlilegt að horfa í baksýnisspegilinn varðandi þau mál. Ég kýs að horfa fram á veginn og tel það mjög mikilvægt fyrir hönd flokksins. Það er mjög mikilvægt að halda öflugt flokksþing þar sem við fáum tækifæri til að kveðja Halldór Ásgrímsson með virðulegum hætti eins og honum sæmir eftir þennan langa tíma í stjórnmálum og kjósum nýja, öfluga og samhenta forystu sem er hæf til að sækja fram fyrir hönd flokksins.“ – Hvernig hefði atburðarásin átt að vera öðruvísi? „Mér fannst þessi atburðarás að sumu leyti óheppileg en ég vil ekki fara neitt nánar út í það. Eðlilegast er að horfa fram á veginn.“ – Hvernig lítur þú á stöðu Framsóknarflokksins almennt séð? Uppruni flokksins og rætur hans eru í dreifbýli en Halldór Ásgrímsson reyndi að efla flokkinn í þéttbýli. Finnst þér það hafa tekist? „Ég hef verið sammála þeim áherslum að efla flokkinn í þéttbýli og ég tel að það sé bráðnauðsynlegt fyrir hvaða stjórnmálaflokk sem er á Íslandi að sækja fylgi í þéttbýli án þess þó að glata rótum sínum í dreifbýli. Hér á höfuðborgarsvæðinu búa 70% þjóðarinnar og að sjálfsögðu felur það í sér að flokkur getur ekki verið sterkur ef hann er ekki sterkur á svo fjölmennu svæði. Þannig að ég hef stutt og átt þátt í móta þá stefnu að efla flokkinn á höfuðborgarsvæðinu. Við höfum t.d. fyrstir flokka mótað sérstaka höfuðborgarstefnu. Sú vinna var mjög skemmtileg, því okkur tókst að móta öfluga höfuðborgarstefnu sem var þó í sátt við flokksmenn á landsbyggðinni.“ Mikið átak við að efla flokkinn – Miðað við niðurstöðu sveitarstjórnarkosninganna hefur flokknum ekki tekist að efla sig hér á höfuðborgarsvæðinu. Hvernig telurðu að efla megi Framsóknarflokkinn á höfuðborgarsvæðinu? „Ég tel að það þurfi að fara í mikið átak við að styrkja flokkinn, bæði í borginni og reyndar um land allt. Sums staðar komum við mjög vel út í síðustu sveitarstjórnarkosningum en annars staðar hefðum við viljað gera betur. Ég tel að eitt af okkar verkefnum framundan sé að efla flokkinn á suðvesturhorni landsins. Við munum fara í mikla málefnavinnu á næstunni. Flokksþingið er í raun í tveimur hlutum, núna í ágúst og svo í febrúar þar sem seinni hluti þingsins fer fram. Strax eftir fyrra hluta flokksþingsins, þar sem ný forysta verður valin, verður það hennar fyrsta verkefni að setja af stað öflugt málefnastarf. Niðurstaðan úr því verður kynnt í febrúar og verður upptakturinn hjá flokknum í næstu þingkosningum.“ – Í hverju felst að þínu mati vandi Framsóknarflokksins? Af hverju er staða flokksins ekki sterkari en raun ber vitni? „Að sumu leyti tel ég að við hefðum getað gert betur í að upplýsa almenning um þau góðu verk sem við höfum unnið. Við höfum verið í ellefu ára farsælu samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn. Á þessu tímabili hefur kaupmáttur heimilanna aukist um 50% og við erum að sjá meira velmegunarskeið en við höfum séð í þeim ríkjum sem við berum okkur saman við. Á sama tíma höfum við staðið fyrir velferðarstjórn. Ef litið er átta ár aftur í tímann má sjá að við höfum aukið framlög til heilbrigðismála að raungildi um yfir 27 milljarða, um 50%. Eins hafa framlög til almannatrygginga og velferðarmála á sama tíma aukist um 45% og til fræðslumála um 60% þannig að áhersla okkar hefur verið á heilbrigðis-, velferðar- og fræðslumál á sama tíma og kaupmáttur hefur aukist gífurlega. Við getum verið stolt af okkar verkum en hefðum getað gert betur í að upplýsa almenning um þessa góðu stöðu.“ Óréttmætt ef Framsókn nýtur ekki verka ríkisstjórnar – Framsóknarflokkurinn hefur setið í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum frá árinu 1995. Telurðu að þetta langa samstarf hafi skaðað Framsóknarflokkinn og að Sjálfstæðisflokkurinn fái frekar heiðurinn af verkum ríkisstjórnarinnar? „Ég myndi ekki vilja segja að samstarfið hafi skaðað flokkinn af því ég er í hjarta mínu mjög stolt yfir þeim verkum sem við höfum unnið með Sjálfstæðisflokknum í ríkisstjórn. Hins vegar er Sjálfstæðisflokkurinn auðvitað stærri flokkurinn í þessu samstarfi þannig að það gæti haft þau áhrif að einhverjir tengi árangurinn meira við hann. En það þætti mér mjög óréttmætt því Framsóknarflokkurinn hefur farið með mikilvæg og viðkvæm ráðuneyti eins og heilbrigðis- og tryggingaráðuneytið og félagsmálaráðuneytið þar sem góðir ráðherrar hafa unnið mikið verk.“ – Hvort myndir þú sem formaður flokksins horfa frekar til hægri eða vinstri við stjórnarmyndanir í framtíðinni? „Við göngum að sjálfsögðu óbundin til næstu kosninga. Stjórnarsamstarfið hefur verið mjög farsælt en við göngum óbundin til kosninga, eins og aðrir flokkar. En ef við eflum ekki okkar fylgi minnkar afl okkar til áhrifa. Það er lykilatriði fyrir Framsóknarflokkinn að eflast til að geta haldið áfram að hafa áhrif til góðs fyrir íslenskt samfélag.“ – Talandi um miðjuna. Aðrir flokkar hafa sótt inn á miðjuna undanfarin misseri. Telurðu að Framsókn hafi misst stöðu sína þar? „Fyrir ekki mörgum árum síðan töluðu stjórnmálaflokkar til bæði hægri og vinstri um „miðjumoð“ og það var hálfgert skammaryrði. Núna eru flokkar frá bæði hægri og vinstri að sækja inn á miðjuna og stundum finnst manni þeir vera hálfgerðir úlfar í sauðargæru,“ segir Siv og hlær. „Mér finnst mikilvægt að við höldum okkar stefnu og gildum á miðjunni til haga og ég tel mjög mikilvægt að Framsóknarflokkurinn nái að skýra þessi gildi betur fyrir almenningi og kjósendum. Mér sýnist margir telja gildin vera önnur en þau í raun eru. Þetta er ekki nógu skýrt í huga fólks. Að sumu leyti er þetta skiljanlegt, því það er auðveldara að vera með öfgastefnu til hægri eða vinstri, það er skýrari hugmyndafræði en þetta er það verkefni sem allir hófsamir miðjuflokkar þurfa að glíma við.“ – Hver verða að þínu mati brýnustu verkefni nýs formanns? „Mér finnst brýnustu verkefnin núna vera að skýra þessi grunngildi og fara í málefnavinnuna. Kjósendur og almenningur, eins og Framsóknarflokkurinn, vilja auðvitað horfa til framtíðar. Við höfum staðið fyrir geysilega góðum málum sem eru ýmist í farvegi eða hafa þegar orðið að veruleika. Við höfum verið að efla íslenskt samfélag en maður lifir ekki á fornri frægð. Það er mikilvægt að við einbeitum okkur að framtíðinni og þeim verkefnum sem verða til úrlausnar í framtíðinni. Þau eru mörg hver afar stór og viðkvæm. Hvar eigum við að staðsetja okkur í samfélagi þjóðanna í framtíðinni? Auðvitað viljum við og eigum að vera virkir þátttakendur í alþjóðasamfélaginu en verðum að gera það án þess að missa okkar stolt og samkennd sem þjóð. Við þurfum líka að takast á við kostnaðinn við velferðarsamfélagið. Hvernig nýtum við fjármagnið sem best? Það er algerlega óásættanlegt að fjármagnið sé illa nýtt og mikinn kraft þarf í að útskýra forgangsröðunina.“ Liggur ekki á inn í ESB – Hver er afstaða þín til hugsanlegrar Evrópusambandsaðildar Íslands? Nú liggur fyrir að Halldór Ásgrímsson var áhugasamur um aðild. Ert þú það líka? „Það liggur ekki mikið á að mínu mati. Ég var mikill stuðningsmaður þess að við færum inn í Evrópska efnahagssvæðið en það var tekist á um það í flokknum á sínum tíma. Ég taldi þá og tel enn, eins og ég held raunar að meirihluti flokksmanna geri í dag, að samningurinn hafi þjónað okkur geysilega vel og hefðum við ekki gerst aðilar að honum væri margt með lakara hætti í íslensku samfélagi en það er í dag. Samningurinn mun þjóna okkur áfram í framtíðinni þannig að staðan er að mörgu leyti góð eins og hún er. Hins vegar verðum við að fylgjast vel með því sem gerist á vettvangi Evrópusambandsins. Sambandið hefur stækkað að undanförnu og ég tel eðlilegt að við fylgjumst vel með þróuninni þar og sjáum hvort hún verði farsæl. Það eru kostir að vera fyrir utan sambandið og bíða, t.d. eigum við í viðskiptalegu tilliti mun auðveldara með samninga við önnur ríki vestanhafs, að ég tali nú ekki um Asíu og Kína þar sem stórir markaðir eru að opnast og við getum átt hagfelld viðskipti við þessar þjóðir. Ég tel eðlilegt að fara í gegnum þessi mál, það er vinna í gangi innan flokksins núna sem verður kynnt á flokksþinginu í febrúar. Ég spái spennandi umræðu um þessi mál á næstunni því unga fólkið í flokknum er Evrópusinnaðra en oft áður. En ég tel það frekar ólíklega niðurstöðu að Evrópumálin verði sett á oddinn á næstunni.“ Virkjanaumræða á villigötum – Umhverfis- og virkjanamál hafa verið mikið til umræðu undanfarið og margir líta á Framsóknarflokkinn sem helsta málsvara virkjanastefnu hér á landi. Hvernig munt þú, náirðu kjöri sem formaður, vilja haga stefnu flokksins í umhverfis- og virkjanamálum? „Umræðan um virkjanamál er komin á villigötur og umræðan um Kárahnjúkavirkjun er afar sérstök. Þegar ákveðið var að fara út í þetta verkefni á sínum tíma var það samþykkt á Alþingi, lýðræðislega kjörinni samkundu okkar þjóðar, og það var mikill pólitískur stuðningur við verkefnið. Það er í raun sérstakt í svona stóru viðkvæmu máli að stjórnarandstaðan skuli ekki sitja öll hjá eða vera á móti. Verkefnið er mjög mikilvægt fyrir okkar þjóðarbú og atvinnustarfsemi og farið var í gegnum öflugt umhverfismat þannig að við skoðuðum umhverfisáhrifin afar vel. Ég tel mjög mikilvægt að rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma verði lokið því hún er að mörgu leyti grundvallarvinna um það hvernig ljúka eigi virkjanakostum. Hún upplýsir um kosti og galla við hverja framkvæmd. En að vissu leyti skil ég umræðuna, því margir hafa á tilfinningunni að það standi til að gera meira en rök eru fyrir. Það er ekki búið að ramma nógu vel út hvaða framkvæmdir eigi að fara í og hverjar ekki. Það hefur verið stefna okkar framsóknarmanna að nýta þær geysilegu orkulindir sem við eigum í vatnsafli og ekki síður í jarðvarma og það er eðlilegt að við horfum til þessara kosta varðandi orkuöflun. Þetta er orka sem er vistvænni en kjarnorka og eins er hún heppilegri en olía og kol hvað loftslagsbreytingar og gróðurhúsalofttegundir varðar. En það er alls ekki þannig að Framsóknarflokkurinn telji að virkja eigi hvað sem er. Umhverfisráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa leitt gott starf við gerð náttúruverndaráætlunar, friðað mikilvæg svæði og stofnað Vatnajökulsþjóðgarð, sem er einn stærsti þjóðgarður í Evrópu. Þessi umræða hefur að mörgu leyti verið góð og holl, þó hún hafi tekið á um tíma.“ Fara með gát í landbúnaði – Hver er afstaða þín til þess að auka innflutning á landbúnaðarafurðum og að draga úr styrkjum og tollavernd í íslenskum landbúnaði? „Nú er nefnd embættismanna að störfum sem er að skoða þessi mál. Hún tengist nefndinni sem var að skoða matvælaverðið og sú vinna er í farvegi þannig að ég vil ekki kveða upp úr um með niðurstöðuna á þessu stigi. Almennt séð verður að gæta þess við þær breytingar, sem til greina koma, að fara með nokkurri gát vegna þess að við viljum auðvitað hafa byggð í landinu og þar skiptir landbúnaðurinn verulegu máli. Almennt styð ég frelsi í viðskiptum og það er eðlilegt að flytja inn vörur til landsins en við framleiðum geysilega góðar landbúnaðarvörur, hollar og góðar. Ég tel að það þurfi að fara með gát og við megum ekki fórna meiri hagsmunum fyrir minni. Þau skref sem verða tekin mega ekki leiða til þess að landbúnaðurinn fari halloka hér á landi.“ – Snúum okkur að öryggismálum þjóðarinnar. Telur þú að þau séu í réttum farvegi eða þyrfti að gera annað og meira en gert er með viðræðunum við Bandaríkjamenn? „Það eru auðvitað mikil tímamót núna þegar varnarliðið er að fara og hvernig brottförina ber að. Þetta eru gjörbreyttir tímar í öryggismálum þjóðarinnar en ég vil halda því til haga að við erum aðilar að NATÓ, sem ég styð heilshugar og tel aðild okkar að bandalaginu afar mikilvæga. Árás á eitt NATÓ-ríki er árás á þau öll og í því felst geysilegur fælingar- og varnarmáttur. En ég tel að þessi mál séu í eðlilegum farvegi. Það er haldið utan um þau í utanríkisráðuneytinu og forsætisráðuneytið kemur þar að líka. Þetta eru mjög flókin mál og ég skil að þau taki langan tíma. Ég gerði mér strax grein fyrir því þegar herinn fór að það myndi taka langan tíma að greiða úr brottför hans, hvað ætti að gera við eignirnar á varnarsvæðinu, hvernig eigi að standa að frágangi og svo framvegis. Þetta er geysilegt verk enda er stjórnsýslan í jafnstóru ríki og Bandaríkjunum þung í vöfum.“ Hefði kosið aðra niðurstöðu 2004 – Þú vékst úr ríkisstjórn árið 2004 og segja má að þær hrókeringar hafi verið til að halda Árna Magnússyni að í embætti félagsmálaráðherra. Það var ekkert leyndarmál að þú varst ósátt við þitt hlutskipti. Hvaða áhrif hafði þetta á störf þín innan flokksins? „Ég var tilbúin að starfa áfram í ríkisstjórn á þessum tíma þannig að ég hefði kosið aðra niðurstöðu. En þetta var niðurstaðan og ég sagði þá og segi enn að það kemur dagur eftir þennan dag og sá dagur í raun runninn upp. Það er mikil ögrun að takast á við ráðuneyti og heilan málaflokk, það er mikil áskorun fyrir stjórnmálamann. Þannig að það er að vissu leyti eftirsóknarvert að vera í því hlutverki. En ég hafði mikla ánægju af því að fara aftur inn í þingið og hafa meiri tíma fyrir flokksstarfið. Ég tók að mér formennsku í félagsmálanefnd Alþingis og varaformennsku í utanríkismálanefnd og vann kröftuglega að því að styðja við þau mál sem okkar ráðherrar fluttu. Svona eru stjórnmálin, það er ekkert gefið í þeim. Stundum finnst manni ýmislegt óréttlátt en þá verður að bíta á jaxlinn og sækja fram.“ – Olli þetta deilum milli þín og Halldórs? „Nei, ég myndi nú ekki segja það,“ segir Siv eftir stutta þögn. „En ég var ekki sammála þessari niðurstöðu og sagði honum það. Þetta var samt niðurstaðan og ég ákvað að taka henni. Ég er nú þess eðlis að ég reyni alltaf að sjá eitthvað jákvætt við nýja stöðu. Þessi nýja staða gaf mér tækifæri til að takast á við þingstörfin af krafti á nýjan leik og það hafa allir gott af því að breyta um vistarverur í stjórnmálum.“ Eldri borgarar og lýðheilsa sett á oddinn – Þú tókst við embætti heilbrigðisráðherra fyrr á árinu. Hver hafa helstu verkefnin verið fyrstu mánuðina í nýju embætti? „Málin sem ég setti strax á oddinn voru málefni eldri borgara og lýðheilsumál og ég hef lagt mikla vinnu í þau. Þau eru mér hugleikin því aldraðir eiga að njóta góðrar þjónustu og öryggis og hvað lýðheilsu varðar er brýnt að einstaklingarnir fari að taka meiri ábyrgð á eigin heilsu, hreyfa sig, borða hollan mat og reykja ekki svo dæmi séu tekin. Nýlega kynnti ég stefnumótun mína í málefnum aldraðra, en við undirbúning hennar studdist ég við þær hugmyndir sem eldri borgarar hafa haldið á lofti og svo er nýbúið að kynna samkomulag um réttindabætur og úrbætur í þjónustu við aldraða sem náðist í nefnd stjórnvalda og hagsmunasamtaka eldri borgara. Ég hef þá trú að við getum sparað stórkostlegar upphæðir með bættri lýðheilsu. Tökum Ungmennafélagshreyfinguna og íþróttastarfið almennt í landinu sem dæmi. Það góða starf sem þar er unnið mun skila okkur margföldum ávinningi í bættri heilsu og þar af leiðandi samfélagslegum sparnaði í framtíðinni. Eitt mál í viðbót langar mig að nefna og það eru lyfjamálin. Verð á lyfjum er mun hærra hér en í nágrannaríkjunum þannig að ég mun leggja áherslu á að ná niður lyfjaverði með öllum tiltækum ráðum.“ Bjartsýn fyrir formannsslaginn – Að lokum, Siv: Ertu bjartsýn fyrir formannsslaginn? „Já, bjartsýni er mitt leiðarljós, en ég tel að formannskjörið verði afar tvísýnt. Framboði mínu hefur verið almennt vel tekið. Nú fá framsóknarmenn tækifæri til að velja sér formann í leynilegri kosningu þar sem hver og einn þarf að gera upp hug sinn og hjarta hvaða forysta þeir telja að sé líklegust til að sækja fram og efla fylgi flokksins í næstu alþingiskosningum og til framtíðar. Valið um framtíð flokksins er því í höndum flokksmanna.“ tíðar – Hver verða að þínu mati brýnustu verkefni nýs for- manns? „Mér finnst brýnustu verkefnin núna vera að skýra þessi grunngildi og fara í málefnavinnuna. Kjósendur og almenningur, eins og Framsóknarflokkurinn, vilja auð- vitað horfa til framtíðar. Við höfum staðið fyrir geysi- lega góðum málum sem eru ýmist í farvegi eða hafa þeg- ar orðið að veruleika. Við höfum verið að efla íslenskt samfélag en maður lifir ekki á fornri frægð. Það er mik- ilvægt að við einbeitum okkur að framtíðinni og þeim verkefnum sem verða til úrlausnar í framtíðinni. Þau eru mörg hver afar stór og viðkvæm. Hvar eigum við að staðsetja okkur í samfélagi þjóðanna í framtíðinni? Auð- vitað viljum við og eigum að vera virkir þátttakendur í alþjóðasamfélaginu en verðum að gera það án þess að missa okkar stolt og samkennd sem þjóð. Við þurfum líka að takast á við kostnaðinn við velferðarsamfélagið. Hvernig nýtum við fjármagnið sem best? Það er alger- lega óásættanlegt að fjármagnið sé illa nýtt og mikinn kraft þarf í að útskýra forgangsröðunina.“ Brýnustu verkefnin arnihelgason@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.