Morgunblaðið - 14.08.2006, Síða 23

Morgunblaðið - 14.08.2006, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. ÁGÚST 2006 23 SÍENDURTEKNU kalli Morg- unblaðsins eftir hægri grænum áherslum hefur loks verið svarað. Sá sem svarar kallinu er Illugi Gunnarsson, sem hefur að vísu ekki þótt sérlega grænn í málflutningi sínum hingað til. Ekki er lengra síðan en í Silfri Egils í febrúar að hann lét í ljós efasemdir sín- ar um að hlýnun loftslags væri af mannavöldum. Nefndi hann máli sínu til stuðnings danskar rann- sóknir sem bentu til að hækkun hitastigs væri af völdum aukinnar sól- argeislunar. Líklega á hann þar við Knud Lassen og Peter Thejll en nokkur ár eru síðan þeir við- urkenndu veikleika í nið- urstöðum sínum og að hina miklu hækkun hita- stigs eftir 1980 væri ekki hægt að útskýra með auk- inni sólargeislun. Illuga er þó vorkunn því hann hefur lengi verið undir sterkum áhrifum frá fyrrverandi yfirboðara sín- um – hinum mikla leiðtoga hægrimanna á Íslandi og einum helsta efasemd- armanni heims í loftslags- málum, Davíð Oddssyni. Á flokksþingi Sjálfstæð- isflokksins 13. október 2005 sagði Davíð meðal annars: „Kyoto-samþykktin byggir vissulega á afar ótraustum vísindalegum grunni … Því miður hefur sú umræða á köflum verið borin uppi af óræðri tilfinn- ingasemi og í versta falli innantómum áróðri fremur en rökum.“ Fullyrðing Davíðs er algerlega órök- studd enda vandfundinn sá vís- indamaður sem mótmælir hinum sterka vísindalega grunni sem Kyoto- samþykktin byggir á. Það er því von að maður gjaldi varhuga við því þegar fyrr- verandi aðstoðarmaður hans og skoð- anabróðir í loftslagsmálum þegar síðast var vitað klæðist skyndilega grænu. Náttúruvernd og nýting Davíð sagði einnig á fyrrnefndu flokksþingi: „Náttúruvernd og skynsamleg nýting verða ekki að fullu í sundur skilin. Í þeim efnum er meðalhófið best. Það var með þessa hugsun að leiðarljósi sem við Íslendingar ákváðum að skrifa ekki und- ir Kyoto-samþykktina nema við fengjum auknar undanþágur sem tryggðu að við gætum nýtt hagkvæmar orkulindir landsins.“ Illugi ætlar sér greinilega, ef marka má grein hans í Lesbók Morgunblaðsins 29. júlí sl., að nota áfram línu meistarans um náttúruvernd og nýtingu. Hann er hins vegar lentur í klemmu á milli hægri skoðana sinna og þjónkunar við stór- iðjustefnu eigin flokks. Þetta kemur vel fram í skrifum Illuga um Landsvirkjun þar sem hann er varaformaður. Meg- inástæður klemmunnar eru þessar: * Arðsemi Kárahnjúkavirkjunar er ekki nægilega mikil sem sést vel á því að enginn einkaaðili vildi fjár- magna hana. * Virkjunin er fjármögnuð með nið- urgreiddum lánum en Illugi er á móti ríkisafskiptum af því tagi. * Orkuverðið er leyndarmál sem Ill- ugi er í prinsippinu mótfallinn hjá opinberu fyrirtæki. * Framtakið er risavaxin og miðstýrð byggðaaðgerð – forsjárhyggja af verstu gerð samkvæmt kennisetn- ingum Illuga. Nú þegar hann er orðinn grænn nátt- úruvinur hlýtur sú staðreynd einnig að naga samviskuna að engin tilraun var gerð til að meta fórnarkostnað þeirra náttúruverðmæta sem eyðilögð verða með virkjuninni. Og samt er arðsemin svona slök. Björgunarsveit einkaframtaksins Illugi talar um að hið opinbera geti oft á tíðum verið mesti umhverfissóðinn. Þetta tek ég undir hjá honum. Alla vega hefur núverandi ríkisstjórn sett Íslands- met í umhverfissóðaskap sem seint verður slegið. Hins vegar verð ég að vera honum ósammála í því að einka- væðing orkugeirans verði til að bjarga ósnortinni náttúru Íslands. Það mun ekki breyta þeirri staðreynd að eins og staðan er í dag hefur náttúra Íslands vond spil á hendi gagnvart fram- kvæmdum, einkum í orkugeiranum. Henni eru skammtaðir hundarnir og stóriðjunni háspilin. Þær stofnanir sem lögum samkvæmt eiga að sjá um að rannsaka og gera tillögur að verndun náttúrunnar eru markvisst sveltar svo þær spilli ekki hagsmunum stóriðju- hugsjónar ríkisstjórnarinnar. Nátt- úruverndaráætlun er máttlaus, fjársvelt og friðun samkvæmt henni hefur ekkert lagagildi. Ráð- herra sker með einu penna- striki sneiðar úr friðlöndum eftir hentugleikum stóriðj- unnar. Nú liggja inni á borði iðn- aðarráðherra umsóknir ým- issa aðila um rannsókn- arleyfi á 13 svæðum vítt og breitt um landið. Að fengnu slíku leyfi er hálfur sigur unninn á leið einkaaðilans að nýtingarleyfi og þar með einkarétti á nýtingu auðlindarinnar. Ég á bágt með að sjá að slík gróðavon einkaaðila verði ósnortinni náttúru landsins til bjargar. Leið Samfylkingarinnar Það þarf að skapa þjóð- arsátt um náttúruvernd. Það er stórt verkefni sem þarf að vinna hratt og með skýrri sýn á það hvernig málum verður best komið. Eins og fram kom í viðtali við formann Samfylkingarinnar á NFS á dögunum þarf gefa upp á nýtt og skammta náttúrunni betri spilin. Það þarf að staldra við og gera rammaáætl- un – ekki um orkunýtingu heldur um náttúruvernd. Þessari áætlun þarf að gefa lagagildi og nota hana sem grund- vallarplagg við skipulagningu landsins. Langasjó ætti að taka inn í fyrirhugaðan Vatnajökulsþjóðgarð sem við viljum að verði frá strönd til strandar og taki til alls vatnasviðs Jökulsár á Fjöllum. Friða ætti Skjálfandafljót og Jökulárnar í Skagafirði, Kerlingarfjöll og Torfajök- ulssvæðið. Skapa þarf net friðlanda sem verði nýtt til útivistar og ferðaþjónustu eftir því sem slíkt samrýmist nátt- úruvernd. Þegar framkvæmdir eru áformaðar á náttúrusvæðum sem ekki njóta sérstakrar verndar ætti að leggja þá kvöð á framkvæmdaaðila að sanna hagkvæmni framkvæmda umfram hag- kvæmni verndunar. Það þarf líka að sýna metnað við að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Kanna þarf kosti þess að taka upp markað með losununarheimildir stóriðj- unnar og stærri fyrirtækja. Beita þarf hagrænum hvötum til að minnka notkun mengandi eldsneytis í samgöngum og hvetja til orkusparnaðar í sjávarútvegi. Efla þarf rannsóknir á vetni sem vist- vænum orkugjafa í samgöngum. Ólíkt hinum nýgræna hægri manni sem í Silfri Egils varaði við efnahags- legri hættu við að draga úr mengandi orkugjöfum teljum við að í því felist mikil tækifæri og að þau eigum við að nýta. Hægri krati Í feginleik sínum yfir að hafa eignast hægri grænan dreng keypti Morg- unblaðið auglýsingu á RÚV til að aug- lýsa grein Illuga í Lesbókinni. Kannski af því að hugtakið „hægri grænn“ er mönnum eðlilega nokkuð framandi gerðu hins vegar starfsmenn RÚV þau mistök að kalla Illuga „hægri krata“. Ef þeir hafa lesið greinina hafa þeir þó eitt sér til afsökunar og það er kaflinn þar sem Illugi lýsir löngun sinni til „að hér sé engin fátækt og öll börn fæðist til jafnra tækifæra“. Það er ekki annað að sjá en að hér tali jafnaðarmaður af bestu sort en ekki liðs- maður þess flokks sem lækkar vaxta- og barnabætur, skammtar öldruðum skammarlegan lífeyri og er reglulega dreginn fyrir Hæstarétt vegna með- ferðar sinnar á öryrkjum. Kannski eru sú græna vitundarvakn- ing sem Illugi gengur í gegnum, nú skömmu fyrir val á framboðslista fyrir alþingiskosningar, merki um eitthvað meira. Kannski ber hún vitni um löngun til að búa í samfélagi þar sem sjálfbær þróun er höfð að leiðarljósi og fólk hefur jöfn tækifæri í raun. Guð láti gott á vita. Hann er velkominn yfir. Guð láti gott á vita Eftir Dofra Hermannsson Dofri Hermannsson ’ Það þarf aðstaldra við og gera ramma- áætlun – ekki um orkunýtingu heldur um nátt- úruvernd. ‘ Höfundur er varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar. svo hin miklu Héðinsfjarðargöng, frá Siglufirði um Ólafsfjörð og Dalvík til Akureyrar. Slíkar samgöngur myndu þétta og efla Mið-Norðurland sem sterkan búsetustað. Þar myndi fólki fjölga og atvinnulífið eflast.“ Áfram þjóðarsátt um bændur Íslenskir bændur hafa lifað tímana tvenna, sagði Guðni enn fremur í ræðu sinni, unnið og barist í svita síns andlits, stundum ríkasta stéttin en í annan tíma sú fátækasta. „Í sveitum þessa lands er í dag bjartsýni og trú á framtíðina. Nýj- ar greinar dafna í skógrækt, ferðaþjón- ustu og í kringum íslenska hestinn. Kúabú og sauðfjárbú stækka og búa sig undir nýja sókndjarfa framtíð,“ sagði Guðni. „Fólkið í þéttbýlinu elskar sitt land og finnur sig með nýjum hætti í sveitunum. Það hefur nú í mörg ár ríkt samstaða um íslenskan landbúnað og þjóðarsátt. Það efast enginn um landið og mjólkurvörurnar góðu. Þess vegna ber okkur að gefa bændum tíma og rúm til að mæta framtíðinni. Þessi atvinnu- vegur verður að fá að dafna í landinu. Hann þarf tíma og hann þarf aðlögun, og þar má ekkert fljótræði ráða ferð,“ sagði hann. „Ég trúi því að forystumenn stjórn- málaflokkanna, stjórnmálamenn al- mennt og allir forystumenn verkalýðs- félaga og atvinnulífshreyfingar sameini krafta sína að þessu marki, að halda áfram þjóðarsátt um íslenskan landbún- að, gefa honum tíma til að þróast.“ m háskóla á ingi í haust Morgunblaðið/Björn Björnsson on biskup, Geir H. Haarde forsætisráðherra, Karl Sigurbjörnsson biskup og Guðni Ágústsson landbúnarráðherra. dvinssyni vígslubiskupi bók úr safninu, og þar með safnið allt. um st um Auð- um að- - á- i, því fði þá for- átíð- Hól- margt ð- a á ur séu öfl- u stjórnvalda og fulltrúa atvinnulífsins sagði forsætisráðherra óka til Hóladómkirkju Morgunblaðið/jt Geir H. Haarde forsætisráðherra og Jón Aðalsteinn Baldvinsson vígslubiskup á Hólum undirrituðu bréfið um gjöf Hólaprentsins. Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands og Skúli Skúlason rektor Hólaskóla voru vottar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.