Morgunblaðið - 14.08.2006, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 14.08.2006, Qupperneq 24
24 MÁNUDAGUR 14. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN FÁTT af pólitískum vettvangi hefur verið jafnmikið rætt meðal ís- lenskra framhalds- skólanema og breytt námsskipan til stúd- entsprófs. Hefur sú umræða oftar en ekki snúist upp í hræðslu- áróður um að verið sé að stórauka miðstýrt valdboð ráðuneytisins. Sá merkimiði hefur verið settur á málið að ráðuneytið sé að skylda alla skóla til að kenna nám til stúd- entsprófs á þremur árum. Það er ljóst að umræðurnar sem skapast hafa um þetta mál hafa verið fremur ófrjóar og oftar en ekki byggðar á mis- skilningi. Hvers vegna hafa nemendur og skólar hins vegar lagst jafnharkalega gegn þessum breyt- ingum og raun ber vitni? Þann 12. janúar sl. skipaði mennta- málaráðherra í nefnd sem fjalla átti um end- urskoðun starfsnáms. Starfsnámsnefnd hef- ur nú lokið störfum og telur að breytinga sé ekki einungis þörf á sviði starfsnáms held- ur á öllum framhalds- skólanum í heild. Nefndin leggur til að aðgreining milli starfsnáms og bóknáms verði afnumin, m.ö.o. að allt nám á fram- haldsskólastigi verði jafngilt. Það er því um mikinn sigur nemenda að ræða þar sem ekki verður litið á starfsnám sem síðri kost en bók- námskostinn. Nefndin telur enn fremur að nauðsynlegt sé að framhalds- skólanemum verði settar minni skorður um námsval og að fram- haldsskólinn verði ein heild með fjölmörgum námsleiðum. Til að ná þessu fram vill nefndin að skólunum verði veitt frelsi til að smíða brautir og námsleiðir sem miðast að því að verða einstaklingsmiðaðri fyrir nemandann og búa hann því enn betur undir framhaldsnám en áður. Þær hugmyndir um að með nýju kerfi muni skólar missa sérkenni sín tel ég hins vegar vera rangar. Þvert á móti munu skólarnir efla sérkenni sín og taka ólíkar stefnur í mismun- andi áttir og svara því enn betur ólíkum þörfum viðskiptavina sinna. Þá munu skólar að öllum lík- indum nýta sér þessa frelsisaukn- ingu og bjóða upp á mun fleiri leiðir til stúdentsprófs. Það sem er mik- ilvægt að minnast á í þessu sam- hengi er hins vegar það að skól- unum verður ekki gert skylt að breyta námsfyrirkomulagi sínu á neinn hátt nema þeir kjósi það. Þannig mun gamalgróinn skóli líkt og Menntaskólinn í Reykjavík geta stundað kennslu með sama fyr- irkomulagi þó svo að breytingarnar myndu taka gildi á morgun. Bekkja- kerfinu verður því svo sannarlega ekki útrýmt með þessu nýja fyr- irkomulagi enda fylgja því margir kostir og margir nemendur munu sjálfsagt ennþá kjósa það fram yfir fjölbrautakerfið. Með breytingunum munu skólarnir verða enn hæfari á sam- keppnismarkaði og mun fljótari að svara þörfum nemenda, há- skóla og atvinnulífs. At- vinnulífið kallar í sífellt auknum mæli eftir starfskröftum sem hafa reynslu á ólíkum svið- um. Þannig er ekki óal- gengt að sjá fyrirtæki auglýsa eftir verkfræð- ingi sem hefur þekk- ingu á járnsmíði eða heimspekingi sem hef- ur þekkingu á hönnun. Nemendum mun nú gefast kostur á að svara þessum kröfum enn betur. Þá telur nefndin að stórauka þurfi samstarf milli framhaldsskóla og háskóla. Það er álit nefndarinnar að koma þurfi á samstarfi milli þessara tveggja skóla- stiga með kerfi sem hægt er að kalla viðtök- umiðað nám, þ.e. nám sem miðar að því að undirbúa nemandann undir háskólanám með því að uppfylla kröfur næsta skólastigs og/eða atvinnulífs. Háskólinn og/eða atvinnulífið mun því gefa út ákveðin viðmið um kröfur til ákveð- inna leiða innan háskólans. Viðtökumiðað nám hefur þekkst í starfsnámi þar sem fulltrúum úr at- vinnulífinu gefst kostur á að hafa áhrif á það nám sem kennt er í starfsnámsskólum. Til að einfalda þetta má segja að viðtökuaðili, há- skóli eða atvinnulíf, leiðbeini skól- anum um þá þekkingu sem hann telur líklegast að muni henta sér og nemandanum best þegar nemand- inn fer í framhaldsnám eða kemur út í atvinnulífið. Viðtökuaðilinn seg- ir því til um þann nemanda sem hann vill fá. Áhugasamir og dugleg- ir skólastjórnendur verða nú loks verðlaunaðir með því að þeim verð- ur gefið aukið frelsi til athafna. Það má hins vegar ekki gleyma því að þessu aukna frelsi fylgir mikil ábyrgð. Margir kunna að velta því fyrir sér hvort nú þurfi nemendur ekki að ákveða sig enn fyrr. Ég tel hins vegar að skólar muni áfram að bjóða upp á opnar námsleiðir sem muni líkjast þeim brautum sem til eru í dag. Þannig munu óákveðnir nemendur geta valið brautir sem að loknu námi munu áfram halda flest- um leiðum opnum til frekara fram- haldsnáms. Nemendur sem vita hins vegar nákvæmlega hvað þeir vilja munu hafa tækifæri til ein- staklingsmiðaðs náms sem undirbýr þá enn betur fyrir frekara nám eða þátttöku í atvinnulífi. Það kallar hins vegar á aukna námsráðgjöf og að gerð verði hugarfarsbreyting í námsráðgjöf þannig að litið verði á hana sem leiðbeiningu um nám en ekki eingöngu hjálp til þeirra sem standa sig illa í námi. Endalaust er hægt að nefna kosti aukins frelsis í menntakerfinu, eða hvaða kerfi sem er ef því er að skipta, en hér hafa aðeins örfáir þeirra verið nefndir. Tillögur að breyttu fyrirkomulagi framhalds- skólanna tel ég vera af hinu góða og hef ég enga trú á öðru en að fram- haldsskólanemar sem og aðrir unn- endur frelsisins muni fagna þessum tillögum. Sjaldan neita ung- lingar auknu frelsi Ólafur Örn Nielsen fjallar um breytta námsskipan til stúd- entsprófs Ólafur Örn Nielsen ’Tillögur aðbreyttu fyr- irkomulagi fram- haldsskólanna tel ég vera af hinu góða og hef ég enga trú á öðru en að fram- haldsskólanemar sem og aðrir unnendur frels- isins muni fagna þessum til- lögum.‘ Höfundur situr í stjórn Hugins, félags ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ. KOMINN er tími til að líta frekar á ellilífeyrisþega sem launþega en eftirlaunaþega, og í mörgum til- fellum nánast sem ölmusufólk. Við erum launþegar í þeim skilningi að ellilífeyrir, hvort sem hann kemur frá hinum frjálsu lífeyrissjóðum eða hinu opinbera, er laun sem hafa verið lögð til hliðar með greiðslu í lífeyrissjóði, sömuleiðis til TR. til endurgreiðslu við starfslok. Grunnlíf- eyrir (ellilífeyrir) sem TR ber að greiða er ekkert annað en end- urgreiðsla á atvinnu- tekjum. Með þetta í huga má það kallast hreinn þjófnaður af hálfu hins opinbera að tekjutengja þennan grunnlífeyri, svo sem nú er gert. Einróma samkomulag aðila var að forsenda þessa væri að upphæð grunnlífeyris almannatrygginga þyrfti að haldast í um það bil 20 pró- sentum af launum verkafólks. Þá yrði grunnlífeyririnn og greiðslur frá lífeyrissjóðum, þegar þeir hefðu náð fullum þroska, þ.e. eftir að fólk hefði greitt til þeirra iðgjald heila starfsævi, 75–80% af samtímalaun- um viðkomandi starfsstéttar. Þetta má m.a. mjög vel sjá á samningi þeim sem einnig var undirritaður þá um tekjutryggingu til handa því fólki sem aldurs vegna hafði ekki möguleika til þess að afla sér fullra réttinda frá lífeyrissjóðum. Samkvæmt lögum mega full rétt- indi frá lífeyrissjóðum ekki vera lægri en 56% af launum Samtök opinberra starfsmanna hafa vandlega gætt þess að þeirra viðsemjendur hafa staðið við sitt að því er varðar lífeyr- isréttindi og njóta nær 80% launa sinna við starfslok, sem er ágætt svo langt sem það nær. ASÍ og VSÍ hafa því miður ekki gætt þess sem skyldi að gæta hagsmuna sinna umbjóðenda gagn- vart ríkinu að þessu leyti. Það nær auðvitað engri átt að láta ríkið kom- ast upp með það að brjóta svona freklega rétt eftirlaunafólks með því bæði að tekjutengja hinn svokallaða grunnlífeyri svo og að hann skuli vera kominn niður undir 7% af laun- um. Ítrekað hefur verið rætt um hvað hinar óhóflegu tekjutengingar hér á landi eru atvinnuletjandi og við- halda í raun ákveðinni fátækt- argildru. Farsælla væri að hafa kerfið þannig að eftirlaunaþegar gætu bætt kjör sín með atvinnu- tekjum, sem þeir að sjálfsögðu greiddu venjulegan tekjuskatt af, en hefðu ekki nein áhrif á grunnlífeyri og greiðslur frá Tryggingastofnun. Af þessum atvinnutekjum er svo greiddur almennur tekjuskattur. Ef vilji og vit er fyrir hendi gætu ráðamenn lagað þetta á stundinni þar sem þetta kostar ríkissjóð nán- ast ekkert. Lagfæring á grunnlífeyri öllum ellilífeyrisþegum til handa er algjört forgangsmál. Þar er aðeins um að ræða leiðréttingu frá því að grunn- lífeyrir var tekinn úr sjálfvirku sam- bandi við launaþróun í landinu. Jafnhliða á að stefna að því að af- nema tekjutengingar með öllu, þar sem þær eru óréttlátar og þjóna ekki tilgangi sínum varðandi tekju- jöfnun. Það væri mikið nær að beita skattþrepum í því skyni. Það er aðeins lágmarks krafa að eldri borgarar fái að njóta elliár- anna við fjárhagslegt og umönn- unarlegt öryggi. Grunnlífeyrir – órjúfanlegur hluti af eftirlaunum Helgi K. Hjálmsson skrifar um kjaramál eldri borgara ’Ellilífeyrir eru laun semlögð hafa verið til hliðar til endurgreiðslu við starfslok.‘ Helgi K. Hjálmarsson Höfundur er viðskiptafræðingur og varaformaður LEB. ÞAÐ hefur komið mörgum mæðr- um á óvart hvað það er mikið mál að eignast barn. Þetta er mikil breyting og á að vera svona, náttúran stjórnar þessu ef hún fær frið til þess. Þegar kemur að því að of stuttu fæðing- arorlofi móður lýkur, þá á brjóstagjöfin að vera komin í jafnvægi, og barnið á ekki að vera farið að fá aðra nær- ingu. Margar ungar mæður fyllast kvíða þegar kemur að þess- um óumflýjanlega að- skilnaði, fara jafnvel að undirbúa hann alltof snemma og vegna van- þekkingar á meltinag- arstarfsemi lítils barns fara þær að gefa tilbúna fæðu, þurrmjólk, stoð- mjólk, krukkumat og pakkagrauta. Þetta er allt tilbúið óþarfa fæði, notið þið skynsemina þið hafið þetta allt bara miklu næringarríkara og holl- ara. Þegar skellur á sá tími þegar hverfa þarf aftur til vinnu þarf út- sjónarsemi og um fram allt að skýra út fyrir vinnuveitanda að þið hyggist hafa barnið áfram á brjósti. Hvað þýðir það fyrir vinnuveitandann, jú, brjóstabörn verða síður veik þið ætlið að vera minna frá vinnu vegna veik- inda barns. Þetta þýðir ekki að þið eigið að vinna minna en aðrir starfs- félagar ykkar, þið hafið sömu vinnu- skyldu og þeir. Sumar mæður kjósa að lengja vinnudaginn og taka lengri vinnuhlé og skreppa til dagmóður og gefa brjóst. Aðrar nota vinnuhlé til þess að mjólka sig og senda mjólkina með barninu í pössun. Sumar vinna tímabundið hálfan vinnudag og enn aðrar kjósa að vera heima. Fyrir stuttu heyrði ég sögur af einum góð- um pabba sem fór í bíltúr með litla barnið til mömmu í skólann, og allir voru sælir og ánægðir. Hvers vegna er mikilvægt að halda brjóstagjöf áfram? Af hverju sleppir henni ekki eins og sagt var í gamla daga um 6 mánaða aldur? Það er vegna þess að við vitum nú meira en áður og erum einnig farin að sjá af- leiðingar rangrar fæðuinntöku barna, til dæmis offitu, skerta starfsemi ónæmis- og ofnæmiskerfis. Brjóstabarnið stillir sjálft af það magn sem það drekkur í hvert sinn, er stundum svangt, og vill stundum bara lítið, sitt á hvað litl- ar og stórar máltíðir eftir því hver lystin er. Þetta er talið tengjast því að börn sem fá þurr- mjólk þyngjast hraðar en þau stjórna ekki því magni sem þau drekka, þeim er skammtað. Einnig er þurrmjólk unnin úr kúamjólk og kálfi er ætlað að þyngj- ast, en brjóstamjólk barna er ætlað að þroska heila og taugakerfi, ásamt því að verja barnið og þyngja það rólega. Margar dýrategundir hafa mjög tak- markaða getu til að mynda sjálf sitt immunoglobulin (IgA mótefni) við fæðingu og verða því að stóla á að fá vernd með móðurmjólkinni sem gef- ur IgA. Mannanna mjólk er mjög rík af IgA. Móðirin hefur tvö ónæm- iskerfi, eitt fyrir sig og annað fyrir barnið. Þegar móðir kemst í snert- ingu við veirur og bakteríur fer lík- ami hennar að mynda mótefni sér- hæft til að ráðast á tilteknar veirur og bakteríur hvort sem þær hafa gert sig heimakomnar í öndunar- eða meltingarvegi hennar. Móðirin býr til mótefni sérstaklega gegn þessum bakteríum og veirum og gefur barninu með brjóstamjólkinni. Jafn- vel hefur verið sýnt með rannsóknum vernd gegn kúamjólkurpróteinum og verndun fyrir ofnæmi. Á barnmörgum heimilum inniheld- ur móðurmjólkin hærri styrk IgA en þar sem börn eru fá. Líkami móð- urinnar stillir sig af við hvaða að- stæður barnið er, náttúran hefur fyr- ir löngu gert sér grein fyrir samnefnaranum, mörg börn = meiri hætta á sýkingum. Þegar barn fer að skoða heiminn um 1 árs aldur hitta fleiri og hafa samskipti við önnur börn, fær barnið með móðurmjólk- inni auka bólusetningu. Þess vegna er svo mikilvægt að mæður verji börn sín með því ótrúlega tæki sem þær hafa sem brjóstamjólkin er. Sýnt hef- ur verið fram á langtíma áhrif brjóstagjafar á 7 ára börn sem fá ein- göngu brjóstamjólk í sex mánuði. Þau fá helmingi færri öndunarfærissýk- ingar en börn sem fengu brjósta- mjólk ásamt ábótargjöf það munar bara einu prósentustigi að ábótar börnin falli í hópinn börn alin á þurr- mjólk án allrar varnar. Til hvers að skemma svona mikið með ábótargjöf þegar hægt er að mjólka sig, fá að- stoð og leiðbeiningar, þegar upp er staðið eru þetta bara 6 mánuðir. Fæði fyrir brjóstabarn eftir sex mánaða aldur eru ávextir, grænmeti og kjöt, matur sem er til á öllum heimilum það er ekkert mál að skafa, stappa, mauka eða brytja enda grunnur að heilbrigðum og hollum mat. Það þarf ekki mikla fjölbreytni til að byrja með, barnið á hægt og rólega að kynnast nýjum mat, þar sem brjósta- mjólkin er breytileg frá degi til dags. Brjóstamjólkin uppfyllir alla þörf fyr- ir mjólkurmat. Fátt er eins yndislegt og afslappandi og að gefa brjóst eftir langan vinnudag og vinna upp að- skilnaðinn yfir daginn. Brjóstabörn sofna við brjóstið á kvöldin því eru svæfingar lítið mál einnig sefur fjöl- skyldan saman svo mamma verði sem minnst vör við gjafirnar á nóttunni og öllum líður vel og vakna úthvíldir að morgni. Móðirin fær tækifæri til að strjúka, klappa og láta hjartað ráða för og um fram allt að elska barnið sitt og barnið lærir að treysta mömmu. Brjóstagjöf og útivinnandi mæður Arnheiður Sigurðardóttir skrifar um forvarnargildi brjóstamjólkur ’Þess vegna er svo mik-ilvægt að mæður verji börn sín með því ótrúlega tæki sem þær hafa sem brjóstamjólkin er.‘ Arnheiður Sigurðardóttir Höfundur er hjúkrunarfræðingur. Fréttir í tölvupósti

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.